Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1987, Qupperneq 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987.
Frjálst.óháÖ dagblaö
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRjALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 600 kr.
Verð í lausasölu virka daga 60 kr. - Helgarblað 75 kr.
Alger umskipti
Alger umskipti hafa orðiö á afstöðu landsmanna til
bjórsins á tíu ára tímabili. Þetta sýna skoðanakannanir
DV. Staðan var sú fyrir tíu árum, að tveir þriðju voru
andvígir því, að sala áfengs öls yrði leyfð hér á landi.
Nú eru um tveir þriðju því fylgjandi. Fylgi bjórsins fór
vaxandi í lok seinasta áratugar. Hann komst í meiri-
hluta í skoðanakönnunum um 1980. Sjaldan eða aldrei
hafa skoðanakannanir hér á landi sýnt svo geysilega
breytingu á hlutföllum á ekki lengri tíma.
Eðlileg afleiðing þessara breyttu viðhorfa í landinu
hefði átt að vera, að þingið samþykkti bjórinn. Það hef-
ur ekki orðið enn, en oft hefur litlu munað og stundum
hafa kúnstugar uppákomur stöðvað framgang málsins.
Vonir standa til, að þetta breytist nú og nýkjörið þing
samþykki að leyfa bjór. Vilji mikils meirihluta lands-
manna getur ekki verið greinilegri en nú, í hverri
könnuninni á fætur annarri.
Sjáifsagt er að skoða, hvers vegna afstaða meirihluta
landsmanna hefur breytzt. í umræðu síðustu ár hafa
margir lagt áherzlu á misréttið í þessum efnum. Það eru
ákveðnir hópar landsmanna, sem hafa aðgang að bjór.
Aðrir áhugamenn geta kannski nálgazt smyglaðan bjór
á margfóldu verði. Áhafnir fengu lengi að koma með
dálítið af bjór. í vaxandi mæli þótti fólki þetta ranglátt,
að aðrir ferðamenn máttu. ekki koma með bjór inn í
landið. Þá var gerð sú merkilega breyting að leyfa ferða-
fólki að koma með nokkuð af áfengu öli inn í landið.
Þessi breyting hefur síðan í sjálfri sér valdið talsvert
breyttum hugsunarhætti. Nú segir fólk sem svo, að ein-
kennilegt sé, að ferðafólkið geti haft með sér nokkrar
dósir en aðrir landsmenn megi ekki ná í bjór. Fólki
fmnst það ekkert réttlæti. Og fólk skilur ekki þau rök,
að þetta sé unnt að leyfa, ef áfengt öl sé jafnskaðlegt
landsmönnum og andstæðingar þess vilja vera láta.
Fleira kemur til. íslendingar hafa síðustu árin ferðazt
meira en nokkru sinni fyrr. Þegar landinn kemur til
útlanda er algengast, að hann fagni því að geta fengið
sér öl. Það gildir um mikinn meirihluta. Vissulega sjá
menn sóðaskap við meðferð bjórs sums staðar erlendis.
En sá fjöldi landsmanna, sem hefur notið öls erlendis,
skilur ekki, hvers vegna hann má það ekki hér heima.
Æ fleiri líta á það sem mannréttindi að hafa aðgang
að öli. En sjálfsagt væri að setja hömlur, einkum fyrst
í stað. Bjórinn má ekki flæða yfir allt. En hann ætti að
vera fáanlegur í áfengisverzlunum og á vínveitingahús-
um. Þetta mætti í byrjun hugsa sér sem nokkurs konar
tilraun. En enginn efi er, að hún mundi gefast nægilega
vel. Fráleitt er að leyfa ekki veikari drykki, þar sem
hinir sterkari er á boðstólum.
Landsfeðurnir eiga að hætta að líta á almenning hér
á landi sem einhvern úrhrakslýð, sem ekki megi leyfa
það, sem víðast annars staðar þykir sjálfsagt. Slík skoð-
un hlýtur að vera á undanhaldi. Vissulega ætti hvergi
að slaka á reglum, þótt bjórinn kæmi, svo sem um áfeng-
ismagn í blóði ökumanna. Þar verður hver að sjá um
sig og fylgja settum reglum. Áfengisböl er hér mikið
eins og víðast hvar. En líklegt er, að það yxi ekki við
tilkomu bjórsins. Margir drykkju þá léttari drykk, sem
nú neyta hinna sterkari við ýmis tækifæri.
Tveir þriðju landsmanna vænta þess, að nýkjörið
Alþingi taki af skarið í vetrarbyijun og leyfi loksins
bjór í landinu.
Haukur Helgason
Menn eru almennt hættir aö kippa
sér upp við misvitrar ákvarðanir
Davíðs borgarstjóra Oddssonar og
hirðar hans í meirihluta borgar-
sljómar, enda er farið að heyra til
undantekninga að eitthvað sæmi-
lega gáfulegt komi írá þeim bæ. Sem
betur fer er oft á tíðum um aö ræða
heimskupör sem ágætir möguleikar
em á að bæta fyrir seinna meir er
ábyrgur og mannlegur meirihluti
kemst til valda í borginni. Því miöur
er hirðin þó í allt of mörgum tílfell-
um að styðja við bakið á herra sínum
í aðgerðum sem borgarbúar þurfa
að sitja uppi með um alla framtíð,
hvort sem þeim líkar betur eða verr.
Þrátt fyrir þetta er það ótrúlegur
fjöldi borgarbúa sem telur Davíð
nær guðlegan og hirð hans til mikils
sóma. Ein ástæða þess er sú stað-
reynd að borgarbúar sitja ekki
borgarstjómarfundi og fylgjast því
ekki með þeim skrípaleik sem meiri-
hluti borgarstjómar stendur oft á
tíðum fyrir, með borgarstjórann
sjálfan fremstan í flokki.
Þótt borgarstjóm hafi verið í sex
vikna sumarfríi í júlí og ágúst þá dró
meirihlutinn ekkert úr asnastrikum
sínum. Meðal þeirra má nefiia eitt
asnastrik sem ekki verður bætt í
framtíðinni þó nýr og ábyrgur meiri-
hluti taki við völdum. Það var
úthlutun lóðar undir starfsemi Iðn-
aðarbankans á homi Miklubrautar,
Háaleitisbrautar og Safamýrar.
Gatnakerfiö sprungið
Gatnakerfi Reykjavíkurborgar er
sprungið. Sérstaklega er ástandið
slæmt á umferðaræðum í kringum
nýju Kringluna og má segja að þar
„Með því er borgarstjóri Reykjavíkur, sem oddamaður sjálfstæðismanna
í borgarstjórn, að leggja líf og limi barna og unglinga i Háaleitishverfinu
í hættu. Sofi hann vel eftir fyrsta umferðarslysið í Safamýri.“
Asnastrik
Davíðs og
hirðar hans
skapist daglega algjört neyðar-
ástand. Miklabrautin, sem lengi vel
var sæmilega trygg leið milli austur-
og vesturhluta borgarinnar, er nú
að nálgast Laugaveginn hvað um-
ferðaröngþveiti snertir.
Afleiðing þessa er að bílstjórar
velja í auknum mæli íbúðagötur,
sem liggja samhliða Miklubrautínni,
til að komast á milli. Þannig er nú
neyðarástand í Hamrahlíðinni þar
sem bæði umferðarmagn og um-
ferðarhraði er langt umfram það
sem veijanlegt er á íbúðagötu. Ekki
bætir úr skák að við Hamrahlíð eru
bæði grunnskóli og menntaskóli
þannig að daglega þurfa böm og
unglingar á aldrinum sex til átján
ára að ganga yfir götuna, jafnvel oft
á dag.
Þá hefúr umferð um Safamýrina
stóraukist eftir að verslunarmið-
stöðin í Kringlunni tók til starfa. Við
Safamýri em tvö bamaheimili,.einn
grunnskóli og víðfeðmt íþróttasvæði
sem tugir bama og unglinga sækja
daglega. Þar er því stöðug umferð
gangandi bama yfir götuna frá
morgni tíl kvölds.
Tvöfaltstórslys
Nú förum við að nálgast kjama
málsins. Með því að leyfa Iönaðar-
bankanum að byggja hús undir
aukna starfsemi sína á mótum
KjaUarinn
Hallur
Magnússon
formaður FUF
í Reykjavík
Miklubrautar, Háaleitisbrautar og
Safamýrar er meirihluti sjálfstæðis-
manna í borgarstjóm að valda
tvöfoldu stórslysi.
í fyrsta lagi er ömggt að umferð
um Safamýri mun aukast til enn
meiri muna en nú er orðið þar sem
fólk mun örugglega nota þá götu til
að komast að og frá Iðnaðarbankan-
um því bílsfjórar kjósa síður troð-
fúlla Miklubrautína. Með því er
borgarstjóri Reykjavikur, sem odda-
maður sjálfstæðismanna í borgar-
stjóm, að leggja líf og limi bama og
unglinga í Háaleitishverfinu í hættu.
Sofi hann vel eftír fyrsta umferðar-
slysið í Safamýrinni.
í öðm lagi mun bygging á þessu
homi verða til þess að ekkert pláss
verður fyrir eðlileg umferðarmann-
virki sem óhjákvæmilega verður að
reisa á homi Háaleitisbrautar og
Miklubrautar til að leysa þá um-
ferðarkatastrófú sem sjálfskipaðir
umferðarsérfræðingar sjálfstæðis-
manna í borgarsljóm hafa skapað á
undanfömum árum með ákvörðun-
um sinum.
Það er ljóst að fyrirhuguð Foss-
vogsbraut sjálfstæðismanna í
Reykjavik verður ekki að veruleika
því sem betur fer hafa þeir ekki vald
yfir útivistarsvæðum Kópavogsbúa
í Fossvogi en yfir þau vilja sjálfstæð-
ismenn leggja malbik. Bústaðavegur
mun heldur ekki geta tekið við þeirri
aukningu sem orðin er á umferðar-
straumi milli austur- og vesturhluta
borgarinnar. Til þess þrengdu sjálf-
stæðismenn í borgarstjóm of að
þeirri umferðaræð þegar þeir sam-
þykktu skipulag íbúðahverfa og
verslunarmiðstöðvar þétt við Bú-
staðaveginn á sínum tíma. Eina
lausnin er breikkun Miklubrautar
og að gatnamót við Miklubraut verði
á brúm. Ef Iðnaðarbankahús rís á
homi Miklubrautar, Háaleitisbraut-
ar og Safamýrar verður ekki lengur
pláss fyrir þess háttar brú. í framtíð-
inni mun því nýr og ábyrgðarfúllur
borgarsljómarmeirihlutí eiga um
tvo kosti að velja, að lifa við um-
ferðaröngþveiti eða kaupa nýbygg-
inguna af Iðnaðarbankanum dýrum
dómum og bijóta hana niður til að
koma fyrir eðlilegum umferðar-
mannvirlgum og em báðir kostir
illir. Væri ekki nær að afturkalla
asnastrikið meðan enn er tími til?
Hallur Magnússon
„Með því að leyfa Iðnaðarbankanum
að byggja hús undir aukna starfsemi
sína á mótum Miklubrautar, Háaleitis-
brautar og Safamýrar er meirihluti
sjálfstæðismanna í borgarstjórn að
valda tvöföldu stórslysi.“