Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1987, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987.
21
íslensku knattspymuliðin í Evrópukeppninni:
Skagamenn gera sig klára
fyrir slagsmálaleik í Kalmar
„Verðum tilbúnir að skipta um gír,“ segir Guðjón Þórðarson, þjálfari Skagamanna
„Við gerum okkur klára fyrir hörð
átök. Ég ræddi við Teit Þórðarson í
morgun og sagði hann að reikna
maétti með að leikmenn Kalmar FF
myndu hefla leikinn af mikilli hörku
og hamagangi. Þeir myndu reyna að
kæfa okkur strax í byijun," sagði
Guðjón Þórðarson, þjálfari Skaga-
manna, en þeir voru mættir til
Kalmar á sunnudaginn. „Það er kalt
hér - norðanátt, eins og við þekkjum
svo vel heima.“
Það hefur verið vandræðagangur
hjá Kalmar FF að undanfómu.
Gengi liðsins hefur verið lélegt, leik-
menn hafa verið meiddir og hefur
verið sagt frá því að upplausnar-
ástand væri hjá félaginu. „Við
gerum okkur fyililega grein fyrir að
það er um lífið að tefla fyrir Kalmar
hér. Við komum til með að sakna
Guðbjöms Tryggvasonar sem er í
leikbanni. Lið okkar er ungt og em
ekki nema tveir til þrír leikmenn
með mikla reynslu,“ sagði Guðjón.
„Svíarnir fara öragglega í fæting
strax. Ég geri leikmenn mína klára
• Guðjón Þórðarson, þjálfari
Skagamanna.
fyrir þann slag. Við munum leika
varlega til að byrja með en verðum
tilbúnir að skipta fljótlega um gír.
Ég er með mannskap til þess,“ sagði
Guðjón.
Reiknað er með að um fjögur þús.
áhorfendur mæti á leikinn. Guðjón
sagðist stilla upp sama liði og lék
gegn Kalmar á Akranesi. Haraldur
Hinriksson mun taka stöðu Guð-
bjöms.
-SOS
Pétur Ormslev
fór ekki til Prag
„Ég er ekki orðinn góður og það er óvíst hvort ég verð orðinn góð-
ur þegar ísland leikur gegn Rússum í Evrópukeppninni," sagði Pétur
Ormslev, fyrirhði Framhðsins. Pétur fór ekki með Framhðinu til
Tékkóslóvakíu í gær. Framarar leika gegn Sparta Prag á morgun í
Evrópukeppni meistarahða.
-sos
• Hér á myndinni sjást nokkrir leikmenn Valsliðsins sem tóku lagið í Kringlunni.
DV-mynd HH
Valsmenn fóru á
kostum í Krínglunni
í léttri upphitun fyrir UEFA-leikinn á morgun
Það er mikih hugur í herbúðum
íslandsmeistara Vals fyrir leik
þeirra gegn Wismut Aue í UEFA-
bikarkeppninni sem verður leikinn
á Laugardalsvelhnum á morgun kl.
16.30. Valsmenn era ákveðnir í að
selja sig dýrt í keppninni að komast
áfram í 2. umferð en möguleikar
þeirra era vænlegir eftir að Valur
náði að halda jöfnu, 0-0, í Aue.
Það var létt og lifandi upphitun
hjá Valsmönnum í Kringlunni sl.
laugardag. Þar mættu leikmennimir
sem verða í sviðsljósinu og léku við
hvem sinn fingur undir stjóm Her-
manns Gunnarssonar sem hefur
oftast Valsmanna náð aö senda
knöttinn í netið í Evrópukeppni.
Hermann var hér um árið marka-
hæsti leikmaður keppninnar ásamt
Dennis Law, Man. Utd._ og fleiri
köppum eftir fyrstu umferð.
Já, Valsmenn vora léttir í lund í
Kringlunni þar sem þeir kiijuðu
Valssöngva við góðar undirtektir.
Til hðs við þá mættu Kristinn Hahs-
son og Stuðmaðurinn Jakob
Magnússon sem frumflutti nýjan
Valssöng. Sigfús Hahdórsson lék af
fingrum fram við flygjlinn.
Uppákoma Valsmanna vakti mikla
athygh í Kringlunni. Það myndaðist
algjör örtröð í hinni glæsilegu versl-
unarmiðstöð þegar dagskrá Vals-
manna stóð hæst. Menn vona nú að
Eins og menn muna þá stóðu Vals-
menn sig vel gegn Wistmut Aue í
A-Þýskalandi þar sem þeir gerðu
jafiitefh, 0-0. Menn vora að vonum
glaðir eftir leikinn. „Hvemig gat
svipuð örtröð verði viö mark A-
Þjóðveijanna þegar Valsmenn leika
gegn þeim á Laugardalsvellinum á
morgun.
Valshðiö tapað fyrir Víöi í imdanúr-
shtum bikarkeppninnar?" var fyrsta
hugsunin sem braust um í huga Ian
Ross, þjálfara Valsmanna, eftír leik-
inn.
-SOS/HH
Hvemig gat Valur tapað fyrir Víði?
íþróttir
Víkingar
í Fossvog-
inum?
Þaö getur farið svo að Víkingar
leiki sína heimaleiki í 1. deild á
næsta ári á hinu nýja svæði sinu
í Fossvogsdalnum. Þaö kom fram
í máh Víkinga nýveriö aö þeir hafa
mikinn hug á því að leika heima-
leiki sína þar en óvíst er þó hvort
það tekst enda mikiö staif óunnið
á félagssvæðinu. Það hefur verið
þróunin að Reykjavíkurfélögin
færi leiki sína á heimasvæði sín
enda hefur það gefist vel hjá Val
og KR. Ekki er ljóst hvort Framar-
ar leika sína leiki í Laugardalnum
en vel getur farið svo að bæði Fram
og Víkingur leiki sína heimaleiki
á Laugardalsvellinum.
Námskeið
Fræðslunefhd HSÍ hefur ákveðið
að halda tvö b-stigs námskeið fyrir
þjálfara. Fyrra namskeiðiö hefst í
fundarsal ISI kl. 18.00 á fimmtudag
og síðara námskeiðið veröur á Ak-
ureyri dagana 19.-22. nóvember.
Þess má geta að á siðasta ársþingi
HSI var samþykkt tillaga þar sem
segir aö.alhr keppnisflokkar á veg-
um HSI skuli hafa þjálfara og
liðsstjóra og þurfa þeir aö hafa lokið
b-stigi þjálfaramenntunar. Rétt til
þátttöku á b-stigs námskeiðum hafa
allir þeir er lokið hafa a-stigs nám-
skeiðum, þjálfarar og leikmenn með
margra ára reynslu af þjálfun (mat
fræðslunefndar) og íþrottakennar-
ar. Þátttökutilkynningar ásamt 1000
k.r staðfestingargjaldi þurfa að ber-
ast skrifstofu HSI eigi síöar en 5.
október. Þátttöku á seinna náip-
skeiðiö á að tilkynna til Haralds A.
Sigurössonar á Akureyri eigj síðar
en 14. nóvember.
• Fræöslunefnd HSI veröur einn-
ig með fræðslufundi og sýmkennslu
í sal fyrir þjálfara yngri flokka.
Fundur með þjálfurum 5. og 6.
flokks karla og 4. flokks kvenna
ve> ður 1. október kl. 19.30 í fundar-
sal ISI og Laugardalshöll kl. 21.00.
4. flokkur karla og 3. flokkur kvenna
veröa í Digranesi 5. október kl. 19.30
og 3. flokkur karla og 2. flokkur
kvenna verða á sama stað 6. október
kl. 19.30.
Sigrar Þróttur
í 12. skipti?
Fátt virðist geta komiö í veg fyr-
ir aö Þróttarar tryggi sér Reykja-
víkurmeistaratitilmn í karlafiokki
í blaki tólfta árið í röð. Mótið hófst
um síöustu helgi og þá sigraöu
Þróttarar Uö Vikings með þremur
hrinum gegn tveimur. Ursht í
hrinum: 11-15, 15-12, 15-8, 13-15
og 15-8.
• í kvennaflokki léku sömu Uö
en þá náðu Víkingsstúlkumar að
sigra, 3-1. ÚrsUt í hrinum: 14-16,
15-3,15-4 og 15-7.
• Framarar, sem höfhuöu í öðra
sæti á íslandsmótinu í fyrra, drógu
karlahð sitt út úr Reykjavikurmót-
inu að þessu sinni vegna óánægju
með niðurröðun leikja. -SK
Fagmenn biðja um
Q) DEITERMANN
flísalímið, því það er
ÖRUGGT og þjált í notkun.
Fúgusement í litum.
# AiFABORG ?
BYGGINGAMARKAÐUR
SKÚTUVOGI 4 - SlMI 686755