Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1987, Qupperneq 28
FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987.
' 40
Jarðarfarir
Ingólfur Guðmundsson lést 10. okt-
óber sL Hann var fæddur að Lóma-
tjörn í Grýtubakkahreppi við
Eyjafjörð 12. febrúar 1910. Ungur aö
árum hneigðist hann til sjómennsku
sem varð hans aðalstarf næstu ára-
tugi. Eftir að hann hætti til sjós
starfaði hann við matreiðslustörf,
lengst af á Keflavíkurflugvelli og á
Hótel Sögu og nú síðustu árin hjá
Veitingahölhnni í Reykjavík. Hann
giftist Sigrúnu Helgadóttur en hún
lést árið 1980. Þau hjónin eignuðust
tvær dætur. útför Ingólfs verður gerð
frá Fossvogskirkju í dag kl. 15.
Helga Jóhannesdóttir lést 16. októb-
er. Hún var fædd í Hrísakoti á
Vatnsnesi í Vestur-Húnavatnssýslu
17. janúar 1912. Foreldrar hennar
voru Jóhannes Pétur Jónsson og
Guðríður Guðrún Gísladóttir. Helga
giftist ekki en eignaðist eina dóttur.
Útfór Helgu verður gerð frá Dóm-
kirkjunni í dag kl. 13.30.
'"'Skapti Skaptason frá Presthúsum í
Mýrdal verður jarðsettur frá Reynis-
kirkju í Mýrdal laugardaginn 24.
október kl. 14. Ferð verður frá Um-
ferðarmiðstöðinni kl. 9 sama dag.
Eymundur Sigurðsson hafnsögu-
maður, Höfðavegi 5, Höfn, Homa-
firði, verður jarðsungiim frá
Hafnarkirkju laugardaginn 24. okt-
óber kl. 14.
Jóhanna S. Jónsdóttir, Suðurgötu
33, Keflavík, verður jarðsungin frá
Keflavíkurkirkju laugardaginn 24.
október kl. 14.
Ebba Þorsteinsdóttir lést 13. októb-
er sl. Hún fæddist 19. maí 1927, dóttir
hjónanna Þorsteins Jónssonar og
Elínborgar Gísladóttm-. Eftirlifandi
eiginmaður hennar er Bárður Auð-
unsson. Þeim hjónum varð fimm
bama auðiö. Útfór Ebbu verður gerð
frá Garðakirkju í dag kl. 13.30.
LUKKUDAGAR
23. október
64246
Litton
örbylgjuofn frá
FÁLKANUM
að verðmæti
kr. 20.000,-
Vinningshafar hringi i sima
91-82580.
I gærkvöldí__________________________________pv
Sturia Birgisson matreiðslumaður:
Sjónvarpið sterkari miðill
Ég er vanur að hlusta nokkuð
mikið á Stjömuna en eftir að ég var
beðinn um að fylgjast með dag-
skránni settist ég niður og horfði á
19.19. Vanalega finnst mér meir til
fréttaþáttar stöðvar 1 koma en 19.19
er vaxandi í fréttaflutningi. Alia-
vega horfði ég í þetta sinn á hann
til enda, því mér fannst fréttirnar
þar höfða til mín.
Yfirleitt finnst mér viðtalsþáttur-
inn með Bryndísi Schram góður,
en ég varð nokkuð fyrir vonbrigð-
um með þáttinn í gær. Næst stillti
ég yfir á stöð 1 enda á ég ekki af-
ruglara. Þar varð fyrir þátturinn
Matlock sem ég missi helst ekki af.
Matlock þessi er mjög skemmtileg-
ur og ákveðinn karakter. Þættirnir
um Derrick og Matlock eru bestu
framhaldsþættir sjónvarpsins.
Næst ákvað ég að skipta yfir á
hlustunarmiðil og varð Stjaman
fyrst fyrir valinu. Þar varð fyrir
umræðuþáttur um bjórinn, sem er
orðinn ansi mikið leiðindamál og
okkur íslendingum til skammar.
Niðurstaða í því máli er löngu feng-
in en engin álkvörðun tekin. Það er
engin spurning hvernig þjóðarat-
kvæðagreiðsla myndi fara. Ég
ákvað því að reyna Bylgjuna og sá
þá að ég var að missa af þætti sem
ég hlustaði alltaf á áður en stöð 1
hóf útsendingar á fimmtudögum.
Það er þátturinn hennar Jóhönnu
Harðardóttur, Hrakfallabálkar og
hrekkjusvín. Það er því greinilegt
að sjónvarpið er sterkari miðill því
maður stillir ómeðvitað á það þótt
áhugaverðara efni sé í útvarpinu.
Um ellefuleytið lét ég svo eftir mér
að svífa inn í draumalandið.
Tilkyimingar
Náttúruverndarþing 1987
Náttúruverndarþing, hið sjötta í röðinni,
verður haldið dagana 23.-25. október nk.
á Holidaj’ Inn að Sigtúni 38, Reykjavík.
Um 130 fulltrúar víðs vegar af landinu
eiga rétt á setu á þinginu. Aðalefni þings-
ins er framtíðarskipan náttúru- og
umhverfismála á íslandi.
Hjallaprestakall
Stofnað hefur verið nýtt presiakall í
Kópavogi, Hjallaprestakall. Nú eru til
sölu minningarkor. Byggingasjóðs
Hjallaprestakalls í Vedu bóka- og rit-
fangaverslun, Hamraborg 5, Kópavogi.
Síðdegiskaffi fyrir eldri
Reyðfirðinga og Eskfirðinga
verður haldið sunnudaginn 25. október
kl. 15 í Sóknarsalnum, Skipholti 50a.
íþróttafélag Reykjavíkur
Frjálsíþróttadeild
Vetrarstarfið er byijað, æfingar-
tímar fyrir 13 ára og eldri:
Baldurshagi, undir stúku Laugar-
dalsvallar:
Mánudagar...............kl. 19.40.
Miðvikudagur..................kl. 18.00
Fimmtudagar...................kl. 19.40
Fellaskóli:
Þriðjudagar..............kl. 20.50.
Föstudagar...............kl. 20.00.
Þjálfarar eru:
Steindór Tryggvason, Gunnar Páll
Jóakimsson, Erlendur Valdimars-
son, Oddný Árnadóttir og Friðrik Þór
Óskarsson.
Æfingatafla knattspyrnudeild-
ar KR veturinn 1987-1988
Meistarafiokkur karla:
Fimmtudagar..........kl. 21.20-22.10
Laugardagar..........kl. 11.20-12.10
2. flokkur karla (fæddir ’69, ’70 og ’71):
Mánudagar............kl. 22.10-23.00
Fimmtudagar..........kl. 20.30-21.20
3. flokkur karla (fæddir ’72 og ’73):
Mánudagar............kl. 20.30-21.20
Miðvikudagar.........kl. 18.50-19.40
4. flokkur karla (fæddir ’74 og ’75):
Mánudagar............kl. 18.50-19.40
.....................kl. 19.40-20.30
Miövikudagar.........kl. 18.50-19.40
5. flokkur karla (fæddir ’76 og ’77):
A. Mánudagar........kl. 18.00-18.50
B. Mánudagar........kl. 17.10-18.00
Laugardagar..........kl. 10.30-11.20
Laugardagar..........kl. 09.40-10.30
6. flokkur karla (fæddir ’78 og ’79):
A. Miðvikudagar.....kl. 18.00-18.50
B. Miðvikudagar.....kl. 17.10-18.00
Sunnudagar...........kl. 12.10-13.00
Sunnudagar...........kl. 11.20-12.10
7. flokkur karla (byijendur, fæddir
’80, ’81 og ’82):
Sunnudagar...........kl. 10.30-11.20
Meistaflokkur kvenna (fæddar ’71 og
eldri):
Mánudagar............kl. 21.20-22.10
Laugardagar..........kl. 13.00-13.50
2. flokkur kvenna (fæddar ’72, ’73 og
’74):
Laugardagar..........kl. 13.50-14.40
3. flokkur kvenna (byijendur, fæddar
’75, ’76 og ’77):
Sunnudagar...........kl. 15.30-16.2C
Ath.: Litli salur.
Viðskiptasamningur milli
íslands og Kína
Hinn 17. október sl. var undirritaður í
Peking viðskiptasamningur milli Islands
og Alþýðulýðveldisins Kína. Samninginn
undirrituðu Pétur Thorsteinsson sendi-
herra og frú Zhu Youlan, aðstoðarráð-
herra í utanríkisviðskiptaráðuneytinu. 1
samningnum er gert ráð fyrir að stjóm-
völd geri viðeigandi ráðstafanir til efling-
ar áframhaldandi og stöðugri þróun
viðskipta milli landanna, auk þess að
sköpuð verði eins hagstæð skilyrði og
hægt er fyrir þá þróun. Samkvæmt samn-
ingnum verður skipuð sameiginleg nefnd
sem fjallar um viðskipti landanna. Samn-
ingurinn tók gildi við undirritun.
Tónleikar
Sinfóníuhljómsveitin heldur
tónleika
í Keflavík og á Selfossi
Föstudaginn 23. október verða tónleik-
arnir svo endurteknir í Iþróttahúsi
Gagnfræðaskóla Selfoss kl. 20.30. Ein-
leikari á tónleikunum verður Óskar
Ingólfsson og stjórnandi Páll P. Pálsson.
Kórstjóri er Jón Ingi Sigmundsson. Laug-
ardaginn 24. október, á degi tónlistarinn-
ar, kemur svo Sinfóníuhljómsveitin fram
í Kringlunni kl. 12.30 og leikur fyrir við-
skiptavini Kringlunnar i klukkustund
ýmsa vinsæla kafla úr þekktum tónverk-
um. Þessum tónleikum verður útvarpað
á Bylgjunni.
Heimsmeistaramótíð í brídge:
Allt í jámum
í úrslita-
leiknum
Fyrsta lotan í úrslitaleiknum í
heimsmeistaramótinu í bridge á milli
Breta og Bandaríkjamanna var leik-
in í gær. Eftir lotuna er allt í jámum
og munar aðeins tveimur stigum á
Bandaríkjamönnum, sem hafa for-
ystuna, og Bretum. Bandaríkjamenn
eru með 118 stig gegn 116 stigum
Breta. Áfram verður keppt í dag og
á morgun.
í keppninni um þriðja sætið í und-
ankeppni heimsmeistaramótsins
áttust við lið Taiwan og Evrópu-
meistara Svía. Svíar sigruðu með 138
stigum gegn 101.
í kvennaflokki eru Bandaríkja-
menn komnir með afgerandi forystu
á móti Frökkum í úrslitaleiknum.
Þær bandarísku eru komnar með 130
stig á móti 86 stigum frönsku stúlkn-
anna og er talið nokkuð víst að
bandarísku stúlkurnar beri sigur úr
býtum í þeirri viðureign.
-ATA
Fjármálaráð-
herra mikill
sölumaður
Regína Thorarensen, Selfossi:
Hjá sláturhúsinu Höfn, Selfossi,
var búið að slátra um miðjan mánuð-
inn tíu þúsund og fimm hundruð
kindum. Slátrun gekk vel enda alltaf
sama góða fólkið við vinnu.
Slátursala var ágæt eftir fyrstu vik-
una. Kjötsala var lengi í lágmarki en
jókst talsvert síöustu dagana fyrir
helgina eftir að fjármálaráöherrann
hótaði að setja söluskatt á allar kjöt-
vörur eftir 1. nóvember næstkom-
andi.
Haraldur Geirsson sláturhússtjóri
segir að hann hafl ekki séð jafnfalleg
lömb þau fimm ár sem hann hefur
verið sláturhússtjóri enda fallþung-
inn jafn og góður. Áframhaldandi
sláturtíð verður í sláturhúsinu Höfn
hf. Svínaslátrun er á hveijum einasta
laugardegi allan ársins hring og
stundum verður að slátra svínum tvo
daga í viku því að svínakjötsneysla
hefur aukist mjög síðustu árin.
Leiðrétting
Helgi Jónsson, dómari hjá Saka-
dómi Reykjavíkur, haíði samband
við DV og bað um að það yrði leið-
rétt aö hann hefði tekið við máli
Vals Magnússonar í desember árið
1986 ásamt fjölda annara mála en
ekki árið 1985 eins og mishermt var
í blaðinu. -J.Mar
Tónleikaröð í Óperunni
Styrktarfélag Islensku óperunnar stend-
ur fyrir röð tónleika með íslenskum
tónlistarmönnum í Óperunni nú í vetur.
Tónleikarnir verða haldnir einu sinni í
mánuði, á laugardögum kl. 14. Fyrstu
tónleikarnir verða þann 31. október nk.
og næstu tvennir eru ákveðnir 14. nóv.
og 5. des. Með því að annast og skipu-
leggja hljómleika af þessu tagi vill
styrktarfélag Islensku óperunnar auka
tækifæri íslenskra söngvara og hljóð-
færaleikara til að koma fram og jafnframt
bjóða styrktarfélögum Islensku óperunn-
ar upp á fjölbreyttara tónlistarlíf. Islensk-
ir tónlistarmenn, sem áhuga hafa á
þátttöku, eru hvattir til að hafa samband
við skrifstofu Islensku óperunnar til nán-
ari upplýsinga og leggja inn umsókn.
Miðaverð er kr. 400. 25% afsláttur er
veittur til styrktarfélaga Islensku óper-
unnar, námsmanna og ellilífeyrisþega.
Menning
DV
James Emery gítarleikari.
Aðkallandi gítar
Af tónleikum James Emeiy í Norræna húsinu
Einn af kunnustu djassgítarleik-
urum Bandaríkjanna í dag, James
Emery, hélt sólótónleika í Norræna
húsinu í fyrrakvöld. Hann leikur
jöfnum höndum á rafgítar og klass-
ískan gítar, en þarna lét hann þann
síðamefnda duga aö viðbættum
sóprangítar sem er helmingi minni
en sá klassíski og stilltur áttund
ofar. Emery stendur fóstum fótum
í klassískum lærdómi og gæti
eflaust spilað margt fallegt eftir
gömlu meistarana. En þarna var
hann eingöngu með eigin músík
sem virðist vera spiluð af fingrum
fram, þ.e. impróviseruð að nokkm
leyti, en er þó þrælskipulögð fyrir-
fram í öllum aðalatriðum. Hvemig
hún er gerð að þessu leyti skiptir
ekki höfuðmáli heldur að hún er
bæði skemmtileg og spennandi. Þar
kennir allra mögulegra grasa; mað-
ur heyrir sterkan enduróm af
Charlie Parker á milli Djangekynj-
aðra hljómþreifinga, með ívafi frá
Stockhausen og Cage o.m.fl. Öllu
er þessu raðaö saman af mikilli til-
finningu og rökvísi og með yfir-
burða tækni á hljóðfærið. Oft er
reyndar sterkur „blúsfilingur" á
bakvið þetta og líklega er það ein-
mitt hann sem heldur þessu svona
vel saman.
Ég er að vísu ekki viss um aö all-
ir myndu flokka músík James
Emerys raeð djassi. í öllu falli voru
fáir eða engir af eldri kynslóð djass-
unnenda þarna í Norræna húsinu
og reyndar fáir af þeim yngri líka,
enda voru tónleikarnir litið sem
ekkert auglýstir. En hún er frábær-
lega framreitt sýnishorn af amer-
ískri afstöðu til lista, sem á rætur
Tónlist
Leifur Þórarinsson
að rekja til Charles gamla Ives eða
lengra: frelsis til að innlima allt
sem er bitastætt, hvaðan sem það
kemur. Oft leiðir þetta til óþolandi
tilgerðar eða þykjustu en Emery
er einn af þessum ekta músíkönt-
um sem tekst að gera hlutina
eðlilega og aðkallandi. Ég vildi tals-
vert gefa fyrir að heyra hann með
grúppunni sem hann leikur með
venjulega, þ.e. String Trio of New
York, sem margir djassmenn telja
með því besta í Vesturheimi. Það
verður kannski næst en þá verður
líka að halda betur á spöðunum í
upplýsingaþjónustunni. LÞ