Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1987, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1987, Qupperneq 40
FRÉT’TASKOTIO Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- '■ t" hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022 Frjálst,óháð dagblað FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1987. Grímsey: Ekkert lát á skjálftunum ^Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyii „Það virðist ekkert lát vera á þessu og í gærkvöldi og í nótt urðu mjög margir skjálftar," sagði Bjami Magn- ússon, hreppstjóri í Grímsey, þegar DV ræddi við hann í morgun. Bjami sagði að mjög stór skjálftf hefði komið rétt fyrir miðnætti og hefði hann verið á bilinu 3,5-4 stig. Stór kippur kom um klukkan þrjú í nótt og annar tveimur tímum síðar auk þess sem um smáskjálfta var að ræða af og til í alla nótt. „Það fylgir mikill hávaðahvinur þessum skjálftum og það er ekki laust við að það setji óhug að fólki þegar hvinurinn kemur, menn em svo gjör- samlega varnarlausir," sagði Alfreð •^Jónsson, flugvallarstjóri í Grímsey í morgun, en hann sagðist ekki vita til að neinar alvarlegar skemmdir hefðu orðið í þessari skjálftahrinu sem nú hefur staðið yfir í tæpa tvo sólar- hringa. Bílastæðin í Kringlunni: Þrjátíu krónur á klukkustund -4 Frétt DV um að Kringlan hyggist taka gjöld fyrir bílastæðin í framtíð- inni hefur vakið mikla athygli. Hugmyndir em uppi um að gjaldið verði í hæsta lagi 30 krónur fyrir að hafa bíl á stæðinu í klukkustund og 60 krónur fyrir tvær klukkustundir og svo koll af kolli. Til samanburðar má geta þess að Reykjavíkurborg er með stöðumæla í borginni. Algengast er að borga 10 krónur fyrir tuttugu minútur, eða 30 krónur fyrir klukkustundina, að sögn Ásgeirs Þórs Ásgeirssonar, deildar- verkfræðings hjá gatnamáladeild, í gær. Ásgeir sagði að dýrara væri að leggja bílum í Austurstræti, Hafiiar- __£træti, Bankastræti og á Laugavegi. par er gjaldið 10 krónur fyrir fimmtán mínútumar og því 40 krónur fyrir klukkutímann. Á þessum stöðum er aðeins leyfilegt að hafa bílana í hálf- tíma við mælana. Eftir þann tíma verður að færa þá. -JGH Aii^ gerðir sendibíla 25050 m senDiBiLHSTöÐin Borgartúni 21 LOKI Næst fara þeir aö selja inn í Kringluna Fjártög og lánsfjáriög: Ríkisstjómin í púlvinnu Ríkisstjómarfúndur var felldur Fjölmörg minni atriði í breyttri að nú er ætlunin að færa kostnað niður í morgun. I staðinn er boðaður fjánnálastefnu ríkisins verða einnig af einni stofhun í hverri atvinnu- fúndur snemma í fyrramálið um §ár- til afgreiðslu. Þar á meðal rekstur grein )dir á viðkomandi atvinnuvegi lagafrumvarpið og annar á laugar- þjónustustofiiana fyrir atvmnuveg- og á það að heita fyrsti áfangi. Hvar dag um frumvarp til lánsfjárlaga. Á ina sem rikið hefúr kostað meira eða byijað verður liggur engan veginn þessum fúndum verður tekist á um minna en meiningin er að ýmist fyrir. þau mismunandi sjónarmið sem verði færðar á herðar atvúinuveg- Ætlunin er að ljúka gerð fjárlaga- rikja í stjómarflokkunum um hvem- anna sjálfra eða að þeir borgi frumvarpsins á laugardaginn og nær ig ná eigi fjárlagahalla næsta árs þjónustuna samkvæmt gjaldskrá. engin tök em á að fresta málinu niður í 1.300 milljónir króna. Enn Vitað er að mikil átök standa tii að vegna gríðarlegrar vinnu við tækni- vantar 1.800 milljónir í spamaði eða mynda um framtíð Búnaðarfélags legan frágang þess og prentun. hækkun skatta til þess að ná því íslands. -HERB markmiði. Þessi stofhanamál standa þannig Maðurinn var að hreinsa múrdæluna þegar slysið varð. Hér er verið að losa hann. DV-mynd S Vinnuslys: Maður missti handlegg Maður missti handlegg í vinnuslysi í gær. Slysið varð er maðurinn féll i múrdælu sem notuð var við múrhúðun við byggingu fjölbýlishúss í Selásdal í gær. Erfiðleikum olli að ná manninum úr dælunni og varð að logskera dæl- una í sundur til að losa manninn. Slysið varð um klukkan sautján. Maðurinn var fluttur á slysadeild og mun líðan hans vera eftir atvikum. -sme Veðrið á morgun: Skýjað og slydda fyrir norðan Það verður norðaustanátt um allt land, víðast hvar 4 til 5 vindstig og fremur kalt. Skýjað og slydda eða kalsarigning á norðanverðu landinu en þurrt og víða léttskýjað fyrir sunnan. Hiti verður á bilinu 1 til 2 stig fyrir norðan en 3 til 5 stig fyrir sunnan. Mjólkurfræðingar: Vinna bara dagvinnu Mjólkurfræðingar eiga nú í launa- deilum við mjólkurstöðvamar. Síð- ustu tvo daga hafa þeir hætt að vinna vaktavinnu og vinna aðeins dagvinnu til að leggja áherslu á kröfúr sínar. Ekki fengust upplýsingar um það í morgun um hvað er deilt í meginatrið- um en formaður félags mjólkurfræð- inga var á fúndi með sáttasemjara í morgun þar sem þessi mál voru rædd. Með aðgerðum mjólkurfræðinga minnkar mjólkurframleiðslan að sjálf- sögðu en ekki er gert ráð fyrir mjólk- urskorti nema þá að deilan standi þeim mun lengur yfir. -ATA Eðlilegir vextir 4-5% - segir fjármálarádherra „Það er eðlilegt að lán til mjög langst tíma, allt að 30 árum, verði með 4-5% vaxtastigi og er samt umfram kjör á langtímaskuldbindingum er- lendis þar sem ekki er verðtrygging. Þetta er alveg ósambærilegt við að ríkissjóður býður nú 8,5% vexti á tveggja ára bréf, það er allt annar handleggur," segir Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra. Vextir á spariskírteinum ríkissjóðs voru komnir niður í 6% en ráðherrann segir núverandi vaxtastöðu hafa knúið vexti spariskírteinanna upp. „Þetta eru skammtímalán tekin við óeðlilegar aðstæður. Lífeyrissjóðimir eru aftur á móti að semja um ávöxtun á mjög löngum tíma og þá hlýtur að verða að miða við eðlilegt vaxtastig í sæmi- legu jafnvægisástandi. Það er málið,“ segir fj ármálaráðherra. -HERB Kona krefst skaðabóta: Smitaðist af eyðnivið blóðgjöf Kona á miðjum aldri, sem smitaðist af eyðni við blóðgjöf á sjúkrahúsi, hefur fengið lögmann í hð með sér til að krefjast skaðabóta vegna smitunar- innar. Konan fékk blóð eftir slys sem hún lenti í árið 1984. Reglulegar skimprófanir hófúst ekki í Blóðbankanum fyrr en í október 1985. Lögmaður konunnar ætlar að krefjast skaðabóta fyrir hennar hönd og vonar að málið þurfi ekki að fara fyrir dóm- stóla. Sá aðili, sem gaf blóðið, var sýktur af eyðni og gaf hann blóðið á árinu 1983. Blóðið úr manninum mun ekki hafa verið gefið í fleiri tilfellum. Lögmaður konunnar hefúr ekki lagt fram bótakröfú en hann vonast til að bætur fáist greiddar án málaferla. Fordæmi munu vera til erlendis fyrir því að í slíkum tilfellum séu greiddar skaðabætur án málaferla. -sme Búið að veiða fimm hvali Búið var að veiða fimm sandreyðar í morgun, að sögn Andrésar Magnús- sonar, verkstjóra hjá Hval hf. Enginn hvalanna er kominn að landi en von er á þeim fyrstu í hvalstöðina í dag. Tveir hvalbátar eru að veiðum. Sand- reyðamar hafa veiðst suður af Vestmannaeyjum. Sú fyrsta veiddist um eittleytið í gær. „Við erum bjart> sýnir á að veiða þessar tuttugu sandreyðar sem leyft er að veiða,“ sagði Andrés Magnússon við DV í morgun. -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.