Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1987, Page 16
16
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1987.
Spumingin
Ætlarðu að taka slátur?
Jón Einarsson: Nei, ég hef ekki
frystikistu og kann það ekki heldur.
Mér þykir slátur samt mjög gott og
þá sérstaklega lifrarpylsa.
Börkur Grimsson: Ætli ég taki ekki
svona 17 slátur. Ég verka allt sjálf-
ur. Mér þykir slátur gott en sérstak-
lega lifrarpylsan.
Brynjar Valdimarsson: Það verður
tekið slátur á heimilinu. Ég hjálpa
nú lítið til og helst ekki neitt. Mér
þykir lifrarpylsan betri heldur en
blóðmörinn.
Elísabet Magnúsdóttir: Já, ég hugsa
að ég geri það. Ég tek slátur við og
við og þá svona 5 stk. Blóðmörinn
og lifrarpylsuna legg ég að jöfnu og
þykir hvort tveggja gott.
Sigríður Eysteinsdóttir: Nei, en ætli
mamma geri það ekki. Ég borða þó
slátur og þykir mér lifrarpylsan
betri.
Fiona MacTavish: Nei, ég er ekkert
ofsalega hrifin af slátri. Ég er útlensk
svo að ég borða ekki mikið af því.
Það er of feitt fyrir minn smekk. Ég
hef þó tekié slátur.
Lesendur
irriPöll:d:m:
§li
„Orðið áhorfi er bara bull og tilbúningur og Pas de deux tímar, hvað er nú
það?“ spyr lesandi.
Um A til Z
og fleira
óskiljanlegt
Málverndunarsinni skrifar:
Á hveijum einasta degi rekst maður
á erlendar slettur og beinar þýðingar
á síðum dagblaðanna. Slettunotkun
er með fádæmum og ástandið er orðið
þannig að hver venjulegur maður skil-
ur hvorki upp né niður í rituðu máli
dagblaðanna lengur.
Það þykir fínt og heimsborgaralegt
að nota erlendar slettur. Enskar slett-
ur eru jafiivel famar að víkja fyrir
frönskum, þýskum og latneskum sem
þykja fínni. Allir þykjast skilja það
sem fram fer því það að játa skilnings-
leysi væri það sama og að játa þekk-
ingarskort og fávísi og enginn vill
vera álitinn heimskur (í hvorugri
merkingunni).
Ég vil aðeins nefria fáein dæmi um
þessar slettur og þýðingar en af nógu
er svo sem að taka.
Nýlega fór ég að heyra orðasam-
bandið; frá A til Z í merkingunni frá
upphafi til enda. Stjómmálamenn óðu
uppi í sjónvarpsviðtölum og lýstu yfir
að þessi og hin máhn væm hitt og
þetta frá A til Z. Alla mína hunds- og
kattartíð hef ég staðið í þeirri mein-
ingu að íslenska stafrófið hæfist á A
og endaði á Ö. XYZÞÆÖ er endirinn
á stafrófinu ef mig misminnir ekki.
Samkvæmt því em þrír íslenskir bók-
stafír á eftir bókstafiium Z. Ef íslend-
ingar vilja endilega nota þetta enska
orðatiltæki þá er nú lágmark að fella
það að íslenskunni og segja frá A til Ö.
Auglýsingar em að jafhaði fullar af
óskiljanlegum erlendum orðum og
þýðingum. Frá Stöð 2 birtist fyrir
stuttu auglýsing þar sem segir orðrétt:
„Auglýsendur, pantið auglýsingar sem
fyrst þar sem búast má við miklu
áhorfi.“
Þetta orð, áhorfi, er bara bull og til-
búningur. Einkenni íslenskunnar er
mikil notkun lýsingar- og sagnorða í
staðinn fyrir nafhorð sem aftur á móti
er einkenni enskunnar. Þessi tilhneig-
ing að að búa til ný nafhorð er
hvimleið og ekki vænleg aðferð ef
halda á íslenskunni hreinni.
Að lokum rakst ég á auglýsingu frá
Jassballettskóla Bám í Morgunblað-
inu ekki alls fyrir löngu þar sem
auglýstir em Pas de deux tímar. Ég
spyr nú bara; Hvað er nú það?
Góðar Norður-
landafréttir
Sjónvarpsáhorfandi hringdi:
Ég vil lýsa ánægju minni með þætti
Ögmundar Jónassonar, fréttamanns
hjá Ríkissjónvarpinu, um dönsku
kosningamar. Þetta vom greinargóðir
og vandaðir þættir sem skýrðu allt sem
skýra þurfti.
Ögmundur er sérlega góður frétta-
maður og yfirhöfuð er allt sem frá
honum kemur vandað og gott. Við
fáum í gegnum hann fréttir frá öllum
Norðurlöndunum og finnst mér hann
standa sig með sóma í sínu starfi.
Af hverju ekki
bein útsending
fra Skagaleiknum?
Ekki er annað að sjá en að Bjami
sé glaðvakandi og á fullri ferð á
þessari mynd en bréfritara finnst
Bjami hafa sofnað á verðinum með
því að fá ekki beina útsendingu frá
leik Skagamanna og sænska liðsins
Kalmar á þriðjudaginn.
Skagaaðdándi skrifar:
Ég er mjög óhress með að Ríkis-
sjónvarpið skuli ekki hafa verið með
beina útsendingu frá leik Akraness
og sænska liðsins Kalmar. Þetta var
tilvalið tækifæri til að hafa beina
útsendingu því að vegna þess að
leikurinn fór fram uppi á Akranesi
voru takmarkaðir möguleikar á því
fyrir fólk af Reykjavíkursvæðinu að
sjá leikinn og sama gildir auðvitað
um fólk annars staðar af landinu.
Það var talið fyrirfram að Skaga-
menn ættu mikla möguleika á sigri
gegn þessu sænska liði og því ríkti
auðvitað mikil forvitni um gang
leiksins. Þama sváfu Bjami Fel. og
fóstursynir hans á verðinum. Ég trúi
ekki öðm en að það hefði verið
hægt að komast að samkomulagi við
Skagamenn varðandi sanngjama
þóknun um útsendingu og jafnvel
að flýta leiknum aðeins.
Þá vil ég endilega biðja Bjama að
hætta að eyða öllum íþróttatímanum
í inngangsatriðið að HM í Róm.
Þetta var sérstaklega áberandi á
mánudaginn var þegar íþróttatíminn
var mjög stuttur en eigi að síður sá
Bjami ástæðu til að sýna allt inn-
gangsatriðið. Ef hann hefði sleppt
því hefði hann líklega getað sýnt
maraþonhlaupið aftur!
Bréfritari er orðin hundleiður á hundaskít út um alla borg og öðru því sem
hundum fylgir.
Hundana burt
úr borginni
Hundahatari skrifar:
Nú get ég ekki lengur orða bundist
yfir þeim ósköpum sem flæða yfir borg
okkar. Á ég þar að sjálfsögðu við allt
þetta hundafár sem hér ríkir. Því mið-
ur hafa yfirvöld borgarinnar ekki haft
manndóm í sér til að losa okkur við
þessa óvæm ög því ríkir hér nánast
neyðarástand.
Það er orðið nánast sama hvar mað-
ur fer um, alls staðar er vaðandi
hundaskítur. Um daginn ætlaði ég í
þægilega kvöldgöngu um Miklatúnið
en fljótlega leystist gangan upp í mar-
tröð. Óð maður hundaskítinn upp að
hnjám og rétt náði heim við illan leik.
Davíð borgarstjóri hefur algerlega
gefist upp fyrir óvininum og virðist
helst hafa gengið f lið með honum.
Varla mætast tveir hundar svo að
Davíð sé ekki óðar kominn í hópinn.
Var ferlegt að þurfa að fylgjast með
honum í sjónvarpinu um daginn þar
sem hann gekk um og nældi orður á
hunda - að því er virtist fyrir það eitt
að hafa nú ekki étið neinn síðasta
hálftímann. Nei, nú er mál að linni.
Gott nasturútvarp
á Bylgjunni
Ólafur Sigurðsson skrifar:
Ég vil fá að lýsa yfir ánægju minni
með næturútvarpið á Bylgjunni. Fyrir
stuttu var ég að hlusta á Bylgjuna
eftír klukkan fjögur eina nóttina og
var mjög ánægður með þann sem hafði
umsjón með þættinum en því miður
veit ég ekki nafn hans.
Finnst mér að Bylgjan verði að aug-_
lýsa betur þá sem stjóma næturút-
varpinu en mér hefur reynst
ómögulegt að komast að því hver var
umsjónarmaður þáttarins.
Þá vil ég fa að nota tækifærið og
mótmæla lokun skemmtístaðarins
Casablanca um daginn en sú lokun
kom sér illa fyrir fastagesti.
íilii