Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987. 9 r_________________________ÚtLönd 25 milljónir hart úti eftir flóðin í Bangladesh Fórnarlömb flóðanna i Bangladesh þurfa að bíða svo klukkustundum skiptir eftir matarskammti sem opin- berir starfsmenn og hjálparstofnanir úthluta. Flóðin hafa eyðilagt að minnsta kosti þrjár milljónir tonna af mat. Simamynd Reuter Ján Oimur HaDdóisean, DV, Landan; Flóð eru enn í vexti í mörgum héruðum Bangladesh eftir einhverj- ar mestu monsúnrigningar á öldinni ó vatnasvæði Brahmaputra og fleiri stórfljóta sem liggja um þetta þétt- býlasta land veraldar. í það minnsta tuttugu og fimm milljónir manna hafa orðið hart úti í þessum flóðum sem eyðilagt hafa í það minnsta þrjár milljónir tonna af mat hjá þessari hungruðustu þjóð í heiminum. Liklegt er að heimili fimmtán milljóna manna séu í rústum eftir flóðin sem breytt hafa stórum hluta þessa marflata lands í samfellt stöðuvatn þar sem milljónir manna hafast við á því litla sem stendur upp úr vatninu. Stór hluti hins marflata Bangla- desh hefur breyst í samfellt stöðuvatn eftir gifurlegar monsún- rigningar á vatnasvæðum stórfljót- anna þar. Talið er að heimili fimmtán milljóna sé í rúst eftir flóð- in. Betur skipulagt Opinberar tölur segja að innan við þúsund manns hafi drukknað eða dáið úr hungri en engum manni dett- ur í hug að taka þessar tölur alvar- lega. I síðustu stórflóðum í Bangladesh, árið 1974, dóu þrjú hundruð þúsund manns á nokkrum vikum af afleiðingum flóðanna. Margt bendir til að þó flóðin séu verri nú en fyrir þrettán árum og fólkið fleira og fátækara en þá þá muni færri látast í kjölfar flóðanna nú nema að til farsótta komi því hjálparstarf er betur skipulagt af stjóm landsins en áður hefúr verið. Dugir skammt Stjómin hefur þó mátt sæta alvar- legum ásökunum um spillingu og sleifarlag við björgunarstarfið en þetta er þó mun skárra en ósköpin árið 1974 þegar hundruð þúsunda tonna af hrísgrjónum rotnuðu í vömhúsum á meðan milljónir sveltu. í landinu er nú til um ein milljón tonna af varabirgðum en tugir millj- óna manna hafa hins vegar mátt sjá á eftir matarbirgðum sínum í flóðun- um þannig að þetta mun duga skammt. Nóg er hins vegar af mat í næsta nágrenni landsins í öðrum Asíulöndum þrátt fyrir verstu þurrka á öldinni í Indlandi þar sem í það minnsta þrjú hundmð milljón- ir manna hafa orðið illa úti og þrátt fyrir uppskembrest sums staðar í Suðaustur-Asíu, einkum Indónesíu. Unnið baki brotnu Illa horfir hins vegar næstu miss- eri í Bangladesh því sá tími, sem nota þurfti til að koma útsæði í jörð, er liðinn án þess að unnt hafi verið að planta nokkm á stórum lands- svæðum. Þar sem vatnið hefur lækkað nægilega til þess að fólk nái að setja niður hrísgrjón hefur hins vegar verið unnið baki brotnu síð- ustu daga en Bengalir em marg- hertir af aldalangri baráttu við flóð og geta því unnið það sem annars staðar þætti kraftaverk á þessu sviði. Fijósemi landsins er líka slík að stór fjölskvlda getur lifað af landi sem ekki þætti stór garður á fs- landi. Þéttbýli landsins er líka þannig að hvergi nema á eyjunni Java í Indónesíu er nokkuð viðlíka að finna. Stærð þurrlendis í Bangla- desh er ekki stórum meira en á íslandi en þama búa meira en hundrað milljónir manna. ISHIDR Þeir fiska sem róa. Nú í september eru lióin 10 ár, síóan vió hófum mnflutning og sölu ISHIDA tölvuvoga. í tilefni þess og vegna sjávarútvegs- sýnmgarinnar hefur ISHIDA fallist á aó gefa 10% afslátt á flestum* geröum ISHIDA tölvu- voga gegn því að við gefum 10% á móti. Það er því 20% afsláttur sé pöntun staófest á meðan á sýningunni stendur. * Þaö er þó ekki 20% afsláttur á samvalsvoginm (ccw- S-210WP), ,,sem sýnd er á bás okkar Laugardalshöll". Enda óþarfi, hún borgar svo fljótt fyrir sig sjálf. \S «isÉ.os liF«#

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.