Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Blaðsíða 16
16 MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987. Spumingin Ætlarðu í leikhús í vetur? Ingvar Óskarsson: Nei, ég hef ekki hugsað mér það ennþá, enda hef ég lítið kynnt mér hvað húsin hafa upp á að bjóða. Ég fer í leikhús svona einu sinni til tvisvar á ári. Jóhannes Ragnarsson: Nei, ég held ekki, allavega ekki hér í bænum því ég er bóndi norður í landi. Það eru leikfélög bæði á Blönduósi og Hvammstanga og ég hef stundum farið að sjá eitthvað hjá þeim. Svo fer ég auðvitað á Húnavökuna. Sigurlaug Magnúsdóttir: Það getur vel verið, maður veit aldrei. Ég fer stundum í leikhús og hef mjög gaman af. Ég fer helst í Þjóðleikhúsið en líka stundum í Iðnó. Anna María Rafnsdóttir: Ég er ekki búin að ákveða það neitt og hef ekki einu sinni kynnt mér málin. Annars er ég frá Stykkishólmi og þar er áhugamannaleikfélag sem setur upp eina sýningu á ári og ég fer á hana. Þórunn Guðbjörnsdóttir: Ég er ekk- ert búin að ákveða það, enda hef ég ekki kynnt mér það. Ég hef nú ekki farið mikið í leikhús undanfarin ár. Jóhannes Ólafsson: Nei, ég held ekki. Það er ekkert sérstakt sem heillar mig í vetur en ég fer líka afskaplega lítið í leikhús. Ég lék í Herranótt þegar ég var yngri en nú orðið leið- ast mér leikhús. Lesendur____________________________________________________________dv Nútímaþjódfélagið: „Bömin orðin aukaatríði Móðir skrifar: Ég get ekki á mér setið lengur í sam- bandi við fóstureyðingamar sem allir telja sjálfsagðan hlut nú til dags. Fóstureyðingar eru gefnar fijálsar og við fáum að heyra ótrúlegar tölur um fjölda kvenna á öllum aldri sem nýta sér þessa aðferð til að halda bameign- um i ske§um. Fólk nú til dags má hreinlega ekki vera að því að eignast böm hvað þá að hugsa um þau. Bömin era orðin aukaatriði og þeim ýtt út í hom. Eng- inn má vera að því að sinna þeim. Það er ekki pláss fyrir þau í hraða nútíma- þjóðfélagsins. Fóstureyðingar eða fósturdráp eins og ég kýs fremur að kalla þessa at- höfn er afleiðing þessa gerilsneydda þjóðfélags. Böm era óvelkomin í heim- inn, þeirra er ekki óskað og því er notuð sú aðferð að drepa þau á fóstur- stigi. Það er verið að hamla á móti móður náttúra. Þessar ungu konur taka þessu sem einhverjum leik. Það þarf ekkert að passa sig því það er bara hægt að eyða fóstrinu, láta eins og það hafi aldrei verið til. En líf kviknar við getnað og þetta athæfi, fóstureyðing, er eitt það ómannúðlegasta sem læknavísindin hafa fundið upp. Ekki má heldur asta sem læknavisindin hafa fundiö upp.“ gleyma áhrifunum sem þetta er sagt hafa á hveija konu. Þetta leggst á sálarlífið og getur brenglað huga æ síðar. Það er heldur ekki að passa sig unga fólkið í dag. Nú þegar þessi hræðilegi sjúkdómur eyðni er kominn fram á sjónarsviðið hefði maður haldið að ábyrgðartilfinningin ykist en því er aldeilis ekki að heilsa. Svo virðist sem ábyrgðarleysið hafi aldrei verið meira. Ólæti og oíbeldi veður uppi og enginn er tilbúinn að taka afleiðingum gjörða sinna. Ég sé engin haldbær rök með fóst- ureyðingum. Það er kannski helst ef meðganga og fæðing stefrúr lífi og heilsu móður í mikla hættu sem þetta ætti að leyfa en alls ekki eins fijálst og nú er. Svo virðist sem hver sem er geti fengið fóstureyðingu án teljandi vandræða. Nú segja fréttir okkur að íslending- um fækki ár hvert og stefrú í landauðn ef heldur fram sem á horfir. Við fáum einnig fréttir af fólki sem bíður í mörg, mörg ár eftir því að geta ættleitt böm frá útlöndum. Ég bara spyr, hvers vegna er þessu fólki ekki leyft að fá þessi óæskilegu íslensku böm? Er ekki hægt að slá tvær flugur í einu höggi með því? Ester hringdi: óvenjugóðri reynslu minni af sölu- manni því það er svo sérstakt að maður lendi í svona almennileg- heitum. Hann heitir Lárus en manni einum. föðumafeið veit ég því miður ekki. Ég keypti mér bíl hjá Fiatumboð- Hann var alltaf í sama góða skap- inu og þar sem ég fékk bílinn ekki inu, afelappaður og tilbúinn að gera strax þurfti ég að fara oft til þeirra. sitt besta. Stöðvið busa- vígsluósómann 4416-8898 skrifar: Ég get ekki þagað. Ég hlýt að láta í ljós hryggð og viðbjóð á því fram- ferði sem tíðkast í a.m.k. sumum menntaskólum okkar og kallað er busavígsla. Ég vona að sú frétt, sem sýnd var 10. sept. sl. á Stöð 2 af busavígslu Menntaskólans við Sund, verði til þess að þeir sem hafa vald til að stöðva svona ofbeldi geri það. Því miður munu fleiri skólar leyfa svipaðan viðbjóð. Við hljótum að ætl- ast til þess af menntaskólunum okkar að þeir vinni að þvi að koma nemend- um sínum til nokkurs þroska en ekki að eldri nemendum sé leyft að hafa í frammi jafnsiðlausar athafnir og sum- ar busavígslumar era orðnar. Það var mikill munur og ánægjuleg- ur að lesa um vígslu nýnema í sam- félag eldri nema í Fjölbrautaskólanum við Armúla; fjallgöngu og grillveislu á eftir. Það var mjög ánægjuleg frétt og skemmtilegur vitnisburður um sið- ferði þeirra sem þar ráða. Ég segi enn: Ég vona að þeir sem hafa vald til að stöðva þennan ósóma geri það. hlýt aö láta í Ijós hryggð og viðbjóð á því framferöi sem tíðkast í a.m.k. sumum menntaskólum okkar og kallað er busavígsla." Síversnandi umgengni R.J. hringdi: Það er alveg ótrúlegt hversu margir stunda þann leiða ósóma að opna hjá sér bílgluggana og kasta alls kyns rusli út, stóra og smáu. Ég hef svo oftsinnis tekið eftir þessu og nú get ég ekki orða bundist lengur. Fólk virð- ist enga virðingu bera fyrir landinu eða heimabyggð sinni. Enginn virðist muna lengur eftir slagorðunum; hreint land, fagurt land og hrein borg, fögur torg. Sígarettupökkum, gosdósum og karamellubréfum er kastað út hvar sem bíllinn er staddur í það og það skiptið, jafevel heilu appelsínunum eins og ég sá um daginn. Annað er það í sambandi við um- gengni sem ég vil minnast á og það era blómakerin og trén sem vora á Laugaveginum þegar hann var opnað- ur. Strax á fyrsta og öðrum degi var byijað að skemma kerin og slíta upp blómin. Síðan vora þau hreinlega fjar- lægð, sennilega vegna þess að þetta fékk ekki að vera í friði. Eitt dæmi veit ég um verslun á Laugaveginum þar sem sett var blómaker út fyrir dymar en klukkan sex, þegar átti að taka kerið inn, var það hreinlega horf- ið. Umgengni hér á landi er að verða alveg hryllileg og fer síversnandi. Það er furðulegt að fólk skuli ekki sjá sóma sinn í að halda umhverfi sínu hreinu og snyrtilegu. Það er t.d. ekki svo mikið mál að hafa alltaf sérstakan poka við höndina í bílnum undir rusl. „Sígarettupökkum, gosdósum og karamellubréfum er kastað út hvar sem bíllinn er staddur í það og það skiptið." Hjólastuldir Hersir skrifar: Nú er mælirinn fullur hjá mér og öragglega hjá fleirum. Ég vil koma á framfæri nokkra sem búið er að vera vandamál hjá okkur í fyrra og í sumar. Til að byija með var alltaf verið að stela ventlum úr hjóli dóttur minnar, alveg þangað' til búið var að fylla ventlalausu hjólin í kring. Ekki nóg með það heldur var svo hjólinu henn- ar stolið í fyrra og fannst aldrei. Við keyptum handa henni nýtt hjól í vor, BMX, svart og gult, með brett- um. En viti menn, þessir púkar vora aftur á ferð helgina 12.-13. sept. og stálu nýja hjólinu sem var læst við grindverk svo að þeir þurftu klippur eða sög til að losa það. Þetta verður kannski svona hjá mér þangað til búið verður að fylla kvó- tann hjá bömum sem vantar hjól, eins og með ventlana. Furðulegast af öllu er að foreldrar skuli ekki sjá bömin sín leika sér með nýtt hjól sem þeir hafa ekki séð áður og forvitnast um hvar þau hafi fengið það. Þessu hjóli var stolið að Eyjabakka 24 og vil ég biðja þá sem verða varir við hjól í reiðileysi eða sjá einhvem með hjól sem hann var ekki með fyrir þessa helgi að láta okkur, Hersi eða Hrafnhildi, vita í síma 78988.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.