Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1987, Page 28
40
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1987.
Jarðarfarir
Jórunn S. Jónsdóttir lést 24. október
sl. Hún fæddist í Reykjavík 25. ágúst
1920, dóttir hjónanna Valgerðar Guð-
*rúnar Sveinsdóttur og Jóns Árna-
sonar. Jórunn stofnaði sælgætis-
gerðina Völu 1946 og rak hana til
ársins 1985. Jórunn var tvígift. Fyrri
maður hennar var Sverrir Magnús-
son og eignuðust þau einn son. Þau
slitu samvistum. Seinni maður henn-
ar var Rögnvaidur Ólafsson og
eignuöust þau tvö böm. Þau shtu
samvistum. útför Jórunnar verður
gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Ágústa Forberg lést 27. október sl.
Hún fæddist á Rauðará í Reykjavík
4. janúar 1905, dóttir Aage Lauritz
Petersen og Guðbjargar Gísladóttur.
Ágústa var tvígift. Fyrri maður
hennar var Ólafur Magnússon en
hann lést árið 1930. Þau eignuðust
tvo syni. Seinni maður hennar var
Bjami Forberg en hann lést árið 1978.
Þau eignuðust þrjú böm. Útför
Ágústu verður gerð frá Fossvogs-
kirkju í dag kl.-15.
Menning
Hlátur er hollur...
Leikfélag Hafnarfjaröar:
Spanskflugan eftir Arnold og Bach.
Leikstjóri: Daviö Þór Jónsson.
Ljós: Egill Ingibergsson.
Leikmynd: Daviö Þór Jónsson.
Spanskflugan er einn þessara sí-
vinsælu gamanleikja sem byggjast
á misskilningi og flækju á flækju
ofan. Hlátur er hollur og ekkert
nema gott um það að segja að stytta
mönnum stundir í skammdeginu
með grallaralegum skrípalátum
fjölskyldunnar Klinke og vanda-
manna hennar. Og ekki bar á öðm
en frumsýningargestir kynnu að
meta grínið því að undirtektimar
vom þannig að atvinnuleikhúsin
heföu mátt öfunda Hafnfirðingana
af þeim.
Leikfélag Hafnarfjarðar er eitt
þeirra ódrepandi áhugafélaga sem
starfa hér í nágrenni borgarinnar
og velur nú Spanskfluguna til sýn-
ingar réttum fimmtíu ámm eför
að kvenfélagið Vorboðinn setti
þetta sama leikrit á svið í Firðinum.
Og svo skemmtilega tekst til að
einn leikari úr þeirri uppfærslu,
Ársæll Pálsson, leikrn* líka með nú.
Farsaleikir á borð við Spansk-
fluguna hafa löngum orðið fyrir
vahnu þegar áhugahópar velja sér
verkefni. Vinsældimar sjást t.d. af
því að í meira en hálfa öld hafa
grínleikir þeirra félaga, Arnolds og
Bachs, verið leiknir oftar en tölu
veröi á komið viðs vegar um landið.
í Spanskflugunni segir frá hinni
siðavöndu Khnke fjölskyldu. Einn
góðan veðurdag er borgaralegri th-
vem þessa góða fólks ógnað þar
sem fjölskyldufaðirinn hefur ekki
alveg hreint mjöl í pokahominu.
Hann á sér gamalt leyndarmál og
þegar við liggur að aht komist upp
em góð ráð dýr. í viðbót við farsa-
kenndan söguþráðinn gefst í
verkum þessarar tegundar tæki-
færi til ahs kyns skringilegra
uppákoma, grínið er hér bara
grínsins vegna.
Uppsetning Leikfélags Hafnar-
fjarðar ber í heild mjög merki þess
að menn em ekkert að taká sig of
LeHdist
Auður Eydal
hátíðlega. Töluverður viðvanings-
bragur er á leik sumra leikaranna,
og ekkert skafið af skrípalátunum.
En í staðinn fyrir fagleg vinnu-
brögð kemur innheg leikgleði, og
eins og áður sagði kunnu áhorfend-
ur að meta ærslin.
Af leikendum má nefna Ársæl
Pálsson sem nú leikur hlutverk
Tiedemayers. Hann var hyUtur
sérstaklega, enda ekki á hverjum
degi sem félagar áhugahópa leika
enn, fimmtíu árum eftir frumraun-
ina. Jón Sigurðsson sýndi góða
takta í hlutverki hr. Khnke en heföi
þurft markvissari leikstjóm. Stein-
ar Almarsson vakti núkla kátínu í
hlutverki Maríu og Svava Amar-
dóttir fór snoturlega með hlutverk
Vahýjar. Gísh Guðlaugsson var
líka ágætur í hlutverki Hinriks
Meisel.
Leiktjöldin vom sannast sagna
ekkert augnayndi, en tröppur og
pahar komu að góðum notum þeg-
ar persónur þurftu að detta eða
hrasa, eins og tilheyrir í ekta farsa-
leik, og vom hka óspart notuð.
Davíð Þór Jónsson, sem er einn af
meðhmum LH, leikstýrir verkinu
og er þetta frumraun hans sem
leikstjóra. Það sést.
Og eins og áður sagði skorti ekk-
ert á góðar undirtektir, svo enn
einu sinni hefur þeim félögum Am-
old og Bach tekist að kitla hlátur-
taugar landans.
AE
Igærkvöldi
Anton Reynir Gunnarsson vélamaður:
útvarpsmaður
Mikill
Ég get nú ekki sagt að ég horfi
mikið á sjónvarp, vegna atvinnu-
og áhugamála, en aftur á móti
hlusta ég mikið á Stjömuna og
Bylgjuna. Báðar rásirnar eru
skemmtUegar og ekki gott að velja
á milli þeirra. Með skemmtUegri
þáttum sem ég hlusta á er Fjöl-
skyldan á BrávaUagötunni af
Bylgjunni. Rás 1 hlusta ég lítið á.
Ég horfði á Þrífæthngana í gær í
Ríkissjónvarpinu í fyrsta sinn og
kom þátturinn mér ekki á óvart þar
sem ég hef lesið bækurnar. Frétta-
þátturinn 19:19 var góður eins og
venjuiega enda tek ég hann fram
yfir fréttaþátt Ríkissjónvarpsins.
Éftir hann skipti ég um stöð því ég
hef ekki aðgang að afruglara. Þar
varð fyrir Kastljós en mér leiddist
blaðrið um fóstureyðingar þar.
Matlock vekur yfirleitt mikla eft-
irvæntingu á mínu heimih, hann
er alltaf góð skemmtun. Að lokum
horföi ég á elsta þátt Ríkissjón-
varpsins, Nýjasta tækni og vísindi.
Það er aUtaf jafnforvitnUegt að
fylgjast með framfömm mannsins.
Meira nennti ég síðan ekki að horfa
á enda vinnudagur framundan.
Þar sem ég er mikUl bridgeáhuga-
maður þá vU ég endUega koma því
á framfæri að bridgeíþróttinni séu
gerð meiri skU í útvarpi og sjón-
varpi. Skákin fær stöðuga og mikla
umfjöhun en þó eru margfalt fleiri
sem keppa í bridge heldur en skák.
Kvikmyndahús
Bíóborgin
Nornirnar frá Eastwick
Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05 og 11.10.
f kröppum leik
Sýnd kl. 7.05, 9.05 og 11.10.
Tin Men
Sýnd kl. 5, 7.05 og 11.10.
Svarta ekkjan
Sýnd kl. 9.05.
Bíóhöllin
Glaumgosinn
Sýnd kl. 5, 7,9 og 11.
Sannar sögur
Sýnd kl. 5 og 7.05.
Full Metal Jacket
Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05 og 11.15.
Rándýrið
Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05 og 11.15.
Hefnd busanna II,
Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05, og 1j.15.
Hver er stúlkan?
Sýnd kl. 7.05, og 11.15.
Logandi hræddir
Sýnd kl. 5 og 9.05.
Blátt flauel
Sýnd kl. 9.05
Háskólabíó
Robocop
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð innan 16 ára.
Laugarásbíó
Salur A
Á vigvellinum
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
Salur B
Fjör á framabraut
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10.
Salur C
Undir fargi laganna
Sýnd kl. 5, 9 og 11.
Særingar
Sýnd kl. 7.
Regnboginn
3 hjol undir vagni
Sýnd kl. 3. 5, 7, 9 og 11.15.
Blóðpeningar
Sýnd kl. 3. 5, 7, 9 og 11.15.
Stjúpfaðirinn
Sýndkl. 3, 5, 7, 9 og 11.15.
Á öldum Ijósvakans
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15.
Löggan i Beverly Hilis II.
Sýnd kl. 3, 5,7, 9 og 11.15
Stjömubíó
La Bamba
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.15.
Stattu með mér.
Sýnd kl. 5 og 7.
La Bamba
Sýnd kl. 10.05.
Sigurjón Hallvarðsson lést 30. okt-
óber sl. Hann fæddist 16. júh 1905 í
Skutulsey á Mýrum, sonur hjónanna
Hahvarðar Einvarössonar og Sigríð-
ar Gunnhildar Jónsdóttur. Sigurjón
gekk í Samvinnuskólann og útskrif-
aðist þaöan 1930. Hann starfaði
lengst af við Lögreglustjóraembættið
í ReyKjavík eða frá árinu 1936 til 1975.
Efdrlifandi eiginkona hans er Gerd
Hahvarðsson. Þeim hjónum varð
þriggja bama auðið. Útför Siguxjóns
verður gerð frá Dómkirkjunni í dag
kl. 15.
Guðrún Margrét Þorsteinsdóttir
frá Seyðisfirði, til heimilis á Fram-
nesvegi 10, Keflavík, lést á heimih
sínu þann 25. október sl. Útförin hef-
ur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Magnúsa Aðalveig Ólafsdóttir, frá
Þórkötlustöðum, Grindavík, verður
jarðsungin frá Grindavíkurkirkju
laugardaginn 7. nóvember kl. 14.
Friðrik Ellert Jónsson, Brimnes-
vegi 18, Ólafsfirði, sem lést föstudag-
inn 30. október, verður jarðsunginn
frá Ólafsflarðarkirkju laugardaginn
7. nóvember kl. 14.
Magnús Þorsteinsson, Hofi, Öræf-
um, sem andaðist 31. október, verður
jarðsunginn frá Hofskirkju laugar-
daginn 7. nóvember kl. 14.
Guðmundur Sigurðsson frá Sviðu-
görðum verður jarðsunginn frá
Gaulveriabæjarkirkju laugardaginn
7. nóvember kl. 14.
Útför Guðmundar Egilssonar loft-
skeytamanns fer fram frá Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði mánudaginn 9.
nóvember kl. 13.30.
Egill Gestsson tryggingamiðlari,
Klapparbergi 23, Reykjavík, verður
jarðsettur frá Dómkirkjunni mánu-
daginn 9. nóvember kl. 13.30.
Sigrún Helena Jóhannesdóttir,
Dvalarheimilinu Hlíf, ísafirði, verð-
ur jarðsungin frá Hnífsdalskapehu
laugardaginn 7. nóvember kl. 14.
Ágúst Ottó Jónsson lést 31. október
sl. Hann fæddist 28. júní 1914. For-
eldrar hans voru Guðfinna Einars-
dóttir og Jón Jónsson. Ágúst lauk
meira fiskimannsprófi frá Stýri-
mannaskóla íslands 1939 og stundaði
sjómennsku til ársins 1969. Lengst
af var hann á togurum Bæjarútgerð-
ar Hafnarfjarðar. Eftirhfandi eigin-
kona hans er Þóra Bachmann
Stefánsdóttir. Þeim hjónum varð
tveggja bama auðið. Útfór Ágústs
verður gerð frá Hafnarfj arðarkirkj u
í dag kl. 13.30.
Dómurinn í kynferðisafbrotamálinu í Sakadómi:
Skráður í dómabók viku
eftír að hann var saminn
Dómur sá er kveðinn var upp í
Sakadómi Reykjavíkur í kynferðisaf-
brotamáh, sem þar haföi verið í heht
ár, er dagsettur 27. október í dóma-
bók. Dómurinn er hins vegar ekki
ritaður í dómabók fyrr en 4. nóvemb-
er.
Hvers vegna leið svo langur tími
frá því að dómur var saminn þar th
hann var ritaður í dómabók? Haft
var samband við dómarann, Ármann
Kristinsson. Hann sagði orðrétt eftir
aö blaðamaður haföi kynnti sig: „Ég
hef ekkert við þig að tala.“
Eftir því sem DV kemst næst er það
afar sjaldgæft ef ekki einsdæmi aö
dómur sé ekki skráður fyiT en löngu
eftir að hann var saminn. í langflest-
um tilfehum eru dómar skráðir
samdægurs.
Ákærði í þessu thtekna máh var
dæmdur í tveggja mánaða fangelsi
og i sex mánaða skilorðisbundið
fangelsi, sem ghdir í 5 ár.
Farið var fram á að ákærði greiddi
fómarlambinu eina mihjón króna í
skaðabætur. í dóminum er ákærða
gert að greiða 127.500 krónur í skaða-
bætur. Krafa fómarlambs var því
lækkuð um 872.500 krónur.
Svala Thorlacius, lögmaður fóm-
arlambsins, sagði við DV í gær að í
þessu máh heföi fómarlamb orðið
verr úti en í flestum sambærhegum
málum sem hún þekkti th.
-sme
Árshátíðir
Samtök Svarfdælinga í
Reykjavík og nágrenni
halda áxshátíð sína laugardaginn 14. nóv-
ember 1987 í félagsheimilinu á Seltjamar-
nesi. Hátíðin hefst kl. 19. Góð skemmtiat-
riði. Veislustjóri er Gunnlaugur
Snævarr. Miðapantanir hjá Sólveigu
Jónsdóttur í síma 91-11005 laugardag og
sunnudag 7. og 8. nóvember milli kl. 16
og 18.
Tilkyimingar
Kvenfélag Kópavogs
Fjáröflunardagurinn verður 8. nóvember.
Tekið á móti munum í félagsheimilinu,
vestursal, þriðjudaginn 3. nóv. og fostu-
dag 6. nóv. eftir kl. 20 og á laugardag 7.
nóv milli kl. 14-19. Hafið samband við
Margréti í síma 41949, Þorgerði í s. 42373
og Stefaníu í s. 41084.
Upplýsingamiðstöð
ferðamála
hefur aðsetur að Ingólfsstræti 5. Þar eru
veittar allar upplýsingar um ferðalög á
Islandi og það sem er á döfinni í borg-
inni. Opið mánudaga til föstudaga kl.
10-16 og laugardaga kl. 10-14. Sími
623045.
Leikhús
Leiklistarskóli íslands
sýnir Sjúka æsku
3. bekkur Leiklistarskóla íslands sýnir
sitt fyrsta kennsluverkefni á þessum
vetri, leikritið Sjúka æsku, í Lindarbæ.
Krakkamir em nýkomnir frá Helsinki
þar sem þeir frumsýndu verkið á norr-
ænni leikiistarskólahátíð. Fyrsta sýning
á verkinu verður í kvöld kl. 20.30 í Lind-
arbæ. Þá veröa sýningar á laugardag og
sunnudag kl. 16 og á kvöldin kl. 20.30
nema miðvikudagskvöldið. Leikstjóri er
Helga Bachmann.