Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1987, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1987.
11
dv Útlönd
Blæðarar eyðni-
smitaðir vegna
afstöðu ráðherra
.í* vJj** '■^ r ’
. ’’ s, " \y
.: ' V ■■ \
i ésSS? *’"K> '••. ' "• V ” f .r:r"- -~*r *£... jt t jL
■I.
V
"ý'i :\v \ :
14
:'ts
.::v,- ■■>
.
—'"f .
pggjf
íliMi
," V./ '"1
■ V...... „■ ''"'
Eyðnipróf á dönskum blæðara og konu hans sýndi aö þau voru smituð
en iæknar greindu þeim ekki frá niðurstööum rannsóknarinnar. Þau
stefna nú yfirvöldum sem einnig þurfa að ganga frá skammarlegu máli
þar sem ekki var orðið við óskum blæðara um eyðnilaus lyf.
Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmannahöfn;
Ungt par, 20 og 24 ára, hefur í
hyggju að stefna heilbrigðisstjóm
Danmerkiu- og innanríkisráöu-
neytinu þar sem læknar hafi leynt.
þau því í háift ár að þau væm
smituð af eyðni.
Maðurinn er blæðari og fékk
eyðniveirana í gegnum blóðlyf er
nefnist faktor 8. Hann hefur orðið
veikur sjö sinnum og þá verið
nærri grafarbakkanum. Konan
smitaðist af manni sínum. Maður-
inn hefur fengið hundrað þúsund
danskar krónur í bætur samkvæmt
sérstökum lögum um eyðnismitaða
blæðara. Konan hefur engar bætur
fengið.
í september 1984 var parið kallað
tfi eyðniprófunar til að varpa ljósi
á mögulegar smitleiöir eyðni.
Læknamir sögðust þá ekki ætia að
upplýsa pariö um niðurstöður
rannsóknarinnar og hugsaði parið
ekki frekar um þetta. Þá vissu þau
ekki að sérleg hætta væri fyrir
blæðara á að smitast af eyöni. „Það
var bara eitthvað sem hommar
lentu í.“
Uppgötvaðist hjá heimilis-
lækni
Það var fyrst er heimilislæknir
parsins kom inn í myndina að þau
fengu að vita aö þau væm smituð.
Konan hafði komið til hans með
bólgna sogæðakirtla og þar sem
maðurinn var blæðari rannsakaði
heimihslæknirinn málið frekar.
Heimiiislæknirinn er óttasleginn
yfir sofandahætti læknanna en
upplýsingar frá þeim hefðu mögu-
lega getað bjargað konunni frá
smiti. Hefur læknirinn sótt um
bætur fyrir hönd kommnar sem
finnst að ekki aðeins blæðarar
heldur og makar og böm eigi rétt
á að fá bætur frá hinu opinbera
vegna eyðnismits.
Meirihluti með hækkun
í dag hljóða bætur til eyðnismit-
aðra blæðara, eins og áður segir,
upp á'hundrað þúsund danskar
krónur. Á þingi er meirihluti þvert
á alla flokka fyrir hækkun þessara
bóta. Er talað um að hækka bæt-
umar í tvö hundmð og fimmtíu
þúsund danskar krónur og að að-
standendur blæðara fái einnig
bætur eða séu tryggðir eftir fráfall
makans sem á erfitt með að kaupa
sér líftryggingu.
Formaður félags blæðara vill
hækka bæturnar í fjögur hundruö
þúsund krónur, auk þess sem fólk,
sem ekki er blæðarar en hefur
smitast gegnum blóðgjöf, fái skaða-
bætur.
En flestir eru sammála um aö
gengiö verði í eitt skipti fyrir öll frá
neyðarlegu og að flestra mati
skammarlegu máh í kringum
blæöara þar sem þáverandi innan-
rikisráöherra, Britta Schall Hol-
berg, lék aðalhlutverkið.
Níutíu blæöarar smitaöir
Um þrjú hundmð og fimmtíu
Danir þjást af hinum ólæknandi
blæðarasjúkdómi sem gengur í
erfðir til karlmanna og kemur í veg
fyrir næghega storknun blóðsins.
Hver blæðing og þá sérstaklega
innri blæðingar hafa mögulega
hættu í fór með sér fyrir blséðar-
ana. Til að blóðiö storkni nægilega
taka blæðarar lyf sem er sprautað
i líkamann. í lyfinu getur verið blóö
frá aht aö þrjú þúsund blóðgjöfum
og því töluverðar líkur á að blæð-
ari smitist af eyðni ef blóðið er ekki
hitað og þannig gert skaðlaust með
tilhti th eyðni.
Fram th dagsins í dag hafa að
minnsta kosti níutíu danskir blæð-
arar smitast af eyðni, flestir
gegnum lyf sín. Þar af eru fimm
dánir. Hjá sjö blæðuram hefur
sjúkdómseinkenna orðiö vart.
Tími angistar og ótta
Frá október 1985 hafa einungis
eyðnhaus blæðaralyf verið notuð í
Danmörku og em þau borguð af
ríkinu. Nema útgjöldin þar að lút-
andi rúmlega hundraö mhljónum
danskra króna ár hvert.
En það leið nokkur tími, tími
angistar og ótta fyrir blæðara, þar
th lyfin vora tryggð gegn eyöni. í
október 1984 ákváðu bandarísk
hehbrigðisyfirvöld að öh blóðlyf til
blæðara yrðu hreinsuð af eyðni-
veimnni. Það var einfalt, næghegt
var að hita blóðið. í janúar og
febrúar fylgdu Svíar og Þjóðveriar
í kjölfar Bandaríkjamanna og
stuttu seinna bættust Sviss,
Kanada og Suöur-Afríka í hópinn.
í Danmörku bjuggust blæðarar við
skjótum viðbrögðum yfirvalda en
ekkert gerðist. Blæðarar ókyrrðust
og skrifuðu innanríkisráðherran-
um og hehbrigðisstjórninni bréf
þar sem sótt var um leyfi th að
gangast undir meðhöndlun með
eyðnilausum lyíjum sem þá yrðu
innflutt. Þeirri beiðni var hafnað.
Rússnesk rúlletta
Til að gera langa sögu stutta
skrifaði formaður félags blæöara
Brittu Schall Holberg bréf þar sem
hann geröi grein fyrir eríiöri stöðu
blæöara. Þeir gátu látið vera aö
taka lyf sitt og átt á hættu að lam-
ast eða taka lyfið og átt á hættu aö
fá eyöni. Þaö er spilað rússneska
rúhettu.
Ekkert svar kom frá ráðherran-
um varðandi þetta. Það var fyrst
er fólk hafði lent í umferðarslysi
og smitast af eyðni gegnum blóð-
gjöf að fjölmiðlar tóku aimennhega
við sér. Blæðarar sendu samstund-
is út fréttatilkynningu og í blöðum
og sjónvarpi var þetta aðalfréttin.
Þá fyrst tók ráðherrann við sér í
örvæntingu og fyrirskipaði hita-
meðferð á lyfjum blæðara.
Andstaða lyfjaframleiðanda
Ástæðan fyrir seinagangi ráð-
herrans byggðist í fyrsta lagi á
andstöðu lyfjaframleiöanda þess
sem framleiddi áttatíu prósent
blæðaralyfja í Danmörku. Hita-
meðferðin yrði of dýr að hans mati.
Kostnaðurinn varð aðeins fimm
mihjónir hjá fyrirtæki með sex
hundmð sjötíu og fimm milljón
króna veltu.
í öðru lagi var stefna ráðherrans
að Danir ættu að vera sér sjálfir
nógir meö blóö og við töf þá sem
yrði með hreinsun blóðbirgða
þeirra sem fyrir vom í landinu
næðist þaö takmark ekki fyrr en
löngu seinna.
í þriðja og síðasta lagi var um
aukin ríkisútgjöld að ræða í tengsl-
um við blæðara. Lyfin yröu dýrari
viö aukinn framleiðslukostnað en
það er ríkið sem borgar lyf blæðar-
anna.
Heilu ári eftir ákvörðun Banda-
ríkjamanna um hreinsun blóös
æhað blæðurum er sams konar
ákvörðun tekin í Danmörku. Mál
þetta er sorglegt, sérstaklega fyrir
þá blæöara er smituöust af eyöni á
þessu tímabhi og aöstandendur
þeirra. Peningabætur geta verið ht-
híjörlegar í slíku tilfehi en það eina
sem ríkið getur boðið upp á til aö
bæta fyrir gerðir ráðherrans og
embættismanna hennar.
Hljómsveitin Saga Class
Nú er málið að mæta í betri fötunum
og hvíla gallabuxurnar í vetur.
Evrópa - staður nýrrar kynslóðar!
20 ÁRA ALDU RSTAKMARK.
Gabor
EINSTOK GÆÐI
Teg. 5-130
Rúskinnsskór,
svartir og brúnir.
3.495,-
Teg. 4-370
Svart leður, hæll
6 cm, leðurfóður,
leðursóli. Verð
3.995,-
Teg. 5-360
Svart leður, leð-
urfóður, hæll 5'/i
Verð 3.995,-
Teg. 5-635
Svart leður, hæll
4,3 cm, leðurfóð-
ur. Verð 8.699,-
Teg. 5-658
Svart leður,
hæll5,5cm.
Verð 7.615,-
Teg. 5-612
Svart leður, svart leður-
fóður. Verð 8.640,-
POSTSENDUM
SKOSEL
Laugavegi 44, sími 21270