Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1987, Síða 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987.
Neytendur
„Það er mesti misskilningur ef fólk
heldur að hússtjómarfræðsla sé eitt-
hvað gamaldags sem ekki eigi við í
nútímaþjóðfélagi. Með hagnýtri
fræðslu um hvemig á að halda heim-
ili gengur öll vinnan miklu betur. Við
þurfum öll að halda heimili einhvem-
tíma, hvort sem við búum ein eða með
öðrum.“
Þannig mælti Axma Guðmundsdótt-
ir, hússtjómarkennari í Hússtjómar-
kennaraskóla íslands, í samtali við DV
á dögunum.
Þótt hússtjómarskólunum hafi
fækkað á landinu á undanfömum
árum og hússtjómarkennarar séu
ekki lengur við nám í Hússtjómar-
kennaraskólanum er langt frá því að
eitthvert auð og tóm sé yfir vötnum í
þeirri stofnun. Þar fer fram kennsla
allan daginn en nú em það kennara-
neinar og kennarar sem þar nema
heimi'isfræðikennslu, því enn fer
fram kennsla í heimilisfræðum í
grunnskólum. Heimilisfræði er skyld-
unámsgrein frá því að bömin era 7
ára gömul og alit upp 8 bekk í grunn-
skóla.
Algert jafnrétti kynjanna
Að sögn Önnu era námsefhiö í
grunnskólanum nú aiit sniðið fyrir
bæði kynin. Algert jafnrétti ríkir í öllu
námsefninu og þess mjög vel gætt að
á öllum myndum í verkefhum sem
gefin hafa verið út fyrir heimilisfræði-
kennsluna era jafnan bæði kynin við
heimiiisstörfin, en ekki eingöngu
kvenpersónumar, eins og áður var
alsiða.
Skólahúsnæðið í notkun
allan daginn
Þeir sem stunda nám innan veggja
Hússtjómarkennaraskólans nú era
nemendur úr Kennaraháskóla íslands
auk þess sem nemendur úr Mennta-
skólanum í Hamrahlíð, þrír átta
manna hópar, nota aðstöðuna í skól-
M$ÍM
*
■
ÉMft
Anna Guðmundsdóttir hússtjórnarkennari og Guðrún Lísa Óskarsdóttir. Guðrún er handavinnukennari frá gamla Kennaraskólanum og er nú að bæta við
sig sérnámi í heimilisfræði til þess áð geta einnig kennt heimilisfræði í grunnskólanum. Annar „eldri“ nemandi var þarna einnig en vildi ekki láta nafns
síns getið.
DV-myndir KAE
Allir þurfa að þeklga og
kunna til vevka á heimilinu
DV heimsækir Hússtjómarkennaraskólann þar sem kennaranemar læra hússtjómaifiræði
anum. Þeir nemendur koma eftir að
annarri kennslu lýkur á daginn og era
fram á kvöld. Þannig er húsið í notkun
alla daga.
Kennarar og kennaranemar sækja
margskonar námskeið sem haldin era
í skólanum. Anna sagði að algengt
væri að kennarar notuðu ársorlof sitt
til þess að bæta við kunnáttu sína.
Þessir kennarar kenna svo heimilis-
fræði í grunnskólunum. Hins vegar
bætast ekki við hússtjómarkennarar
því slíkt nám er ekki hægt að stunda
hér á landi lengur.
Heimilisfræðin valgrein
í Kennaraháskólanum
Daginn sem DV kom í heimsókn í
skólann vora þar fyrir þrír ungir nem-
ar úr Kennaraháskólanum og tveir
handmenntakennarar sem vora að
bæta viö sig námsefni.
Heimilisfræðin er valgrein í Kenn-
araháskólanum. Ungu nemarnir þrír
sögðu aö áhugi á þessari valgrein
væri sæmilega góður miöað við aðrar
valgreinar sem boðið er upp á. Hins
vegar væra færri sem stunduðu þetta
nám í ár en verið hefði, eða fimm.
Átta kennaranemar vora í þessari
valgrein í fyrra og tíu árið þar á undan.
Talsverður áhugi virðist hinsvegar
vera á heimilisfræði meðal nemenda
í mennta- og fjölbrautaskólum. Stórir
hópar úr menntaskólunum við Sund
og Hamrahlíð völdu heimilisfræði sem
valgrein og einnig margir úti á lands-
byggðinni eins og í menntaskólunum
á ísafirði, Akureyri og Egilsstöðum.
Hinum eiginlegu hússtjómarskólum
hefur hins vegar fækkað. Nú era að-
eins starfandi þrír slíkir á landinu, í
Reykjavík, á Hallormsstað og á
ísafirði. Á sl. þremur árum hafa verið
lagðir niður þrír hússtjómarskólar.
Mynddiskamir ómögulegir
Neytandi skrifar:
Svo er mál með vexti að ég fór með
mynddisk til framköllunar í verslun-
ina Ljósmyndavörur, Skipholti 31. Það
tók vikutíma aö framkalla myndimar
og þegar þær loksins birtust þá kom
í ljós að verulega hafði verið kastað
til höndunum við verkið, nánast eins
og það hefði verið unnið af fúskara
sem ekki kann til verka og er furðu-
legt að fyrirtæki sem er að reyna aö
hasla sér völl á markaðnum skuli láta
svona vöra frá sér. Myndimar vora
óskýrar og nánast ómögulegt að sjá
Raddir neytenda
hvað á þeim var. Fór ég með filmuna
annað og lét framkalla hana aftur. Þar
fékk ég myndimar daginn eftir og kom
þá í ljós aö þær vora skýrar og góðar.
Fór ég þá aftur í Ljósmyndavörur,
Skipholti 31, og sýndi myndimar sem
ég hafði fengið þar. Taldi þá afgreiðslu-
maðurinn aö þær væra svona óskýrar
vegna þess að þær væra ekki í fókus.
Sagði ég honum þá að ég væri búinn
að láta vinna þær aftur og að þær
væra í lagi og fór fram á endur-
greiðslu. Leitaði þá afgreiðslumaður-
inn til yfirmanna sinna og kom til
baka með þau svör að hann væri tilbú-
inn að endurgreiða myndimar en
aðeins ef ég gæti framvísað vinnslu-
umslaginu. Nú vildi svo óheppilega til
að því hafði verið fleygt og fékk ég því
myndimar ekki endurgreiddar þó að
afgreiðslumaðurinn viðurkenndi að
þær væra unnar hjá fyrirtækinu.
Svona er nú þjónustan þar.
Mynddiskarnir ómögulegir?
Þegar haft var samband við Ljós-
myndavörur út af þessu máli fengust
þau svör að rpjög eifitt væri við mynd-
diskana að eiga. Filman væri rpjög lítil
og því erfitt að framkalla hana. Játað
var að eitthvað hefði farið úrskeiðis
við framköllim og stæði vissulega til
að endurgreiða manninum.
-SMJ
Greinilegur munur er á þessum tveimur myndum, sú til vinstri er ágætlega unnln en sú til hægri er illa unnin og eins og hún sé ekki í fókus. Hún er unnin
hjá Ljósmyndavörum.