Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1987, Blaðsíða 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987.
Tíðarandinn_____________ pv
Innansveitarkroníka
- hatrammar deilur um kirkjubyggingu í Trékyllisvík
Undanfarnar vikur hafa mikil
blaðaskrif farið fram vegna kirkju-
byggingar í Trékyllisvík á Ströndum.
Deilurnar snúast aðaUega um
kirkjubygginguna á staðnum en í
hita leiksins hafa menn blandað
ýmsum persónulegum deilum þama
inn í. Sveitarfélagið skiptist í tvær
fylkingar í málinu og hafa komið
fram kvartanir á báða bóga. Önnur
fylkingin vill gera gömlu Árneskirkj-
una upp en hin síðari viil byggjá
nýja kirkju.
Gamla kirkjan
Gamla kirkjan er byggð á árunum
1850-1852 og er því orðin 135 ára göm-
ul. Byggingin er að sögn sóknar-
prestsins ein af tíu merkilegustu
timburkirkjum landsins. Húsið er
byggt í gullinsniði en í því felst að
ákveðið hlutfall er milh hæðar,
lengdar og breiddar. Styrkir hafa
borist frá húsafriðunarnefnd og fjár-
veitingamefnd Alþingis til varð-
veislu hússins og hafa sjálfboðaliðar
úr Ámessókn undanfarið unnið að
endurbótum á húsinu. Er því greini-
legt að mikill áhugi er fyrir varð-
veislu kirkjunnar.
Nýja kirkjan
Síðari fylkingin, þar á meðal sókn-
amefnd, er á þeirri skoðun að reisa
verði nýja kirkju. Guðlaugur Gauti
Jónsson arkitekt teiknaði kirkjuna
og er bygging hennar þegar hafm.
Grunnurinn er nú tilbúinn en fram-
kvæmdum verður ekki haldið áfram
í vetur.
Innansveitardeilur þessar em
orðnar nokkuö heiftarlegar. Undan-
farið hafa birst fréttir, opin bréf og
lesendabréf á síðum dagblaðanna um
máliö. Má á þeim sjá að mikill hiti er
í heimamönnum. Er nú svo komið
að ekki er víst hvort sóknamefndin
lætur styrk þann, sem veittur var af
Texti:
Jóna Björk Guðnadóttir
Alþingi til viðhalds gömlu kirkjunni,
ganga til þess máls. Heyrst hafa
raddir um að styrknum verði skilaö
til ríkisféhirðis en hann hljóðar upp
á 145 þúsund krónur. Peningar þeir
sem húsafriðunamefnd gaf til við-
halds kirkjunnar hafa aftur á móti
þegar verið notaðir.
Söfnuðurinn samþykkti
nýja kirkju
En lítum á málavöxtu. Ámeskirkja
hefur verið í nokkurri niðurníðslu
undanfarin ár. Húsið var í raun réttri
orðið nokkuð lasburða, hurðin var
orðin léleg, skipta þurfti um gólf,
glugga, klæðningu og þak. Ásamt því
sem umhverfi hennar var illa við-
haldið. Vorið 1986 fannst sókninni
þörf á að gera eitthvað í kirkjumál-
unum og var því haldinn almennur
safnaðarfundur í Ámessókn í maí
sama vor. Var eftirfarandi tillaga
samþykkt þar með 32 atkvæðum
gegn 13:
„1. Almennur safnaðarfundur
Ámessóknar haldinn í Ámesi
þann 3. maí 1986 samþykkir,
að byggð verði ný sóknar-
kirkja af hóflegri stærð.
Húsgerð og staðarval veröi
ákveðið síðar.
2. Um meðferð gömlu kirkj-
unnar er gerð eftirfarandi
samþykkt: Áhugamönnum
um varðveislu hennar er
heimilt viðhald hennar og
verði það ekki á vegum safn-
aðarstjórnar.
Söfnuðurinn samþykkir, að fé, sem
húsfriðunamefnd hefir veitt til við-
halds kirkjunni gangi til þess máls.
Meðan kirkjan er í eigu safnaðar-
ins, og til afnota fyrir hann er þeim
sem að viðgerö standa gert skylt að
halda kirkjunni í nothæfu ástandi.“
Ósamræmi í túlkun
samþykktarinnar
En deilan á einmitt rætur sínar að
rekja til mistúlkunar á þessari sam-
Endurbygging gömlu kirkjunnar er nú langt komin.