Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1987, Síða 34
34
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1987.
Tarðarfarir
Magnús Gunnlaugsson hreppstjóri
lést 10. september sl. Hann fæddist
28. febrúar 1908 að Ósi í Hrófbergs-
hreppi í Strandasýslu. Foreldrar
hans voru hjónin Gunnlaugur
Magnússon og Marta Guðrún Magn-
úsdóttir. Magnús hóf ævistarf sitt
sem íslenskur bóndi að Stað í Stein-
grímsfirði 1934-38 en hefur síðan
búið að Ósi frá 1938 til 1980. Eftirlif-
andi eiginkona hans er Aðalheiður
Þórarinsdóttir. Þeim hjónum varð
fjögurra barna auðið. Útför Magnús-
ar verður gerð frá Garðakirkju á
Álftanesi í dag kl. 13.30.
Sveinn Ólafsson hljóðfæraleikari
lést 4. september sl. Hann fæddist á
Bíldudal í Amarfirði 6. nóvember
1913. Foreldrar hans voru hjónin
Kristjana Hálfdánardóttir og Ólafur
Veturliði Bjarnason. Eftirlifandi eig-
inkona hans er Hanna Sigurbjöms-
dóttir. Þeim hjónum varð þriggja
sona auðið. Útför Sveins verður gerð
frá Fossvogskapellu í dag kl. 13.30.
Björg Ólafsdóttir, Hamraborg 26,
Kópavogi, lést á heimili sínu fimmtu-
-daginn 10. september. Jarðarförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Sigurður Harald lést af slysförum
föstudaginn 11. september. Jarðar-
förin fer fram frá Lágafellskirkju
föstudaginn 18. september kl. 14.
Friðþjófur Baldur Guðmundsson,
útvegsbóndi á Rifi, verður jarðsung-
inn laugardaginn 19. september kl.
14 frá Ingjaldshólskirkju. Bílferð
verður kl. 8 að morgni frá Umferðar-
miðstöðinni.
Einar Eggertsson kafari, Álftamýri
48, verður jarðsunginn föstudaginn
18. september kl. 13.30 frá Fossvogs-
kirkju.
Útför Ragnheiðar Gróu Vorms-
v dóttur, Ægisgötu 43, Vogum, fer
fram frá Kálfatjarnarkirkju laugar-
daginn 19. september kl. 10 árdegis.
Alma Helene Hjartarson, fædd
Kummer, Hólmgarði 33, verður
jarðsungin föstudaginn 18. septemb-
er frá Bústaðakirkju kl. 15.
Baldur Bjarnason magister, verður
jarðsunginn föstudaginn 18. sept-
ember frá Kirkjugarðskapellunni í
Hafnarfirði kl. 15.
Isleifur Jóhannsson frá Sæbóli í
Aðalvík, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju föstudaginn 18. sept-
ember kl. 15.
- Kveðjuathöfn um Vilborgu Torfa-
dóttur frá Lambavatni, sem lést á
Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund
12. september, verður í Hallgríms-
kirkju föstudaginn 18. september kl.
13.30. Jarðsett verður frá Saurbæjar-
kirkju á Rauðasandi fimmtudaginn
24. september kl. 14.
Jarðarför Birkis Njálssonar fer
' fram frá Fossvogskirkju í da.g, 17.^
september, kl. 15.
Ögmundur Guðmundsson, fyrrum
bóndi Þórarinsstöðum, Hruna-
mannahreppi, verður jarðsunginn
frá Hrunakirkju laugardaginn 19.
september kl. 14.
Jóhann Ágúst Gunnarsson raf-
virkjameistari, Huldulandi 6, verður
jarðsunginn föstudaginn 18. sept-
ember kl. 13.30 frá Dómkirkjunni í
Reykjavík.
Tapað - Fundið
Seðlaveski tapaðist
Svart seðlaveski með skilríkjum tapaðist
á leiðinni frá Hagaskóla að Neshaga 13.
Finnandi vinsamlegast hringi í síma 19135.
Gleraugu töpuðust
Karlmannsgleraugu í gylltri umgerð töp-
uðust, sennilega í Síðumúla eða hvar sem
er. Finnandi vinsamlegast hringi í síma
681742.
Tilkynningar
Réttir og smalamennska
Fimmtudagur 17.. september: Grímsstaða-
rétt í Álftaneshreppi, Mýrasýslu, Hruna-
rétt í Hrunamannahreppi, Árnessýslu.
Skaftholtsrétt í Gnúpverjahreppi, Árnes-
sýslu.
Bókmenntahátíðin 1987
í kvöld kl. 20.30 verður bókmenntadagskrá
í Gamla bíói með Karl Erik Bergman,
Álandseyjum, Andre Bitov, Sovétrikjun-
um, Guðbergur Bergsson, Islandi, Alain
Robbe-Grillet, Frakklandi og Luise Rins-
er, V-Þýskalandi. Dagskráin er öllum opin
og aðgangur ókeypis.
Tóiúeikar
Tónleikar á UMN hátíð
í Tónlistarskólanum í Reykjavík í dag kl.
16.30. Flutt verður verk eftir Atla Ingólfs-
son. Síðan verða tónleikar í Menntaskól-
anum í Hamrahlíð um kvöldið kl. 20.30.
Þar verður flutt verk eftir Tryggva M.
Baldursson.
Jasstónleikar
Haust-jasstónleikar verða hjá Jazzvakn-
ingu á Hótel Borg í kvöld, 17. september,
kl. 22-01. Þar munu koma fram: Trio Carls
Moller, Trio Guðmundar Ingólfssonar,
Tenor: Rúnar Georgs, Trio Steingríms
Guðmundssonar, söngkonan Andrea
Gylfadóttir og fleiri. Jazzvakning er að
hefja sitt 12. starfsár af fullum krafti og
vonast er til að jassgeggjarar fiölmenni,
eins og þeirra er vani.
Ferðafélag íslands
dagsferðir sunnudag 20. sept.
1. kl. 8Þórsmörk-dagsferð. Dvalið verð-
ur um 3 1/2 klst. í Þórsmörk og famar
gönguferðir. Verð kr. 1000.
2. kl. 10 Konungsvegurinn - Brekku-
skógur. Ekið verður um Laugarvatn og
farið úr bílnum við Efstadal. Gengið eftir
Konungsvegi í Brekkuskóg. Verð kr. 1000.
3. Kl. 13 Þingvellir - haustlitir. verð kr.
600. Brottför í ferðirnar frá Umferðarmið-
stöðinni austanmegin. Farmiðar við bíl.
Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna.
Helgaíferð 18.-20. sept.:
Þórsmörk - haustlitaferð. Gist í Skag-
fjörðsskála/Langadal. SkáUnn hefur
miðstöðvarhitun og aðstaða eins og best
verður á kosið. Upplýsingar og farmiða-
sala á skrifstofunni, Öldugötu 3.
Skemmtikvöld
Smekkleysa S/M með
skemmtikvöld
á Borginni
Smekkleysa S/M efhir til skemmtikvölds
í Casablanca í kvöld, 17. september.
Skemmtikvöld Smekkleysu S/M em orðin
að föstum viðburði í skemmtanalífi höfuð-
borgarbúa en fyrsta skemmtikvöldið var
haldið fyrir ellefu mánuðum. Þau skemmt-
iatriði sem boðið verður upp á á þessu
sjöunda skemmtikvöldi em hljómsveitin
Sykurmolamir og verður hún með heið-
ursgest, Johnny Triump, en hann hefur
nýverið snúið frá mikilli sigurför um norð-
urstrandir Grænlands þar sem hann
Rynnti fyrirbærið Luftgítar. Önnur
skemmtiatriði kvöldsins em hljómsveit-
imar Bleiku bastarnir og Bootlegs. Eitt
af föstum atriðum á skemmtikvöldum
Smekkleysu S/M frá upphafi hefur verið
skáldið Jóhamar. Á þessu kvöldi mun
hann kynna nýútkomna bók sína „Leitin
að spojing". Húsið verður opnað kl. 22 og
munu fyrstu skemmtiatriðin hefjast fljót-
lega upp úr því. U -M
í gærkvöldi
Ágúst Már Jónsson.
Agúst Már Jónsson nemi:
Gott að hafa gáfaðar löggur
Ég, sem horfi yfirleitt mjög lítið á
sjónvarp, byrjaði á því í gær að horfa
á breska skemmtiþáttinn um feðgin-
in. Þetta er ósköp þægilegur og
léttur þáttur sem siglir létt í gegn.
Sérstaklega er gaman að sjá svo
„sterka" tengdamúttu. Ég hef alltaf
ánægju af breskum húmor og það
verður að segjast eins og er að en-
skir þættir höfða oft meira til mín
en amerískir.
Þó að ég horfi lítið á sjónvarp reyni
ég alltaf að sitja fyrir fréttum og
Derrick. Fréttimar hjá Ríkissjón-
varpinu eru mun betri en á Stöð 2
í öllum efnistökum. Þær eru ítar-
legri og mun meiri fjölbreytni ríkir
þar. Þá finnst mér þeir hjá Ríkissjón-
varpinu taka málefnalegar á hlutun-
um.
Ég náði að horfa á þáttinn hjá
Ómari með öðru auganu og getur
maður ekki annað en glaðst yfir sigri
lögreglunnar. Það er ánægjulegt til
þess að vita að við höfum svo vel
upplýsta lögreglu.
Yfir höfuð hef ég mjög gaman af
spumingaþáttum og er mikil ánægja
því samfara að geta svarað einni eða
tveim spumingum rétt. Þetta em
góðir þættir en verða að vera í hófi.
Ég tel þó að Ómar sé betri sem frétta-
þulur og Stiklustjómandi heldur en
dagskrárstjómandi. Stundum verð-
ur maður hálfþreyttur á honum og
töktum hans.
Meiming
Talað um að skrifa
- Heitt í kolunum á rithöfundaþingi
Ekki var langt liðið á spjall spek-
inganna á bókmenntahátíðinni í
Norræna húsinu í gærdag þegar
Guðbergur Bergsson, einn af hinum
„distinguished panelists" sem Thor
Vilhjálmsson „chairman" kallaði
svo, lýsti því yfir að hann gæfi frat
í svona bókmenntahátíðir. „Þær
eru,“ sagði Guðbergur, „samkomur
fyrir litla rithöfunda sem em miklir
kjaftaskúmar."
Ennfremur taldi Guðbergur það
vera hina mestu svívirðu, og kúltúr-
imperíalisma af verstu sort, að
rökræða á ensku á íslandi. Með því
móti fæm umræður fyrir ofan garð
og neðan hjá vinnandi fólki á
landinu. Eftir sæti aðeins snobbliðið.
Gagmýndi Guðbergur einnig
starfsbræður sína fyrir leiðinlegan
upplestur í Gamla bíói kvöldið áður,
sagði „Skandínövum" að hætta að
þvaðra um Sögueyjuna og klykkti
út með að segja að ekki nokkur
skapaður hlutur væri að gerast í
skáldsögunni í dag. Allt þetta sagði
Guðbergur á íslensku en lét fylgja
með glósur handa útlendingunum.
Við þessa ádrepu sló út brosi á
panelistunum, en borgin hló.
Innlegg Guðbergs hafði þau áhrif
að menn fóm að ræða um mál-
svæði, læsi og annað í þá veru.
Kurt Vonnegut lýsti því hvemig
væri að skrifa í landi sem lyti stjóm
forseta sem aldrei læsi bók, þar sem
40 milljónir kynnu ekki að lesa, þar
sem bækur væm fjarlægðar af bók-
sölum ef þær seldust ekki á nokkrum
vikum.
Þetta ástand gerði það að verkum
Á öndverðum meiði: Guðbergur Bergsson og Alain Robbe-Grillet.
DV-mynd Brynjar Gauti
Bókmenntir
Aðalsteinn Ingólfsson
að bandarískir rithöfúndar þyrðu
ekki að gera tilraunir með sjálft
tungumálið, með form skáldsögunn-
ar, heldur yrðu í staðinn að leita sér
að nýstárlegu umfjöllunarefni.
Robbe-Grillet sagðist hafa gaman
af ráðstefiium þar sem allir töluðu
ensku, þótt hann skildi ekki ensku,
sagði skáldskapinn hvort sem væri
vera sérstakt mál sem enginn skildi
til fulls, allra síst höfundurinn. „Ég
skrifa ekki fyrir almenning," fúllyrti
Robbe-Grillet, „heldur gegn honum.“
Isabel Allende var hjartanlega ó-
sammála síðasta ræðumanni, sagði
að suðuramerískir rithöfundar vildu
fyrir alla muni miðla til almennings,
það væri beinlínis skylda rithöfunda.
„Annars er ég alltaf miður mín á
svona ráðstefnum, mér finnst að rít-
höfundar eigi ekki að tala um að
skrifa heldur að skrifa," sagði hún
loks.
Á eftir urðu fjörugar umræður um
bókaverslun, ábyrgðarleysi bókaút-
gefenda, skyldleika suðuramerískra
tilraunabókmennta og evrópskra og
fleira skemmtilegt. -ai.
Mögnuð hátalaramúsík
Það var að mestu rafmagnað UNM
á Borginni í gærkvöldi. Hátalara-
kerfi diskóteksins leyfir alls konar
kúnstir, reyndar svo mikinn hávaða
að það hálfa væri nóg. Þeir sem eru
þrautþjálfaðir, fæddir og uppaldir
Bræðurnir Kjartan og Sveinn Ól-
afssynir spá í græjur.
við magnaða hátalarmúsík, kveinka
sér ekki undan þessu, þeirra hljóð-
himnur eru þykkar og töff. En ég
verð að játa að þó að ég sé allur af
vilja gerður fæ ég höfuðverk og
velgju af þessum látum. Á þessum
tónleikum voru flutt m.a. tónverk
eftir þrjú íslensk tónskáld. Tvö
þeirra, eftir Þorgrím Pál Þorgríms-
son og Þórólf Eiríksson, voru af
segulbandi og líklega bæði búin til
í Hollandi. Verk Þorgríms, Entelec-
hy, býr yfir einhverri ljóðrænu, án
þess að heyrt verði hvert hún stefnir,
og Þórólfur yrkir um geigerteljara,
sem er á sinn hátt ógnvekjandi. Hins
vegar var fróðlegt að sjá og heyra
flutning Kjartans Ólafssonar á eigin
verki fyrir syntheseizer. Það snerti
mann að vísu ekki djúpt en var snið-
ugt. Kjartan kallar þetta „Tilbrigði
við rafmagn" og bjó þetta til á staðn-
um með aðstoð bróður síns, Sveins,
sem er útfarinn í svona brellum.
Fjórða rafmagnsverkið var segul-
bandsverk eftir Terje Winter frá
Noregi, óttalega hávaðasöm smið úr
hljómsveitarafbökunum og manns-
barkahljóðum og heldur þreytandi
en stutt.
Fyrsta verkið á þessum tónleikum
mun hafa verið fyrir þrjá gítara og
undir jass- og flamenco-áhrifum. Það
var Funken Funga eftir Danann
Hedegaard. Því miður kem ég of
seint og missti af því. En það var
Tónlist
Leifur Þórarinsson
annað hljóðfæraverk, Sextett fyrir
brasshljóðfæri og þó að það væri
gamaldags mixtúra, úr Stravinsky
og Schönberg (minnti á margt eld-
gamalt og gott eftir Gunther Schull-
er), þá var í því guðsblessunarleg
hvíld. Og það var vitanlega gríðar-
vel spilað (af blásurum, ég held frá
Danmörku) en það vekur athygli að
næstum allur hljóðfæraleikur á þess-
ari tónlistarhátíð unga fólksins er
fyrsta flokks. Það er meira en sagt
verður um Norræna tónlistardaga
þeirra fullorðnu, sem reyndar voru
haldnir síðast hér í fyrra. En slepp-
um því.
LÞ.