Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1987, Qupperneq 23
ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987.
23
Erlendir fréttaritarar
Líknardráp heimiluð
með lögum í Hollandi
Jón Omuir Hafldácssan, DV, Landan;
Þegar Beatrix drottning setti hol-
lenska- þingiö fyrir fáeinum dögum
voru kynntar fyrirætlanir stjómar-
innar um að heimila líknardráp með
lögum. Láknardráp hafa verið talsvert
hitamál í Hollandi í mörg ár og innan
ríkissljómarinnar kom til langra
deilna áður en ákveðið var að setja í
lög það sem í reynd hefur viðgengist
í mörg ár í Hollandi.
Á þessu ári er talið að allt að tíu
þúsund einstaklingar muni sækja um
að þeir fái sjálfir að ráða dauða sínum.
Á síðustu árum hafa hollenskir lækn-
ar orðið við slikum bónum frá
þúsundum sjúklinga sem ekki hafa átt
neinar batavonir.
Opinbert fyrir löngu
Löngu áður en ríkisstjómin sættist
á löggjöf var þetta orðiö svo opinbert
í Hollandi að læknar komu fram í fiöl-
miðlum og lýstu því hvemig þeir gæfu
oftlega sjúkhngum inn banvænt eitur
að beiðni þeirra þegar ekki reyndist
lengur unnt að lina kvalir þeirra eða
framlengja líf af því tagi sem viðkom-
andi sjúklingur taldi vert að lifa.
Margir læknar í Hollandi, sem ekki
hafa viljað ganga gegn landslögum eða
eigin samvisku, sem bannaði þeim
líknardráp, hafa engu að síður gefið
sjúklingum, sem þess óskuðu, upp
nöfn lækna sem hafa aðstoðað þannig
komna sjúklinga við að enda líf sitt.
Eins hefur verið unnt að fá bæklinga
sem læknir tók saman um hentug ráð
fyrir þá sem vilja sjálfir svipta sig lífi.
Prestar þátttakendur
Umræður um þetta mál hafa tekið á
sig ýmsar myndir á síðustu mánuðum
en mörgum utan Hollands hefur kom-
ið einna mest á óvart að mikill fiöldi
presta hefúr tekið þátt í baráttu fyrir
þvi að líknardráp verði heimiluð með
lögum. Fjöldi presta hefur einnig tekið
óbeinan þátt í þessu með því að blessa
sjúklinga áður en þeir tóku inn eitur.
Þessir læknar og prestar, sem unnið
hafa að þessum málum í Hollandi,
hafa lagt mikla áherslu á samþykki
fiölskyldna viðkomandi við því að
bundinn verði endi á líf hans og eins
að fiölskyldur raaði þessi mál opin-
skátt. í mörgum tilvikum hafa nán-
ustu aðstandendur sjúklinga verið
viðstaddir þegar þeim er gefið inn eit-
ur og eins hafa margir sjúklingar tekið
á móti vinum sínum og ættingjum
daginn áður en þeir láta lífi sínu lokið
og tilkynnt þá um ætlun sína.
Umræður í mörgum löndum
Nýr hópur sjúklinga, sem leitað hef-
ur til lækna í þessum tilgangi, eru
eyðnisjúklingar en þeir eru talsvert
margir í borgum Hollands. Stór hluti
þessara sjúklinga mun hafa gert
samninga við lækna sína um með
hvaða hætti þeir yfirgefi heiminn ef
öll von um bata eða sæmandi líf reyn-
ist úti.
Umræður um þessi efni hafa farið
af stað í mörgum löndum Evrópu á
síðustu mánuðum, ekki síst vegna
reynslu Hollendinga, en ólíklegt má
telja að nokkrar af stærri þjóðum álf-
unnar muni feta í fótspor Hollendinga
í þessum efnum. í Bretlandi er til að
mynda mikil andstaða gegn þessu inn-
an sem utan læknastéttar þó að
nokkrir læknar hafi lýst því yfir opin-
berlega nýverið að þeir ráðleggi
Greifinn af París
finnur sér eftirmann
£^ami Hniikssan, DV. Bcaiieaux:
Prins Henry Robert Ferdinand
Marie Louis Philippe af Orleans,
greifinn af Patis og einn viöur-
kenndasti erfingi krúnu sem ekki er
til, hefttr allt frá 1926 beðið eför aö
Frakkar kölluöu hann til valda - en
árangurslaust Reyndar segja sumir
að franska sfiómarskráin geri þegar
ráð fyiir einum kóngi, að vísu kjom-
um i aimennum kosningum, það er
aðsegja forsetanum, en það er önnur
Kóngsríkishugmyndin var talsvert
í tísku á fiórða áratugnum. Áriö 1934
var óróasamt í Frakklandi og litlu
munaði að greifinn af París sæl
draum sinn rætast Árið 1942 var
hann næstum því orðinn æðsti mað-
ur bráðabirgðastjómar Frakka i
Alsír og að lokum má geta þess að
árum saman taldi greifinn sig hafá
góða ástæðu til að halda aö honum
væri ætlaö að taka við þegar De
Gaulle fiæri frá.
Greifinn er vellríkur en að sama
skapi gamall, 79 ára, og því ekki
seinna vænna að finna sér eför-
mana En þar kemur öriíöö babb í
bátinn. Samkvæmt þúsund ára
venju og öllum viðurkenndum siða-
reglum ætti elsti sonur greifans af
París að taka við af fööur sínum en
sonurinn er fráskilinn og kvæntur á
ný, borgaralegri giftingu og slfkt
hæfir ekki verðandi mögulegum
kóngi. Þvi hélt greifinn af París hefi-
armikla veislu um helgina þar sem
hann tilnefiidi sonarson sinn póKt-
fskan og móralskan erflngja sinn.
Ásakanirtil
hægri og vinstri
Bjami Hrmksaan, DV, Bordeaux:
Frönsk stjómmál hafa nú um
nokkurt skeið einkennst af væntan-
legum forsetakosningum. Þótt
kosningabaráttan sé ekki opinber-
lega hafin og kosningamar verði
ekki fyrr en í mars á næsta ári verð-
ur hvert smámál og stórmál tfiefni
pólitískrar refskákar og ásakana til
hægri og vinstri.
Sem dæmi má nefna nýlegan
brottrekstur Michele Polacs úr starfi
sem umsjónarmaður þáttar sem ver-
ið hefur sá vinsælasti hjá franskri
sjónvarpsstöð. í þættinum er tekið á
viðkvæmum málum sem margir
hafa viljað að lægju í þagnargildi.
Einnig hafa hægrimenn álitið Polac
vinstrisinnaðan í umfiöllun sinni.
Sjónvarpsstöðin var í ríkiseign þar
til síðastliðinn vetur að hún var seld
byggingarverktaka. Sá móðgaðist
illilega þegar Polac gerði grín að
honum í einum þættinum. Um leið
gagnrýndi Polac opinbera nefiid sem
séð hefur um sölu á ríkisfiölmiðlum
frá því að ríkisstjóm Chiracs kómst
Mitterrand Frakklandsforseti gagnrýnir nú sölu fyrirtækja ríkisins í tilefni
af brottrekstri umdeilds þáttagerðarmanns hjá sjónvarpsstöð rekinni af
einkaáðilum. Sjónvarpsstöðln var 'á'ður i eigu ríklsinsr
til valda. Þetta varð síðan til þess að
Polac var rekinn þótt sumir telji
reyndar að auglýst viðfangsefni
næsta þáttar, vopnasala Frakka,
hafi hrætt vissa aðila.
Mitterrand, forseti og sósíalisti,
hefur nýtt sér þetta til að gagnrýna
ríkisfyrirtækjasölu hægrisfiómar
Chiracs og Polac er orðinn nokkurs
konar píslarvottur sem' sósíalistar
hafa gripið fegins hendi.
Annað mál, sem valdið hefúr
gremju og orðaskaki, er yfirlýsing
Mitterrands um síðustu helgi þess
efnis að Frakkar og Þjóðveijar ræði
nú stofnun sameiginlegs herráðs.
Þessar samræður hafa staðið lengi
yfir en áttu að vera leynilegar um
sinn. Mitterrand hefur liklega viljað
benda á að hann sem forseti eigi aö
ráða utanríkis- og vamarmálum á
meðan viðbrögö Chiracs sýna að
honum er umhugað um að þetta
verði Mitterrand ekki til pólitísks
framdráttar. Chirac hefur þegar lýst
yfir að hann sækist eftir forsetaemb-
ættinu og Mitterrand þykir frekar
* líklégúr til áð bjóða sig fram aflur.
stundum sjúklingum, sem eiga í kvala-
fúllum og banvænum sjúkdómum, um
hvaða aðferðir séu þjáningarminnstar
við að stytta slíkt lif.
GfíUÐmSSTÆD
MAIARINNKAUP
SALTKJÖT
299,-
kr. kg.
LONDON-
LAMB
435,-
kr. kg.
URBEINAÐUR
HANGIFRAM-
PARTUR
435 % ™ kr. kg.
FRAMPARTAR
Vx
239. - kr. kg.
HRYGGIR
299,- kr.kg.
SVIÐ
125,- kr. kg.
o
NÖATÚN
WÓATÚNI17-ROFABÆ 39
17260 17261 S 671200 671220