Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1987, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1987, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1987. Neytendur Odýrar kartöflur Flestir hafa eflaust tekið eftir gámi sem stendur við Umferðarmiðstöð- ina. í gámnum er starfrækt kartölu- sala og eru kartöflumar þar líklega þær ódýrustu sem fáanlegar eru í bænum. Hvert kíló kostar 22 kr. og em kartöflumar seldar í fimmtán kílóa sekkjum. TO gamans má geta þess að í Hagkaupi kosta kartöflur 39 kr. Það vakti furðu okkar hvemig hægt væri að komast fram hjá sam- tryggðu sölukerfi því sem tiðkast hefur í grænmetisverslun tii þessa og var því skroppið niður að Um- ferðarmiðstöð. Þar hittum við fyrir Kristínu Guðnadóttur ásamt ungum syni sínum en hún rekur kartöflu- söluna ásamt manni sínum, Gunn- laugi Mikaelssyni. „Við byrjuðum söluna í byrjun september og þá uppi í Mjódd og komum hingað fyrir svona viku síð- an. Einhveijir reyndu að aö láta loka hjá okkur, ég veit ekki hveijir það hafa verið, en þeir reyndu að kæra. Þeir vora að hringja í Heilbrigðiseft- irlitið allan morguninn og lokuðu hjá mér síödegis á þeim forsendum að ég hefði ekki skriflegt leyfi en ég hafði fengið munnlegt leyfi hjá Heil- brigðiseftirlitinu. Það gekk hins vegar vel að útvega skriflegt leyfi. Þá reyndu þeir að láta loka á þeim forsendum að við hefðum ekki versl- unarleyfi, én maðurinn minn er með verslunarleyfi þannig aö það gekk ekki. Það er ekki hægt að loka. Við uröum þó að hafa lokað alla síðustu viku vegna veðurs en nú erum við komin með gasofn í gám- inn þannig að það ætti að vera hægt að þrauka eitthvað áfram, allavega fram í nóvember. Við fáum bíl hingað reglulega meö kartöflur og erum þegar búin að selja svona 60-80 tonn. Við kaupum kartöflumar af Tryggva Skjaldar- syni í Norður-Nýjabæ í Þykkvabæ," sagði Kristín Guðnadóttir að lokum -PLP Kristín Guðnadóttir með kartöflusekk i fanginu. Kartöflurnar í þessum sekk kosta ekki nema 22 krónur kilóið. DV-mynd S Nýir símasjálfsalar Nokkuð hefur verið kvartað yfir því að undanfómu að ógerlegt sé að hringja til útlanda úr ýmsum síma- sjálfsölum. Hefur sjálfsalinn í Laugar- dalslaug oft verið nefndur í því sambandi en skammt þar frá er tjald- stæði sem er mikið sótt af útlending- um. DV haíði samband við Jóhann Hjálmarsson, blaðafulltrúa Pósts og síma, og spurði hann út í þessi mál. Jóhann sagði að skýringin væri sú að eldri gerð símasjálfsala tekur ekki hærri mynt en fimm krónur. Þegar hringt er til útlanda reynist myntin of verðlítil til að halda sambandinu gangandi og þá slitnar það. Lengi hef- ur staðið til að breyta þessu og setja upp nýja sjálfsala sem tækju tíu króna mynt. Tafir í afgreiðslu á nýju sjálfsöl- unum hafa hins vegar gert það að verkum að þeir komu síðar til landsins en áætlað var og hefur því ekki reynst umit að setja þá upp fyrr en nú. Þeir verða settir upp næstu daga auk þess sem fljótlega er von á því að hægt verði að nota nýju fimmtíu króna myntina í símasjálfsala. Besta lausnin á þessu máh em hins vegar kortasjálf- salamir en þeir hafa þegar verið settir upp á nokkrum stöðum, svo sem í skólum, sjúkrahúsum og á áningar- stöðum SVR. -PLP Sjálfsali fyrir símakort. Upplýsingaseðill til samanburðar á heimiliskostnaði Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Nafn áskrifanda Heimili Sími Fjöldi heimilisfólks Kostnaður í september 1987: Matur og hreinlætisvörur Annað kr. kr. Alls kr. Nýtt Smarties Einhveijir muna kannski eftir umfjöllun okkar irni nýjan auka- efnalista Hollustuvemdar ríkisins. í greininni var sagt að ýmsar vörur, þ.ám. Smarties súkkulaðipillumar, myndu hverfa af markaði er listinn tæki gildi. Innflytjandi sælgætisins hefur nú sagt okkur að umfjöllun Neytenda- síðunnar hafi gert það að verkum að saian á smarties snarminnkaði og ’iefði hann því neyðst til að grípa tfl þess ráðs að fá nýtt smarties til dreifingar. Það var kannski ljótt af okkur að nefna svona eitt vörumerki öðm fremur í þessu sambandi, en greinin ýtti óþyrmilega við innflytjanda sem strax fór að athuga hvort ekki væri unnt að fá sælgætið án litarefnanna sem bönnuð verða í framtíðinni. Nú er komið á markaðinn smarties sem kemur til með að standast aliar kröfur listans og verður að segjast að þama hefur innflytjandi sýnt skjót viðbrögð en listinn tekur ekki gildi fyrr en eftir nokkra mánuði og þá hann tekur gildi er innflytjendum gefinn hálfs árs aðlögunartími. Þetta er gott fordæmi og óskandi að fleiri sýni svo skjót viðbrögð. Það sælgæti, sem nú kemur á markað, er framleitt sérstaklega fyr- ir Noreg og Svíþjóð en þar em reglugerðir um aukaefni strangari heldur en gengur og gerist. Þar sem markaðurinn er lítill verður það aðeins selt í einni stærð hér eftir. -PLP Tilkynning Reglur um birtingu verðskráa hárgreiðslu- og rakarastofa Allar hárgreiðslu- og rakarastofui em skyldar til að hafa uppi við inn- göngudyr skýrar verðskrár með verði (efni innifafiö) á algengustu þjónustu sem viðskiptamenn almennt óska eft- ir. Einnig skulu stofumar hafa uppi verðskrár við greiðslukassa eða á öðr- um áberandi stað inni í starfsstofunni með verði (efni innifalið) á allri þeirri þjónustu sem þær veita. Það skal tekið fram að samningar, samþykktir og annað samráð milfi fyrirtækja um verö og álagningu er óheimilt þegar verðlagning er fijáls. Reglur þessar era settar með heim- ild í 1. mgr. 45. gr. laga nr. 56/1978 um verðlag, samkeppnishömlur og órétt- mæta viðskiptahætti og varða brot á reglunum viðurlögum samkvæmt 52. gr. laganna. Reglur þessar taka gildi þegar í staö. Reykjavík, 1. ágúst 1984 Verðlagsstofnun. Ekki skal þröngva upp á viðskiptavini þjónustu sem þeir vilja ekki. Aðvörun til viðskiptavina hárgreiðslustofa. Samkvæmt gildandi reglum ber að láta verðhsta hggja frammi á áberandi stað þar sem tilgreint er verð þeirrar þjónustu sem á boðstólum er á hár- greiðslustofum. Verðupplýsingar, sem gefnar em munnlega og á verðlistum, skoðast sem bindandi tilboð um söluverð þjón- ustunnar í heild sem í té er látin. Að sjáifsögðu eiga þau efni, sem nauðsyn- leg þykja til að framkvæma þá þjónustu sem beðið er um, að vera innifalin í verðinu. Kona nokkur, sem pantaði klipp- ingu, sem samkvæmt verðlistanum átti að kosta 850 kr., var hins vegar látin greiða 1291 kr. á hárgreiðslustofu hér í bæ. Tók hún skýrt fram að hún óskaöi einungis efur klippingu en há- rið var blásið á þeim forsendum að aðeins ætti að þurrka þaö og væri það alltaf gert á þessari stofu þegar hár væri klippt. Að auki var borið í þaö lakk-gel sem konan baö ekki um. Á nótunni var verðið tiigreint á eftirfar- andi hátt: Klipping 850 kr. Þurrkun 376 kr. Lakk-gel 65 kr. Samtals 1291 kr. Slíkan reikning á viðskiptavinur að neita að greiða ef þjónustan fer fram úr því sem um er beðið. Sigríður Haraldsdóttir, deildarstjóri neytendamáladeildar Verðlagsstofiiunar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.