Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1988, Page 17
16
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1988.
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1988.
17
Þátttaka enskva liða í EM í knattspyrnu:
Verður banninu
aflétt í dag?
Iþróttir________________
Erlendir
frétta-
stúfar
• Glasgow Rangers, skosku
meistaramir í knattspymu,
bættu enn tveimur leikmönn-
um í sinn stóra og dýra hóp sl.
fóstudag. Þeir keyptu þá John
Brown frá Dundee fýrir 350
þúsund pund og Danann Jan
Bartram frá Silkeborg fyrir 180
þúsund.
• John Gregorek, bandarísk-
ur hlaupari sem keppti á
síðustu ólympíuleikum, var
vegna forfalla sendur í 10 km
hlaup á eynni Bermuda um sl.
helgi. Hann kom, sá og sigraðl
örugglega og stefnir nú aö því
að komast í bandaríska keppn-
isliðið fyrir ólympíuleikana í
Seoul í haust.
• Paris St, Germain, franskir
meistarar í knattspyrau fyrir
tveimur árum, sem sitja nú við
botn 1. deildar, reyndu árang-
urslaust að fá Hollendinginn
fræga, Johan Cruyff, til að taka
við stjórninni í síðustu viku.
Samningar tókust ekki og Ger-
ard Houllier, sem gerði liðið að
meisturum um árið, hefur tekið
við stjórninni á ný.
• Colin Moynihan, íþrótta-
málaráðherra Bretlands, segir
að Knattspyrausamband Evr-
ópu eigi ekki að ákveða hvort
ensk félög fái að taka þátt í
Evrópumótum félagsliða á ný
næsta vetur fyrr en eftir úrslit
Evrópukeppninnar í Vestur-
Þýskalandi í sumar. Þá komi i
ljós hvort stuöningsmenn
enska landsliðsins geti verið til
friðs á erlendri grundu. Ensku
félögin hafa í vor veriö þijú ár
í banhi frá Evrópukeppni. Yfir-
menn bresku og vestur-þýsku
lögreglunnar munu hittast í
London 1 þessum mánuöi til aö
undirbúa aðgeröir sem koma
eiga í veg fyrir óeiröir enskra í
Evrópukeppninni.
• Irakar hafa tryggt sér sæti
í knattspymukeppni ólympíu-
leikanna í Seoul i haust. Þeir
unnu Kuwait, 1-0, í úrslitaleik
Vestur-Asíuriðils á fóstudag-
inn, en leikið var í smáríkinu
Oman þar sem írakar mega
ekki leika á heimavelli í keppn-
inni vegna stytjaldarástandsins
í riðlinum-
• John Aldridge jók forskot
sitt á markalista ensku 1. deild-
arinnar í knattspyrnu raeð
marki sínu fyrir Liverpool gegn
Arsenal á laugardaginn. Hann
hefur nú gert 20 mörk en næst-
ir koma Brian McClair hjá Man.
Utd með 17 og Jobn Fashanu,
Wimbledon, með 16 mörk.
• Liverpool gekk á fimmtu-
daginn frá auglýsingasamningi
viö ítalska fyrirtækið Candy,
sem rekur verksmiðju í Liver-
poolborg. Litið er á samninginn
sem lið i aö byggja upp sam-
skipti Englendinga og ítala á
knattspymusviðinu eftirharm-
leikinn á Heysel voriö 1985.
• John McEnroe, tennisleik-
arinn heimsfrægi og kjaftfori,
er laus úr nýjasta keppnis-
banninu og keppir í fýrsta
skipti í langan tima í Evrópu 1
næsta mánuöi. Hann verður
meðal þátttakenda á Grand
Prix móti í frönsku borginni
Lyon og er raðaö sem öömm
sterkasta keppenda mótsins, á
eftir Frakkanum Yannick No-
ah.
• Mats Wilander, sænska
tennisstjarnan, missir af fyrsta
leik Svía í Davis-bikarnum á
þessu ári vegna flutninga. Hann
er að setjast að ásamt eiginkonu
sinni í bænum Greenwich í
Connecticut-fylki í Bandaríkj-
unum og ætlar aö taka sér sex
vikna frí frá keppni af þeim
sökum.
-VS
Stjórn Knattspyrnusambands Evr-
ópu (UEFA) kemur í dag saman til
fundar í Monte Carlo. Aðalumræðu-
efnið á fundinum verður hvort
aflétta eigi banni á þátttöku enskra
knattspyrnuliða á Evrópumótum í
knattspyrnu. Ensk félög hafa ekki
tekið þátt í Evrópumótunum síðan
harmleikurinn varð á Heyselleik-
vanginum í úrslitaleik Liverpool og
Juventus í Evrópukeppni meistara-
liöa í maí 1985. í áflogum á milli
stuðnigsmanna liðanna á áhorf-
endapöllum fyrir leikinn létu 39
manns lífið.
• Stjórnarmenn innan enska
knattspymusambandsins munu
mæta á fundinn og ætla aöreyna að
fá stjórn UEFA til að aflétta banninu.
Enska knattspyrnusambandið er
Víkingur vann öruggan og sann-'
gjarnan sigur á Stjörnunni er liðin
áttust við í Seljaskóla á mánudags-
kvöld. Fyrri hálfleikur var mjög jafn
og það var ekki fyrr en um miðjan
hálfleikinn sem Víkingur náði yfir-
höndinni og leiddu Víkirtgsstúlkurn-
ar í hálfleik, 13-11.
Síðari hálfleikur hófst líkt og sá
fyrri og skiptust liöin á um að skora.
En þegar síðari hálfleikur var um
það bil hálfnaður var eins og allur
vindur væri úr liði Stjörnunnar og
Víkingsstúlkurnar skoruðu hvert
markið af öðru og sigraðu verðskuld-
að eins og áður sagði með sjö marka
mun, 27-20.
Leikurinn í heild sinni var ekki
sérlega vel leikinn og þá voru það
helst varnarleikir liðanna sem
brugöust. Á tímabili var eins og um
hreina vítakeppni væri að ræða því
alls voru dæmd átján vítaköst í leikn-
um.
Víkingsliðið fór ekki almennilega í
gang fyrr en langt var liðið á síðari
hálfleikinn og var þá allt annað að
sjá til liðsins. Þá small vörnin saman
svo og markvarslan sem ekki hafði
verið sannfærandi það sem af var.
Svava Baldvinsdóttir átti að þessu
sinni góðan leik með Víkingi og var
atkvæðamikil í sóknarleik liðsins.
Hún gerði alls níu mörk í leiknum.
vongott um að banninu verði aflétt
enda hefur ástand á knattspyrnu-
völlum í Englandi batnaö mikið,
sérstaklega í vetur.
• Talið er líklegt að stjórn UEFA
taki ekki ákvörðun í málinu fyrr en
eftir úrslitaleikinn í Evrópukeppni
landsliða í Vestur-Þýskalandi í sum-
ar. Englendingar eru þar á meðal
keppenda og ræðst af hegðun enskra
áhorfenda í keppninni hvort banninu
verður aflétt. Þar er því til mikils að
vinna fyrir þá að haga sér vel.
• 12. júlí í sumar verður dregið til
fyrstu umferðar á Evrópumótunum
í knattspyrnu og bíða eflaust margir
eftir því hvort ensk félagslið verða
þá í pottinum enda hefur þeirra ver-
ið sárt saknað síðan bannið var sett
á. -JKS
Leikur StjÖrnunnar var ekki sann-
færandi og var eins og þreyta herjaði
á leikmenn liðsins. Enda ekki aö
furða þar sem flestir leikmanna liðs-
ins leika einnig í öðrum aldursflokki
og um helgina fór fram heil umferð
í þeim aldursflokki og léku þær þar
sex leiki á þremur dögum og síðan
bættist leikurinn á mánudag við.
Þær náðu þó aö halda í Víkingsliðið
framan af en um miðjan síðari hálf-
leik var eins og þær hreinlega gæfust
upp og var sóknarleikur liðsins þá
mjög slakur. Þær mega þakka mark-
verði sínum, Fjólu Þórisdóttur, fyrir
að tapið varð ekki stærra því hún
varði oft mjög vel og þá sérstaklega
í síðari háÚleik. í annars jöfnu liði
Stjörnunnar var það helst Herdís
Sigurbergsdóttir sem sýndi sitt rétta
andlit með góðri baráttu bæði í vöm
og sókn.
• Mörk Víkings: Svava 9, Eiríka
7/2, Inga Lára 5/4, Jóna 3, Valdís 2
og Heiöa eitt mark.
• Mörk Stjörnunnar: Ragnheiður
10/9, Herdís 5, Hrund 2, Guðný
Guðnad., Guðný Gunnsteinsd. og
Drífa eitt mark hver.
Leikinn dæmdu þeir Björn Jó-
hannsson og Sigurður Baldursson og
komust ágætlega frá leiknum.
-ÁS/EL
Grindvíkingar
_ komu skemmtilega á óvart
um síðustu helgi þegar þeir sigruðu í 2. flokki á íslandsmótinu í innan-
hússknattspyrnu. Þeir sigruðu Víði og Sindra í riðlakeppninni, Víking
og Keflavík í undanúrslitum og lögðu síðan Valsmenn að velli, 8-7,
i úrslitaleiknum. Þetta er fyrsti íslandsmeistaratitillinn sem Grindavík
hreppir í knattspyrnuíþróttinni. Þjálfari liðsins er Guðjón Ólafsson.
-VS/DV-mynd Brynjar Gauti
Víkingssigur
í vítakeppni
- þegar þær unnu sigur á Stjomunni, 27-20
Iþróttir
Stefán úr IA
í Völsung
Stefán Viöarsson, tvítugur piltur
frá Akranesi, er genginn til liðs við
Völsunga á Húsavík og hyggst leika
meö þeim í 1. deildinni næsta sumar.
Stefán, sem er sóknarmaður, lék
nokkra leiki með ÍA í 1. deild árið
1986 og á einnig að baki leiki með
unglingalandsliðinu. -VS
HafþóríVíði
Hafþór Sveinjónsson hefur ákveðið
að leika með Víðismönnum i Garði í
2. deildar keppninni næsta sumar.
Hafþór er 27 ara og.hefur leikið með
öllum landsliðum Islands en sat á
varamannabekk Vals sl. sumar og lék
síðast í 1. deildinni með Fram 1984.
Hann hefur leikið með 3. deildar liðum
í Vestur-Þýskalandi en átti við meiðsli
að stríða og var að mestu frá í tvö ár.
• Víðismenn hafa til viöbótar fengið
Jón Ólafsson, markahæsta leikmann
Njarðvíkinga sl. sumar, og Freyr
Bragason, framherji úr Keflavík sem
lék 12 leiki í 1. deild 1987, er líklega
einnig á förum í Garðinn. Þetta ætti
að vera nokkur sárabót fyrir Víðisliðið
sem hefur misst tvo sína bestu menn,
Grétar og Daníel Einarssyni, yfir til
Keflvíkinga. -VS
a fleygi-
1 ferð í stórsviginu i Sviss í gær. Hann
| sigraði af miklu öryggi.
Simamynd Reuter
Alberto Tomba frá Italíu vann í gær sinn
7. sigur í 9 mótum í heimsbikarkeppninm í
alpagreinum og hefur hann þegar tryggt sér
sigurinn í heimsbikamum. Tomba sigraði í
gær í stórsvigi af miklu öryggi.
Tomba fékk tímann 2:33,42 mín en næsti
maður, Gúnther Mader frá Austurriki kom
næstur og fékk tímann 2:35,35 mín. í þriðja
sæti varð Helmut Mayer frá Austurríki á
2:35,73 mín. Handhafi heimsbikarsins frá í
fyrra, Pirmin Zurbriggen frá Sviss, varð
ijórði í stórsviginu í gær á 2:35,81 mín.
• í stígakeppninni hefur Tomba nú hlotið
206 stíg, Pirmin Zurbriggen er annar með
163 stig og þriðji er Gúnther Mader, Austur-
ríki, með 96 stig. -SK
• Þrír efstu menn i stórsviginu i gær. Frá vinstri: Gúnther Mader frá I
Austurriki sem varð annar, sigurvegarinn Alberto Tomba frá Ítalíu og
Helmut Mayer frá Austurríki sem varð í þriðja sæti.
Símamynd Reuterj
í Prag þar sem hún varði Evrópu-
titil sinn í ísdansi og sýndi allar
sínar bestu hliðar eins og sést á
myndinni. Simamynd Reuter
\ /
V
• Bjarni Friðriksson júdómaður
mun hafa i nógu að snúast næstu
vikurnar.
Bjami keppir á
sterkum mótum
Bjarni Friðriksson júdómaður
keppir á tveimur sterkum mótum
erlendis á næstunni. Hann fer ásamt
Halldóri Hafsteinssyni á alþjóðlegt
mót í Visé í Belgíu um næstu mán:
aðamót og keppir síðan á opna
franska meistaramótinu um miðjan
febrúar. -VS
Katarína Wrtt hreppti
rétt einn titilinn
- hennar tíundi á sex áram
A-þýska skautadrottningin, Katarína
Witt, varði um síðustu helgi Evróputitil
sinn í ísdansi. Fór Katarína hamförum á
svellinu í Prag er hún dansaði eftir tónlist
úr óperunni Carmen.
Þetta nýjasta afrek a-þýsku stúlkunnar
gefur fyrirheit um velgengni hennar á
ólympíuleikunum í Calgary.
Þess má geta að Katarína hefur verið
óstöðvandi í íþrótt sinni frá árinu 1983 en
þá var hún aðeins 19 ára gömul. Hún hef-
ur unnið Evrópumeistaratítilinn sex
sinnum og heimsmeistaratítílinn þrívegis,
fyrst 1984 en síðast á árinu 1987.
Þá hreppti Katarína gull á ólympíuleik-
unum í Sarajevo árið 1984. -JÖG
Valur og Sturla í eins leiks bann
Aganefnd KKÍ dæmdi á fundi sínum
:í gærkvöldi Njarðvíkingana Val Ingi-
mundarson og Sturlu Örlygsson í eins
leiks bann. Missa þeir báðir af seinni
leiknum gegn ÍBK í bikarnum sem verð-
ur á fóstudagskvöldið. Valur var
dæmdur fyrir að fá tvö tæknivíti í leik
gegn ÍBK og Sturla fyrir að slá mótherja
í leik gegn ÍR um síðustu helgi.
-JKS
Sigurður Sveinsson og Páll Ólafsson flytja til íslands:
Siggi í Víking
0l|#l CtiAPnnH^O
wUCI wIrJVI IIUIICI ■
- Páll Ólafsson ákvað í gær að leika með KR næsta vetur
„Það er nær öruggt að ég kem tíl
íslands eftir þetta keppnistímabil
hér í Þýskálandi. Það hafa nokkur
félög haft samband viö mig en ég
mun ekki ákveða í hvaða félag ég
fer fyrr en í næstu viku,“ sagði Sig-
urður Sveinsson, landslið'smaöur í
handknattleik, i samtali við DV í
gærkvöldi en hann hefur undan-
farin ár leikið með þýska félaginu
Lemgo.
Það er ljóst að allir snjöllustu
handknattleiksmenn landsins
munu leika hér á íslandi á næsta
keppnistímabili, að Kristjáni Ara-
syni undanskildum, því í gær
ákvað Páll Ólafsson að flyija heim
til íslands og leika við hliö Alfreös
Gíslasonar hjá KR. „Ég hlakka til
að koma aftur heim til íslands og
að leika með KR-ingum,“ sagði Páll
í samtali við DV í gærkvöldi.
Víkingur eða Stjarnan
hjá Sigga Sveins
Sigiiröur Sveinsson sagði í gær-
kvöldi að það væru tæplega 100%
líkur á því aö hann kæmi aftur til
íslands og eitthvaö mjög óvænt
þyrfti til aö breyta því. Þegar Sig-
urður var spuröur út í það hvort
rétt væri að Víkingur og Stjarnan
væra sterklega inn í myndinni
sagði hann: „Það er rétt að þessi
félög hafa rætt við mig en ég mun
ekki taka neina ákvörðun í þessu
máli fyrr en síöar í þessum mán-
uði“
• Samkvæmt áreiöanlegum
heimildum DV era mjög miklar lík-
ur á því að Sigurður fari 1 Víking
og yrði Víkingum að sjálfsögðu
mikill fengur að kappanum og ekki
er KR-ingum síður fengur að Páli
Ólafssyni.
-SK
• Sigurður Sveinsson hefur ekki
enn ákveðið með hvaða félagi
hann leikur næsta vetur.
• Páll Olafsson teikur i búningi
KR næsta keppnistímabii og mun
styrkja liðið mikið.