Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1987, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987.
3
Skattkort hafa veríð send til allra sem
verða 16 ára og eldri á árinu 1988.
Skattkortin eru lykill að réttrí stað-
greiðslu opinberra gjalda og þess vegna
mikilvægt að notkun þeirra og meðferð sé
öllum Ijós.
• Lesið upplýsingamar og leiðbeiningamar
sem fylgja skattkortinu vel.
• Ef þið hafið eitthvað við persónulegu upplýs-
ingamar að athuga þá hafið samband við
næstaskattstjóra.
• Ef þið viljið nýta ykkur möguleika á auka-
skattkorti, þá er best að sækja strax um það
hjáskattstjóra.
AUKASKATTKORT
Þeir sem nýta ekki persónuafslátt sinn á
einum vinnustað, vinna ef til vill á fleirí stöðum
eða vilja afhenda maka sínum ónýttan per-
sónuafslátt, getafengið aukaskattkort.
Þeir fylla þá út umsóknareyðublað og
snúa sér með það til næsta skattstjóra. Á auka-
skattkortum er mánaðarlegum persónuafslætti
skipt niður á kortin í þeim hlutföflum sem launa-
maðuróskar.
MEÐFERÐ SKATTKORTS
Afhendið launagreiðanda ykkar skattkort-
ið sem fyrst til vörslu. Ef hann hefur ekki skatt-
kortið við útborgun launa fæst ekki persónu-
afsláttur og fullt skatthlutfall (35.2%) verður
dregið af launum.
Launagreiðanda ber að varðveita skatt-
kortið og hann ber ábyrgð á því á meðan það er
í hans vörslu.
Þegar skipt er um vinnustað er skattkortið
sótt og afhent nýjum launagreiðanda. Þeir sem
vinna ekki utan heimilis varðveita kort sín sjálfir
ef maki nýtirekki persónuafsláttinn.
Án skattkorts
-enginn
persónuafsláttur
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI