Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1987, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1987, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1987. Útlönd Frökkum Meira en tuttugu og fitrnn þúsund franskir hermenn settu í gser á svið bardaga og sýndu hæfni sína á æf- ingum akammt norðaustur afParís. Meðal áhorfenda á sefmgum þess- um voru tóif liðsforingjar úr herjum Varsjárbandalagsins, sem boðið hafði verið að fylgjast með, jafnframt liðsforingjum frá NATO-rögum. Æfingamar hófust á mánudag en þetta er í fyrsta siim sem fulltrúum frá Austur-Evrópu hefur verið boðið að fylgjast með frönskum heræfing- um. Byttingarafmæli í Mexíkó íbúar Mexíkó fognuðu því í gær að þá voru liðin 177 ár frá því upp- reisnin gegn yfirráðum Spánverja í landinu hófet, en í lok þeirrar upp- reisnar hlaut Mexíkó sjálfstæði sitt Hátíðarhöldin hófust með því að Miguel de la Madrid, forseti lands- ins, hringdi frelsisbjöilunni á svölum þjóðarhallarinnar við Zocalo-torgið í Mexikóborg og hrópaði „Lifi Mex- íkó“ þrisvar sinnum. Hundruð þúsunda Mexíkana, sem saman voru komnir á torginu, hrópuð „Lifi“ á móti Brúðarbrenna á Indlandl Loftávás á flutningaskip Irakar tilkynntu í morgun að þeir hefðu í nótt gert loftárás á stórt flutn- ingaskip á norðanverðum Persaflóa. Einnig tilkynntu þeir um árás í gær á flutningaskip og olíubirgðastöð írana. Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Perez de Cuellar, gerði Öryggisráðinu grein fyrir friðarför sinni við komuna til New York í gær. Stjómarerindreki segir aðalritarann hafa greint frá því að íranir hafi ekki hafiiað neinu atriði vopnahléstilmæla Öryggisráðsins. Hins vegar myndu íranir, að því er stjómarerindrekinn sagði, aðeins verða við tilmælunum eftir að alþjóð- leg nefnd hefði úrskurðað hver bæri ábyrgð á stríðinu. Irakar hafa sagt að fyrst verði að koma á vopnahléi. Hvor aðilinn um sig ásakar hinn um að hafa gert fyrstu árásina. Bandaríkjamenn að störfum á Persaflóa þar sem árásir á skip eru hafnar á ný. Símamynd Reuter Fjárlögin afgerandi fyrir setu stjómarinnar Haukur L. Hauksson, DV, Kaup- mannahöfn: Erhard Jacobsen, samhæfingar- ráðherra í efnahagsmálum og formaður miðdemókrata, segir fjög- urra flokka stjóm Schlúters standa og falla með fjárlagafrumvarpinu sem endanlega verður afgreitt í des- ember. Ef fjárlögin verða samþykkt sem varla nokkur þorir að hindra sitji ríkisstjómin alla vega næstu tvö árin. Auk þess segir ráðherrann að Framfaraflokkurinn lifi aðeins einar kosningar í viðbót. Glistmp megi aðeins þakka fylgisaukningu sína lýðskrumi í flóttafólksmálmu. Spáir Jacobsen ríkisstjómarflokkunum fylgisaukningu í skoðanakönnunum fyrir áramót og því þori stjómarand- staðan ekki að fella fiárlögin og þar með ríkisstjómina. Muni jafhaðar- menn hefia samvinnu við róttæka vinstri menn og ríkisstjómina þar sem það er eina leiðin fyrir þá. Hafi þeir aðeins tvo þriðju hluta fylgis þess sem þeir höfðu í stjómartíð Jens Otto Krag. Til að rétta sig við þurfi jafhaðarmenn að geta bent á árangur í samstarfi við stjómina og þeim umleitunum taki ríkisstjómin vel. Meira en tvö hundruð þúsund Indveijar gengu þvert á bann stjómvalda í gær og söfhuðust saman til að heiðra átján ára gamla stúlku, sem sjálf- viljug gekk á bálköst eiginmanns síns og lét brenna sig til bana. Eiginmaður stúlkunnar lést nýverið og á Indlandi tíðkaöist það áður fyrr að eiginkonur vom brenndar lifandi með líki eiginmanns síns, enda slíkt talið hið endanlega merki trúmennsku. Þessi siður hefur hins vegar verið bannaöur um nokkurt skeið og því brugðust yfirvöld ókvæða við þegar fréttist að stúlkan ætlaði að ganga á bálköstinn. Bönnuðu yfirvöld allar athafnir við brennuna og lét stöðva fólskflutninga inn á avæðið þar sem brennan fór fram. Þá var mágur stúlkunnar hand- tekinn en hann bar eld að bálkestinura. Þrátt fyrir bann stjómvalda söfnuðuat að minnsta kosti tvö hundmð þúa- und manns saman til að votta stúlkunni virðingu sína og óopinberar heimildir segja að mannfiöldinn hafi verið allt að fiögur hundruð þúsund. Stúlkan gekk síðan á bálköstinn og ættist niður. Beið hún síðan róleg þess að verða eldinum að bráð. Tötvusjóræníngjar á ferð Vestur-þýskir tölvusjóræningjar skýrðu frá þvi í gær að þeir hefóu komist inn í tölvunet þar sem þeir hefóu fundið upplýsingar um vopna- kerfi og aðrar viðkvæmar upplýsing- ar. Sögðust þeir hafa komist inn í tölvunet æm tengir bandarísku geimvísindastofiiunma við rann- sóknarmiðstöðvar í Evrópu og Asíu. Að 8Ögn talsmanns tölvuklúbbs þess sem mennimir tilheyra gátu þeir opnað allt kerfið og náð upplýs- ingum sem voru svo viðkvæmar að þeir þorðu ekki annað en skýra frá því. Páfl ámlnnlr Bandaríkjamenn Jóhannes Páll páfi II. áminnti í gær Bandaríkjamenn enn einu sinni og sagði að hugsanlegt væri að banda- rískum kaþólikkum yrði neitað um sakramenti ef þeir ekki hlýddu kennisetningum kirkjunnar um getnaðarvamir, kynvillu og hjóna- skilnaði. Páfi lét þesaa áminningu frá sér fara á fundi með biskupum kaþólsku kirkjunnar í Bandaríkjimum í gær. Hún er einhver sú harðorðasta sem páfi hefur látið frá aér fara. Eftiriaunaþegi glæpaforingi Haukur L. Hauksscm, DV, Kaupmaimahcfci: Sextíu ára maður sat í íbúð sinni í Kaupmannahöfh og kippti í spott- ana á meðan aðrir sáu um rán og fíkniefnasmygl. Útvegaði sá gamli vopn, tók við þýfi, seldi fíkniefhi og hafói sprengiefni í kæliskápnum ef á þurfti að halda. Allt þetta fékk bæjardóm Kaup- mannahafíiar til að dæma manninn í tveggja og hálfe árs fangelsi. Útveg- aði gamli maðurinn meðal annars byssu er notuð var við rán í gull- smíðabúð í fyrra. Fengurinn var tvö hundmð og tólf þúsund danskar krónur og ógrynni skartgripa. Tók sá gamli peningana og sá um að selja þýfíð. Hann var einnig viðriðinn smygl á heróíni frá Pakistan. Sá gamli vísaði ásökunum lögregl- unnar á bug og áfrýjaði dómnum. Andstaðan gegn Aquino sterkari Andstaðan gegn Corazon Aquino, forseta Filippseyja, varð sterkari í gær eftir að varaforseti landsins, Salvador Laurel, sagði af sér utanríkisráðherra- embættinu. Við það komst á óformlegt samband milli hans og leiðtoga sfjóm- arandstöðunnar, Juan Ponce Enrile, að því er stjómmálaskýrendur segja. Laurel hefur sakað forsetann um lin- kind gagnvart skæruliðum kommún- ista. Laurel sagði í gær að hann myndi ekki vilja starfa í breyttu ráðuneyti en að hann myndi halda áfram emb- ætti sínu sem varaforseti. Fullyrt var að hann heföi viljað vera fyrri til áður en hann heföi verið formlega beðinn um að hætta. Aquino tilkynnti önnur ráðherra- skipti í gær og braut þar með loforð Salvador Laurel, varaforseti Filippseyja, sýndi myndir frá ferð sinni til herbúða sitt um að nefha engar breytingar fyrr um leið og hann tilkynnti að hann hefði sagt af sér embattl utanrikisráðherra en þeim væri öllum lokið. Búist er við Íandsins. Sfmamynd Reuter frekari breytingum í dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.