Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1988, Page 28
28
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1988.
Igærkvöldi
Katrín Jónsdóttir nemi:
Dagskráin frekar slök
Dagskrá Ríkissjónvarpsins var
ekki mjög áhugaverð í gærkvöld
en samt voru þar fáeinir þættir sem
horfandi var á. Þáttunnn Popp-
kom, í umsjón Jóns Ólafssonar,
fannst mér góður enda er Jón einn
besti dagskrárgerðarmaðurinn, að
mínu áliti, hvort sem er í sjónvarpi
eða útvarpi. •
Þar sem ég hef ekki aðgang aö
Stöð 2 horfði ég eingöngu á 19.19
sem er ágætur fréttaþáttur, lifandi
og skemmtilegur. Aftur var skipt
yfir á Ríkissjónvarpið og var þar á
dagskrá þáttur um sjávardýrin á
Galapagoseyjum. Kom sá mér
þægilega á óvart og var mjög fynd-
inn og fróðlegur.
Það sem efiir var af dagskrá sjón-
varpsins var Kastljós, sem ég horfi\
yfirleitt ekki á, og ellefti þáttur af
arfi Guldenbergs. Hafði ég ekki
fylgst með honum áður, þannig að
ekki var horft meira á sjónvarpið
þetta kvöld.
Eftir þetta tók Bylgjan við. Finnst
mér Bylgjan vera betri á kvöldin
og á nóttunni en Stjaman vera
betri á daginn en besti þátturinn
er næturvakt Bjama Ólafs. Finnst
mér hann Bjami hafa mjög þægi-
lega rödd og leiðir hann mann
auðveldlega inn í draumaheiminn.
Á heildina Utið fannst mér dag-
skráin í gærkvöldi fremur slök, og
kom mér það ekki á óvart.
Annars finnst mér Fyrirmyndar-
faðir einn besti framhaldsþáttur
Ríkissjónvarpsins en Hasarleikur
bestur á Stöð 2, en þá fer maður til
vinkvenna sinna til þess að fylgjast
með Maddí og Addison takast á við
ástina.
Fréttir
Samningafundur á Suðumesjum:
Móguleikar á að gera
nýja kjarasammnga
- segir Kari Steinar Guðnason eftir fyrsta samningafundinn
Jarðarfarir
Jeimý Sigurðardóttir, Grundargötu
8, Siglufiröi, veröur jarðsungin í dag,
20. janúar, kl. 14 frá Siglufjarðar-
kirkju.
Sigriður Stefánsdóttir, Ásvallagötu
31, Reykjavík, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju í dag, 20. janúar,
klukkan 13.30.
Helgi Finnlaugsson, Lambhaga 10,
Selfossi, verður jarðsunginn frá Sel-
fosskirkju í dag, 20. janúar, klukkan
13.30.
Theodór Grímur Guðmundsson
verður jarðsunginn frá Blönduóss-
kirkju laugardaginn 23. janúar
klukkan 14.
Fundir
Hátíðafundur Kvenfélags
Kópavogs
verður á morgun, fimmtudaginn 21. jan-
úar, kl. 20.30 í félagsheimilinu. Fjölmenn-
iö og takið með ykkur gesti.
Hið íslenska sjóréttarfélag
gengst fyrir fræðafundi í sal C í við-
byggingu Hótel Sögu, fimmtudaginn 21.
janúar nk. og hefst hann kl. 16.30. (Kaffi-
veitingar). Fundarefni: Magnús K.
Hannesson lögfræðingm- flytur erindi er
hann nefnir: „Eru farmskírteini óþörf?“
Að erindinu loknu er að venju gert ráð
fyrir fyrirspumum og umræðum. Fund-
arefnið á erindi til allra þeirra sem fást
við siglingastarfsemi og allra áhuga-
manna um sjórétt og sjóvátryggingarétt.
Fundurinn er öllum opinn og eru félags-
menn og aðrir áhugamenn um sjórétt,
sjóvátryggingarétt og siglingamálefni
hvattir til að mæta.
Hvað er norrænt kvennaþing?
Hver stendur að norrænu kvennaþingi,
hvað mun fara fram þar, hver verður
ávinningurinn af því að safna saman a.
m.k. 7 þúsund konum í Osló í byijun
ágúst í sumar? Þessum spumingimi verð-
ur reynt að svara á opnum fundi í kvöld
kl. 20.30 að Suðurlandsbraut 22, 3. hæð
(fundarsal Hjúkrunarfélags íslands). Við
hvetjum allar konur til að mæta og taka
þátt í undirbúningnum fyrir íslands
hönd.
Framkvæmdahópur vegna
Norræns kvennaþings
Tilkyimingar
Alþjóðleg ráðstefna
um skynsamlega
nýtingu sjávarspendýra
verður haidin í Reykjavík dagana 21.-22.
janúar 1988. Fulltrúar Færeyja, íslands,
Japans, Kanada, Noregs og Sovétríkj-
anna munu taka þátt í ráðstefnunni.
Áheymarfulltrúar frá Grænlandi munu
sitja ráðstefnuna. Á fundinum verður
rætt um núverandi fyrirkomulag á
stjómun veiða sjávarspendýra, aðrar
hugsanlegar samstarfsleiðir, vísinda-
rannsóknir á sviöi sjávarspendýra og
kynningarstarfsemi á alþjóðavettvangi.
Skagfirðingafélagið í Reykja-
vík
heldur hið árvissa þorrablót nk. laugar-
dag og verður samkoman í félagsheimil-
inu Drangey, Síðumúla 35, og hefst kl.
20 meö sameiginlegu borðhaldi. Miðar
afhentir á miðvikudag milli kl. 17 og 20
í félagsheimilinu.
Tónleikar
Síðustu áskriftartónleikar
á fyrra misseri
Fimmtudaginn 21. janúar kl. 20.30 verða
í Háskólabíói síðustu tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands á fyrra misseri.
Stjórnandi verður Bandaríkjamaðurinn
Guido Ajmone-Marsan og einleikari,
sellóleikarinn Ralph Kirshbaum. Á efnis-
skránni verða verk eftir þijá höfunda:
Tvö verk fyrir litla hljómsveit eftir Fred-
erick Delius, Sellókonsert eftir Edward
Elgar og að lokum Sinfónía nr. 41 (Júpít-
er) eftir Mozart.
Fyrsti samningafundur verka-
lýðsfélaganna og vinnuveitenda á
Suðurnesjum var haldinn í gær.
Sagði Karl Steinar Guðnason, for-
maður Verkalýðs- og sjómaimafélags
Keflavíkur og nágrennis, í samtali
við DV í morgun að hann væri sæmi-
lega ánægður með fundinn og að
hann teldi möguleika á að gera nýja
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri:
„Þaö er mitt mat að ef við kom-
umst ekki að bráðabirgðasamkomu-
lagi við vinnuveitendur alveg á
næstimni þá stefni í hörð átök,“ sagöi
Karvel Pálmason, varaformaður
Verkamannasambands íslands, við
DV er almennum fundi í Verkalýðs-
félaginu Einingu í Eyjafirði var að
ljúka í gærkvöldi. Á þriðja hundrað
manns sóttu fundinn sem er einn
fiölmennasti fundur í sögu Einingar.
Fundurinn var sá fyrsti sem þeir
Guðmundur J. Guðmundsson og
Karvel Pálmason halda með verka-
fólki á hringferð sinni um landið.
Það var ljóst á máli þeirra Guð-
mundar og Karvels að Verkamanna-
sambandiö bindur nú vonir við að
skammtímasamningur náist við
vinnuveitendur - samningur sem
myndi gilda í þrjá til fióra mánuði.
kjarasamninga.
Á þessum fyrsta samningafundi
var fariö yfir stöðuna frá báðum hhð-
um. Menn voru að sögn Karls
sammála um að bæta þyrfti kjör
þeirra sem ekki hefðu notið launa-
skriðs frá síðustu samningum. Þá
var rætt um þá þætti sem þurfa að
koma til svo að hægt sé að fylla út
Þeir sögðu að vinnuveitendur hefðu
gefið það í skyn fyrir nokkrum dög-
um að slíkur samningur kæmi til
greina. „Ég held að við eigum að láta
á það reyna,“ sagði Guðmundur.
Báðir ræddu þeir um nauðsyn þess
að aðildarfélög innan Verkamanna-
sambandsins gengju sameinuð til
samninga. „Við getum ekki sótt
stærri hlut ykkur til handa nema
með ykkur að baki okkar og það sem
ríkisstjómin og vinnuveitendur ótt-
ast mest er sameinað Verkamanna-
samband," sagði Guðmundur.
Þáð fór ekki á milli mála að á fund-
inum voru þeir Guðmundur og
Karvel að þreifa fyrir sér um hug
fundarmanna til verkfaha ef skamm-
tímasamningar takast ekki á næst-
unni. „Ef verkfallsvopnið er ekki til
staðar fáið þið hækkanir eins og aðr-
ir en ekkert umfram það,“ sagði
Guðmundur og beindi orðum sínum
ramma að nýjum samningum.
Karl sagði að varðandi tímalengd
samninga hefði verið ræddur sá
möguleiki að samningarnir giltu að-
eins til vors. Ekki sagði hann kaup-
hækkunartölur hafa verið nefndar.
Loks sagði Karl Steinar að ljóst
væri að ríkið yrði að koma inn í
samningsgerðina, það yrði að taka
sérstaklega til fiskvinnslufólks sem
fiölmennti á fundinn.
Karvel hafnaði alfarið öUum hug-
myndum um þjóðarsátt. „Ég vil ekki
fara í slíka ferö aftur,“ sagði hann.
„Við erum með ört hrapandi kaup-
mátt og þolum enga bið. Þess vegna
viljum við reyna við skammtíma-
samning en fara í harðar aðgerðir
gangi það dæmi ekki upp. „Er Eining
tilbúin í slaginn?" spurði Karvel og
fundarmenn svöruðu eindregið ját-
andi. Margir tóku til máls á fundin-
um og var víða komið við. Að
sjálfsögðu var rætt um matarskatt-
inn og það kom skýrt fram á fundin-
um að skoðað verður gaumgæfilega
í þeim samningaviöræðum sem
framundan eru að samið verði um
krónutöluhækkun en ekki prósentu-
hækkun.
ábyrgð á samningunum.
„Það hafa oft verið gerðir kjara-
samningar á undanfómum árum en
svo hefur þriðji aðiU komið og eyði-
lagt þá. Slíkt má ekki endurtaka
sig,“ sagði Karl Steinar.
Næsti samningafundur hefur veriö
boðaður klukkan 16.00 á fostudaginn.
-S.dór
Gylfi Kmtjánæan. DV, Akureyn:
Það er alveg ljóst að Verka-
mannasamband íslands ætlar sér
ekki að hafa neitt samflot með
Alþýöusambandi íslands í þeim
kjarasamningum sem famundan
eru.
Þetta kom skýrt fram í máU
þeirra Guömundar J. Guömunds-
sonar, formanns VMSÍ, og
Karvels Pálmasonar, varaform-
anns sambandsins, á fundi þeirra
á Akureyri í gærkvöldi og reynd-
ar fengu ASÍ-menn heldur kaldar
kveðjur á fundinum. Þeir Guð-
mundur og Karvel sögðu báðir
að reynt hefði verið til þrautar
að ná hagstæðum samningum
undir forustu Alþýðusambands-
ins og sú leið væri fuUreynd.
„Þaö er ekká nema ein leið. Þaö
er sameinaö Verkamannasam-
bandsagði Karvel.
Vestfirðir:
Reynttil þrautar að ná samningum
Aðilar vinnumarkaðarins á
Vestfiörðum halda með sér samn-
ingafund á morgun og ætla að
reyna til þrautar að ná nýjum
kjarasamningum. Pétur Sigurðs-
son, formaður Alþýðusambands
Vestfiarða, sagði í samtah við DV
að númer eitt og áður en lengra
væri haldið yrði að leiðrétta kjör
fiskvinnslufólks. Síðan væri hægt
að ræða önnur atriði.
Það sem menn vestra eru að ræða
um í sambandi við nýja kjarasamn-
inga eru skattaívilnanir til handa
fiskvinnslufólki. Til þess að svo
geti orðið þarf ríkisvaldið að koma
inn í samningagerðina.
Önnur atriði, sem verið er að
ræða um, er að lengja orlof og að
eftirvinna falli niður en nætur-
vinna taki strax við af dagvinnu.
Þá er einnig verið að ræða um
hærri greiðslur til þeirra sem lokið
hafa fiskvinnslunámskeiði og að
komið verði á framhaldsnámskeiði
fyrir það fólk sem farið hefur á þau
námskeið sem nú eru haldin og að
það fengist bætt í launum.
„Það sem við þurfum fyrst og
fremst að gera er að ná fram kaup-
mætti sem fleytir okkur yfir það
erfiðleikatímabil sem nú er. Og ég
er sæmilega bjartsýnn á að það sé
hægt,“ sagði Pétur Sigurðsson.
-S.dór
Karvel og Guðmundur J. á Akureyri:
Stefnir í hörð átök
- náist ekki bráðabirgðasamkomulag alveg á næstunni segir Karvel