Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1987, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1987, Page 11
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1987. 11 í dag, 17. september 1987 er merkisdagur. Kl. 19:19 í kvöld hefst 19:19, nýr 60 mínútna frétta- tengdur þáttur (fréttamagasín) á Stöð 2. 19:19 verður byltingarkennd framsetning á frétta- efni og efni líðandi stundar. Sjónvarpsskjárinn heima í stofu verður vettvangur þess sem efst er á baugi á hverjum tíma. Auk hefðbundinna frétta verður farið í saumana á málum dagsins: Pólitíkina, menningarmálin, dóms- málin, góðu málin, vondu málin, - hvað sem er. Ekkertverðurheilagt. Þetta er stór dagur fyrir Stöð 2 og áhorfendur. Þetta er forvitnilegur dagur fyrir alla fjölmiðla, - líka ríkissjónvarpið! Hér kemur nýr liður. Farið verður rækilega ofan í mál dagsins, eitt eða fleiri, innlend eða erlend. Hvort sem þau koma úr stjórnmálaheiminum, dýraríkinu, byggða- eða trúmálum, hvað sem er. Mál verða skoðuð frá öllum hliðum, aðilar málaeða sérfræðingartil kallaðir. Beinar útsendingar, viðtöl, fréttaskýringar. Þessum þáttum hafa sjónvarps stöðvar hérlendis ekki sinnt hingað til, á þennan hátt. Fréttir •--------------------- í „hefðbundnum stíl“. Þó með nýju yfirbragði. Innlendar sem erlendar fréttir þar sem áherslan er á ferskleika. Ýmist er um að ræða beinar útsendingar, gervihnatta- sendingar, sem fréttir frá fréttastofu. Stutt auglýsingainnskot. —• Menningarmál. Stutt umfjöllun, gagnrýni, upplýsingar. Dagskrárkynning. ---------------------• Kl. 19:19, -nítján mínúturyfirsjö hefst útsendingin með stuttri kynningu. Síðan eru sýnd fersk viðtöl, götuviðtöl við fólk á förnum vegi. Margt ber á góma, létt spjall um líðandi stund. ---------------• Stuttur íþróttaþáttur, farið verður yfir innlenda sem erlenda íþróttaviðburði. -------------------------• Veðurfréttir, algjörlega ólíkar því sem áður hefur þekkst hérlendis. Léttleiki og alvara í bland. W FYLGSTU MH) FRA BYRJUN W •• IKVOLD KL 19:19 CBAUOLYSINGAW

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.