Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1987, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987.
7
Fréttir
Tjaldsvæðin ekki
fyrir Reykvíkinga
„Tjaldsvæðið í Laugardal er ekki
fyrir Reykvíkinga heldur ferðamenn,
þetta er nákvæmiega sama regla og
gildir á hótelunum,“ sagði Pétur
Hannesson, deildarstjóri hjá gatna-
málastjóra.
segja boigaiyfiivöld
Manni, sem var húsnæðislaus um
miðjan júnimánuð, datt í hug að
tjalda ásamt eiginkonu sinni og 6
ára syni þeirra og dveljast á tjald-
svæðinu í Laugardal uns hann
Þessi fengu
augardalnum, enda eriendir ferðamenn
hann hafði greitt fyrir tjaldstæðið
var honum meinaður aðgangur er
tjaldvörðurinn varð þess áskynja að
hann ætti lögheimili í Reykjavík.
Pétur sagði að hann þekkti ekkert
til þessa manns og hefði því ekkert
út á hann að setja. Hins vegar hefði
oftast vcrið um vandræðafólk að
ræða sem tjaldaði svona innan eigin
héraðs. „Ég veit hvergi til þess að
mönnum sé heimiluð gisting innan
síns sveitarfélags, hvorki á tjald-
stæðum né hótelum. Um leið og
fordæmi eru geftn þá er erfitt að
neita öðrum um,“ sagði Pétur.
Pétur Hannesson sagði að tjald-
svæði væru ekki hugsuð fyrir
húsnæðislausa en sjálfsagt hefði
mátt ræða gistingu í einhvem tak-
markaðan tíma ef sótt hefði verið
um tíi viðkomandi'yfirvalda.
-JFJ
ÁTVR:
Opnunartími
óbreyttur
Áfengisverslun ríkisins mun ekki
hafa verslun sína í Kringlunni opna
lengur en venja er til um áfengis-
búðir. Aðrir verslunareigendur í
Kringlunni hafa boðað lengri opnun-
artíma en samkvæmt upplýsingum
sem DV fékk hjá Svövu Bernhöft, inn-
kaupastjóra ÁTVR, em ekki fyrir-
hugaðar breytíngar á opnunartíma
nýju verslunarinnar í Kringlunni.
Ibúar í nokkrum kaupstöðum á
landinu hafa óskað eftír að opnaðar
verði áfengisverslanir í þeirra heima-
byggð án þess að umsóknir þar um
hafi verið samþykktar. Jón Baldvin
Hannibalsson fjármálaráðherra sagði
að ekkert slíkt erindi hefði borist til
sín frá því hann tók við embætti. Jón
Baldvin sagði að hann gerði ráð fyrir
að erindi um opnun áfengisverslunar
yrði vandlega skoðað innan ramma
framkvæmdaáætlana ÁTVR. „Ef það
em hér í ráðuneytinu eldri erindi frá
einhveijum aðilum þá er mér ekki
kunnugt um það,“ sagði ráðherra.
-sme
Viðtalið___________________________________________________
„Langar helst að ferðast til Perú“
- segir Fanney Gísladóttir, framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Ratvís
„Reyndar er ég menntaður hár-
greiðslumeistari en ferðabransinn
hefur alltaf heillað enda er líf og fjör
í þessu starfi þar sem áhersla er lögð
á mannleg samskipti,“ segir Fanney
Gísladóttir, framkvæmdastjóri nýrr-
ar ferðaskrifstofu sem opnaði í
Hamraborginni í Kópavoginum í
síðasta mánuði. Ber ferðaskrifstofan
nafnið Ratvís og er Stefhir Helgason
einn hvatamaður að stofnun hennar
og hluthafi. Fanney er auk fram-
kvæmdastjórastarfsins einn sex
hluthafa í ferðaskrifstofunni.
Áður en Fanney hóf störf hjá Rat-
vís starfaði hún í fjögur ár hjá
Ferðamiðstöðinni í Reykjavík við
sölu á einstaklingsferðum. Áður
hafði hún starfað um nokkurt skeið
við skrifstofustörf hjá Timburversl-
uninni Völundi í Skeifunni og einnig
var hún gjaldkeri hjá Agli Vil-
hjálmssyni og Fiat umboðinu.
„Ég er fæddur Reykvíkingur en
hef víða komið við um ævina,“ segir
Fanney sem er 34 ára gömul. „Til
tveggja ára aldurs bjó ég á Hamra-
endum á Mýrum, tíl níu ára aldurs
í Bolungarvík og loks í Keflavík um
nokkurt skeið. Síðan hef ég mest-
megnis búið á Reykjavíkursvæðinu,
fyrir utan að ég bjó í Karlsruhe í
Þýskalandi á árunum 1977-79. Ég
kann best við mig i Reykjavík, er
hálfgert borgarbam."
Það kemur ekki á óvart að helsta
áhugamál Fanneyjar eru ferðalög.
„Það tilheyrir þessu starfi t.d. að
ferðast mikið um Evrópu. Ég hef þó
einna mest áhuga á fjarlægari lönd-
Fanney Gisladóttir, framkvæmda-
stjóri ferðaskrifstofunnar Ratvis i
Kópavoginum.
um, S-Ameríka finnst mér t.d.
stórkostleg en ég hef einu sinni kom-
ið til Brasilíu. Draumurinn er að
komast einhvem tímann tíl Perú,
menning þessara þjóða finnst mér
áhugaverð."
Fanney segir að markmið Ratvís
sé einmitt að bjóða upp á ferðir til
fjarlægra landa og nú sé verið að
skipuleggja hópferðir til ísrael, Ind-
lands og Indónesíu. „Við munum
ekki leggja sérstaka áherslu á sólar-
landaferðir eða leita á hefðbundin
mið í ferðum. Við teljum að það sé
markaður fyrir þessa ferðaskrifstofu.
Þótt sumarvertíðin hafi að méstu
verið yfirstaðin þegar skrifstofan
opnaði hefur hún fengið góðar við-
tökur,“sagði Fanney að lokum.
-BTH
VARAHLUTIR
I AMC JEEP.
VORUM AÐ FÁ M.A.
FELGUBOLTA
FJAÐRAFÓÐRINGAR CJ5
GÍRKASSAPÚÐA
GLUGGASTYKKI CJ7
HJOLLEGUR
HLIÐARLJOS
HRAÐAMÆLA CJ + 7
MÓTORPÚÐA
PAKKDÓSIR
ROCKERARMA
ROCKERARMABAULUR
VATNSLÁSAHÚS
ÞURRKUMÓTARA í WAG.
OG FLEIRA
Spicer
B 3 7 2 7 3
Vinsælu bíltækin
á Islandi
1 ■■ Kl | i
> 1 ALLA BÍLA
Einstök tæki
Einstakt verð
Verð
aðeins
kr.
9.580,-
TPNINÖ
OTf/VOl-PUSHDtSfLAY
MAX DOWN
t/M/F SI/MO FMO
ÐALANCE
INT6RffRENCf ABSORPTION CIRCUIT
AUDIOLINE
AUTO-SCAN/SEEK • 18 MEMORY
PUSHSttK
PUSHSCAM
Aðrir útsölustaðir:
öll kaupfélög og
stærri verslanir i
landinu auk Esso
oliustöðvanna.
LW - MW - FM stereo - sjálfvirk stöðvaleitun og minni á 18 stöðvar. Digital klukka - næturlýs-
ing - hraðspólun áfram á kassettu o.fl. o.fl.
SJONVARPSMIÐSTÖÐIN HF.,
Síðumúla 2, sími 39090 - 689090
12 Watt