Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1987, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1987, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1987. Utiönd Sjrkusfíllinn Afau, sem á mánudag kramdi fimmtíu og fimm óra gamlan mann til bana, í Gunnedah I Ásferal- íu, hefur tvievar áður orðið mönnum að bana síðan 1974. Eigandi og þjáif- ari dýrsins, Doug Ashton, sem raunar er einnig eigandi sirkusins, segist þó ekki ætla að hegna honum fyrir uppátækið. Lögreglan hefiu- þegar sagt að hinn látni hafi ekki átt neitt erindi inn í básinn til dýrs- ins og þvi geti hann kennt sjáifum sér um. Ungverska þingið kom saman á miðvikudag til þess að ræða sérstak- lega aðgerðir sem bjargað gætu efnaliagslífi landsins. Meðal þess sem þar er rætt eru hugmyndir um að leggja á tekj uskatt í landinu, jafii- framt öðrum umbótaaðgerðum. Ungverjar eru þó eklri fajartsýnir á að það takist að koma landinu á réttan kjöl, telja það raunar margir næsta ómögulegt. Mótmæla Soforsmönnum Um sjötíu Indverjar efiidu til haröra mótmæla við hótel í Nýju Delhi í gær þar sem háttsettir embættismenn sænsku vopnaverksmiðjanna Bofors dvelja nú en þeir eru komnir til Indlands til að reyna að selja stjómvöldum þar vopn. Bofors vopnaverksmiðjumar hafa verið sakaðar um að hafa beitt miklum mútum á Indlandi til þess að fá framleiðslu sína keypta. Rflrisútvarpið í Svíþjóð hélt því fram í apríl síðastliðnum að fyrirtækið hefði greitt sem nemur fiörutíu milljónum dollara í mútur í tengslum við vopnasölu á árinu 1986 einu saman. Mótmælendumir sjötíu hrópuðu slagorð gegn Bofors í gær, köstuðu gijóti og blómapottum og lentu í átökum við starémenn hótelsina. Fjórir starfe- menn meiddust x slagsmálunum. Erich Honecker, leiðtogi Austur- Þýskalands, hitti í gær Wojcieeh Jaruzelski, leiðtoga Póllands, að máli og skýrði honum frá árangri þeim sem náðist í heimsókninni til Veatur-Þýskalanda fyrr í mánuðin- um. Ferð Honecker til V-Þýskalands þykir bera nokkum vott um að sam- band þýsku ríkjanna tveggja geti verið að skána. Þeir Honecker og Jaruzelski ræddu einnig í gær leiðir til þess að auka straum ferðamanna milli landa sinna og til þess að auka samband milli bæja sem liggja nærri landa* mærum ríkjanna. Huga að fjölþjóða heriiðfi Hugsanlegt er talið að Atlants- hafebandalagið skipi sérstakan Qölþjóðlegan, mjög hreyfanlegan her, til þess að verja norðursvæði það sem nú þylrir berékjaldað, vegna þess að stjómvöld í Kanada hafa kallað heim hersveitir sínar þar. Sem kunnugt er ákváðu kanadíak stjómvöld fyrr ú þessu ári að draga til baka um fimm þúsund kanadíska hermenn, sem hlotið hafa sórstaka þjálfun til að berjaat við vetrarað- stæður í norðanverðum Noregi. Mun ætiun Kanadamanna að senda hersveitimar til Vestur-Þýskalands í staðinn. búnum til flutninga í heimalandi sínu. Norðmenn heimila ekki að erlendur her sé á norskri grund. Kanadaraenn hafa heitið þvx að flytja hersveitimar ekki til meginlands Evrópu fýrr en firadist hafi einhver önnur leið til að tryggja vamir Noregs. Og nú er um það rætt innan NATO hvort mögulegt geti reynst að koma aaman fjölþjóðlegum her sem væri mjög freranlegur og gæti tekið við hlut- verki kanadisku hersveitanna. Gorbatsjov býst við samkomulagi Ólafur Amarsan, DV, New Yoric Allt bendir nú til þess að leiðtoga- fundur Reagans og Gorbatsjovs fari fram í Washington fyrir áramót. í gær fór vel á með þeim Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Sévardnadse, utanríkisráðherra Sov- étríkjanna. í hádegisverðarveislu, sem þeir sátu báðir, ræddi Shultz um að áður fyrr hefðu forystumenn ríkjanna rætt um ágreiningsmál á fundum sín- um. Nú brygði svo við að umræðuefnið væri sameiginlegir hagsmunir. Gorbatsjov Sovétleiðtogi sagði í ræðu sem hann flutti í Moskvu í gær að góðar líkur væru á að samkomulag næðist milli Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna um útrýmingu meðal- og skammdrægra kjamavopna á næstu mánuðum. Slflct samkomulag myndi greiða götu samninga um fækkun langdrægra kjamavopna á fyrri hluta næsta árs. Það má því segja að ekki komist hnífur á milli ráðamanna austurs og vesturs um þessar mundir. Það eina sem skyggði á glansmyndina í gær vom ummæli Reagans Bandaríkjafor- seta er hann sagði í ræðu að það væri ekki á nokkum hátt hægt að bera lýðræðisríki eins og Bandarflrin sam- an við alræðisrflri eins og Sovétríkin. Menn hafa hins vegar ekki miklar áhyggjur af því að ummæli sem þessi setji strik í reikninginn nú þegar svo skammt virðist vera í að stórveldin nái fyrsta afvopnunarsamkomulagi sínu í áratug. Utanríkisráðherra Sovétrikjanna, Edvard Sévardnadse, sat í gær boð George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og virtist hann skemmta sér ágætlega. Simamynd Reuter Auknu atvinnuleysi spáð í Danmörku Haukur L. Haukssan, DV, Kauprrannahöfa; í nýrri skýrslu danska seðlabank- ans um efiiahagsþróunina í Dan- mörku næstu átján mánuðina segir að greiðsluhallinn við útlönd muni falla niður í fimmtán milljarða danskra króna á næsta ári. í fyrra nam greiðsluhallinn þrjátíu og fjór um og hálfum milljarði sem var met en í ár er spáð að hann nemi tuttugu milljörðum. Muni ytri aðstæður leggja tak- markað af mörkum við lausn greiðslujafhaðarvandans og ekki séu efni til að auka eftirspumina heima fyrir. Því sé nauðsynlegt að gæta áfram strangs aðhalds í efnahags- stefriunni sem síðan 1986 hefur minnkað einkaneysluna og fjárfest- ingar. Spá seðlabankans byggir á óbreyttri efnahagsstefnu rflrisstjóm- arinnar. Reiknar bankinn með stöðrnm þjóðarframleiðslunnar í ár en eins prósents aukningu næsta ár. íbúðarbyggingar minnki um sex pró- sent í ár og tíu prósent næsta ár. Tala atvinnulausra hækki úr tvö hundmð og þijátíu þúsund í tvö hundmð sjötíu og fimm þúsund. Spúð er að verðbólgan verði áfram fjögur prósent. Stal orðrétt úr ræðum flokksleiðtoga Ólafur Amaisan, DV, New Yoric Yfirheyrslur dómsmálanefridar öld- ungadeildar Bandaríkjaþings yfir Robert Bork héldu áfram í gær. At- hygli manna beindist þó ekki svo mjög að yfirheyrslunum sjálfum heldur snerist hún að mestu um Joseph Bid- en, formann dómsmálanefiidarinnar. Biden er einn sjö demókrata sem beijast um útnefningu flokksins fyrir næstu forsetakosningar. f gær kom það fram í fjölmiðlum að kaflar úr ræðum Bidens undanfamar vikur væm frjálslega fengnir að láni frá öðrum án þess að heimilda væri getið. f sjónvarpsumræðu þann 23. ágúst síðastliðinn sagði Biden að hann hefði velt því fyrir sér hvers vegna hann væri sá fyrsti úr sinni fjölskyldu sem kæmist í háskóla. Sagði hann að það væri ekki vegna heimsku forfeðra sinna eða máttleysis heldur væri það vegna þess að forfeður hans hefðu Athygli manna beindist í gær ekki svo mikið að Robert Bork, tilnefndum hæstaréttardómara, sem yfirheyrður er af dómsmálanefnd Bandarikja- þings. Simamynd Reuter ekki haft þann þjóðfélagslega pail sem þyrfti til að komast í háskóla. Þessi ummæli em nær orðrétt tekin frá Neil Kinnock, formanni breska Verkamannaflokksins. Kinnock við- hafði þessi ummæli í auglýsingu fyrir kosningar í Bretlandi í sumar. Sýnt hefur verið fram á að Biden hefur stolið orðrétt köflum úr ræðum flestra leiðtoga Demókrataflokksins undanfarin þrjátíu ár. Sem dæmi um höfunda má neftia John F. Kennedy, Robert Kennedy og Hubert Hump- hrey. Talsmenn Bidens segja að um mistök sé að ræða. Biden hafi láðst að geta heimilda en lítilf trúnaður er lagður á þá skýringu. Biden hefur boðað til blaðamannafundar í dag til að reyna að skýra mál sitt. Flestir telja að kosn- ingabarátta hans hafi beðið mikinn hnekki og að hann sé úr sögunni, að minnsta kosti í bili, sem hugsanlegur forsetaframbjóðandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.