Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1987, Page 33
MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 1987.
45
Sviðsljós
Cicciolina brjóstum umkringd þann 2. júli sl. er hún mætti til að taka sæti á italska þinginu. Ramba t.v. og Pozzi t.h. kenndu í brjósti um Cicciolinu og
mættU henni til StuðníngS. Simamynd Reuter
Hinn nýkjömi ítalski þingmaður Ilona Staller, betur þekkt sem pornó- sínum ekki vonbrigðum mætti hún með tvær topplausar vinkonur sínar sem
drottningin Cicciolina, gerði ekki alvöru úr ummælum sínum þess efnis að eflausthafakenntíbrjóstiumhanaenda var Cicciolina hálf-brjóstumkennan-
hún myndi mæta topplaus á ítalska þingið. Til þess að valda aðdáendum leg svona mikið klædd í góða veðrinu.
Diana
er kampakát
Diana prinsessa hefur greinilega ekki áhyggjur af aldrinum og hlær bara
kampakát á 26. afmælisdaginn sinn sem var þann 1. júli sl. Prinsessan hélt
ekkert sérstaklega upp á daginn en brá sér á tennisleik þeirra Ivan Lendl
og Henri Leconte í 8 manna úrslitunum á heimsmeistaramótinu á Wimbledon-
leikvanginum. Simamynd Reuter
Simamynd Reuter
Mjallhvít fimmtug
Hin sígilda mynd Walt Disney, Mjallhvít og dvergarnir sjö, á stórafmæli
um þessar mundir. Það eru heil 50 ár liðin frá því að Disney hristi þessa
hugljúfu sögu um góðu Mjallhvit, vondu drottninguna, eplið og hugrakka
prinsinn fram úr erminni. Á myndinni sést Meghan Zavry, 4ra ára, faðma
að sér sögupersónurnar Mjallhvíti og Dopey. Meghan býr á heimili fyrir
börn með krabbamein og aðra alvarlega sjúkdóma en Mjallhvít og félagar
kíktu í heimsókn í tilefni afmælis síns.
Hjónaband í kafi
Þau hafa hugmvndaflugið í lagi skötuhjúin sem giftu sig niðri í sundlaug
sl. mánudag. Þau Kathy Bouckaert og Christian Denys hittúst í köfunar-
klúbbi í heimabæ sínum í Frakklandi og því þótti þeim við hæfi að láta
pússa sig saman í kafi. Það var bæjarstjórinn á staðnum sem framkvæmdi
athöfnina og virðist hann ekki kippa sér upp við hinar óvenjulegu aðstæð-
ur. Brúðurinn er. eins og sannri brúði sæmir. klædd í hvítan brúðarkjól með
slör en rninna fer fyrir klæðnaði brúðgumans. Kannski vill bara svo óheppi-
lega til að smókingfötin hans eru ein af þeim sem verður að þurrhreinsa og
mega þvi ekki blotna.
Simamynd Reuter
Ólyginn
sagði...
Eddie Murphy
á í erjum við Nicolle Rader, 19
ára stúlku, sem segir Eddie vera
faðir stúlkubarns hennar sem
fæddist þann 15 mars sl. Eddie
hefur neitað statt og stöðugt að
vera faðir litlu stúlkunnar og sér
Nicolle ekki annan kost en að leita
til dómstóla með málið. Hún seg-
ist áður hafa gengið í gegnum
fóstueyðingu að beiðni Eddie.
„En ég vildi eiga þetta barn og
hann verður að gjöra svo vel að
sjá fyrir dóttur sinni." Það er hætt
við að þetta mál setji strik í reikn-
inginn hjá Eddie sem núna er á
föstu með Lisu Presley. Priscilla
móðir hennar er vís meö að grípa
tækifærið til að stía þeim skötu-
hjúum í sundur en hún er vist
ekki alltof hrifin af pilti.
Charlie Sheen
leikari, sonur leikarans Martins
Sheen, gerði sér litið fyrir um dag-
inn og labbaði inn á fínan veit-
ingastað í Hollívúd með eitt stykki
kyrkislöngu um hálsinn. Hann var
einfaldlega að bjóða nýja gælu-
dýrinu sínu út að borða. Gestir
staðarins héldu til að byrja með
að Charlie væri með risabindi um
hálsinn en þegar bindið tók að
hreyfa sig greip ofsahræðsla gest-
ina sem margir hverjir þustu á
dyr. Eigendur staðarins sáu sér
ekki annað fært en að kasta ungu
kvikmyndastjörnunni og slímuga
vininum út í kuldann. Ekkert má
maður nú!
Whitney
Houston,
súkkulaðigella og draumadís allra
sveina, veifar nú baugfingri af
ákafa. Það er kannski ekki að
ástæðulausu því á fingrinum trón-
ir nú veglegur demantshringur
sem kostaði litlar 140 þús. kr.
Hinn 44 ára gamli umboðsmaður
hennar, Gene Harvey, á heiðurinn
af gjöfinni og velta menn nú ák-
aft fyrir sér hvort líta ber á hringinn
sem merki um að eitthvað meira
sé í uppsiglingu þeirra i millum,
jafnvel trúlofun, eða hvort um-
boðsmanninum finnst einfaldlega
svona sælt að gefa.