Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988. Fréttir Úthlutun Kvikmyndasjóðs: Rúmum 52 milljónum dreíft út Úthlutað hefur verið úr Kvik- myndasjóði 52.690.000 króna. Mest fékk Þráinn Bertelsson eða 13 milljónir til að gera kvikmynd sem nefnd er Magnús. Þá fékk Ágúst Guðmundsson 10 milljónir til að gera Hamarinn og krossinn. Bíó hf„ sem eru þeir Hilmar Oddsson og Jón Ól- afsson, fékk einnig 10 mOljónir til aö gera Meffa. Þá fékk F.I.L.M. fjórar milljónir vegna í skugga hrafnsins og Frost Film fékk þrjár milljónir vegna Foxtrot. Lárus Ymir Óskars- son fékk eina milljón til aö kvik- mynda Bílaverkstæði Badda. Til heimildamynda fengu fjórir styrk og fékk Jón Hermannsson langmest, eða fimm milljónir, vegna myndarinnar Hin römmu regindjúp. Aðrir sem fengu heimildamynda- styrk voru Bjöm Rúriksson, Magnús Magnússon og Páll Steingrímsson. Handritastyrki fengu Elísabet Jök- ulsdóttir, Friðrik Þór Friðriksson, María Kristjánsdóttir, Spaugstofan, Skafti Guðmundsson, Viöar Víkings- son, Viktór Ingólfsson og Vilborg Halldórsdóttir. Þráinn Bertelsson: Mikilvæg- ast að ég hefloksins fengið úr sjóðnum „Mitt tilfinningasamband við Kvikmyndasjóö er ekkert sérs- taklega mikilvægt - það sem er mikilvægt er að ég hef loksins fengið úr sjóðnum,“ sagði Þráinn Bertelsson kvikmyndagerðar- maður, sem fékk 13 milljónum kr. úthlutað úr Kvikmyndasjóöi íslands til að gera myndina Magnús. Þráinn bætti því við aö hann hefði nú gert fimm myndir með lítilli aöstoö og væri því af- skaplega feginn að fá þetta núna. Þráinn sagði aö myndin kostaöi 32 milljónir í heild og þvi vantaöi hann ennþá 19 milljónir. Haxm væri þó búinn að þreifa fyrir sér erlendis og þar væri hann með ákveöna aöila í huga án þess aö vilja ræða það frekar. En hvenær verður myndin frumsýnd? „Á þessu ári ef allt gengur aö óskum; ‘ sagði Þráinn og bætti því við að þaö væri þó margt sem gæti oröiö til að raska þeirri áætl- un. Hann sagöist vera búinn að gera handrit myndarinnar og kostnaðaráætlun og jafhvel far- inn aö velta fyrir sér hverjir verða í aðalhlutverkum. Hann sagðLst þó ekki geta sagt fyrir um þaö hvenær myndataka hæfist, það þyrfti að ganga frá mörgu áður. Myndin segir frá uppgjöri manns sem kemst að þvi aö hann er með alvarlegan sjúkdóm. Hann virðir fyrir sér sviðið og veltír fyrir sér hvers virði þetta er allt saman. Sem sagt heldur alvarlegri mynd en Þráinn hefur gert að undanfórnu, eöa eins og hann oröaði það; „Myndin á aö (jalla um fólk eins og vonandi á eftir að sjá myndina. Elsta per- sóna myndarinnar er fædd aldamótaáriö en sú yngsta fædd kvikmyndaárið. Þetta verður því á breiðum grunni." -SMJ x>v Eiríkur Sverrisson á Sauðárkróki: Minn tími var greini- lega ekki kominn -segir Eiríkur Svemsson frá Sauðárkróki sem hrapaði í bifreið sinni í Ólafsfjarðarmúla í byrjun desember Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Það hefur verið einhver óskýr- anleg lukka yfir mér. Þetta hefur greinilega átt aö gerast svona eins og það gerðist og minn tími hefur greinilega ekki verið kominn," seg- ir Eiríkur Sverrisson, 23 ára Sauðkrækingur sem í byijun des- ember hrapaði í bifreið sinni í Ólafsfjarðarmúlanum. Kastaðist 70 metra Atburðurihn átti sér staö í Syðra Drangsgili, en frá veginum þar og niður í sjó eru um 150 metrar, fyrst brött hlíð en neöst 30 metra þver- hnípt klettabelti. Þegar björgunar- menn komu á vettvang sigu þeir niður hlíðina og um 70 metra fyrir neðan veginn fundu þeir Eirik liggjandi. Hafði hann kastast út úr bilnum. Það hefur greinilega orðið honum til lífs. Bifreiðin fór alla leið niður, hrapaði fram af klettabeltinu, og þar sem hún hafnaöi í flæðarmál- inu var engu líkara en henni hefði verið vöðlað saman og ljóst að eng- inn hefði komist lífs af sem hefði verið í henni þar niðri. „Ekki í öryggisbelti" „Það hefur orðið mér til lífs að ég var ekki í bílbelti. Þótt ég muni ekkert eftir slysinu veit ég það, því ég notaði ekki bílbelti, það er ekki hentugt i bílnum, sem var af Honda Nokkrum mánuðum eftir að hann hrapaði í bifreið sinni í Ólafsfjarðar- múla stefnir hann að knattspyrnuiðkun. gerð og ég átti sjálfur," segir Eirík- ur. Reyndar segist hann ekkert muna frá þeim degi sem slysið gerðist, allt frá þeim tíma virðist hafa „þurrkast út“ þegar slysið átti sér stað. Þó segist hann muna að hafa verið á leiðinni frá Akureyri til Sauðárkróks og ætlaði um Lág- heiði. „Ég fór þessa leið oft, enda er hún mun styttri en leiðin um Öxnadalsheiðina." Slapp ótrúlega vel Eiríkur var fluttur á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri. Hann segist hafa verið meðvitundarlaus í um sólarhrin'g. Síðan, er hann kom til meðvitundar, var liann vakinn á klukkustundar fresti eins og yfirleitt mun vera gert í tilfellum sem þessum. Hann var spurður um meiðslin sem hann hlaut. „Þau eru ekki mikil þótt ótrúlegt megi virðast. Höfuðið varð verst úti og einnig teygðist á liðböndum á hné og á öxl, en ég er nú reyndar vanur shku úr fótboltanum. Axlar- meiðslin gera það að verkum að ég fæ oft höfuðverk, og reyndar er ég máttlaus ennþá.“ Ætlar í fótboltann Eiríkur segist vera í nuddi á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki í sam- bandi við öxlina og einnig er hann stirður í hálsinum. Þá er hann í fótaæfingum og stefnir aö þvi eins fljótt og hægt er að fara að byggja sig upp á annan hátt. Hann hefur spilað knattspyrnu með meistaraflokki Tindastóls og var m.a. markakóngur hðsins árið 1985, en á síðasta keppnistímabili lék hann með 2. deildar liöi Ein- heria á Vopnafirði. „Ég geri mér góðar vonir um að geta spilað fót- bolta í sumar, að vísu er fóturinn langt frá því aö vera góður og ég má ekki skalla bolta í þrjá mánuði. Ég næ vonandi að byggja mig vel upp fyrir keppnistímabiliö," segir Eiríkur og er það ótrúlegt að mað- ur, sem lendir í því að hrapa í bifreið sinni í Ólafsfjarðarmúla, skuli stefna að knattspyrnuiðkun aðeins nokkrum mánuðum síðar. Dramatísk spennumynd - segir Hilmar Oddsson kvikmyndagerðarmaöur Happaskipið Kolbeinsey við bryggju á Húsavik eftir fyrsta túrinn 1988. Kirkj- an fagra sést til hægri. DV-mynd Hólmfriður. Aflaverðmæti Húsavíkur- togaranna 174 milljónir - Útgerð togaranna gekk vel á síðasta ári Fyrirhuguð kvikmynd Bíós hf„ Mefifi, var ein þeirra mynda sem hlaut úthlutun úr Kvikmyndasjóði íslands 1988, alls tíu milljónir króna. Að sögn Hilmars Oddssonar kvik- myndageröarmanns er þetta drama- tísk spennumynd um þrjá unga menn sem búa við kröpp kjör í Reykjavík nútímans. Þeir fá tækifæri til að bijótast úr umhverfi sínu, og um það fjallar myndin. Nafnið á myndinni, Meffi, er sérkennilegt og aðspurður sagðist Hilmar það eitt vilja segja að meffi væri orð í nýju tungumáli sem söguhetjur myndar- innar hefðu þróað með sér. „Ég og Jóhann Sigurðarson leikari höfum unnið að handritsgerð fyrir þessa kvikmynd á annaö ár,“ sagði Hilmar, „en lokagerð handritsins hefst að öllum hkindum 'næstkom- andi mánudag. Hún verður unnin í samvinnu við virtan , bandarískan handritahöfund, Michael Taav að nafni.“ Kvað Hilmar mikla undir- búningsvinnu eftir og að tökur hæfust líklega ekki fyrr en með haustinu. Aðspurður vildi Hilmar ekkert tjá sig um hvenær búast mætti við að myndin yrði frumsýnd. „Myndin er í dýrari kantinum," sagði Hilmar, „í upphaflegri ijár- hagsáætlun er gert ráð fyrir 50 milljónum. Við munum leita fanga á erlendum sem innlendum vettvangi eftir frekara fjármagni og stefnum á að sýna myndina á báðum mörkuð- um.“ Að lokum kvaðst Hhmar Oddsson kvikmyndagerðarmaður mjög á- nægður með úthlutun og viðurkenn- ingu Kvikmyndasjóðs íslands. -StB Hólmfriöur Friöjónsdóttir, DV, Húsavík: „Útgerð togaranna Kolbeinseyjar og Júlíusar Havsteen gekk vel á síð- asta ári-Aflaverðmæti Kolbeinseyjar var um 94 milljónir en Júlíus Hav- steen var að mestu gerður út á rækju og var aflaverðmæti um 80 milljón- ir,“ sagði Kristján Ásgeirsson, útgerðarstjóri hjá Höfða hf. og íshafi hf„ í samtali við DV. Kolbeinsey, sem að sögn Kristjáns hefur alltaf verið farsælt skip og eng- ar bilanir hjá þeim á síðasta ári, aflaði 3.340 tonna og fór eina söluferð til Þýskalands með karfa. ÖUum öðr- um afla skipsins var landað hér á Húsavík. Aflaverðmæti var 94 miUj- ónir króna. Áriö 1986 var 14 mUljón króna gróði á Kolbeinsey. Júlís Havsteen veiddi rúmlega 800 tonn á sl. ári. Þar af var rækja 640 tonn. Hún fór aö mestu í endur- vinnslu í Rækjuvinnslunni hér á Húsavík en um þrjátíu af hundraði voru seld á japanskan markað. Einn- ig veiddi Júlíus 170 tonn af grálúðu sem unnin var um borð og seld á erlendan markað. Aflaverðmæti tog- arans var eins og áður segir um 80 mifljónir króna. Afli frá áramótum Kolbeinsey var að koma úr sínum fyrsta túr á nýju ári með 100 tonn. Júlíus er búinn að landa 47 tonnum af rækju frá því um áramót svo að vinna er nú hafin af fullum krafti á ný hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur. Höfði hf. er einnig með netagerö og var veltan á henni 26 mifljónir króna á sl. ári. Þetta er eina fyrirtæk- ið hér á Húsavík sem selur útgerðar- vörur og er fyrirtækið að byggja upp betri aðstööu fyrir útgerð og neta- gerð. Óbreytt fiskverð Verðalagsráð sjávarútvegsins hefur ákveðiö að halda fiskverði óbreyttu í einn mánuð í viðbót. „Við ákváðum að framlengja óbreytt fiskverð i einn mánuð og sýna hug okkar til efnahags- ástandsins og komandi ráðstafana. Við féUumst á að gera ekki neinar kröfur um bættan hag útgerðar og sjómanna heldur vfljum við bíða og sjá hvað verður," sagði Kristján Ragnarsson, formaöur LÍÚ. Hann sagði að full samstaða heíði verið á meöal útgerðamanna og sjó- manna um að koma ekki með neinar kröfur þar til ljóst væri hvert stefndi í efnahagsmálum. Fyrir fundinn áttu fulltrúar kau- penda fund með þrem ráðherrum. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.