Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Page 10
10
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988.
Utlönd_______________________________________
, Stuðningurinn við
Israel fer minnkandi
Gnnnlaugur A. Jánason, DV, Luxvdi
Ingvar Carlsson, forsætísráð-
herra S víþjóðar, gagnrýndi Israels-
menn harðlega í gær fyrir aðgerðir
þeirra að undaniornu til að bæla
niöur uppþot meðal Palestínu-
maxma á Gazasvæðinu og Vestur-
bakkanura.
„ísraelsmenn hafa gert sig seka
um mjög alvarieg brot gagnvart
Palestín umönnum. Með þessum
aðgerðum draga þeir úr hkunum á
að samkomulag náist í framtíðinni
milli þeirra og Palestínumanna.
ísraelsmenn hafa ekki síst skaðað
sjálfa sig mjög alvariega.“
Skoðanakannanir í Svíþjóð hafa
leitt í ijós að stuöningur sænsku
þjóðarinnar við ísraelsmenn hefur
á síðari árum stöðugt íarið minnk-
andi. Nú segjast einungis tuttugu
prósent Svía hafa samúð með að-
gerðum ísraelsmanna. Fyrir tutt-
ugu árum studdu um áttatiu
prósent ísraelsmenn í deilum
þeirra við araba.
Við læknisstórf
í 25 ár án prófs
Gunnlaugur A. Jðnason, DV, Lundi:
Komið hefur í Ijós að 58 ára gamall maður, sem í 25 ár hefur starfað
sem læknir á Skáni, hefúr aldrei lokið prófi í læknisfræði. Maðurinn
hefúr þó leyst starf sitt óaðfinnanlega af hendi og er mjög vinsæll meðal
sjúklingarma. Hann fær einnig góða dóma meðai samstarfsmanna sinna
á heilsugæslustöð þeirri er hann hefúr starfað á.
Það var þegar heilbrigöisyfirvöld hertu eftirlit með starfsemi lækna og
tóku að kanna gögn um menntun þeirra og starfsferil að í Jjós kom að
maðurinn hafði aldrei lokið prófi í iæknisfræði. Hann hafði vissulega
hafið nám en aldrei lokiö prófi.
En þar sem hann hefúr að allra dómi staðið sig prýðisvel i starfi verður
honum nú gefinn kostur á aö taka þau próf er veita honum réttindi og
eftir það er honum lofað starfi á Skáni á nýjan leik. Hann á ekki í vænd-
um neina refsingu.
Waldheim með
nýjar upplýsingar
Giair Helgaaon, DV, Löbecác
Kurt Waldheim, forseti Austur-
ríkis, segir í viðtaii, sem birt verður
opinberlega í næstu viku, að hann
hafi tekið þátt í -samningum sem
leiddu tíl þess að mörg þúsund ít-
alskir hermenn voru fluttír í
fangabúðir. Hann bætir því við aö
hann liafi talið að senda ætti her-
mennina heim til Ítalíu frá Grikk-
landi eftir að ítalir gáfust upp íýrir
bandamönnum árið 1943.
Waldheim er sakaður um að haía
átt þátt í því að þúsundir frelsis-
baráttumanna auk gyðinga og
sígauna voru sendar í útrýmingar-
búðir nasista. Þessu hefur Wald-
heim staðfastlega neitað.
Aiþjóöiega sagnfræðinganefndin,
sem unnið hefur að þ ví undanfama
mánuði að kanna fortíð Waldheims
og þátt hans í her Þjóðverja í seinni
heimsstyrjöldinni, mun birta nið-
urstöður sínar 8. febrúar næstkom-
andi.
Borgararéttíndamenn
dæmdir með hraði
Gizur Helgason, DV, Lubedc
Dómstóll í Austur-Berlín hefur
kveðið upp lýrstu dómana yfir
þeim „borgararéttindamönnum“,
eins og þeir kalla sig, er blönduðu
sér á óleyfílegan hátt í opinbera
skrúðgöngu fýrir rúmri viku. Sjö
fengu eins til tveggja ára fangelsi
og tveir fengu tveggja mánaða
fangelsi.
Um svípað leyti var sex Austur-Þjóðverjum vísað úr landi tíl Vestur-
Þýskalands og í þetta sinn til Bæjaralands. Það er því sextíu og einn
einstaklingur sem hefúr fengiö „leyfi“ til að flytjast til Vesturlanda með
þessari aðferö yfirvalda. Brottvísun fólksins var fýlgt eftir umsvifalaust
þannig að enginn í hópnum gat haft með sér persónulegar eigur.
Sex manns tíl viöbótar, grunaöir um að teljast til mótmælendahóp-
anna, voru handteknir í vikunni. Lögreglan heldur því fram að mótmæl-
endahóparnir séu fjármagnaðir frá Vesturlöndum og að þaöan sé þeim
og stjómað.
Andvígir flota
Sameinuðu
þjóðanna
Utanríkisráðherra írans, AIi Ak-
bar Velayati, sagði í gær að íranar
væru andvígir tillögu um flota sem
sigldi undir fána Sameinuðu þjóð-
anna til þess að tryggja öruggar
siglingar á Persaflóa.
Italskir embættismenn sögðu að
Velayati hefði tjáð kollega sínum,
Giulio Andreotti, utanríkisráðherra
Ítalíu, þessa afstöðu gegn tillögu Sov-
étríkjanna. Kvað Velayati aö nær-
vera erlendra aðila, sama hverjir í
hlut ættu, orsakaði kpennu.
Á fréttamannafundi, fyrir fund
sinn með Andreotti, sagði Velayatí
að íranar vildu að aðalritari Samein-
uðu þjóðanna, Perez de Cuellar, héldi
áfram tilraunum sínum með að finna
lausn á Persaflóastríðinu. Velayati
sagði að íranar myndu enn sem áður
hafna öllum beinu eða óbeinum
samningaviðræðum við íraka.
Velayati, utanríkisráðherra írans, hélt i gær fréttamannafund í sendiráði
írans í Róm. Tjáði hann fréttamönnum að íranar væru reiðubúnir til að
gera allt sem í þeirra valdi stæði til að aðstoða við frelsun gisla í Beirút.
Símamynd Reuter
Ætíuðu uppreisnarmenn
að myrða AHönsin?
Haft var eftir Raul Alfonsin, for-
seta Argentínu, í gær að uppreisn-
armenn úr argentínska hernum,
sem fylgdu Aldo Rico að málum í
uppreisnartilraun hans fyrir
skömmu, hafi ætlað að ráða hann
af dögum.
Sagði Alfonsin í viðtali viö
spönsku fréttastofuna EFE að
„hópur brjálæöinga" hefði ætlað
að myrða hann og yfirmann hers
landsins, Emesto Crespo.
„Þeir höfðu uppi geðbilaöar áætl-
anir um að ráða Crespo og sjálfan
mig af dögum, að sögn til þess að
bjarga landinu í nafni guðs,“ sagði
forsetinn.
Alfonsin bætti við að tílræði af
þvi tagi hefði að sjálfsögðu verið
óframkvæmanlegt. Sagöist hann
ekki líta á þessar áætlanir sem
mikilvægar. Hann neitaði síðar að
útskýra málið frekar.
Forsetinn fullyrti að uppreisn
Rico og fylgismanna hans hefði
aldrei verið alvarleg ógnun við rík-
isstjóm landsins. Sagði hann að
þótt enn væru til fámennir hópar
í landinu, sem væru reiðubúnir til
aðgerða af þessu tagi, væri ekki
grundvöllur tíl byltingar þar leng-
ur.
Reagan heitir shiðningi
Hosni Mubarak, forseta Egypta-
lands, varð vel ágengt í Bandaríkjun-
um er hann leitaði stuönings þar við
friðaramræður milli ísraelsmanna
og araba. Það varð ljóst eftír fund
með Reagan Bandaríkjaforseta í gær.
Bandaríkjamenn eru þó ekki sam-
mála í öllum atriðum hvemig koma
eigi slíkum friðammræöum á.
Bandarískur embættismaður, sem
ekki vill láta nafns síns getið, sagði
Reagan hafa aðhyllst þá hugmynd
að koma á sex mánaða vopnahléi
milli Palestínumanna og Israels-
manna á Vesturbakkanum og
Gazasvæðinu. Mubarak vill að Pal-
estínumenn hættí öllum mótmæla-
aðgerðum á því tímabili og að
ísraelsmenn hættí frekara landnámi
á svæðunum og samþykki alþjóðlega
friðarráðstefnu. Yfirvöld í Washing-
ton eru hins vegar sögö andvíg
hugmynd Mubaraks um að „viðeig-
andi alþjóölegar aðgerðir" myndu
vemda Palestínumenn á herteknu
svæðunum á meðan á vopnahléinu
stæði. Embættismaöurinn gat ekki
útskýrt nánar hvað við væri átt.
Bandaríkjastjóm hefur sætt gagn-
rýni fyrir aö hafa ekki látið meira til
sín taka í friöarumleitunum en lofar
nú meiri aðstoð.
Reagan Bandaríkjaforseti tók á móti Hosni Mubarak, forseta Egyptalands,
í Hvíta húsinu í gær. Ræddu þeir ástandiö á herteknu svæóunum og lofaöi
Reagan aóstoð við frióarumleitanir.
Simamynd Reuter