Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1987, Síða 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987.
Óhress með seinagang
Kaupmaöur viö Skólavöröustíginn er mjög óhress meö seinagang og frágang framkvœmda þar.
Kaupmaður hringdi:
Ég er kaupmaður á Skólavörðu-
stígnum og nú er ég orðinn ansi
langþreyttur á þeim framkvæmdum
og uppgreftri sem þar hefur verið frá
því um miðjan ágúst.
Það eru ekki einu sinni pallar eða
tréplötur yfir skurðina svo að vegfar-
endur og viðskiptavinir komist inn í
verslanimar. Jafiivel kaupmenn sjálf-
ir þurfa að stunda háifgeröa útíleik-
fimi tíl að komast inn í fyrirtæki sín.
Kaupmenn í götunni eru mjög
óhressir með þetta og erum við alveg
að gefast upp á því að leita að ein-
hverjum verktaka sem ber ábyrgð á
þessu ástandi og getur sett brýr yfir
skuröina.
Það væri alveg eins hægt að hafa
verslanimar lokaðar eins og að hafa
þetta svona.
Spumingin
Lesendur
Hlusti segist vera farinn að taka sinfóniuna í Gufuradíóinu fram yfir hinar „glym-
stöðvamar“.
Gufuna fram yfir
glymstöðvamar
Hlusti skrifar:
Ég vil leggja orð í belg í sambandi
við þessi sífelldu skrif um útvarps-
stöðvamar.
Vinnu mixmar vegna hlustaði ég
mikið á útvarp og varð eins og lands-
menn flestir himinlifandi þegar rás 2
tók til starfa. Gleðin minnkaði ekki
þegar Bylgjan og skömmu seinna
Stjaman helltu sér líka út í bransann.
Síðan hefur mikið vatn til sjávar
runnið og nú orðiö er ég nær alveg
hættur að nenna að hafa stillt á þessar
glymstöðvar. Það er orðið þannig að
ég jafnvel leita uppi gömlu góðu Guf-
una og hlusta með ánægju á sinfóníu-
tóniist sem ég áður kailaði bölvað
garg.
Maður hreinlega verður svo upp-
gefinn á þessu sífellda suöi og sömu
lögunum aftur og aftur að maður
hlustar frekar á ekki neitt.
Til að vera ekki svona hræðilega
neikvæður þá verð ég að játa að núorð-
ið finnst mér rás 2 að jafnaði vera
besta rásin. Þar er dagskránni svolítið
skipt niður og finnst mér það til mik-
illa bóta því þá er ekki það sama allan
daginn heldur t.d. einn listapopps-
þáttur, einn rólegur, einn þungarokks-
þáttur, einn sinfóníuþáttur, einn
umræðuþáttur o.s.frv. Þetta gefur
mikla hvíld.
Ég sting upp á því að hinar rásimar
fari að dæmi rásar 2 og skipti dag-
skránni a.m.k. örlítið niður. Ég er viss
um að þannig má koma til móts við
marga hlustendur.
Hvernig líst þér á ný
kjörna forystusveit
Borgaraflokksins?
Stígur Snæland: Bara vel. Þetta er
allavega breyting frá Sjálfstæðis-
flokknum.
Svanfríður Sigurðardóttir: Ég hef
voðalega litlar skoðanir á því. Er
þetta ekki bara ágætt miðað við að-
stæður?
Jóhanna Sigurbjörg Vilbergsdóttir:
Svona sæmilega, þó ég sé ekkert
mikið inni í pólitíkinhi.
Pétur Sigurðsson: Alveg ágætlega.
Er hún ekki alveg eins og hún á að
Kristján Hreinsson: Það er nú senni-
lega ekki gott að báðir, þeir Albert
og Júlíus, séu úr röðum þingmanna.
Annars tek ég það ekki nærri mér.
Ásgeir Magnússon: Ágætlega. Ætli
nokkru sé þar við að bæta.
„Erlent efhi í stað
innlends rugls“
Ragnheiður skrifar:
Ég gat ekki setið á mér þegar ég
heyrði í þættínum 19:19 á Stöð 2 að
áskriftargjöld hækkuðu úr 1050 í 1250
af þvi að Stöð 2 er að auka innlenda
dagskrárefnið.
Persónulega finnst mér að Stöð 2
eigi að vera mestmegnis með erlent
efni en ekki með innlent rugl sem er
illa gert og ofleikið eins og t.d. nýji
þátturinn „Heilsubælið í Gervahverfi"
sem mér finnst grútleiðinlegur og
bijálæðislega vitlaus.
Ég vona að dagskrárgerðarmenn
Stöðvar 2 sjái sig um hönd og bæti
frekar erlenda efnið enn betur.
-
ClBCBftCBIIIVMB
tapaðist
Guðmundur hringdi:
% varð fyrir þvl sL fimmtudags-
morgun að tapa páfagauknum
minum. Hann tapaðist í Breiöholti,
frá Stekkjunum, Þetta er fullorðinn
fúgl, aðaUiturinn f honum er ijósblár
en einnig er í honum hvítt og smá-
vegis gult Sá sem hugsanlega yrði
fuglsins var er vinsamlegast beðinn
um að hringja í síma 72728.
Bréfritari spyr hvort ekki megi nota hanska við afgreiðslu á pylsum eins
og smokka við samfarir.
Kraflað á pylsum
og pylsubrauðum
Okurlán Húsnæðis-
málastofnunar
Marta Stefánsdóttir hringdi:
Ég get ekki orða bundist yfir hvem-
ig umfjöllun er höfð í frammi við
afgreiðslu matvæla. Ég kaupi einstaka
sinnum pylsur í sjoppum og ógeðiö
sem maður fær viö að borða þær þeg-
ar maður horfir á handfjötlunina i
afgreiðslu.
Brauðin tekin með berum höndum
og pylsunni ýtt ofan í með berum fing-
rum. Ein fór beina leið frá því að pússa
glugga og í það að afgreiða mig án
þess að þvo sér um hendumar.
Hvar er allt hreinlætið og áróðurinn
um smithættu. Heilbrigðisyfirvöld ge-
rið átak í þessum ósóma því víða er
pottur brotinn í hreinlæti við af-
greiðslustörf. Því spyr ég, má ekki
nota hanska við svona afgreiðslu eins
og smokka við samfarir?
3433-8876 hringdi:
Ég bý í einbýlishúsi og um áramótin
’81 til '82 tók ég svokallað orkuspar-
andi lán hjá Húsnæðismálastofiiun
upp á 88 þús. sem á að fara í að lækka
hitakostnað.
Þetta lán stendur ekki lengur undir
nafni því að bara fyrir hinar árlegu
afborganir þá gæti ég kynt 2 einbýlis-
hús. Þetta kalla ég ekki orkusparandi
lán.
Ég borga um 42 þús. af láninu á ári
en eftir öll þessi ár er ég samt ekki
búin að borga af láninu sem nú er
orðið að 350 þús. vegna vísitöluhækk-
ana. Af 88 þúsundum á ég eftir að
borga 63 þúsund kr.
Þetta kalla ég svíðingslán, sannkall-
að okurlán.
Hringið í síma 27022
milli kl. 13 og 15,
eða skrifið.