Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1987, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1987.
Fréttir
Nýtt lyf sem lækkar veru-
lega kólesteról í blóði
- „gæti valdið byttingu í meðferð kransæðasjúkdóma“
„Þetta er nýtt lyf frá Merck sem
er áhrifaríkt til að laekka kólesteról
i blóði. Þaö lækkar kólesteról-
magniö um allt aö 30-40% en hátt
kólesterólmagn í blóði ásamt
reykingum og háum blóðþrýstingi
eru aðaláhættuþættimir sem valda
kransæðasjúkdómum," sagði
Þórður Harðarson, prófessor á
Landspítalanum.
„Það voru Japanir sem fundu
þetta lyf upp fyrir tveimur eða - Er búið að skrá þetta lyf hér á „Þaöeróneitanlegahollariaðferð fituneyslu. Við erum meðal þeirra
þremur árum og gæti það valdið landi? ,J7ei, það er ekki búið, en að draga úr neyslu á harðri fitu til þjóða sem hafa hvað hæst kólester-
byltingu í meðferð kransæðasjúk- hér á landi hefur Gunnar Sigurðs- að draga úr blóðfitu heldur en ólmagn í blóðinu. Karlmönnum á
dóma. Þau lyf sem hingað til hafa son, yfirlæknir á Borgarspítalan- gleypatöflur. En þeireru vissulega miðjum aldri er hvaö hættast við
veriðnotuðtilaðdragaúrkólester- um, verið að gera tilraunir með til sem eru hræddir viö aö menn kransæðasjúkdómum en hættan
ólmagni i blóði hafa öii haft þetta nýja lyf.‘* hætti að ástunda hoUt matarræöi. eykst verulega hjá konum sem eru
margvíslegar aukaverkanir og ekki - Verður þetta lyf ekki til þess að Þaðermikiðaðgerastímanneld- komnar fram yfir tíöahvörf," sagði
verið eins áhrifarík og þetta iyf. menn hætta að ástimda hoUt mat- ismálumhérálandLManneldisráð Þórðin: að lokum.
Þaö virðist því svo sem á markað- arræöi til að draga úr kólester- íslands setti fyrir skömmu fram -J.Mar
inn sé komiö lyf sem er laust við ólmagni í blóði en fara þess í stað nokkur markmið þar sem þess er
alvarlegar aukaverkanir." að eta piUur? farið á leit að íslendingar dragi úr
Eigendur nýja hótelsins, Kristin Þóröardóttir og Sturla Fjeldsted, standa
fyrir framan fokhelda bygginguna ásamt dóttur Kristinar, Erlu Lind, og vin-
konu hennar, Dagbjörtu Hjartardóttur. DV-mynd Ægir Þórðarson
Rif:
Nýtt hótel í
byggingu
„Við erum að byggja þríþætta þjón-
ustumiðstöð hér á Rifi og ætlum aö
hafa undir sama þaki hótel, veitinga-
stað og matvöruverslun,“ sagði
Sturla Fjeldsted húsasmiður, en
hann er ásamt Kristínu Þórðardótt-
ur, sambýUskonu sinni, eigandi
væntanlegs hótels. Sturla er auk þess
byggingameistari hússins.
Hótelbyggingin, sem nú er fokheld,
er 440 fermetrar að grunnfleti, tvær
hæðir, kjallari og ris og því alls með
um 1200 fermetra gólfflöt. í hótelinu
er gert ráð fyrir að verði níu tveggja
manna herbergi.
„Við hófum vinnu við húsið fyrir
rúmu ári og við reiknum með því að
taka verslunina í gagnið upp úr ára-
mótum. Veitingastofuna og hóteliö
tökum við svo í notkun í vor eða fyrri
hluta sumars.“
Sturla sagði að ferðamönnum, sem
kæmu til Snæfellsness á sumrin,
hefði fjölgað mikið svo að hann hefði
ekki áhyggjur af því að viðskiptavini
vantaði. Þá hefði skort þjónustu við
fyrirtækin á svæðinu sem oft fengju
til sín viðskiptavini og viðgerðar-
menn en litla gistingu væri að hafa
fyrir þetta fólk.
„Við stefnum að því að hafa hótelið
opið allt árið og sjá hvemig það geng-
ur en á Hellissandi og Rifi eru engin
hótel eða gistiheimili fyrir. Við erum
mjög bjartsýn á að þetta gangi upp,“
sagði Sturla Fjeldsted. -ATA
Greiðslustöðvun Hótel Arkar:
Vill framlengingu
Hótel Ork hefur sem kunnugt er
greiðslustöðvun til 2. desember.
Helgi Þór Jónsson, eigandi Hótel
Arkar, segist vongóður um að hann
fái tveggja mánaða framlengingu á
greiðslustöðvuninni.
„Ég er búinn að fá heimild til að
taka 125 mifijón króna erlent lán.
Núverandi ráðherrar hafa gefið
grænt Ijós og ég hef leyfi langlána-
nefndar til að taka lánið, sagði Helgi
Þór Jónsson.
Helgi Þór hefur ekki enn fengið
vilyrði fyrir láni erlendis. Hann sagði
að búið væri að smia öllum nauðsyn-
legum gögnum yfir á ensku og væri
því engin fyrirstaða lengur. Hann
sagöist geta farið að sækja á lána-
markaði af krafti.
Erlenda lánið, sem Helgi Þór
hyggst taka, ætlar hann að tryggja
með veði í fasteignum sínum.
„Ég er ekki orðinn órólegur. Mikil
vinna hefur farið í endurskipulagn-
ingu á rekstrinum. Nú get ég farið
aö berjast af alvöru, ég er á réttri
leið,“ sagði Helgi Þór Jónsson.
-sme
Heitar umræður um bjórfrumvarpið á Alþingi:
Bjórinn mun flæða
yfir skólaæskuna
- sagði Svenir Hermannsson
Tveir fyrrverandi ráðherrar,
Sverrir Hermannsson og Ragn-
hildur Helgadóttir, lýstu andstöðu
við bjórfrumvarpið er fyrstu inn-
ræðu um þaö var fram haldið í
neðri deild Alþingis í gær. Má bú-
ast við að heitar umræöur um
bjórinn haldi áfram á Alþingi eftir
helgi.
Sverrir og Ragnhildur gagn-
rýndu flutningsmenn bjórfrum-
varpsins harðlega. Sverrir sagði
dapurlegt að sjá unga lögfræðinga
í sínrnn flokki setja saman slíka
rökleysu sem fram kæmi í greinar-
gerð frumvarpsins.
„Við skulum hætta þessum
blekkingarleik að þetta þýði ekki
auknaáfengisneyslu. Óhrekjanleg-
ar sannanir hafa verið færðar fyrir
hinu gagnstæða. Ekki er á bætandi
ástandið á íslandi. Við megum ekki
hætta á neitt að það versni," sagði
Sverrir, fyrrverandi menntamála-
ráðherra.
Hann sagði að íslandsmaðurinn
væri haldinn þeirri sjálfsblekkingu
að hann væri ekki að drekka áfengi
þegar hann væri að drekka bjór.
Hreint glapræði
„Ég get ekki tekið undir það að
tilgangur flutningsmanna sé góður.
Þetta er bara glæfraspil. Ég er
sannfærður um að hér er hreint
glapræði á ferðinni. Hinn „saklausi
bjór“ muni flæða yfir skólaæskuna
í landinu."
Sverrir sagði að þótt ríkissjóður
fengi einhverjar tekjur af bjómum
myndu afleiðingar hans kosta tvöf-
alt til fjórfalt meira.
Geir H. Haarde, annar flutnings-
maður bjórfrumvarpsins, sagði að
það væri rökleysa að leyfa fólki
aðgang að sterkum, áfengum
drykkjum en meina því aðgang að
þeim hættuminnstu.
Misrétti viðgengist. Bjórbannið
væri dauður bókstafur gagnvart
þeim fjölda íslendinga sem keypti
bjór eftir löglegum leiðum í Frí-
höfninni á Keflavíkurflugvelli eða
flytti hann inn sem tollfrjálsan
vaming.
„Lögin um bjórbann eru orðin
tóm gagnvart flölda íslendinga.
Þau grafa undan virðingu fyrir
öðmm lögum. Ástandið hvetur
menn til afbrota. Það ýtir undir
smygl,“ sagði Geir.
Stéttaskipting
Hann taldi að í þessum efnum
vottaði fyrir stéttaskiptingu. Skor-
aði hann á andstæðinga bjórsins í
þinginu að beita sér fyrir því að
afnema hlunnindi farmanna og
ferðamanna. Annað bæri vott um
tvískinnungshátt.
„Það er eflaust rétt að heildar-
neysla áfengis muni eitthvaö
aukast. En er ekki jafnlíklegt að
innbyrðisneysla muni breytast og
neysla sterkra drykkja minnka?“
spurði Geir.
Ragnhildur Helgadóttir, fyrrver-
andi heilbrigðisráðherra, sagði að
sér heföi blöskrað þegar fyrsti
flutningsmaður, Jón Magnússon,
flutti rökin með frumvarpinu. Rök-
semdimar stasðust alls ekki.
„Þær bera vott um afskaplega
dapurlega krókaleið að þeirri nið-
urstöðu sem flutningsmenn vilja
fá. Það eru fullkomin falsrök að
leiðin til að draga úr vandanum sé
að auka heildameyslu áfengis."
„Það er röng og hættuleg rök-
semd, sem ég hafna algerlega, að
bjór dragi úr neyslu sterkra
drykkja. Aukið framboð á bjór
myndi tvímælalaust flölga áfengi-
snotendum. Um meiri hversdags-
neyslu yrði að ræða.
Halda menn að það dragi úr ölv-
unarakstri? Alþingi væri nær að
bregðast við þeirri miklu vá sem
umferðarslysin em.
Þeir peningar, sem kæmu í ríkis-
kassann af bjór, kunna að vera
fljótteknir. En afleiðingamar kosta
miklu meira. Ég er alveg viss um
að það yrði margföld hækkun á
gjaldahliðinni," sagði Ragnhildur.
Birgir Dýrflörð, varaþingmaður
Alþýðuflokksins, sagði að ölið væri
ekki áhættunnar virði. Það sýndu
staðreyndir, sannaðar með manns-
lífum. Rökstuddi hann mál sitt með
því að vitna til ýmissa rannsókna
erlendis á bjór og áfengisneyslu,
meðal annars á drykkju danskra
skólabarna.
Áfengisneysla eykst
um þriðjung
„Öldrykkjumenn virðast í meiri
hættu á að fá skorpulifur, hinn
banvæna sjúkdóm, en aðrir
drykkjumenn. Það er litli, daglegi
skammturinn sem er hættulegur.
Ekki íslensku fylliríin," sagði Birg-
ir.
„Ef sala áfengs öls næði ekki til-
gangi flutningsmanna að breyta
neysluvenjum væri það ávísun á
aukið heilsufarslegt, efnahagslegt
og félagslegt tjón.“
Skýrði hann frá því að Þjóðhags-
stofnun hefði áætlað að áfengis-
neysla myndi aukast um 33%
vegna bjórsinsc -KMU
Bjórinn ætti ekki að sofria
Litlar líkur virðist á að bjórfrum-
varpið nú „sofni“ í þingnefnd. Hér
á árum áður vom það algeng örlög
bjórfrumvarpa að sofna í þinginu.
Fmmvarpinu, sem flutt er í neðri
deild, verður að lokinni fyrstu
umræðu væntanlega vísað til alls-
heijamefndar deildarinnar.
Formaður hennar, Ólafur G. Ein-
arsson, er talinn stuðningsmaður
frumvarpsins. Er því ólíklegt að
hann muni leggja stein í götu þess.
Tveir aðrir nefndarmenn em
taldir styðja bjórinn, þeir Guðni
Ágústsson og Jón Kristjánsson.
Tveir em yfirlýstir andstæðingar,
þeir Geir Gunnarsson og Friöjón
Þórðarson. Óvíst er um afstöðu Sig-
hvats Björgvinssonar og Óla Þ.
Guðbjartssonar.
í allsherjarnefnd efri deildar, sem
einnig mun fá bjórfrumvarpið til
meðferðar, bendir könnun DV til
þess að sex nefndarmenn af sjö séu
fylgjandi bjómum.
-KMU