Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Side 19
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987. 19 Dægradvöl Og þaö var mark! dæmis fór ég til Vestmannaeyja í sumar.“ - Hverju vilt þú þakka góðan árang- ur liðsins? „Góður árangur strákanna hefur fyrst og fremst náðst af góðri ástund- un þeirra. Svo eru þeir með mjög góðan þjálfara, Óskar Ingimundar- son, sem hefur þjálfað liðið síðastlið- in þrjú ár. Leigðu Fokker til Vestmannaeyja Við kvöddum Hauk en hann gat ómögulega spjallað lengur, svo spenntur var hann. Hann skipaði sér á fyrri stað í hópnum, hoppaði og hrópaði liðinu til hvatningar. Þá kom aðvífandi þriðji Ólafsfirðingur- inn, að þessu sinni kona að nafni Guðbjörg Þorsteinsdóttir. Hún virt- ist ekki jafnæst og karlmennimir en skemmti sér þó ágætlega. Guðbjörg sagðist hafa smitast af fótboltaáhug- anum af manni sínum. Hún byrjaði að fylgjast með fótbolta fyrir tveimur til þremur árum og áhuginn hefur sífellt aukist. „Fótboltaáhugi er mjög mikill á Ólafsfirði. Það hefur í raun- inni allt snúist um fótboltann í sumar. Ég hef fylgt Leiftri um landið síðastliðna mánuði eins og margir aðrir. Við leigðum okkur Fokkervél í sumar og fórum sextíu saman til Vestmannaeyja með liðinu. Það var mjög gaman. Svo var ég á leiknum gegn Breiðabliki í Kópavogi og nú er ég hér. En ég veit um fleiri sem fylgjast mjög grannt með liðinu. Brottfluttir Ólafsfirðingar hafa einn- ig mikinn áhuga, ég veit um fólk sem hefur komið frá Akranesi og víðar til að fylgjast með þessum leik. Ætli það séu ekki tvö til þrjú hundruð manns staddir hér á vellinum til að styðja liðið." - Veistu hvers vegna Leiftri hefur gengið svona vel undanfarið? , „Liðið hefur spilað lengi saman og hefur það eflaust sitt að segja. Þeir hafa góðan þjálfara og svo er þeim áreiðanlega mikill stuðningur af því að hafa þorra bæjarbúa með sér í baráttunni." Það vita allir hvernig leikurinn fór. Leiftur sigraði Þrótt með tveim- ur mörkum gegn einu og komst um leið í fyrsta skipti upp í 1. deild. Ól- afsfirðingarnir sneru því til síns heima enn glaðari í bragði heldur en fyrir leikinn. Og sennilega hefur verið fjör á ballinu með Greifunum daginn eftir. Texti: Jóna Björk Guðnadóttir DV-myndir: Gunnar V. Andrésson Guðbjörg Þorsteinsdóttir: „Það hefuralltsnúistumfótboltann ísumar." 38 nrfiekfor lompen 38 8 UVAtubes • 1000VVo'»9«iicht»nalbruinar ; • tOOOWottfocial ponai » tOOOWott Oe*lcht»chn«llbrdu'>er 38 speglaperu bekkir 27 kæliviftur. 1000 vatta andlitsljós með síu Djúpir og stórir bekkir PANTIÐ TÍMA OPIÐ FRÁ KL. 10-10 VIRKADAGA. 10-19 LAUGARDAGA. 13-19 SUNNUDAGA. SÚLBAÐSST0FA NÚATÚNI 17, SiNII 21116 FERÐATÖSKUR EKTA LEÐUR • Ekta leðursaumur • Vel unnið • Klassísk tískuvara • Nuggat brúnar • Glæsilegar og varan legar • Léttar, fyrirferðarlitl ar en mjög rúmgóðar 1. Rúmgóð ferðataska, tvískipt, rennilás allan hringinn. Stærð: ca 57x42x12 cm 2. Helgarferðataska með framhólfi m/ rennilás. Stærð: ca 47x28,5x12 cm 3. Axlartaska með hliðarhólfi. Stærð: ca 28x32x17 cm 4. Þarfaþing (snyrtitaska) fyrir persónu lega hluti. Stærð: ca 24x16,5x10,5 cm Pöntunarsími 91-651414 og 623535 Símapantanir alla daga vikunnar kl. 9.00-22.00. Póstverslunin Príma, box 63,222 Hafnarfirði. S VISA © EUROCARD

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.