Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1987, Blaðsíða 26
38
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1987.
Fréttir dv
Heimsmeistaraeinvígið í Sevilla:
Biðskákinni lauk með jafntefli
- staðan í einvíginu jöfh eftir níu skákir
Heimsmeistarinn Garrí Ka-
sparov hélt auðveldlega sínu í
níundu skákinni í heimsmeistara-
einvígmu í Sevilla, sem tefld var
áfram í gær. Er skákin fór í bið
hafði Karpov betri færi og margir
spáðu þvi að Kasparov ætti langa
og stranga vöm fyrir höndum.
Stuttu eftir að þeir tóku til við taf-
lið kom Kasparov á óvart með því
að fóma peði og Karpov komst ekk-
ert áleiðis gegn virkri vöm
hans.
Stórmeistarar í Sevilla dáðust að
ömggri taflmennsku Kasparovs í
gær. Sveit hans virtist hafa ranns-
akað biðstöðuna gaumgæfilega,
betur en Karpov og menn hans.
Þetta er þriðja skákin í einvíginu í
röð sem fer í bið og í öll skiptin
hefur aöstoðarmannalið Ka-
sparovs komið betur út úr bið-
stöðurannsóknum. „Karpov hlýtur
nú að forðast að setja flóknar stöð-
ur í bið,“ sagði enski stórmeistar-
inn Raymond Keene sem fannst
mikið tíl taflmennsku Kasparovs
koma.
Aö loknum níu skákum er staðan
í einvíginu jöfn, hvor hefur hlotíð
Skák
Jón L. Árnason
4 /i v. Sá sigrar sem fyrr hlýtur 12 'A
v. eða sá sem fyrr vinnur sex skák-
ir. Ljúki einvíginu með jafntefli,
12-12, heldur Kasparov heims-
meistaratítlinum.
Þannig tefldist biðskákin í gær.
Kasparov hafði svart og lék biðleik.
abcdefgh
43. - Df3!
Ekki er erfitt að koma auga á
fyrstu leikina á báða bóga. Með
nokkrum þvinguðum leikjum nær
Kasparov að laga stöðu sína. Bið-
staðan er hreint ekki eins slæm hjá
honum og margir töldu. Eftir
drottningakaup væri taflið dautt
jafntefli og 44. Dxa7 Dxe4 leiðir
heldur ekki til ávinnings.
44. Dd4 He6 45. e5
Onnur hugmynd er 45. Hf2 Dxe4
46. Dh8 (46. HÍ6+ Kg7 gefur ekk-
ert) en eftir 46. - De5 47. Df8+ Dg7
48. Df5 He5 og ef 49. Dg4, þá 49. -
Kg6! bægir svartur hættunni frá.
45. - Df5
Stungið var upp á þessum leikj-
um í DV í gær. Svartur bindur
hvítan við að valda e-peðið og um
leið ver drottningin viökvæma reiti
kringum kónginn.
46. He2 a5 47. Dd5 b4!
Skemmtileg lausn á vandamálum
stöðunnar. Með því að fóma peði
losnar Kasparov við hvíta kóngs-
peðið, nær að hrekja hrókinn á
óvirkan reit og losa um kóngsstöðu
sína.
48. Dxa5 Dd3 49. Hg2 Dd4 50. Da8
Hann getíu1 ekki valdað e-peðið
því 50. He2 Dd3 leiðir til sömu stöðu
og áður. En hann nær öðru peði í
staðinn.
50. - Dxe5 51. Df8+ Kg6 52. Dxb4
h5! 53. h4
Annars léki svartur h5-h4 en nú
verða enn peðakaup og þá er eftír
litlu að slægjast.
53. - gxh4 54. Dxh4 Hd6 55. Dc4 Hd4
56. Dc6+ Kg7 57. Db7+ Kh6 58.
Dc6+ Kg7 59. Hc2 Hh4+!
í raun er þetta lykilleikurinn í
vöm svarts. Hvítur kemst ekki hjá
drottningakaupum.
60. Kg2 De4+ 61. Dxe4 Hxe4 62.
Hc7+ Kg6 63. Ha7 He3 64. Kh3 Hc3
65. Ha8 Hc4 66. a4 Kg5 67. a5 Ha4 68.
a6 Kh6 69. Kg2 Ha3 70. Kf2 Kg7
Og jafiitefli samið. Ef hvítur reynir
að nálgast drottningarvænginn
með 71. Ke2 kæmi 71. - Hxg3 og
svartur fær nægilegt mótvægi með
h-peðinu. Ef hins vegar fyrst 71.
a7 má svartí hrókurinn ekki fara
af a-línunni en þá á hvítí kóngurinn
ekkert skjól á drottningarvæng og
svartm- skákar endalaust.
Umræður um kynferðis-
afforotamál eru ákall
til réttarkerfisins
- segir í frumvarpi um breytingar á hegningarlögum
Sólveig Pétursdóttir, varaþing-
maður Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík, fluttí á Alþingi í gær frumvarp
til laga mp breytingar á almennum
hegningarlögum. Flutningurinn á
frumvarpinu var um leið jómfrú-
ræða Sólveigar.
í frumvarpinu er lagt til að tvær
greinar laganna breytist. Það er 202.
gr. og 203. gr. laganna. Þær breyting-
ar, sem er mælst fyrir á 202. gr.,
kveða meðal annars á um þyngri
refsingu en hámarksrefsing er nú. í
frumvarpinu segir, ef brot sé sérstak-
lega stóifellt, varði það fangelsi ekki
skemm en eitt ár og allt að 16 árum.
í frumvarpi Sólveigar er einnig lagt
til að refsiákvæði hvaö varðar kyn-
ferðisafbrot við persónu af sama kyni
verði öllu ákveðnari og meiri en nú
er.
í greinagerð með frumvarpinu seg-
ir meöal annars: „Mikil umræða
hefm átt sér stað undanfarið um
kynferðisafbrot og þá ekki síst gagn-
vart börnum og ljóst er að allur
almenningur lítur þau mál mjög al-
varlegum augum. Túlka má þessa
umræöu sem nokkurs konar ákall til
íslenska réttarkerfisins um að bregð-
ast ekki hlutverki sinu þegar slík
brot eru annars vegar. Þess eru jafn-
vel dæmi að menn hafi haft tækifæri
til að fremja fjölda kynferöisbrota á
löngu tímabili og getm slíkt haft það
í fór með sér að almenn virðing fyrir
lögum þverri."
I greinargerðinni er vitnað í rit
Jónatans Þórmundssonar prófess-
ors, Um kynferðisbrot, þar segir:
„Það kann þó að vera jafnalvarlegt,
ef brotaþola er misboðið kynferðis-
lega með öðrum hætti, aö slepptri
þungunarhættunni. Má þar nefna
kynferðisathafnir, er beinast gegn
öðrum hlutum líkamans eða fram-
kvæmdar eru með verkfærum."
-sme
Mikið hefur verið unnið við lagningu bundins slitlags á götur á Hellissandi
og Rifi í sumar. DV-mynd Ægir Þórðarson
Hellissandur og Rif:
Miklar vega-
framkvæmdir
Högni Óskarsson geðlæknir:
„Afkynjun er (
fhimstæð aðgerð
á fjölmennum fundi um kynferðisafbrotamál
Á fjölmennum fundi Orators, fé-
lags laganema, í gærkvöldi var meðal
annars rætt hvort afkypjun væri
nothæft úrræði í meðferð kynferðis-
afbrotamála.
Högni Óskarsson geðlæknir var
einn frummælenda. Hann sagðist
vera á móti því að afkynjunaraðgerð
væri beitt vegna kyiiferðisafbrota.
„Sú aðferð er frumstæð og byggir á
svartsýni í garð mannkyns," sagði
Högni.
í máli hans kom fram að til væru
betri aðferðir til lækninga þeirra sem
haldnir eru kynórum. Nefndi hann
lyfjameðferðir. Þær kæmu þó aðeins
að gagni ef sá brotiegi vildi taka þátt
í þeim að fullum hug.
Högni spurði hvort rétt væri að
neyða lyfjum í þá sem á þyrftu að
halda. Sjálfur sagðist hann vera
þeirrar skoðunar að þaö væri rétt.
í máh Högna kom einnig fram að
hann teldi fangelsisvist lítinn vanda
leysa. Hann sagði að þeir sem gerast
sekir um kynferðisafbrot þyrftu
frekar á betrunarvist að halda. Það
er að á meðan á úttekt refsingar
stendur, fái afbrotamennimir með-
ferð. Frumstætt væri að loka menn
inni í skamman tíma án meðferðar
eða skilyrða.
-sme
Sumaiveður á Norðurlandi
Gyifi Kristjánasan, DV, Akureyri:
„Ég á ekki von á því að veðrið
breytist hjá ykkur á Akureyri og
Norðurlandi á næstu dögum,“ sagöi
Unnur Ólafsdóttir veðurfræðingur
er DV ræddi við hana um veðurblíð-
una á Norðurlandi að undanfomu
og það sem fram undan er.
Segja má að sumarveður hafi verið
á Norðurlandi undanfama daga.
Vindur hefur verið að sunnan eða
suðvestan og hitinn um tíu stig.
Hann fór í gærmorgun í 13 stig. Allan
spjó hefur tekiö upp á Akureyri og
samkvæmt upplýsingum Unnar
munu suðlægir vindar blása áfram
og hlýindin haldast.
Ægir Þórðarson, DV, HeDissandi:
Miklar gatnagerðarframkvæmdir
vom á HeUissandi og Rifi í sumar
og var lagt bundið shtlag á um tvo
og hálfan kílómetra. Þetta em ein-
hveijar mestu gatnagerðarfram-
kvæmdir á einu sumri í sögu
hreppsins.
í leiðinni var skipt um nær allar
vatnsleiðslur á Hellissandi en þær
voru orðnar um 30 ára gamlar og því
famar að gefa sig. Einnig voru lagðar
skólpleiðslur í vesturhluta kaup-
túnsins.
Öll vinna við undirbyggingu gatna,
lagningu vatnsleiðsla og skólplagna
var unnin af heimamönnum en lagn-
ing shtlags var unnin af Borgarverki
í Borgamesi.
Að sögn Gunnars Más Kristófers-
sonar sveitarstjóra gekk verk þetta
vel og er kostnaður við það nokkuð
undir kostnaðaráætiun.
Iðnaðarbankinn á Selfossi:
Stóweisla í útibúinu
Regma Thoiarensen, DV, Selfossi:
Að sögn Gunnlaugs Sveinssonar,
skrifstofustjóra útibús Iðnaðarbank-
ans á Selfossi, var mikil veisla haldin
í bankanum á miðvikudaginn. Um
hálfþijú, þegar ég kom þar inn, voru
um 300 manns búnir að komá og
þiggja hinar rausnarlegu veitingar
sem vora þar á borð bomar af hinum
glæsilegu stúlkum sem vinna í bank-
anum. Þaö var auðséð að það em
landsbyggðarmenn sem stjórna Iön-
aðarbankanum á Selfossi. Banka-
stjórinn, Stefán Bárðarson, er frá
Fáskrúðsfirði og skrifstofustjórinn
er frá Djúpuvík á Ströndum.
Að sögn hins unga bankastjóra
hefur útibúið á Selfossi stækkað um
300% síðan hann settist þar í banka-
stjórastólinn fyrir rúmum tveim
árum.
Allt brauð í veislunni var frá Sel-
fossi en þegar áður hafa verið veislur
hjá þessum stofnunum hafa veriö
keyptar smákökur úr Reykjavík sem
varla hefur fundist bragð að. Nú voru
tertunar úr Guðnabakaríi á Selfossi
og snitturnar frábæru héðan, enda
sveitakona sem útbýr þær. Óg svo
vom fengnar kleinur, einnig frá Sel-
fossi. Veitt var af mikilli rausn og
átti bankastjóri von á að kæmu allt
að 600 manns.
Ekki dró það úr viðhöfninni að
fólki, sem kom fyrir hádegi þennan
dag, vom gefnar rauöar rósir. Þetta
vom auðvitað ekki kratarósir en þó
ekki ólíkar þeim.