Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1988, Qupperneq 6
6
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1988.
Fréttir
Hvemig hagar eiturskýið sér við sprengingu í verksmiðjunni í Gufunesi?
Líklegast er að það myndi
fara yfir Reykjavík
Sú aðferð, sem notuð er við að
geyma ammoníak við Áburðarverk-
smiöjuna, er sú hættulegasta sem
nefnd er í skýrslunni til félagsmála-
ráðherra. Ammoníakið er geymt
undir umtalsverðum þrýstingi og ef
kemur mikill eða skyndilegur leki
að geyminum verður hvellsuða á efn-
inu og eins konar gufusprenging sem
þeytir því út í loftið og myndar á
skömmum tíma ský sem saman-
stendur af uppgufuðu ammoníaki,
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 21-22 Allir nema Sb
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 22-25 Ab
6mán. uppsögn 23^27 Ab
12mán. uppsögn 24-30.5 Úb
18mán. uppsögn 34 Ib
Tékkareikningar, alm. 10-12 Sp.lb. Vb.Ab
Sértékkareikningar 12-24 Vb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6mán. uppsögn 3,5-4 Ab.Úb, Lb.Vb
innlán með sérkjörum 18-34 Sb
Innlángengistryggð
Bandarikjadalir 6,25-7,25 Sp.lb.
Ab.Sb,
Sterlingspund 7,25-9 Sb
Vestur-þýskmörk 2,50-3,25 Ab.Sp
Danskar krónur 8,50-9,25 Úb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvixlar(forv.) 34-35 Sp.Lb, Úb.Bb, Ib.
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) 36 eða kaupgengi
Almenn skuldabréf 36-37 Lb.Bb, Ib.Sp
Viöskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr) 36-39 Lb.lb.
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 9,5-9,75 Allir nema Úb
Útlántilframleiðslu
Isl. krónur 33-36 Úb.Lb, Bb
SDR 8,5-9 Lb.Bb, Sb
Bandaríkjadalir 10,25-10, Lb.Bb.
75 Sb.Sp
Sterlingspund 10,25-10, Ub.Bb, 1
75 Sb.Sp
Vestur-þýsk mörk 5,5-6,25 Úb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 51,6 4,3 á i
MEÐALVEXTIR mán.
Dverðtr. jan. 88 36,2
Verðtr. jan.88 9.5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitalajan. 1913 stig
Byggingavísitalajan. 345,1 stig
Byggingavísitalajan. 107,9stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 9% 1 . jan.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa veröbréfasjóöa
Ávöxtunarbréf 1,3927
Einingabréf 1 2,550
Einingabréf 2 1,489
Einingabréf 3 1,588
Fjölþjóöabréf 1,268
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2,572
Lifeyrisbréf 1.282
Markbréf 1,322
Sjóösbréf 1 1,253
Sjóðsbréf 2 1,173
Tekjubréf 1,311
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 130 kr.
Eimskip 365 kr.
Flugleiðir 252 kr.
Hampiöjan 136 kr.
Hlutabr.sjóðurinn 141 kr.
Iðnaöarbankinn 154 kr.
Skagstrendingur hf. 186 kr.
Verslunarbankinn 133 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 174 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavlxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavlxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð
irnir.
Nánari upplýslngar um penlngamarkað-
Inn birtast I OV á fimmtudögum.
Eins og glöggt má sjá á þessari
vindrós er austanáttin ríkjandi allt
árið.
ammoníaksdropum og jafnvel amm-
oníaksís. Þar eð ammoníakið er
léttara en andrúmsloft hefur það til-
hneigingu tO að stíga upp en þegar
það kemur úr geyminum er það kalt
og nær ekki aö stíga upp fyrr en eft-
ir alllanga stund.
Afleiðingar skyndilegs leka á amm-
oníak'sgeyminum eru þessar:
Ammoníakið myndar ský sem á
þrem mínútum yrði 2 km að þver-
máli og heldur áfram að stækka.
Þetta ský, sem er að sjálfsögðu ban-
eitrað, stígur ekki upp fyrr en eftir
a.m.k. 10 mínútur en þó líklega ekki
fyrr en eftir mun lengri tíma.
Afleiðingar shks slyss réöust að
sjálfsögðu af því hvemig veðrið væri.
Rauðu hringarnir á kortinu sýna umfang ammoniakskýsins frá Gufunesverksmiðjunni við hugsanlega sprengingu
í austanvindátt. Hringarnir eru merktir 1, 2, 3, og 4, samanber töflu hér að neðan.
DV-kort JRJ
En ef miöað er við meðalvindhraða
og algengustu vindáttina ætti eitur-
skýið að fara 5,4 km á 10 mínútum
og því væri líklegast að skýið færi
yfir Sundahafnarsvæðið og Laugar-
nesið í stefnu á miðborgina. Bærist
skýið yfir byggðina er líklegt að af-
leiðingamar yrðu skelfilegar og
flöldi manns myndi farast, einkum
þeir sem væm utandyra. Þeir sem
dveldust innandyra gætu lifað af ef
gluggar væm lokaðir og loftræsti-
kerfi ekki í gangi. Mjög lítið ráðrúm
gæfist til almannavama.
-SMJ
í fylgiskjali frá Vinnueftirliti ríkisins má sjá jaðar skýsins við mismunandi vindstig. í öllum tilvikum er miðað við að tíu
mínútur séu liðnar frá því að skýið byrjaði að falla.
Hringur Vindhraði (m/sek) færsla skýsins jaðar skýsins
1 0 0 1800
2 3 1800 3600
3 6 3600 5400
4 9 5400 7200
Brunamálastjóri um Hafnarfjarðarhöfn:
Hefiir ekki komið til umræðu
en er nauðsynlegt að athuga
„Eg er ókunnugur þessu máli og
það hefur ekki komið til umræðu frá
því ég kom hingað. Þetta er ábyggi-
lega mál sem þarf að athuga,“ sagði
Bergsteinn Gizurarson branamála-
stjóri.
í Hafnarfjarðarhöfn er afgreiðsla^
fyrir olíuskip og era tekin inn á höfn-
ina allt að fimmtán til tuttugu
þúsund tonna olíuskip. Fyrir fáum
árum kom upp eldur í olíuskipi þar.
Þá gekk greiðlega að slökkva eldinn.
Skipið sem kviknaði í var skráð í
Grikklandi. Slökkviliðið í Hafnar-
firði réð niðurlögum eldsins. Sigurð-
ur Þórðarson varaslökkviliðsstj óri
sagði að áhafnir viðkomandi skipa
ættu að geta ráðið við elda sem upp
kæmu. Svo var þó ekki í því eina til-
felli sem eldur hefur kviknað í
olíuskipi í höfninni. Sigurður sagði
að olíueldur væri best slökktur með
dufti og af því væri nóg í og við höfn-
ina.
„Þetta er svo frumstætt hérna. Það
vantar mikið af reglum og reglugerð-
um á þessu sviði. Eitt af verkefnum
Brunamálastofnunar er að semja
reglugerðir um svona lagaö. Það er
eitt af því sem þarf að gera þegar við
fáum meiri mannskap. Hafnarfjarð-
arhöfn er eitt af þeim verkefnum sem
þarf aö taka á,“ sagði Bergsteinn
Gizurarson.
Ef eldur kemur upp í olíuskipi í
Hafnaiflarðarhöfn í suðvestanátt er
hætta á að eldurinn eigi greiðan að-
gang inn í höfnina. Við slíkar
aöstæður gætu skip og önnur mann-
virki verið í mikilli hættu.
Á þessu ári er útlit fyrir að tekju-
stofn Brunamálastofnunar aukist
um allt aö 100%. í fyrra voru tekjur
stofnunarinnar 11 milljónir króna en
gætu hugsanlega farið yfir 20 millj-
ónir í ár.
-sme