Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1987, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1987, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987. Flóttamannastraumurinn eykst á nýjan leik Straumur flóttamanna frá Víetnam hefur á þessu ári aukist að nýju, eftir að hafa dregist saman jafht og þétt undanfarin ár. Aukningar hefur eink- um orðið vart í Hong Kong, en þangað sækja Víetnamar mikið, og telja stjómvöld í þessari bresku nýlendu að þau geti ekki lengi Ieyst vanda þessa fólks án utanaðkomandi aðstoðar. Opið og lokað Ástæður þessa aukna straums flótta- manna til Hong Kong eru taldar tvíþættar. 1 fyrsta lagi hafa yfirvöld í Víetnam slakað á klónni gagnvart þeim sem óska að yfirgefa landið og láta sig ferðir þeirra litlu skipta. í öðru lagi hefur straumur löglegra inn- flytjenda frá-Víetnam til Bandaríkj- anna stöðvast að mestu. Ríkisstjóm Víetnam krefst þess að mál þeirra sem em á biðlista til innflutnings til Bandaríkjanna verði afgreidd áður en nýjar umsóknir verði teknar. Talið er að margir þeir sem ella hefðu valið þessa löglegu leið gerist nú flóttamenn á ólöglegan máta. Nær 700.000 Frá því Víetnamstyrjöldinni lauk, árið 1975, hafa um 680 þúsund Víet- namar flúið úr heimalandi sínu og komist til annarra landa, ýmist gang- andi eða á sjó. Talið er að mikill fjöldi hafi látið lífið á leiðinni, en engar áreiðanlegar tölur em til yfir það fólk. Af þessum fjölda hefur um 645 þús- und verið veitt landvistarheimild í þriðja landi. Bandaríkjamenn hafa tekið við 346.153 víetnömskum flótta- mönnum, auk um hundrað og þijátíu þúsund Víetnama sem fluttust til Bandaríkjanna þegar í styrjaldarlok. Ríki Vestur-Evrópu hafa veitt liðlega 108 þúsund flóttamönnum landvist, áttatiu og sex þúsund hafa farið til Ástralíu, áttatíu og þrjú þúsund til Kanada, Japanir hafa tekið við 3.700 og önnur ríki nær fimmtán þúsund flóttamönnum til samans. Undanfarin ár hefur borið mikið á því sem stundum er nefrid „samúðar- þreyta". Lýsir það ástand sér í því að ríki verða sífellt tregari til að taka við flóttamönnum frá Víetnam, einkum þeim sem talið er að flýi í leit að betri lífskjörum, það er fólki sem ekki er talið hafa verið í hættu í heimalandi sínu. Flóttamenn dvelja því sífellt lengur í flóttamannabúðum, þar sem þá rekur á fjörur, og æ erfiðara verður að levsa vandamál þeirra og þau sem þeir skapa. 35 þúsund bíða Alls biða nú um þijátíu og fimm þúsundir Víetnama í flóttamannabúð- um eftir að fá umfjöllun sinna mála. Liðlega ellefu þúsund þeirra eru í búðum í Thailandi. Rúmlega átta þús- und eru í Malasíu, þijú þúsund og fimm hundruð á Filippseyjum, hátt á þriðja þúsund í Indónesíu og fáein hundruð í Japan, Makao, Singapore og Suður-Kóreu. í Hong Kong voru í ársbyrjun nær átta þúsund víetnamskir flóttamenn. Undanfamar vikur hafa hins vegar komið þangað um 2300 flóttamenn til viðbótar, þannig að heildarfjöldi Víet- namanna er nú vel yfir níu þúsund þar. Alls hafa um hundrað og áttatíu þúsund víetnamskir flóttamenn farið um Hong Kong á leið sinni til nýs lífs. Greiðlega gekk lengst af að koma fólki þessu áfram til þriðja lands, en á þessu ári hefur hvorki gengið né rekið í þeim efnum. Stjómvöld í Hong Kong telja sig illa svikin af þeim ríkjum sem gefið höfðu vilyrði um landvistarheimildir, eink- um er þeim í nöp við Breta vegna stefhubreytingar þeirra í málinu. Bretar eru ábyrgir fyrir utanríkis- stefnu Hong Kong. Þrátt fyrir það hafa þeir gefið mjög neikvætt fordæmi í flóttamannamálum með því að helm- inga þann Qölda sem þeir veita sjálfir landvistarleyfi. Á þessu ári taka Bret- ar aðeins 468 víetnamska flóttamenn frá Hong Kong og ætluðu sér þó minna en það í upphafi. Stjómvöldum í Hong Kong ofbýður að þurfa sjálf að standa straum af kostnaði vegna flóttamannanna, en talið er að sá kostnaður nemi um 153 milljónum dollara. í ár er talið að rekstur flóttamannabúða í Hong Kong kosti um fimmtán milljónir dollara. Fáirtilbaka Bretar hafa samið við Kínveija um að Hong Kong taki ekki við nema 75 innflytjendum frá Kína á ári. Þeir sem koma ólöglega inn í nýlenduna verða að snúa við til síns heima, jafnvel þótt þeir séu nákomnir ættingjar Kín- veija sem þegar búa í Hong Kong. Mörgum íbúum Hong Kong þykir rétt að veita Víetnömum svipaðar móttökur. Bretar hafa hins vegar tek- ið þá afstöðu að neyða Víetnama ekki til heimferðar. Undanfarin tólf ár hafa því aðeins fjórtán þeirra snúið við. Stjómvöld í Víetnam hafa enda ekki gert flóttamönnum auðvelt um vik með að snúa heim. Hafa þau lýst því yfir að ekki verði tekið vel við þeim sem snúa til baka, nema því aðeins að til komi aðstoð frá vestrænum þjóð- um, bæði viðskiptaleg og tæknileg. Ljóst er því að flóttamennimir munu halda áfram að hópast til Hong Kong. Stjóm nýlendunnar virðist ekki viss um hvemig meðhöndla skuli vanda þann sem fylgir þeim, en komið hefur til tals að breyta flóttamannabúðun- um, sem em opnar, í lokaðar búðir, sem líkist meir fangelsi. Hvað sem öðm líður er ljóst að taka verður að nýju í notkun búðir sem á síðasta ári var lokað, þar sem flótta- mönnum virtist þá vera að fækka til muna. Atlantshafsbandalagið leitar nýs framkvæmdastjóra Leit er hafin að nýjum fi'amkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Carrington lávarð- ur, núverandi framkvæmdastjóri bandalagsins, er orðinn sextiu og átta ára gamall og hann heldur fast við þá ákvörðun sína að láta af embætti í júní á næsta ári eftir fjögurra ára tímabil. Nýr framkvæmdastjóri getur átt von á að þurfa að stýra erfiðum umræðum um framtíð- arhemaðaráætlanir ef svo fer, eins og búist er við, að Bandaríkin og Sovétríkin imdirriti samkomulag um meðaldræg kjamavopn í lok þessa árs. Atlantshafsbandalagið er hlynnt samkomu- lagi um að Bandaríkin fjarlægi meðaldræg og skammdræg kjamavopn frá Evrópu með þvi skilyrði að Sovétríkin geri slíkt hið sama. Unnið er nú að því að styrkja önnur kerfi til þess að bæta upp það sem hverfúr og þykir bandalagið þar af leiðandi hafa þörf fyrir nýja og sterka foiystu. Aukinn styrkur stjómarinnar í Kreml, undir forystu Gorbatsjovs, og aukin spenna milli Bandaríkjanna og bandamanna þeirra í Evr- ópu em einnig viðfangsefni sem leysa þarf. Giskað á eftirmann Það em engin ákvæði sem segja hversu langt kjörtímabil framkvæmdastjóra Atlantshafs- Carrington lávarður hefur notið mikilla vin- sælda sem framkvæmdastjóri Attantshafs- bandalagsins sem nú er fariö að leita að eftirmanni hans. bandalagsins er en Carrington bað um að fá að gegna embættinu í fjögur ár til að byrja með. Og þó að ekki hafi verið tilkynnt opin- berlega að hann hyggist láta af störfum er þegar farið að giska á hver verði eftirmaður hans. Þeir sem nefndir hafa verið em Manfred Wömer, vamarmálaráðherra Vestur-Þýska- lands, og Leo Tindemans, utanríkisráðherra Belgíu. Káre Willoch, fyrrum forsætisráðherra Noregs, nýtur stuðnings stjómarinnar í Nor- egi að því er heimildarmenn innan Atlants- hafsbandalagsins segja. Vinsæll framkvæmdastjóri Carrington, sem verið hefur vamar- og utan- ríkismálaráðheira Breta, hefur notið mikilla vinsælda flestra aðildarríkjanna og þá sérstak- lega Bandaríkjanna. Er hann sagður hafa brúað bilið yfir Atlantshafið milli Evrópu og Banda- ríkjanna og beitt öllum hæfileikum sínum til þess að bæta sambandið og koma á sáttum á fundum Atlantshafsbandalagsins. „Hann veit hvenær hann á að draga sig í hlé á fúndum og láta fulltrúa bandalagsríkjanna ræða málin. Hann veit líka hvenær hann á að grípa fram í, á gamansaman hátt, og þoka þeim í átt að sam- komulagi," segir embættismaður nokkur um framkvæmdastjórann. Manfred Wömer, vamarmálaráðherra Vest- ur-Þýskalands, er sagöur hafa áhuga á stöðu framkvæmdastjóra AUantshafsbandalagsins. Eldri stjórnmálamaður Framkvæmdastjórastarfinu gegnir venju- lega einhver eldri stjómmálamaður frá ein- hverju aðildarríkjanna sem getið hefúr sér góðan orðstír innan stjómar lands síns og sem hefur unnið fyrir málstað bandalagsins. Það eru þó ekki öll aðildarríkin sem koma til greina. Bandaríkin em úr leik þar sem það- an kemur alltaf æðsti yfirmaður herafla Atlantshafsbandalagsins í Evrópu. Frakkland og Spánn koma heldur ekki til greina þar sem herir þeirra em ekki með í herafla bandalags- ins. Og deila Grikkja og Tyrkja veldur því að varla mun verða samþykkt að framkvæmda- stjórinn komi frá löndum þeirra. Vangaveltur Wömer yrði fyrsti Vestur-Þjóðveijinn til að gegna embættinu og heimildarmenn innan stjómarinnar í Bonn segja að hann hafi áhuga á því. Það sem vinnur gegn honum er hins vegar andstaða hans í byrjun gegn því að einn- ig yrði samið um eyðingu skammdrægra kjamavopna í Evrópu, að því er embættismenn segja. Tindemans, sem einnig hefur gegnt embætti forsætisráðherra, hefur dyggilega stutt Atl- antshafsbandalagið og oft tekið þá áhættu Leo Tindemans, utanríkisráðherra Belgíu, kem- ur til greina sem eftirmaður Carríngtons þó svo að harm hafi ekki látið í Ijós ósk um að hljóta embættið. heima fyrir að taka málefni þess fram yfir inn- anríkismál. Hann er þó aldrei sagður hafa látið í ljós ósk um að hljóta embættið. Embættis- menn Atlantshafebandalagsins segja hann samt koma sterklega til greina. Sömu embætt- ismenn segja að sterkur vafi leiki hins vegar á því hvort hann hafi til að bera þann styrk- leika sem með þurfi. Einnig eru vangaveltur um hæfni Willochs þó að hann hafi verið talinn traustur banda- maður Bandaríkjastjómar þegar hann var við völd í byrjun áratugarins. Ómögulegt verkefni Sumir stjómarerindrekar gefa í skyn að telja megi Carrington á að gegna embættinu áfram. En þeir sem þekkja hann segja hann hafa mikinn hug á að hætta í júní á næsta ári. Haft er eftir honum að nýr maður á toppnum geti orðið Atlantshafebandalaginu til góðs. Honum er einnig sagt leiðast það nánast ómögulega verkefni að þurfa að tala opin- berlega og á áhrifamikinn hátt um mikilvæg málefiii Nató án þess að mega móðga neitt bandalagsríkjanna. Káre Willoch, fyrrum forsætisráöherra Nor- egs, er meðal þeirra sem nefndir hafa verið sem líklegir eftirmenn Carringtons lávaröar. Umsjón: Ingibjörg Bára Sveinsdóttir og Halldór Valdimarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.