Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1987, Side 34
ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987.
34
í gærkvöldi
Kristín Sif Sigurðardóttir ritari:
Víður sjóndeildarhringur
Ég horföi á George og Mildred
og haföi verulega gaman af því. Þau
eru bráðskemmtileg, sérstaklega
hinn óbærilegi George.
Ég missti af fréttum á Stöð 2 en
horföi á þær hjá Ríkissjónvarpinu.
Þar bar hæst fréttina af árekstrin-
um milli feijunnar og olíuflutn-
ingaskipsins við strendur Filipps-
eyja. Þetta var hræðilegur
mannskaði og óhugnanlegt er til
þess að hugsa að nokkrir þeirra
sem fórust hafi orðiö hákörlum að
bráð.
Það voru athyglisverðar og ógn-
vekjandi tölur sem voru birtar í
fréttatímanum um slys í heimahús-
um hér á landi. Það gera sjálfsagt
fáir sér grein fyrir þeim hættum
sem leynast á heimilum fyrr en
þeir lenda í þeim.
Ég er almennt mjög ánægð með
fréttatíma sjónvarpsstöðvanna
beggja og fmnst mjög hæfilegt hlut-
fall milli innlendra og erleridra
frétta. Ég hef búið erlendis 1 tvö ár
og getað fylgst meö fréttatímum á
17 sjónvarpsrásum og tel íslenskar
sjónvarpsfréttir yfirleitt hafa víð-
ari sjóndeildarhring en flestar
aðrar i Evrópu.
Ég horfði með öðru auganu á
auglýsingamar eftir fréttatímann
og fmnst auglýsingagerð hafa farið
mikið fram hér á landi síðustu árin.
Heimsóknin til Errós í Frakk-
landi var ágætisþáttur en breski
helgileikurinn hélt ekki athygli
minni. Fyrir utan hvað mér fannst
hann lítið áhugaverður var fjöl-
skyldan í laufabrauðsbakstri svo
ég fór frá sjónvarpinu og tók til við
skurðinn. Vegna þess missti ég af
handboltaleiknum í restina.
Bifreiðaeftirlitsmenn og innflytjandi Subarubílanna skoða þá um' borð í Goöafossi i gærkvöldi.
DV-mynd Ægir Már
Ekki útséð með skráningu
á „söltuðu" Subaru-unum
Jarðarfárir
Sigriður Erla Eiriksdóttir lést 14.
desember sl. Hún fæddist 11. maí
1949, dóttir hjónanna Ásbjargar
"■Teitsdóttur og Eiríks Eyvindssonar.
Sigríður lauk kennaraprófi frá Hús-
mæðrakennaraskóla Islands 1973.
Síðustu árin kenndi hún í Folda-
skóla. Eftirlifandi eiginmaður
hennar er Hlöðver Öm Ólason. Þau
hjónin eignuðust tvo syni. Útfór Sig-
ríöar verður gerð frá Arbæjarkirkju
í dag kl. 13.30.
Þórarinn Sigurðsson umdæmis-
stjóri lést 17. desember. Hann fæddist
24. febrúar 1925 á Hallormsstað í
Vestmannaeyjum og vom foreldrar
hans hjónin Sigurður Sæmundsson
og Guðbjörg Bjömsdóttir. Þórarinn
hóf ungur nám í tréskipasmíði. Að
loknu námi starfaði hann sem skipa-
smiður í Skipasmíöastöð Vest-
mannaeyja um árabil og var síðast
verkstjóri yfir skipasmíðum í stöð-
inni. Þórarinn var skipaður skipaeft-
irlitsmaður í Vestmannaeyjum 1.
janúar 1972 og var hann starfsmaður
Siglingamálastofnunr ríkisins frá
þeim tíma allt til dauðadags. Hinn
1. mars sl. var Þórarinn skipaður
umdæmisstjóri stofnunarinnar í
Vestmannaeyjum. Þórarinn var tví-
kvæntur. Fyrri konu sína, Sigrúnu
Ólafsdóttur, missti hann eftir stutta
sambúö. Eftirlifandi kona hans er
Perla Björnsdóttir. Þau eignuöust
saman tvö börn, auk þess ólust upp
hjá þeim tveir synir Perlu og gekk
Þórarinn þeim í foðurstað. Útför Þór-
arins verður gerð frá Landakirkju í
dag kl. 14.
Árni Hjálmarsson, Ásfelli, Innri-
Akraneshrepp, er látinn. Jarðarfórin
hefur farið fram.
Útför Ástrósar Jóhannesdóttur,
Hrafnistu, Reykjavík, hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Tilkyimiiigar
Jólahappdrætti Kiwanis-
klúbbsins Heklu.
Dregið hefur verið í jólahappdrætti Kiw-
anisklúbbsins Heklu. Upp komu þessi
númer: 1. des. 1496, 2. des. 762, 3. des.
733, 4. des. 370, 5. des. 1332, 6. des. 919, 7.
des. 635, 8. des. 186, 9. des. 1489, 10. des.
382,11. des. 141,12. des. 671,13. des. 1273,
14. des. 1491,15. des. 782,16. des. 1006,17.
des. 619,18. des. 1108,19. des. 901,20. des.
495, 21. des. 462,22. des. 1272,23. des. 239,
24. des. 145.
Eins og skepnan deyr á mynd-
bandi
Um þessar mundir er bandariska stórfyr-
irtækiö RCA/Columbia Pictures að gefa
út kvikmynd Hilmars Oddssonar, Eins
og skepnan deyr, á myndbandi í sam-
vinnu við Skífuna hf. ísland er fyrsta
landið sem myndin er gefm út í en RCA/
Columbia hefur keypt alheimsrétt á
dreyfmgu myndbandsins. Eins og skepn-
an deyr er fyrsta íslenska myndin sem
j.er gefin út á myndbandi af erlendu fyrir-
tæki. Framleiðandi myndarinnar er Jón
Ólafsson en leikstjóri og höfundur hand-
rits er Hilmar Oddsson. Aðalhlutverk eru
í höndum Eddu Heiðrúnar Backman,
Þrastar Leós Gunnarssonar og Jóhanns
Sigurðarsonar.
Þaö er komin ný Vera
Nútímakona situr uppi meö úreltan karl
segir í nýútkominni Veru. Meðal efnis í
þessari Veru er umfjöllun um bók eftir
Share Hite sem nýlega kom út í Banda-
rílgunum og fiallar um hug kvenna í
garö eiginmanna sinna. í þessu sambandi
er jafnframt rætt við Katrínu Theodórs-
dóttur um viðhorf íslenskra kvenna og
segir hún karla hafa dagað uppi eins og
nátttröll. í blaðinu hefst nýr greinaflokk-
ur um kvennasögu eftir Helgu Siguijóns-
dóttur og nefnist fyrsta greinin
Mæðrasamfélög. Fjallað er um friðar-
fræðslu, viðtal er við Sofflu Auði Birgis-
dóttur, en hún annast útgáfu bókarinnar
Sögur íslenskra kvenna, erlend málefni
og margt fleira er tekið fyrir. Borgar- og
þingmál eiga sitt sæti í Veru að venju og
fjallað er um bókmenntir. Tímaritið Vera
er gefiö út af Kvennaframboðinu í
Reykjavík og samtökum vun Kvennalista.
Heimilisfang Veru er Kvennahúsið, Vall-
arstræti 3,101 Reykjavík. Áskriftarsímar
eru 22188 og 13725.
Þorláksmessublysför Friðar-
samtakanna
Friðarganga verður farin á Þorláks-
messu. Lagt verður af stað frá Hlemmi
kl. 18 og gengiö Laugaveginn niður á torg.
Kórar syngja á leiðinni og flutt verður
ávarp á Lækjartorgi. Að göngunni standa
Friðarhópur fóstra, friðarhreyfing ís-
lenskra kvenna, Friðarsamtök lista-
manna, Menningar- og friðarsamtök
íslenskra kvenna, Samtök íslenskra eðl-
isfræðinga gegn kjamorkuvá, Samtök
lækna gegn kjamorkuvá, Samtök um
kjamorkuvopnalaust ísland og Samtök
herstöðvaandstæðinga.
Niðjar
Halldórs Þorsteinssonar
og Kristjönu Kristjánsdóttur
halda jólafagnað í golfskálanum í Leirn
laugardaginn 2. janúar kl. 14. Mætum öll
í hátíðarskapi.
Rauði krossinn sendir fatnað
til flóttamanna í Uganda
Nú í vikunni bárust 7 tonn af notuðum
fatnaöi til flóttamannabúða í Uganda. Föt
þessi em gjöf frá Rauða krossi íslands
og hefur félagið þá samtals sent rúm 42
tonn af notuðum fatnaði á þessu ári til
bágstaddra í Mósambik, írak, Eþíópíu og
Uganda.
Frá því haustið 1985 hefur Rauði kross
íslands tekið á móti notuðum fatnaði allt
árið. Fötin em send héðan í gámum til
Rauða krossins í Danmörku þar sem þau
em flokkuð og þeim pakkað. Þegar beiðni
berst em fotin síöan send áfram til við-
tökustaðar frá lager danska Rauða
krossins á Jótlandi.
Undanfarin tvö ár hafa fatasendingar
verið drjúgur þáttur í hjálparstarfi RKÍ
á erlendum vettvangi og hafa alls verið
send rúm 90 tonn af fatnaði til Afríku,
Asíu og Mið-Ameriku á þessum tíma.
Stjóm Rauða kross íslands þakkar öllum
þeim fjölmörgu, sem tekið hafa þátt í fata-
söfnun félagsins á undanfomum árum,
bæði gefendum og sjálfboðaliðum um
land allt.
Nokkrir Subaru-bílanna, sem
lentu í flóðunum í Drammen í Nor-
egi, eru komnir til landsins. Ekki er
vitað hvort bílarnir fást skráðir hér.
Haukur Ingibergsson, forstjóri Bif-
reiðaeftirhtsins, sagði í gær að
innflytjendur bílanna heíðu vefengt
Nefndin, sem skipuð var til að
leggja mat á Thorseignimar í Snæ-
fellnes- og Hnappadalssýslu, hefur
nú skilað mati sínu. Hjá Guðmundi
Albertssyní, oddvita Kolbeinsstaða-
hrepps, fengu þær upplýsingar að
hrepparnir hefðu sent svör sín til
gagnaðila en hann var ekki tilbúinn
að gefa strax upp hvað í þeim hefði
falist.
umsögn framleiðanda bílanna um
ástand þeirra. Haukur sagði að inn-
flytjendumir hefðu tjáð Bifreiðaeft-
irlitinu að þeir myndu leggja fram
ný gögn um ástand bílanna.
Eftir að Bifreiðaeftirlitið hefur
fengið þau gögn og kynnt sér þau
„Ég býst við að það verði reynt að
kaupa eitthvað,“ sagði Guðmundur
og bætti því við að þeir væru ánægð-
ir með störf matsnefndarinnar. Þá
hafa nokkrir ábúenda sýnt áhuga á
aö nýta sér forkaupsrétt sinn. Hrepp-
amir hafa frest tU jóla til að kaupa
jarðimar.
-SMJ
verður tekin ákvörðun um hvaða
framgang máhð fær. Haukur sagði
að ef ástæða þætti til kæmi til greina
að Subaruamir færu í sams konar
skoðun og Mitsubishi-bílamir sem
Hekla h/f flutti til landsins.
Hassinnflutningurinn:
Laus úr gæslu
í gær losnaði úr gæsluvarðhaldi
annar mannanna sem úrskurðaður
var í gæsluvarðhald vegna innflutn-
ings á hassi. Mennimir vom teknir
fyrir að smygla hassi til landsins í
málningardósum.
Báðum mönnunum var gert að
vera í gæsluvarðhaldi til 5. janúar.
Guðjón Marteinsson deildarlögfræð-
ingur sagði að ekki hefði þótt ástæða
til að hafa manninn í gæsluvarðhaldi
lengur. Rannsókn á hans þætti í
málinu er ekki lokið en rannsóknin
krefst þess ekki að hann verði lengur
í gæsluvarðhaldi. Kona, sem var í
vitorði með mönnunum, losnaði úr
gæsluvarðhaldi fyrir nokkm. Ekki
hefur verið tekin ákvörðun um hvort
sá sem enn er í gæsluvarðhaldi losni
fyrr en úrskurðinum líkur, það er
5.;anúar.
I dag rennur út gæsluvarðhaldsúr-
skurður yfir mönnunum tveimur
sem verið hafa í gæsluvrðhaldi vegna
framleiðslu á amfetamíni í íbúðar-
húsi í Reykjavík. Guðjón Marteins-
son sagði í morgun að ekki væri búið
að taka ákvörðun um hvort krafist
yrði framlengingar á gæsluvarðhaldi
yfir mönnunum tveimur.
Hjartans þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður og ömmu
Guðfinnu Jónsdóttur
MIAtunl 13, Selfossi.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Landspítal-
ans sem önnuðust hana síðastliðið ár.
Elin Sígurðardóttir
Sigríöur Inga Sigurðardóttir
Þorbjörn Sigurósson
Jón Sigurösson
Elsa Siguróardóttir
Birgir Jónsson
Þórhallur Steinsson
Edda Ingvadóttir
Anna-María Sigurösson
Hannes Arsælsson
og barnabörn
■sme
Útifundur var haldinn á Lækjartorgi í gær þar sem matarskattinum svokall-
aða var harðlega mótmælt. Voru Jóni Sigurðssyni viðskiptaráðherra afhent
mótmæli vegna þessarar skattlagningar. DV-mynd KAE
Mat á Thorseignum:
„Reynt verður að kaupa eHthvað“
-sme