Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988. Spumingin Heldur þú að fjölskyldur og ættir hér fái meiru ráð- ið en Alþingi? Guðbjörg Sigurjónsdóttir: Nei, ég held það geti ekki verið, og allavega ekki nú. Hörður Guðmundsson: í einstaka til- fellum gæti slíkt átt við. En eigum við ekki að segja að Alþingi fari með völdin? Karl B. Örvarsson: Nei, það get ég ekki ímyndað mér, svona í fljótu bragði. Ásgeir Þorleifsson: Ég veit nú ekki en hér eru auðvitað yfirstéttir eða forréttindastéttir sem ekki sitja við sama borð og aðrir. Steinunn Friðriksdóttir: Nei, það held ég ekki. Trausti Ómarsson: Hafi kannski áhrif, en ekki að neinu marki, held ég. Lesendur Kvosin og miðborg Reykjavíkur Axel J. skrifar: Þar sem mikið hefur verið skrifaö um ráðhúsbyggingu og staðsetn- ingu hennar í höfuðborginni langar mig til að leggja umræðunni lið þótt það verði ekki til þess að skipta sköpum á þessu stigi. En orð eru til alls fyrst og síðar kynni að koma að því, ekki síst ef umræðan getur runnið í sama farveg, að samstaða fengist um að byggja fallegan mið- bæjarkjama, gjörólíkan þeim sem fólk hefur nú fyrir augunum. Og það er einmitt þessi miðbæjar- Kjami, eða Kvosin svokallaða, sem ég hef nokkrar áhyggjur af. Mér finnst núverandi kjarni og skipu- lag, sem virðist eiga að halda í nánustu framtíð, vera ansi staðnað. Ég er alls ekki á móti varðveislu gamalla húsa eða annarra minja, en að ætla að halda í hvern kofa og kumbalda, þótt hann eigi sína sögu, stappar nærri hreinni heimsku. í miðborg Reykjavíkur er nú þeg- ar búið að setja niður og festa í sessi þau „gömlu“ hús sem hér ættu að nægja sem minjar um fyrri tíð í húsagerðarlist og á ég þá við húsin í Bakarabrekkunni. Þau em þama og hefur verið haldið við nokkuð sæmilega, sumum vel, og þau nægja fyllilega. Og þama geta þau staöið, jafnvel þótt síðar verði byggð stærri hús alls staðar í kring. Og að því hlýtur að koma. Að ætla sér að halda í og dreifa fleiri gömlum húsum vítt og breitt um miðbæjarkjarnann er hreint glapræði. Miðborgin þarfnast al- gjörrar andlitslyftingar með svipmóti tuttugustu aldar en ekki þeirrar síðustu. Ég ætla ekkert að ræða ráðhúsbyggingu hér, hún á áreiðanlega rétt á sér, en að mínu viti er umrædd teikning ekki falleg sem ráðhús og alltof lág sem mið- bæjarbygging. Og loks kem ég að kjama málsins. (og miðbæjarkjamanum í leiðinni). Ég tek undir það sem fram hefur komið á þessum vettvangi í DV, að miðbæjarkjamann eigi að endur- reisa í nútímastíl með háum húsum mestan part, en bílageymsl- Séð yfir miðborg Winnipeg í Kanada. - „Skemmtileg útfærsla," segir bréfritari. Um, (einni eða tveimur) á þremur til fjórum hæðum, sem hægt er áð aka inn í með hringakstri. í Kanada, þar sem ég þekki nokk- uð til, era dæmi um sérstaklega skemmtilega útfærslu á miðborg- um og vil ég benda á tvær borgir sérstaklega í því sambandi, borgir sem ekki em alltof stórar, Winnipeg og Calgary. Borgimar em þægilegar og afar viðkunnan- legar, þrátt fyrir eða kannski vegna þess hvemig miðborgimar þar era útfærðar. Af þessu ættum við að taka miö og láta nú strax gera nýtt heildar- skipulag um miðborg Reykjavíkur, þar sem dýrar lóðir eru nýttar með 10-12 hæða byggingum mestan hluta og góðum bílageymslum of- anjarðar. í miðborginni á að komast fyrir mestöll opinber þjónusta og flestar aðalstofnanir viðskiptalífs, ásamt stórri verslunarmiðstöð með veit- ingastöðum af ýmsum tegundum. - Borgaryfirvöld, hefjist nú handa sem fyrst og takið miö af borgum eins og t.d þeim sem ég mimitist á hér að ofan. Frá ísafirði. - Verða samningarnir, sem þar hafa verið undirritaðir, fordæmi? Vestfjarðasamningamir: Sjálfsagt fbrdæmi Þórhallur skrifar: Kjarasamningarnir, sem undirrit- aðir voru í Alþýðuhúsinu á ísafirði, era nú komnir í sviðsljósið og um þá er nú farið að halda fundi hér sunnanlands. Öll blöð og aðrir fjöl- miðlar sneisafullir af efni um þessa tímamótasamninga, sem mér finnst sjálfsagt að nefna þá. Það hljóta allir aö geta tekið undir með forseta Alþýðusambands Vest- fjarða að stærsta málið í samningun- um sé að ná verðbólgunni niður. Verði það ekki gert er hlutur laun- þega fyrir bí í hvaða samningum sem gerðir verða. Og með þessum nýju samningum á Vestfjörðum er reikn- að með að ná verðbólgunni niður í svona 14-15%. Viðtöl þau, sem fjölmiðlar hafa átt við formann Verkamannasambands íslands, Guðmund J. og ferðafélaga hans um landið nýlega, Karvel Pálmason, era til þess eins fallin að tefja fyrir og reyna að reka fleyg á milli vinnandi stétta í landinu. - Ummæli eins og t.d. „mér líst fremur illa á þessa samninga" eru bara orð án rökstuðnings og auðsýnilega mælt til þess eins að fá fram glund- roða á stjómmálavettvangi. Það er t.d athygli vert að Ríkisút- varpiö og fréttaflutningur þess er ekki ýkja jákvæður í garð Vestfjarða- samninganna og segir það sína sögu um það að til era þeir sem róa öllum áram að því að gera þessa samninga tortryggilega. Þess er óskandi að formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla- víkur, Karl Steinar, geri sér grein fyrir að þetta era þeir samningar sem fólkið almennt vill láta reyna á. Við viljum ekki verkfoll. Ég er nú einn þeirra sem eiga allt undir því að við hér á áuðumesjum þurfum ekki að stöðva vinnu og lúta í lægra haldi fyrir fylgismönnum verkfalla og stöönunar. Launþegar, sýnum nú einu sinni jákvæðan samtakamátt og látum reyna á Vestfjarðasamningana sem fordæmi fyrir samninga vítt og breitt um landið, án þess þó að þeir verði fordæmi fyrir launahækkanir til annarra en þeirra lægstlaunuðu og gangi ekki upp alla launaflokka eins og áður hefur tíðkast og valdið þeim glundroða sem einkennt hefur at- vinnu- og kjaramál hingað til. 0 Of háar vinnings- upphæðir Þóra hringdi: Ég vil taka undir með þeim er skrifar í lesendadálk DV hinn 20 jan. sl. um of háa vinninga i happ- drættum hérlendis. Mér finnst þessar fjárhæðir vera orðnar btjálæðislega háar. Hvers vegna era þessir vinn- ingar ekki fleiri og smærri? Og hvers eiga þeir að gjalda sem spila í'þpssum happdrættum og fá aldrei vinning? Hæsti vinning- ur ætti alls ekki að vera hærri en 500 þúsund krónur, jafnvel lægri. Það myndi gera það að verkum aö fleiri viðskiptavinir happdrættanna yrðu ánægðari. Eins er það að flestum myndi þykja gott að fá vinning, þótt ekki væri nema nokkur þúsund krón- ur, hvað þá allt upp í nokkra tugi þúsunda. Þetta væri auðvitað mun skynsamlegra. Ég legg því til: Fleiri og smærri vinninga og fleiri og ánægöari viðskiptavini. Þaö væri fróðlegt aö láta gera ein- hvers konar könnun á því hvað fólkið, þessi mikla happdrættis- þjóð, vill í þessum efnum. Eins mætti gera úttekt á því hjá happ- drættunum sjálfum hvaða af- stöðu þau hafa í þessum efii- um. Hringið í síma ' 27022 milli kl. 13 og 15, eða skrifið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.