Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Blaðsíða 20
20 MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987 Cock Robin - After Here Through Midland Vanmetin hljómsveit Hún getur tekið á taugamar barátt- an fyrir vinsældunum. Það hefur hljómsveitin Cock Robin heldur betur fengið að reyna. Hljómsveitin sendi frá sér plötu fyrir rúmum tveimur árum; plötu sem þótti og þykir afbragðsgóð. En allt kom fyrir ekki; platan gekk alls ekki og slíkt getur hæglega gert útaf við bestu hljómsveitir. Reyndar vöktu tvö eða þrjú lög af þessari plötu frá 1985 athygli árinu eftir en það kom ekki í veg fyrir að helmingur hljómsveitarmanna yfirgaf samstarfið og eftir varð dúett þeirra Peters Kingsbery og Önnu LaCazio. Þau tvö héldu nafninu Cock Robin og sendu frá sér plötuna After Here Through Midland nú í sumar. Tónlist hljómsveitarinnar hefur ekki breyst mikið þó tveir hættu enda samdi Peter Kingsbery allt efni hljómsveitarinnar og var ennfremur forsöngvari. Hann á greinilega auðvelt með að setja saman liprar laglínur og er að auki prýðisgóður söngvari. Tónlistin er afskaplega bresk; nútímalegt popp í mýkri kantinum, áferðarfallegt og kannski full átakalaust fyrir smekk sumra. En það er samt engum blöðum Sinfómuhljómsveit Lundúna hefur á undanfömum árum hljóðritað pop- plög við nokkrar vinsældir. Fyrst vom það lög úr ýmsum áttum en hefur nú snúið sér að þekktum hljómsveitum. Skemmst er að minnast plötu með tón- list Jethro Tull og nú hefur litið dagsins ljós We Know What We Like (The Music Of Genesis) þar sem að sjálfsögðu er eingöngu lög eftir með- limi Genesis í útsetningu og undir stjóm David Palmer. David Palmer er fjölhæfur listamað- ur. Hann starfar jafiit með rokkgrúbb- um sem og stjómar sinfóníuhljóm- sveitum. Hefur hann getað sameinað þessa revnslu sína með góðum árangri við gerð þessarar plötu. Það ætti engum að koma á óvart Echo & the Bunnymen er fortaks- laust í hópi merkustu rokkhljómsveita Bretlands á þessum áratug. Fjórar plötur þeirra á árunum 1980-1984 byggðu sveitinni grunn virðingar og stigvaxandi vinsælda. Tónlist Bunnymen á þessu tímabili þróaðist um það að fletta að hér er á ferðinni gæðapopptónlist; það sanna lög á borð við Just Around The Comer og The Biggest Fool Of All. Fyrmefiida lagið nýtur nú tölu- að hann skuli velja tónlist Genesis. Þeir sem hafa fylgst með þeim gegnum tíðina vita að tónlist þeirra er ekkert léttmeti. Þetta á sérstaklega við um áttunda áratuginn þegar Genesis naut starfskrafta Peter Gabriel og Steve Hacket enda er megnið af lögunum sem Palmer hefur valið frá þeim tíma. Þá áttu sér stað miklar pælingar, sérstaklega áður en Peter Gabriel hætti, og þótti mörgum nóg um. En þetta var tíðarandinn og þótt Selling England By The Pound hafi kannski ekki elst of vel þá þótti þetta snilldar- verk á sínum tíma og melódíumar standa vel fyrir sínu enn þann dag í dag. David Palmer hefur að mínu viti valið lögin nokkuð skynsamlega. Lög eftir rökréttum brautum, í fyrstu hrá og „beinaber", síðar skreytt, marg- brotin og krefjandi. Stíll hljómsveitar- innar var mótaður, tónlistin í senn dularfull og aðlaðandi, persónuleg en þó ljóslega grein af þeim meiði sem Doors skópu á gullöld poppsins. verðra vinsælda hér á landi og gerði það ágætt í Bretlandi fyrr í sumar. Síðamefrida lagið er tiltölulega nýlega komið út á smáskífu svo enn er full- snemmt að spá í framgang þess. sem urðu vinsæl, eins og I Know What I Like, þar sem sólóisti er enginn annar en Ian Anderson, og nýrra lag, Follow You, Follow Me. Á móti em svo flóknari verk, þar sem Palmer hefur tekið saman í eitt verk nokkur lög eins og Snowbound-Snowbound, Scenes From A Night’s Dream og Say Its Alright, Joe. Ur þessu er Palmer búinn að gera tólf mínútna verk sem í raun getur eins kallast hans eins og þeirra félaga í Genesis. Til að fá meiri vigt í plötuna notast Palmer einnig við drengjakór frá Charterhouse skólanum en einmitt í þeim skóla stofiiaði Peter Gabriel Ge- nesis á sínum tími. Þá er vert að nefria þátt Steve Hackett en hann er sérstak- ur gestur og fer að venju fimum „Echo & the Bunnymen" er fyrsta plata hljómsveitarinnar í rúm 3 ár og það mun vera hálfgert kraftaverk að platan sé yfir höfuð komið á markað. Trommuleikarinn Pete De Freitas fékk sig fullsaddan á bröltinu fyrir rúmu ári síðan, hélt í vesturveg og Burtséð frá því finnst mér ótrúlegt að Cock Robin skuli ekki hafa náð lengra en raun ber vitni en eru ekki laun heimsins vanþakklæti? -SþS- höndum um gítarinn. We Know What We Like er langt frá því að vera eitthvert léttmeti. Það þarf að gefa sér góðan tíma til að hlusta á plötuna og ná áhrifum henn- ar. Vert er að taka fram að ekki er allt sem undirrituðum líkaði við. Sum- ar útsetningar eiga það til að vera yfirborðskenndar en þegar Sinfó- níunni tekst best upp þá getur maður heyrt að í raun er reginmunur á Sinfó- níuhljómsveit og prógrömmuðum hljóðgervlum sem eiga að hljóma eins og sinfóníuhljómsveit. We Know What We Like er plata fyrir þá sem hafa æfingu í að hlusta á tónlist og hafa gaman af því að heyra eitthvað sem er öðruvísi. HK gekk í sértrúarsöfnuð, skeytingarlaus um öll spumaraugun sem stóðu á hon- um. Um síðir leysti tiymbill þó úr eigin geðflækju og gekk til liðs við félagana að nýju. - En þó hjónabandinu væri bjargað fyrir hom, gekk síður með hönnun nýs afkvæmis. Sagan segir að þessi nýja plata hafi verið hljóðblönd- uð 53 sinnum! Og hver er svo árangurinn? í stuttu máli sagt, fáguð og mjög vönduð rokk- plata, einkar áheyrileg og samkvæm sjálfri sér EN gripurinn hefur þó yfir sér ákveðinn hlutleysisblæ sem dregur úr áhrifamættinum. Það er deginum ljósara að þessi nýja plata er sú að- gengilegasta sem E&tB hafa sent frá sér og hér er greinilega róið á sömu mið og á undanfömum plötum Simple Minds, Pretenders og fleiri sveita. Dagskipunin er vandvirkni, fágun og umfram allt ekki styggja neinn! „Echo & the Bunnymen" hefur sann- arlega til að bera efriivið fyrsta flokks rokkplötu, margar sterkar lagasmíðar, t.d. The game, Lips like sugar, All in your mind o.fl. Það sem dregur plöt> una niður em hins vegar litlausar útsetningar er miða að því að sm'ða af lögunum hijúfleika augnabliksins og þar með eitt af frumefiium góðrar dægurtónlistar. Skúli Helgason Popp/smælki Sæl nú!... Reggaehetjurnar týna nú tölunni smátt og smátt. I siðustu viku var einn helsti foringi reggaemanna, eftir að Bob Marley var allur, Peter Tosh skotinn til bana á heimili sínu í Kingston á Jamaica. Einn kunningi Tosh sem staddur var á heimilinu ásamt fleirum féll sömuleiðis i árásinni og margir særðust. Morðingjarnir hafa ekki náðst en þeir ruddust inná heimili Tosh vopnaðir í bak og fyrir og heimtuðu peninga. Og þó svo Tosh hefði eflaust getað séð af einhverjum krónum var hann ekki á þeim buxunum að láta ræna þeim af sér með þessum hætti og svaraði með þjósti að þeir fengju ekki grænan eyri frá honum. Glæpamennirnir höfðu þá engar vifilengjur með það heldurskutuTosh til bana... Andy Gibb litli bróðir þeirra Gibba Gibb bræðra í Bee Gees hefur um langt skeið verið með nefið i kókaín- neyslu og margsinnis komist í bobba vegna þessarar fiknar sinnar. Hann var á dögunum nappaður í Los Angeles með kókain uppá fleiri milljónir í fórum sinum og sér þvi framá að geta hvilt röddina rækilega næstu árin... Hljómsveitin Spear Of Destiny varð að hætta við þátttöku á hljóm- leikahátiðinni í Reading á Englandi fyrir skemmstu vegna þess að söngvari hljóm- sveitarinnar Kirk Brandon var lagður inná spitala í hasti. Piltur hafði verið við vinnu i hljóðveri er annar fótur hans fór að tútna út og þegar fótur- inn var orðinn tvöfaldur leist honum ekki á blikuna og fór að láta athuga málið. Þá kom i Ijós að drengurinn var með bullandi hita og var lagður inn i snatri. Læknar telja að ein- hverskonar truflanir á blóð- rennsli hafi átt sér stað en Brandon var enn á spítalanum þegar siðast fréttist... Það er munur að vera þekkt andlit og það kom sér vel fyrir Alice Cooper á dögunum i London er hann hugðist skjótast úti næstu vídeósjoppu og ná sér í nokkrar vel valdar myndir að horfa á. Vídeóbúðin var I nefnilega nýbúin að loka þeg- ar Cooper bar að garði en starfsfólkið þekkti smettið á gamla rokkaranum og opnaði sérstaklega fyrir vininn. Það kom reyndar nokkuð á óvart að gamli hænsnaslátrarinn gekk út með myndir á borð við Kramer vs Kramer, Flash- dance og On Golden Pound... heil og sæl... -SþS- The London Symphony Orchestra - We Know What We Like Sinfónískt popp ______Echo & The Bunnymen - E&TB_ LKIausar útsetningar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.