Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1987, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1987.
Fréttir
Busavígsla í Breiöholti fór fram með miklum atgangi. Busunum var dýft á höfuðið niður í ker sem var fullt
af rauðleitu sulli. DV-myndir Brynjar Gauti
Framhaldsskólamir:
Nýir nemendur fá
misgóðar viðtökur
Busavígslur, tolleringar eða
hvaða nafoi sem þær móttökur nefn-
ast er nemendur 1. bekkjar fá er
þeir mæta fyrsta sinni i framhalds-
skóla eru með mjög mismunandi
móti. Það eru saklausar tolleringar,
skemmtilegar gönguferðir en líka
allt upp í það vera sóðalegar athafii-
ir og jafiivel að þær hafi í för með
sér lfkamsmeiðingar.
Busavígsla við Fjölbrautaskólann
í Breiðholti vakti athygli fyrir það
að þeir sem að vígslunni stóðu böð-
uðu þá sem ekki vildu vera busar
um ókomna framtíð upp úr þynntu
hvalablóði, að þeir sjálfir segja.
Harkalegar athafiiir voru einnig við
svipaða athöfn við Menntaskólann
við Sund. Aðrir skólar hafa vakið
eftirtekt fyrir skemmtilegri og hlý-
legri móttökur. I Fjölbrautaskólan-
um við Armúla var nemendum boðið
í gönguferð á Esju og grillveislu.
Nemendur í Menntaskólanum í
Reykjavík halda uppi þeim gamla
sið að vera með tolleringar, græsku-
laust gaman. -sme
Fjölbraut, Ármúla:
„Allir óhressir með offoeldið“
„Við breyttum út af venjunni og
gengum á Esju. Þegar við komum
niður var grillveisla við Mógilsá.
Þar voru grillaðar pylsur, drukkið
gos, spilað á hljóðfæri og sungið.
Veðrið var einstaklega gott, átján
stiga hiti og sólskin. Það voru allir
mjög ánægðir," sagði Hafsteinn Stef-
segir skólameistarinn
ánsson, skólameistari Fjölbrauta-
skólans við Ármúla.
„Það voru allir óhressir með of-
beldið, líka meirihluti nemenda. Það
var alltaf ákveðinn hópur nemenda
sem fékk útrás við þetta en ég vænti
þess að þeir hafi fengið útrás við
fjallgönguna. Ég var að minnsta
kosti með harðsperrur í þrjá daga.
Við vorum heppin með veður og
útsýnið af Esjunni var stórkostlegt.
Það er hluti af starfi skólanna að
auka víðsýni nemenda og það varð
úr í þessari vel heppnuðu ferð okk-
ar,“ sagði Hafsteinn.
-sme
Konrektor MS:
„Hefur verið rætt
í skólastjóminni"
„Við erum lítið hrifin af þessu og
höfum komið með tillögu til náms-
manna um að koma þessu á menn-
ingarlegra stig. Þetta hefúr verið
rætt í skólastjóm. Það eru allir
kennaramir óánægðir með þetta,“
sagði Peter Rasmussen, kom-ektor
við Menntaskólann við Sund.
Hann sagði að við busavígsluna
nú hefðu krakkamir orðið æstir
vegna sjónvarpsmyndatökuvéla sem
vom við vígsluna. Hann sagði að
alltaf væm nokkrir nemendur 1.
bekkjar hrifnir af þessu og að þeir
sem ekki vildu taka þátt gætu hald-
ið sig frá skólanum þennan dag.
-sme
Tollering
DV-mynd BG
Menntaskólinn í Reykjavík:
„Með sama lagi
lengur en elstu
menn rnuna"
- segir Guðni Guðmundsson rektor
„Busavígsla heitir það ekki hér
heldur tollering sem er bein þýðing
úr latínu og þýðir að kasta upp í
loft. Það hefur verið með sama lag-
inu hér í elsta skóla landsins lengur
en elstu menn muna og töluvert
lengur en það,“ sagði Guðni Guð-
mundsson, rektor í MR.
Þegar Guðni var spurður hvað
honum þætti um busavígslur í sum-
um framhaldsskólum, sagði hann:
„Mér finnst þetta hreint ógeð. Það
hefur verið reynt að berjast gegn
þessari múgsefjun, ég vona að Eyj-
ólfúr sé að hressast, þó veit ég ekki
hvort svo er,“ sagði Guðni að lokum.
-sme
í dag mælir Dagfaxi______________________
Vondir íslendingar og góðir
Fróðleg ritdeila fer fram þessa
dagana milli Morgunblaðsins og
Tímans um það hverjir séu góðir
íslendingar og vondir íslendingar.
Morgunblaðið hefúr vinninginn eins
og er því Morgunblaðið er stundum
lesið af almenningi en Tíminn er
aðeins lesinn af ritstjórum Morgun-
blaðsins.
Deilan er sprottin af hvalveiðideil-
unni við Bandaríkjamenn. Morgun-
blaðið heldur því fram að afskipti
stjómmálamanna á borð við Stein-
grím Hermannsson og Halldór
Ásgrímsson hafi verið óþörf. Digur-
mæli Steingríms voru út í loftið. Það
lá fyrir frá upphafi að diplómatar í
utanríkisráðuneytinu gátu leyst
þessa deilu og Bandaríkjamenn voru
löngu búnir að ákveða að vera góðir
við Islendinga og fallast á viðunandi
lausn, áður en íslendingar fóru að
rífa kjaft án þess að hafa vit á því
sem þeir töluðu um. Morgunblaðinu
finnst þeir vera vondir Islendingar
sem eru að blanda vamarliðinu inn
í deilu um hvali, en góðir íslending-
ar sem leystu hvaladeiluna á hak við
tjöldin.
Þeim á Tímanum finnst aftur á
móti að þeir séu góðir íslendingar
sem steyta hnefann framan í erlend-
ar þjóðir þegar þær gegna ekki því
sem við viljum. Tíminn segir þá
vonda íslendinga sem eru sífellt með
undirgefhi gagnvart Bandaríkja-
mönnum. Fyrrverandi formaður
Sjálfstæðisflokksins tók þetta með
undirgefhina strax til sín og skrifaði
opið bréf til Tímans og spurði hvort
Tíminn ætti við sig þegar blaðið tal-
aði um vonda íslendinga. Fyrrver-
andi ritstjóri Tímans er eini
framsóknarmaðurinn sem Morgun-
blaðið tekur mark á af því að blaðinu
finnst hann alltaf hafa rangt fyrir
sér. Þessi gamli ritstjóri dustaði ryk-
ið af pennanum sínum og svaraði
fyrrverandi formanni Sjálfstæðis-
flokksins og sagði honum að þeir
væru vondir sem væru vondir og
góðir sem væru góðir.
Þetta svar fyrrverandi Tímarit-
stjóra mæltist illa fyrir á Morgun-
blaðinu enda á fyrrverandi ritstjóri
Tímans ekkert með að ákveða hverj-
ir séu góðir og hverjir séu vondir.
Morgunblaðið kann ekki við svona
dilkadrátt þegar hann er stundaður
af öðrum en því sjálfú og blaðið hef-
ur einkarétt á því að ákveða að góðir
íslendingar séu vondir en vondir ís-
lendingar séu góðir ef það hentar -
sérstaklega af því að Morgunblaðið
veit betur um það hvað gerðist á bak
við tjöldin heldur en þeir sem voru
á bak við tjöldin. Morgunblaðið er
nefhilega í þeirri aðstöðu að vera á
bak við tjöldin sem eru á bak við
tjöldin og veit þess vegna allt á und-
an öllum öðrum. Enn einu sinni
undrast maður þann misskilning hjá
stjómmálamönnum þegar þeir halda
að þeir geti ráðið einhveiju þótt þeir
séu kosnir. Morgunblaðið veit allt
best enda þótt blaðið segi aldrei frá
því fyrr en eftir á til að vera visst
um að það hafi rétt fyrir sér.
Svona var og er staðan í þessari
hvaladeilu. Það vorú ekki íslenskir
stjómmálamenn sem leystu þessa
deilu heldur vinir Morgunblaðsins í
Washington samkvæmt ráðlegging-
um diplómata sem haga sér eins og
Morgunblaðið vill að þeir hagi sér.
Flest bendir þannig til þess að
Bandaríkjamenn séu mun betri ís-
lendingar en íslendingar sjálfir því
þeir höfðu sjálfir frumkvæði að því
að leysa deiluna fyrir okkur, áður
en stjómmálamennimir fóm að
skipta sér af því. Morgunblaðið vill
láta utanríkisnefrid taka saman
skýrslu til að sanna hver hafi verið
góður í þessari deilu og hver hafi
verið vondur og þá skýrslu á að
semja uppi í ráðuneyti af starfs-
mönnunum til sýna fram á að það
voru þeir sem sögðu Bandaríkja-
mönnuriúm hvemig þeir gætu verið
góðir við íslendinga en ekki Stein-
grímur eða Halldór.
Niðurstaðan af þessari ritdeilu er
sú að hvaladeilan skiptir ekki lengur
máli, hvað þá hvalimir. Það sem
skiptir máli er hveijir em góðir Is-
lendingar og björguðu málinu og
hveijir em vondir íslendingar og
klúðmðu málinu. Morgunblaðið
hefur eitt rétt til þess að ákveða
hverjir em góðir eða vondir. Aðrir
hafa ekkert með það að gera, sér í
lagi ef þeir segja þá góða sem Morg-
unblaðið telur vonda og öfugt. Blöð
sem ekki em lesin og stjómmála-
menn sem ekki er tekið mark á eiga
ekki að vera að skipta sér af málum
sem þeim koma ekki við.
Dagfari
T*TTT