Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1987, Side 20
20
ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987.
ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987.
21
íþróttir
• Olafur Unnsteinsson, til hægri, ásamt Vestur-Þjóðverjanum Klaus I
Liedke en hann varð heimsmeistari i kúluvarpi og kringlukasti i 45-49 1
ára flokki.
Ólafur fyrstur til að
komast í úrslit á HM
Ólafur Unnsteinsson, HSK, náði
I mjög góðum árangri á heimsmeist-
I aramóti öldunga í fijálsum íþrótt-
I um sem fram fór í Ástralíu nýverið.
Ólafur keppti í kúluvarpi og
I kringlukasti í 45-49 ára flokki og
, komst í úrslit í kúluvarpinu. Er
I hann fyrsti íslenski kastarinn sem
| nær að komast i úrslit á heims-
I meistaramóti.
I Ólafur hafnaði í 8. sæti í kúlu-
1 varpinu, varpaði 11,89 metra og
j varð síðan í 10. sæti í kring’ukasti
, þar sem hann kastaði 36,70 metra.
Alls tóku 34 keppendur þátt í I
kringlukastinu og 36 í kúluvarp- I
inu. Þessi árangur Ólafs er mjög 1
glæsilegur en hann var eini ís- |
lenski keppandinn á mótinu. Vakti
þátttaka hans mikla athygli við- |
staddra. Alls tóku tæplega 5000 .
keppendur þátt í mótinu og þar af I
voru yfir 30 fyrrverandi sigurveg- |
arar á ólympíuleikum. Nánar I
verðurgreintfráferðÓlafstilÁstr- I
alíu í máliog myndum í DV síðar.
-SK
Gunnlaugur bættí
25 ára íslandsmet
Gunnlaúgur Grettisson, há-
I stökkvari úr ÍR, setti í gærkvöldi
: nýtt íslandsmet í hástökki karla
I innanhúss. Gunnlaugur vippaði
■ sér yfir 2,12 metra og bætti þar með
I 25 ára gamalt íslandsmet Jóns Þ.
^Ólafssonar um einn sentímetra.
• Þá setti Jóhann Ómarsson, ÍR, ■
nýtt íslandsmet í unglingaflokki er |
hann stökk 2,08 metra.
• Á dögunum setti Sigrún Jó- |
hannsdóttir, KR, nýtt telpnamet í ■
kúluvarpi og varpaði 10,35 metra. I
Suður-Kóreu séu
iÞó að leikmenn
I smáir og stuttfættir munar hinn liðuga hornamann okkar, Guðmund I
* Guðmundsson, ekki mikið um að stytta sér leið milli fóta eins þeirra *
| eins og þessi mynd ber með sér. Guðmundur átti góðan leik sem og |
" allir aðrir leikmenn íslenska liðsins. í kvöld mætast þjóöirnar aftur í _
I Laugardalshöll og verður fróðlegt að sjá hvað gerist í þeirri viöureign. |
DV-mynd Brynjar Gauti j
Iþróttir
t; AVkllMIV
„TC tet ITvalHGI cnir í b íiiiirnir akarfið
Annað tap Real Madrid á keppnista'mabilinu
Real Madrid tapaöi öðrum leik því liðinu hefur ekki gengið vel í Celta - Sporting.1-3 Cadiz - Valencia.2-0
sínum á keppnistímabilinu í 1. deildinni í ár en Real Madrid er Logrones - Real Zaragoza..2-1 • 15 umferðir hafa verið lelknar í
deild spönsku knattspyrnunnar hins vegar í efsta sæti. Úrslit í öðr- Real Mallorca - Osasuna...2-1 deildinni og er Real Madrid efst
um helgina. Real Madrid tapaði þá um leikjum urðu þessi: Sabadell - Las Palmas.2-1 með 25 stig, Real Sociedad er í öðru
fyrir Real Betis, 2-1, á útivelli. Sig- Real Murcia - Real Sociedad „1-2 Atletico Madrid - Sevilla.2-0 sæti til þriöja sæti ásamt Atletico
ur Real Betis kom verulega á óvart Barcelona - Real Valladolid ....2-4 Athletic Bilbao - Espanol.2-0 Madrid með 21 stig. -JKS
ARNÓR - BESTUR í BELGÍU
Arnór áritar bókina í Pennanum, Hallarmúla kl. 13-15, á morgun, Þorláks-
messu. Tekið á móti pöntunum í síma 83211.
- 67 mörk skoruð á 60 mínútum er ísland vann S-Kóreu, 36-31
Landslið íslands og Suður-Kóreu sýndu bæði afbragðsgóðan handknattleik
í Laugardalshöll í gærkvöldi. ísland sigraði örugglega, 36-31, eftir að staðan
hafði verið 20-16 í leikhléi. Eins og tölurnar gefa til kynna var sóknarleikur-
inn í fyrirrúmi hjá báðum liðum og var leikurinn fyrir bragðið afar
skemmtilegur og hraður. Guðmundur Hrafnkelsson markvörður var aðal-
maðurinn í íslenska liðinu og átti snilldarleik, varði samtals 21 skot en hann
kom í íslenska markið þegar um tíu mínútur voru liðnar af leiknum. Áhorf-
endur troðfylltu Laugardalshöllina í gærkvöldi og fengu mikið fyrir aurinn
sinn og sjaldan eða aldrei meira.
Þeir skáeygðu hófu leikinn af miklu
kappi og komust í 0-2. Staðan þegar 12
mínútur voru liðnar af leiknum var 7-9
en þá skoruðu okkar menn fimm mörk
í röö og breyttu stöðunni í 12-9. Mestur
munur í fyrri hálfleik var fimm mörk
en staðan í leikhléi 20-16. Hreint ótrúleg
markasúpa og mér er til efs að íslenskt
landslið hafi áður skorað 20 mörk á 30
mínútum í alvörulandsleik.
Sama sagan í síðari hálfleik
Mikið var einnig skorað í síðari hálf-
leik en þó örlítið minna en í þeim fyrri.
Mestur munur í hálfleiknum var sex
mörk þegar staðan var 24-18 en minnst-
ur 30-27. Sigur íslenska liösins var
aldrei í hættu og mjög svo sætur. Marg-
ir muna eflaust eftir þeirri miklu útreið
sem íslenska liðið fékk gegn Kóreu-
mönnum í síðustu heimsmeistara-
keppni í Sviss og í gærkvöldi var þeim
svo sannarlega komið í skilning um þaö
að við höfum ekki gleymt þeim eftir-
minnilega leik.
Spurning um snerpu og einbeit-
ingu
Lið Suður-Kóreu er mjög erfitt viður-
eignar. Liðið leikur geysilega hraðan
handknattleik og leikmenn liðsins eru
mjög tekniskir' Þeir leika að mestu svo-
kallaða píramídavörn, 3-2-1, og það er
betra að vera með einbeitinguna og
snerpuna á réttum stað er leikið er gegn
þessu landsliði Kóreumanna sem hafn-
aði sem kunnugt er í 12. sæti á HM í
Sviss 1986. Minnstu mistök kosta nær
undantekningarlaust mark og sem bet-
ur fer gerðu okkar menn lítið af mistök-
um í gærkvöldi. Þeir léku mjög
skynsamlega og uppskáru samkvæmt
því.
Athyglisverður sigur fyrir
margra hluta sakir
Sigur íslands í gærkvöldi er mjög at-
hyglisverður. í lið okkar vantaði þá
Alfreð Gíslason, Bjama Guðmundsson,
Sigurð Sveinsson og Pál Ólafsson þann-
ig að ekki er hægt að segja að við höfum
teflt fram okkar sterkasta liði. Kóreu-
menn skomðu 31 mark þrátt fyrir
snilldarmarkvörslu Guðmundar Hrafn-
kelssonar og er það talandi dæmi um
þann mikla hraða sem einkenndi leik-
inn. Þá má geta þess að í 10 mínútur
var íslenska liðið einum leikmanni
færri en Kóreumenn í tvær mínútur.
Engin töfrabrögð
Áhorfendur áttu von á miklum töfra-
brögðum frá Kóreumönnum í gær-
kvöldi en þau sáust ekki. Ástæðan var
fyrst og fremst sú að þeir höfðu um nóg
annað að hugsa og voru slegnir út af
laginu af sterkum leik íslenska liðsins
og góðum stuðningi áhorfenda. Færri
áhorfendur komust raunar að en vildu
og verða menn því að vera fyrr á ferð-
inni í kvöld ef þeir eiga að komast að.
Það er vissulega þess virði að leggja
lykkju á leiö sína og mæta í Hölhna í
kvöld því búast má við svipuðum leik í
kvöld og í gærkvöldi.
• Mörk Islands: Kristján Arason 10/5,
Þorgils Óttar Mathiesen 7, Atli Hilmars-
son 5, Geir Sveinsson 5, Karl Þráinsson
3, Guðmundur Guðmundsson 2, Valdim-
ar Grímsson 2, Sigurður Gunnarsson 1
og Jakob Sigurðsson 1.
• Kim, númer 2, var markahæstur í
liði Kóreumanna og skoraði 12 mörk, 4
úr vítum. Li fyrirliði, númer 14, skoraði
7 mörk og Kang, númer 13, skoraði einn-
ig 7 mörk.
• Gunnlaugur Hjálmarsson og Oli Ols-
en fengu það erfiða hlutverk að dæma
leikinn vegna forfalla norskra dómara
sem dæma í kvöld. Náðu þeir sér ekki á
strik. -SK
Þorgils Öttar Mathiesen, fyrir-
liði íslenska landsliðsins í handknatt-
leik átti mjög góöan leik gegn
Suður-Kóreu í gærkvöldi. Þorgils skil-
aði varnarleiknum mjög vel og auk
þess skoraði hann sjö mörk í leiknum
og nýtti færin vel. Hér sést hann í
baráttu á tínunni í gærkvöldi við
markahæsta leikmann þeirra ská-
eygðu, Kim að nafni, en hann skoraði
12 mörk i leiknum.
DV-mynd Brynjar Gauti
„ísland betra nú en á HM í Sviss“
- sagði Yoo Jai-Choong, þjálfari S-Kóreu í handknattíeik, eftír leikinn í gærkvöldi
„Ég er mjög ánægður með fyrsta sig-
urinn á S-Kóreumönnum í handknatt-
leik. Við erum farnir að þekkja nokkuð
inn á leik þeirra en það verður að viður-
kennast áð þeir eru þrælsterkir. Við
erum gífurlega heppnir að veröa ekki í
sama riðli og þeir á ólympíuleikunum,"
sagði Kristján Arason í samtali við DV
eftir landsleikinn gegn S-Kóreu í gær-
kvöldi.
„Þessi leikur var mjög skemmtilegur
fyrir áhorfendur og ég vonast eftir að
við getum leikið sama leikinn aftur í
kvöld í seinni leiknum. S-Kórea er með
lið á heimsmælikvarða en þeir leika
allt annan1 handknattleik heldur en
flestar aðrar þjóðir," sagði Kristján.
Yoo Jai-Choong, þjálfari S-
Kóreu:
„Ég er að vonum mjög óánægður meö
úrslitin. íslendingar voru mun betri en
ég átti von á. Þeir eru með mun betra
lið nú en á heimsmeistarakeppninni í
Sviss. íslenska liðið hefur í dag yfir að
ráða mun meiri krafti og snerpu," sagði
Yoo Jai-Choong, þjálfari S-Kóreu, í sam-
tali við DV. „Ég spái íslenska liðinu 3.^5.
sæti á ólympíuleikunum í Seoul. ís-
lensku áhorfendurnir voru frábærir og
þeir minntu mig á áhorfenduma heima
í Kóreu. Kristján Arason fannst mér
bestur í íslenska liðinu en þar er á ferð-
inni leikmaður í fremstu röð í heimin-
um í dag. Einnig varði Guðmundur
Hrafnkelsson mjög vel.“
Jón Hjaltalín Magnússon, for-
maður Handknattleikssam-
bands íslands:
„Þetta var hörkuleikur enda keppa
bæði liðin að góðum sætum á OL. Is-
lenska hðið er í góðri æfingu enda
stefnum við að því að verða í toppæf-
ingu á World Cup í Svíþjóð sem verður
í janúar.“ -JKS
BIRGIR