Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Síða 19
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988. 31 Iþróttir Jóhann Ingi Gunnarsson um brottreksturinn frá Tusem Essen: „Rak Fraatz, fósturson forsetans, af æfingu!“ - Jóhann Ingi með tilboð frá Basel og Dankersen og möig íslensk lið í sambandi við hann „Ég er ekki í vafa um aö eitt atvik öðrum fremur leiddi til þess að mér var sagt upp starfmu. Fyrir skömmu rak ég Jochen Fraatz, einhvern besta homa- mann heims, af æfrngu hjá Essen vegna þess að mér fannst hann ekki taka nægilega mikið á og ekki sýna æfingunni áhuga. Stjörnur eins og hann þola ekki slíkt og að auki er Fraatz hálfgerður fóstursonur forseta félagsins. Hann er líka eini leikmaður Essen sem þýsku blöðin hafa vitnað beint í um brott- rekstur minn síðustu dagana og hann var einn þeirra sem hæst létu um að ég væri ekki starfi mínu vaxinn,“ sagði Jóhann Ingi Gunnarsson hand- knattleiksþjálfari í samtali við DV í gærkvöldi. „Atburðir síðustu daga hafa verið mikil lífsreynsla fyrir mig,“ sagði Jóhann Ingi. „Ég mun aldrei aftur ráða mig til félags þar sem forráða- menn og allt umhverfi og aðstæður eru eins og hjá Essen - ég er tilbúinn að þjálfa þar sem áhugi er til staðar og réttur stuðningur á bak viö liðið og þar sem starfa menn sem hafa vit á handbolta. Ivanescu, landsliðs- þjálfari Vestur-Þjóðverja, sem var látinn hætta með Essen fyrir tveimur árum eftir að hafa stýrt hðinu til sig- urs í úrvalsdeildinni, hringdi í mig í gær. Hann bað mig afsökunar á að vera að segja mér nú hluti sem hann hefði átt aö fræða mig um þegar ég tók við af honum fyrir tveimur árum, um hvers konar félag Essen væri og hvernig því væri stjórnaö. En ég hefði sennilega aldrei trúað honum þá. Hann sagði líka að sá þjálfari, sem gæti stjórnað Tusem Essen, væri enn ekki fæddur. Ég bendi á aö Ivanescu var látinn hætta hjá Essen vegna þess að 8 eða 9 leikmenn sögðu að hann væri of harður við þá og Fraatz lét hæst. Nú er Ivanescu landsliðsþjálfari - og fyr- ir skömmu sagði Fraatz í blaöaviðtali að hann væri besti þjálfari sem hann hefði kynnst! Þetta kallar maður að haga seglum eftir vindi.“ Ég gat ekki hafnað tilboðinu frá Essen í gær birti DV frásögn úr blaðinu Die Welt semfjallaði um brottrekstur Jóhanns Inga. Þar var sagt að hann hefði haft 4,5 milljónir íslenskra króna í árslaun hjá Essen. Um það sagði Jóhann Ingi við DV: „Það er nú svo að maður segir aldrei frá launum sínum frekar en atvinnu- knattspymumennirnir. Ég veit ekki hvaðan Die Welt hefur þessar tölur en það hefur verið tahð að við Iva- nescu séum launahæstu þjálfarar í Vestur-Þýskalandi og þetta er kannski ekki fjarri lagi. Hins vegar þarf ég að borga mína skatta eins og aðrir. Ég viðurkenni fúslega að samningstilboð Essen var svo gott að ég gat einfaldlega ekki sagt nei. Nú myndi ég samt hugsa mig um tvisvar í slíkri aðstööu." Jóhann Ingi vildi gera athuga- semdir við grein Die Welt. „Það er mikið gert úr sálfræðinni hjá mér enda mega fæstir heyra þá grein nefnda án þess að tryllast og fara að tala um töfralækningar og fleira í þeim dúr. Þessi tvö dæmi, sem tekin eru, um vekjaraklukkuna og teikni- myndimar, áttu sér ekki stað hjá Essen - þau eru frá dögum mínum hjá Kiel. Ég hef aldrei beitt neinum sálfræðihernaði á mín hð, hins vegar reyni ég að styrkja sjálfstraust leik- manna með ýmsu móti og kenni þeim slökunaræfingar. Það er nú allt og sumt.“ Ég ætla ekki að detta niður dauður á bekknum! Jóhann Ingi sagði að hann ætlaði aö gefa sér góðan tíma til að ákveða framtíð sína. „Mjög mörg íslensk 1. deildarlið hafa haft samband við mig og óskað eftir viöræöum um þjálfun. Það er gífurlegur áhugi fyrir hand- bolta heima á íslandi og krafturinn í félögunum er ótrúlegur. Ég tek ofan fyrir þori þeirra og bjartsýni! Hugur minn snýr heim enda er ég aðeins 33ja ára og get alltaf farið út aftur ef málin þróast á þann veg. Ég ætla að koma til íslands eftir svo sem mánuð og ræða við þau félög sem hafa sýnt mér áhuga. Þar spilar líka inn í að ég rek fyrirtæki heima í sam- vinnu við bróður minn og það er á vissum tímamótum. Ég hef menntað mig i ráðgjöf til fyrirtækja og langar til aö spreyta mig á því sviði, til hlið- ar við þjálfunina. Handboltinn er ekki aht, ég ætla ekki aö vera í hon- um th ehífðar og detta niöur dauður úr hjartaslagi á varamannabekkn- um. Síðan langar mig til að koma til skha einhverju af því sem ég hef lært varðandi þjálfun hér úti og er einmitt núna að vinna að verkefni fyrir Handknattleikssamband ís- lands sem er á þeim nótum. En ég hef fengið tvö freistandi til- boð hér úti, fyrst frá Dankersen, sem er fomfrægt félag og byggir á göml- um hefðum en er sem stendur í 2. deild. Þangað er komin júgóslav- neska stórskyttan Cvetkovic og ég þekki vel framkvæmdastjórann sem hefur lofað mér því að stjórn félags- ins standi við bakið á mér, hvernig sem gengur inni á vellinum. Síðan fékk ég hringingu frá Basel sem er í 3. sæti svissnesku 1. dehdarinnar og þeir vilja ganga strax frá 2-3ja ára samningi. Ég verð að skoða allt mjög vel áöur en ég tek ákvörðun, enda hef ég nægan tíma í augnablikinu!“ sagði Jóhann Ingi Gunnarsson. -VS >órður Davíðsson. úr Breiðabliki sleppur inn úr orninu og skorar fram hjá Sigmari Þresti, markverði Stjörnunnar. Þórður skoraði rjú mörk úr horninu þegar Breiðablik sigraði Stjörnuna, 28-26, í Digranesi í gærkvöldi. DV-mynd G.Bender 1. deild karia: Blikar sterkari á lokasprettinum Breiðablik sigraði Stjömuna, 28-26, eftir spennandi lokamínútur „Lokamínúturnar voru það spenn- andi að sigurinn gat hafnað beggja vegna. Við spiluðum breytilegan varnarleik í seinni hálfleik og Stjarn- an fann ekkert svar við því. Þessi langa pása sem gerð var á mótinu kom illa niður á okkur. Um fram- haldið vil ég sem minnst spá. Reynslan mín með Breiðablik segir aö best er að taka einn leik fyrir í einu,“ sagði Geir Hallsteinsson, þjálfari Breiöabhks, í samtali við DV en Breiðablik sigraði Stjörnuna, 28-26, á íslandsmótinu í handknatt- leik í Digranesi í gærkvöldi. Breiða- blik hafði forystu í hálfleik, 14-12. • Leikurinn var hníljafn ef undan eru skildar fyrstu tíu mínúturnar en þá komst Stjarnan í 4-1. Breiðabliks- menn voru seinir í gang en smám saman áttuðu þeir sig á hlutunum. Um miðjan fyrri hálfleikinn voru þeir búnir að jafna metin, 5-5. Breiðablik komst í fyrsta sinn yfir 9-8 með marki frá Jóni Þóri úr horn- inu og það forskot létu þeir ekki af hendi fram að leikhléi. • Stjarnan náði forystu, 17-16, á nýjan leik en síöan var jafnt á öllum tölum til leiksloka. Breiðablik tók th bragðs að taka Gylfa og Einar úr umferð en við losnaði um Skúla á línunni. Samt sem áður reyndust Breiðabliksmenn sterkari á lokamín- útunum sém voru æsispennandi. Þegar 45 sekúndur vorutil leiksloka varði Sigmar Þröstur glæshega frá Jóni Þóri í stöðunni 27-26 þannig að Stjarnan átti fuha möguleika á að jafna en sóknin rann út í sandinn. Blikar brunuðu aftur í sókn og bættu við marki áður em tíminn fjaraði út. • Bræðurnir, Bjöm og Aðalsteinn Jónssynir voru bestir menn Breiða- bliks. Guðmundur markvörður hefur oft varið betur. Gylfi Birgisson og Sigmar Þröstur markvörður voru hins vegar bestir Stjörnumanna. Varnarleikurinn varð Stjörnunni að falli í leiknum. • Mörk UBK: Jón Þórir 7/5, Aðal- steinn 5, Björn 5, Kristján 3, Þórður 3, Hans 3, Svafar 1, Magnús 1. • Mörk Stjarnan: Gylfi 6, Skúh 5, Einar 5, Sigurður 5/3, Sigurjón 3, Hafsteinn 2. • Dómarar vom Sigurður Bald- ursson og Björn Jóhannesson og dæmdu þokkalega. -JKS Staðan Staðan í 1. dehd karla í handknatt- leik eftir sigur UBK á Stjörnunni: FH.........10 8 2 0 280-216 18 Valur......10 8 2 0 214-161 18 UBK........11 7 0 4 236-237 14 Víkingur...10 6 0 4 253-227 12 Stjaman....11 5 1 5 251-267 11 KR.........10 4 1 5 211-223 9 ÍR.........10 3 2 5 213-234 8 KA.........10 2 3 5 197-212 7 Fram.........10 2 1 7 223-246 5 Þór..........10 0 0 10 198-253 0 Fýrsta bikarmótið Gyffi Kristjánæon, DV, Akmeyri: Allir bestu alpagreinamenn landsins veröa á meðal keppenda á fyrsta Visa-bikarmóti Skíðasambands íslands á vetrinum, en þaö er Hermannsmótið sem fram fer í Hlíöarfjalli við Akureyri á morgun og sunnudag. Meðal keppenda í mótinu verða ólympiufarar íslands, þau Guörún H. Kristjánsdóttir og Daníel Hhmarsson, en þau hafa æft í Hllöar- Qaih undanfarna daga ásamt öðra landsliðsfólki í alpagreinum. Á morgun verður keppt í stórsvigi karla og svigi kvenna og hefst keppnin kl. 11.30. Á sunnudag hefst keppni á sama tíma og keppa karlar þá f svigi og konur í stórsvigL Nægur snjór er nú í Hliöarfialh og skíðafæri gott.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.