Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1987, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1987, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1987. UV AKUREYRI Blaðberi óskast á YTRI-BREKKUNA. Uppl. í síma 25013. Tilvalin gönguferð fyrir eldra fólk. DAGMAMMA ÓSKAST Óskað er eftir dagmömmu - í nágrenni Hlíðanna eða Túnanna -til að gæta 2 'A árs drengs. Nánari upplýs- ingar gefur Hanni Lore Helga í síma. Vinnusími 29133 og heimasími 36528 á kvöldin. B-stigs þjálfaranámskeið í knattspyrnu verður haldið dagana 13., 14. og 15. nóv. nk. í íþróttamiðstöðinni Laugardal. Þátttökutilkynningar ásamt gjaldi, kr. 5000, skulu berast skrifstofu KSf, pósthólfi 8511, 128 Reykjavík, fyrir 12. nóv. nk. Rétt til þátttöku hafa þeir sem lokið hafa A-stigi. Tækninefnd KSÍ OPNA Í DAG brauðstofu undir nafninu BRAUÐSTOFAN Gleym - mér - ei Nóatúni 17. SMURT BRAUÐ KAFFISNITTUR KOKKTEILSNITTUR BRAUÐTERTUR O.FL. Áhersla lögð á aðeins það besta. Reynið viðskiptin. Pantanamóttaka í síma 15355. Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 1988 Nú stendur yfir gerð fjárhagsáætlunar Reykjavíkur- borgar fyrir árið 1988. Athygli borgarbúa, svo og hagsmunasamtaka (t.d. íbúasamtaka), er vakin á að óskir, tillögur og ábendingar varðandi gerð fjár- hagsáætlunarinnar þurfa að hafa borist borgarráði fyrir 24. nóvember nk. 4. nóvember 1987. Borgarstjórinn í Reykjavík. Hjúkrunarfræðingar Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu- stöðvum eru lausar til umsóknar nú þegar: 1. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina í Ólafsvík. 2. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina á Þingeyri. 3. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina í Reykjahlíð, Mývatnssveit. 4. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð Suðurnesja í Keflavík. 5. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð á Skagaströnd. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf við hjúkrun sendist heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík. UtLönd Segja bandarísk um hermönnum stríð á hendur Lögreglan á Filippseyjum hefur handtekið mörg hundruð manns í skyndiár- ásum á bækistöðvar skæruliða komrnúnista. Símamynd Reuter Skæruliðar kommúnista á Filipps- eyjum lýstu í morgun yflr stríði á hendur bandarískum hermönnum og starfsmönnum bandarísku her- stöðvanna á eyjunum. Tilkynningin, sem afhent var al- þjóðlegum fréttastofum, var undir- rituð af aöalritara samtakanna. Virðist hér vera um nýja stefnu að ræða hjá kommúnistum. Áður hafa viðvaranir þeirra tO Bandaríkja- manna ekki verið jafngreinilegar og yfirleitt án undirritunar. Morðin á Bandaríkjamönnunum þremur fyrir utan flugstöðina Clark í síðustu viku voru ekki nefnd beint í tilkynningunni. Þar var hins vegar sagt að Bandaríkin myndu þurfa að greiða hátt verð fyrir stjórnmálalega og hemaðarlega íhlutun á Fihppseyj- um. Og var gefið í skyn að lífi og eignum yröi ekki hlíft nema þeir létu af íhlutun sinni. Afhjúpa Barschel Gizux Helgason, DV, Lúbedc Flokksbræður Uwe Barschel, hins látna forsætisráðherra í Schleswig-Holstein, hafa nú lýst því yfir í leyniskýrslu að hann hafi sagt ósatt. Einhver leki virðist hafa orðið varðandi þetta trúnaðarmál sem eingöngu var ætlað þingmönnum kristilegra demókrata. Talið er sennilegt að þessar nýju upplýsing- ar geti sprengt þingskipuðu rann- sóknarnefndina sem hefur með hneykslismálið í heild að gera en í henni sitja þingmenn allra flokka. Leyniskýrslan var unnin af með- limum kristilegra demókrata í rannsóknamefndinni og þar segja þeir hreint út að nefndin hafl vitað fyrirfram að Barschel hafi logið varðandi flölmörg atriði er tengjast hneykshsmálinu. Meðal annars það aö hann hafi neitað allri vitn- eskju um persónunjósnir varðandi Björn Engholm, formann sósíal- demókrata. Duarte lýsir yfir einhliða vopnahléi Duarte, sem nýtur stuðnings Bandaríkjastjómar, sagði að hann hefði gert allt sem í hans valdi stæði til að hrinda í framkvæmd friðará- ætlun Mið-Ameríkuríkja sem hann undirritaði ásamt flórum öðrum leið- togum í Guatemala í ágúst síðastliön- um. Sagðist Duarte hafa veitt föngum sakaruppgjöf og leyft flóttamönnum að snúa heim aftur í samræmi við friðaráætlunina. Tilkynnt var um vopnahléð um leið og flutningabann skæruhða lamaði E1 Salvador þriðja daginn í röð. Hvatti forsetinn samtök skæruliða til að sjá til þess að banninu yrði af- lýst. Forsetinn sagði að herinn í E1 Salvador myndi aðeins grípa til vopna sér til varnar. Forseti E1 Salvador, Jose Napoleon Duarte, lýsti í gær yfir einhliða vopnahléi í styijöldinni viö skæm- hða. Hvatti hann skæruliða til að leggja niður vopn þar sem nú hefðu þeir enga ástæöu til að berjast leng- ur. Talsmaður skæruliða kallaði yfir- lýsinguna um vopnahlé brögð af hálfu stjómarinnar. í San Salvador til þess að ræða um áframhaldandi viðræður. Mun fund- urinn verða haldinn í Mexíkó. Þar sem Duarte er sagður hafa beð- ið Reagan um meiri peninga og kysst bandaríska fánann í heimsókn sinni til Washington fyrr í þessum mánuði eru skæruliðar vantrúaðir á alvör- una á bak við vopnahlésyfirlýsing- una. Hingað til hafa farið fram tvennar viðræður milh skæruliða og stjóm- arinnar en án árangurs. Skærahðar aflýstu þriðju viðræðunum til að mótmæla morði á mannréttindabar- áttumanni í síðustu viku. Skæmhðar hafa fallist á að hitta erkibiskupinn Talsmaður skæruliða er vantrúaður á alvöruna á bak við vopnahlésyfirlýs- ingu Duartes, forseta El Salvador. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.