Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Síða 29
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988.
41
Friðrik Ólafsson
Friörik Ólafsson, stórmeistari og
fyrrv. formaður FIDE, hefur veriö
í fréttum en hann er fréttafulltrúi
og aöstoðarmaður Jóhanns Hjart-
arsonar. Friörik er fæddur 26.
janúar 1935 í Rvík og lauk lögfræði-
prófi frá HÍ1968. Hann var fulltrúi
í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu
1968-1974 og atvinnuskákmaður
1974-1978. Friðrik var forseti Al-
þjóöa skáksambandsins (FIDE)
1978-1982 og ritstjóri Lagasafns ís-
lands 1983-1984 og hefur verið
skrifstofustjóri Alþingis frá 1. sept-
ember 1984. Friðrik varð fimm
Sinnum íslandsmeistari í skák,
fyrst 1952, og Norðurlandameistari
í skák 1953. Hann varð alþjóðlegur
skákmeistari 1956 og stórmeistari í
skák 1958. Friðrik var sigurvegari
í skákmótinu í Hastings 1955-1956,
í Beverwijk í Hollandi 1959, í Mar-
ianske Lasne í Tékkóslóvakíu 1961,
á alþjóðlegum skákmótum í Rvík
1966,1972 og 1976 og á Wijk an Zee
í Hollandi 1975. Hann stofnaði
Skákskóla Friðriks Ólafssonar 1983
og hefur samiö bækumar Lærið
að tefla, 1958, Fischer gegn Spass-
ky, 1973 og Við skákborðið í aldar-
fjórðung, 1976.
Kona Friöriks er Auður Júlíus-
dóttir, f. 4. mars 1941, ritari for-
stjóra ríkisspítalanna. Foreldrar
hennar eru Júlíus Sigurjónsson,
prófessor í Rvík, og kona hans,
Bergljót Jóhannesdóttir. Börn
Friðriks og Auðar eru Bergljót, f.
24. ágúst 1962, nemi, gift Friðriki
S. Halldórssyni, skrifstofustjóra
hjá Iðntæknistofnun, og eiga þau
eina dóttur, og Áslaug, f. 17. ágúst
1969, nemi. Systur Friöriks eru
Margrét, f. 28. nóvember 1930,
kaupmaður í Rvík, gift Orra Gunn-
arssyni, fulltrúa hjá Hörpu, og
Ásta, f. 26. janúar 1932, fulltrúi hjá
Tryggingastofnun ríkisins.
Foreldrar Friöriks eru Ólafur
Friðriksson, verslunarmaður í
Rvík, og kona hans, Sigríður Sím-
onardóttir. Föðurbróðir Friðriks
samfeðra er Friðrik prófastur á
Húsavík, faðir Arnar, prófasts á
Skútustöðum. Ólafur var sonur
Friðriks, húsvaröar í íslands-
banka, Ólafssonar, b. í Vestra-
Súlunesi í Leirársveit, Ólafssonar.
Móðir Ólafs var Valgerður Magn-
úsdóttir, b. í Litladal í Skagafirði,
Jónssonar og konu hans, Sigur-
rósar Sigurðardóttur.
Móðurbræður Friðriks samfeðra
eru þeir Hallur blaðamaöur og
Símon Símonarsynir, margfaldir
íslandsmeistarar í bridge. Sigríður
er dóttir Símonar, skipstjóra í Rvík,
Sveinbjamarsonar, formanns á
Kalastöðum, Þorvarðssonar, b. og
hreppstjóra á Kalastöðum, Ólafs-
sonar, langafa Þórarins, fóður
Guðmundar alþingismanns. Móðir
Þorvarðar var Margrét Svein-
bjamardóttir, prests á Staðar-
hrauni, Sveinbjamarsonar, bróður
Þórðar dómstjóra. Móðir Margrét-
ar var Rannveig Vigfúsdóttir,
sýslumanns á Hlíðarenda í Fljóts-
hlíð, Þórarinssonar og konu hans,
Steinunnar Bjarnadóttur land-
læknis Pálssonar. Móðir Steinunn-
ar var Rannveig Skúladóttir
landfógeta Magnússonar. Móöir
Símonar var Margrét, systir Sig-
urðar, langafa Páls, föður Tryggva
hagfræðings. Bróðir Margrétar var
Bjami, faðir Markúsar, fyrsta
skólastjóra Stýrimannaskólans,
afa Rögnvalds Siguijónssonar
píanóleikara. Margrét var dóttir
Kristjáns, skipstjóra á Akranesi,
Símonarsonar og konu hans, Þóm
Jónsdóttur, b. á Kópsvatni, Einars-
sonar. Móðir Þóru var Katrín
Jónsdóttir, b. í Reykjardal, Eiríks-
sonar, b. í Bolholti Jónssonar,
forföður Bolholtsættarinnar. Móð-
ir Sigríðar var Sigríður Jónsdóttir,
koparsmiðs í Rvík, Þórarinssonar,
b. á Rauöamel, Árnasonar og konu
hans, Gróu Jónsdóttur, b. á Þór-
ólfsstöðum, Andréssonar. Móöir
Gróu var Guðbjörg Magnúsdóttir,
prests á Kvennabrekku, Einars-
sonar og konu hans, Gróu Sigurð-
ardóttur, systur Egils, langafa
Ólafs, afa Jóns Baldvins Hanni-
balssonar. Móðir Sigríöar var
Fólk í fréttum
Fridrik Ólafsson.
Ágústa Sighvatsdóttir í Keflavik
Einarssonar, bróður Sveins, lang-
afa Sjafnar, móður Magnúsar
Jóhannessonar siglingamálastjóra.
Móðir Ágústu var Sigríður Gísla-
dóttir, b. á Stokkhólma, Þórarins-
sonar og konu hans, Þóru
Sæmundsdóttur, systur Einars,
langafa Amþórs, föður Vals,
stjórnarformanns SÍS.
Afmæli
Andlát
Guðmundur Eggertsson
Guðmundur Eggertsson, Tungu,
Gaulverjabæjarhreppi, er sextugur
í dag. Guömundur fæddist að Sæ-
bóli í Haukadal í Dýrafirði og ólst
þar upp hjá foreldrum sínum til
fullorðinsára. Guðmundur tók vél-
skólapróf hið minna á Þingeyri
1951 og fiskimannapróf hið meira
frá Stýrimannaskólanum í Reykja-
vík 1957. Hann var lögreglumaður
í Reykjavík frá 1956-62, verkstjóri
hjá Slippfélaginu í Reykjavík frá
1964-72 og síðan bóndi og sjómað-
ur. Guðmundur hefur verið lög-
reglumaður í Árnessýslu frá 1979.
Guðmundur kvæntist á gamlárs-
dag 1955 Idu Elvíru Olsó hár-
greiðslumeistara, f. í Kaupmanna-
höfn 4.7. 1932, dóttur Óskars
Vilhelms Henrí Olsó, skrifstofu-
stjóra hjá Tuborg í Kaupmanna-
höfn, og konu hans, Elvíru
Henríettu Olsó, en þau eru bæði
látin.
Guðmundur og ída eignuðust sex
börn: Óskar Vilhelm lést af slys-
förum 1986, hann var kvæntur
Önnu Kjartansdóttur og eignuðust
þau tvo syni, Birgi Vilhelm og Auð-
berg; Eggert, kvæntur Lilju
Guðmundsdóttur, þau eiga þrjú
börn, Kolbrúnu Dögg, Sólrúnu
Tinnu og Guðmund; Guðmundur
Pétur, kvæntur Elísabetu Pálma-
dóttur, þau eiga tvö börn, Karenu
Ósk og Pálma; Andrés; Rafn Hilm-
ar og Guðrún Elvíra eru enn í
foreldrahúsum.
Systkini Guðmundar: Jón Þor-
berg, fv. skólastjóri á Patreksfirði,
nú kennari í Reykjavík, kvæntur
Rósú Kemp Þórlindsdóttur, þau
eiga fimm börn; Andrés Magnús,
fv. skipstjóri, kvæntur Hannesínu
Tyrfmgsdóttur, þau eiga fimm
börn; Sigurbjörg Herdís húsmóðir,
gift Magnúsi Helgasyni, þau eiga
þrjú börn.
Foreldrar Guðmundar: Eggert
Guömundsson, f. 10.1.1883, d. 15.5.
1966, og kona hans, Guðríður
Gestsdóttir, f. 11.9.1897, hún dvelur
nú á Hrafnistu í Reykjavík. Fööur-
foreldrar Guðmundar voru
Guðmundur, b. í Höll í Haukadal,
Eggertsson, og kona hans, Elínborg
Guðmundur Eggertsson.
Jónsdóttir, Hákonarsonar, b. á
Sveinseyri í Dýrafirði, Jónssonar,
prests að Eyri við Skutulsfjörö,
Þorvaldssonar, hreppstjóra og
drbm. í Deildartungu. Guðmundur
og Elínborg áttu tíu börn. Foreldr-
ar Guðmundar í Höll voru Eggert,
b. í Höll, Magnússon og kona hans,
Björg Jónsdóttir. Foreldrar Guð-
ríðar voru Gestur Jónsson og
Ingibjörg Einarsdóttir, bæði breið-
firskrar ættar.
Baldur Guðmundsson
Baldur Guðmundsson trésmíða-
meistari, Brúarholti 8, Ólafsvík, er
fimmtugur í dag. Baldur fæddist í
Reykjavík og ólst upp í foreldra-
húsum, fyrstu fimm árin að Staða-
stað í Staðarsveit og síöan á
Neskaupstað en faðir hans var
þjónandi prestur á báðum stöðun-
um. Baldur var nýfermdur þegar
hann missti föður sinn. Baldur
hafði farið ungur til sjós og hann
flutti nú til Reykjavíkur þar sem
hann var á togurum og bátum í
nokkur ár. Hann hóf nám í tré-
smíði við Iðnskólann í Reykjavík
en hann lauk sveinsprófi 1971. Þau
hjónin fluttu til Bolungarvíkur
1960 og voru þar í þrjú ár, en í
Reykjavík frá 1963-73, og starfaði
Baldur við smíöar þann tíma. Þau
fluttu svo norður á Kópasker og
bjuggu þar í tólf ár, en þar vann
Baldur við smíðar auk þess sem
hann var skipstjóri þar á rækju-
bát. Fyrir tveimur árum fluttu þau
svo til Ólafsvíkur og hafa búið þar
síðan en þar rekur Baldur tré-
smíöaverkstæði.
Kona Baldurs er Alda, f. 1942,
dóttir Vilhjálms b. á Stóru-Heiði í
Mýrdal, Magnússonar og konu
hans, Arndísar Kristjánsdóttur, en
þau eru bæði látin.
Baldur og Alda eiga fimm böm:
Guðmundur, sjómaður á Kópa-
skeri, f. 1960, er kvæntur Kristínu
Friðriksdóttur, verslunarstjóra
Kaupfélagsins, en þau eiga tvö böm;
Amdís, starfsstúlka Landsbankans
í Ólafsvík, f. 1965, býr í foreldrahús-
um; Vilhjálmur, starfar hjá föður
sínum, f. 1971; Þórhalla Huldá, f.
1974; og Grétar Freyr, f. 1977.
Baldur á þrjú systkini: Helgi, for-
maður Menningar- og fræðslusam-
bands alþýðu, kvæntur Ragnheiði
Benediktsdóttur meinatækni, en
þau eiga tvö börn; Gylfi, skólastjóri
í Njarðvík, kvæntur Guðrúnu
Jónsdóttur kennara, en þau eign-
uöust þrjú börn og eiga tvö á lífi;
Kristín, skrifstofumaður á Sól-
vangi í Hafnarfirði, gift Bjarna
Haukssyni húsasmið, en þau eiga
Ijögur börn.
Foreldrar Baldurs eru bæði látin,
en þau voru séra Guðmundur
Helgason, f. 6.1. 1909, d. 6.7. 1952,
og kona hans Þorvalda Hulda
Sveinsdóttir, f. 18.2. 1916, d. 1984.
Föðurforeldrar Baldurs voru Helgi,
útvegsbóndi í Melshúsum í Hafnar-
firði, Guðmundsson, sjómanns á
Hellu í Hafnarfirði, Guðmundsson-
ar og kona Helga, Guðrún Þórar-
insdóttir, b. og smiðs í Fornaseli á
Mýrum, Þórarinssonar. Móðurfor-
eldrar Baldurs vom Sveinn, skóla-
stjóri í Bolungarvík og Garði og
bæjargjaldkeri í Kópavogi, Hall-
dórsson, og kona hans, Guðrún
Pálmadóttir.
75 ára
Þórhildur Kristinsdóttir, Bólstað-
arhlíö 14, Reykjavík, er sjötíu og
fimm ára í dag. Hún verður að
heiman á afmælisdaginn.
Gunnar Þorsteinsson, Mói, Dalvík,
er sjötíu og fimm ára í dag.
60 ára
Halldór Sigurðsson, Ljósheimum
20, Reykjavík, er sextugur í dag.
Herdís Tryggvadóttir, Laugarás-
vegi 17A, Reykjavík, er sextug í
dag.
Páll Andrésson, Múla, Reykhóla-
hreppi, er sextugur í dag.
50 ára_______________________
Eirikur Þorkelsson, Vesturbergi
63, Reykjavík, er fimnitugur í dag.
Ingigerður Guðmundsdóttir,
Bakkahlíö 29, Akureyri, er fimm-
tug í dag.
40 ára
Ólafía Sigriður Hansdóttir, Ála-
kvísl 23, Reykjavík, er fertug í dag.
Guðlaug Magnúsdóttir, Freyjugötu
34, Reykjavík, er fertug í dag.
Margrét Sigurmonsdóttir, Njarðar-
holti 8, Mosfellsbæ, er fertug í dag.
Stefán Lárusson, Byggðavegi 92,
Akureyri, er fertugur í dag.
Lovísa Halldórsdóttir
Lovísa Halldórsdóttir, Berg-
staðastræti 71, Reykjavík, lést 22.
janúar sl. Lovísa var fædd 13. nóv-
ember 1908 í Reykjavík og ólst þar
upp. Hún giftist 16. október 1928
Þórði Georg Hjörleifssyni, f. 14.
september 1903, skipstjóra, síðar
stöðvarstjóra hjá ESSO. Foreldrar
hans vora Hjörleifur Þórðarson,
trésmiður í Rvík, og kona hans,
Sigríður Rafnsdóttir. Böm þeirra
eru: Hrafnhildur, f. 30. apríl 1931,
bókavörður í Rvík, gift Lárasi Hall-
bjömssyni, f. 26. ágúst 1929, vél-
stjóra. Foreldrar hans vora
Hallbjörn Þórarinsson, trésmiður í
Rvík, og kona hans, Halldóra Sig-
urjónsdóttir. Hrafnhildur og Lárus
eiga þrjú börn: Hjördís Sigríður, f.
7. febrúar 1933, ritari í Rvík, gift
Guðmundi Rósberg Karlssyni, f. 3.
febrúar 1930. Foreldrar hans voru
Karl' Nilsson Jónsson, verkstjóri í
Rvík, og Steinunn Unnur Guð-
mundsdóttir. Hjördís og Guðmund-
ur eiga tvö börn. Andrea, f. 16.
desember 1936, skrifstofumaöur í
Hafnarfirði, gift ísleifi Bergsteins-
syni, eftirhtsmanni við hálofta-
rannsóknir á Keílavíkurflugvelli.
Foreldrar hans eru Bergsteinn
Hjörleifsson, múrari í Rvík, og
kona hans, Guörún ísleifsdóttir.
Andrea og ísleifur eiga þrjú börn á
lífi. Hjörleifur, f. 5. maí 1938, raf-
verktaki í Rvík, kvæntur Jensínu
Guðrúnu Magnúsdóttur, f. 7. jan-
úar 1942. Foreldrar hennar voru
Magnús Guðmundsson, sjómaður í
Rvík, og kona hans, Þórdís Árna-
dóttir. Hjörleifur og Jensína eiga
tvö börn. Ásdís, f. 17. júní 1939, gift
Valdimar Hrafnssyni, f. 24. nóv-
ember 1936, bifvélavirkja sem
rekur eigið skrúögarðafyrirtæki í
Los Angeles í Kaliforníu. Foreldrar
hans eru Hrafn Jónsson, forstjóri
í Rvík, sem nú er nýlátinn, og
Svava Valdimarsdóttir. Ásdís og
Valdimar eiga þrjú börn.
Systkini Lovísu: Guðmundur
Kristinn, f. 23. júlí 1895, d. 2. des-
ember sama ár. Högni, b. og
verkstjóri í Rvík, kvæntur Fann-
Lovisa Haildórsdóttir.
eyju Jónsdóttur Egilsson. Sigríður
Kristín, f. 7. janúar 1898, d. 7. apríl
1964, gift Oddi Björnssyni, af-
greiðslumanni á Akranesi.-
Guðmundur, f. 9. ágúst 1900, d. 13.
febrúar 1986, útsölustjóri hjá ÁTVR
í Rvík, kvæntur Ágústu Jóhanns-
dóttur. Guðmundur Valdimar, f. 31.
mars 1903, d. 18. október 1904. Sig-
ríður, f. 20. júní 1907, gift Stefáni
Þórðarsyni, sjómanni í Rvík. Sig-
urður, f. 7. maí 1910, d. 24. septemb-
er 1982, kaupmaður í Rvík,
kvæntur Kristínu Þorláksdóttur.
Guðríður, f. 4. nóvember 1911, gift
Lúðvík Thorberg Þorgeirssyni,
kaupmanni í Rvík. Ólafur Guð-
mundur, f. 21. október 1913, skrif-
stofustjóri í Rvík, kvæntur
Guðrúnu Hildi Halldórsson Niel-
sen.
Foreldrar Lovísu voru Halldór
Högnason, b. í Skálmholtshrauni,
síðar verslunarmaður í Rvík, og
kona hans, Andrea Katrín Guð-
mundsdóttir. Faðir Halldórs var
Högni, b. í Skálmholtshrauni í Flóa,
Jakobsson. Andrea var dóttir
Andreu Katrínar Guðmundsdótt-
ur, b. á Urriðafossi, Ámundasonar
og konu hans, Katrínar Andrés-
dóttur, b. og hreppstjóra í Syöra-
Langholti, Magnússonar, alþingis-
manns í Syðra-Langholti,
Andréssonar. Móðir Andrésar var
Katrín Eiríksdóttir, b. og dbrm. á
Reykjum á Skeiðum, Vigfússonar,
forföður Reykjaættarinnar.
Guðrún Arnfríður Tryggvadóttir,
Hróarsholti, Flóa, lést í sjúkrahúsi
Suðurlands þriðjudaginn 26. jan-
úar.
Daisy Saga Jósepsson lést á Borg-
arspítalanum mánudaginn 25.
janúar.
Anna Magnúsdóttir frá Villinga-
vatni andaðist á Sólvangi í Hafnar-
firði 27. janúar.
Margrét Jónsdóttir lést á Drop-
laugarstöðum að morgni 28. jan-
úar.
Guðmundur Árnason frá Ásgarði
í Vestmannaeyjum, Hólmagarði 58,
Reykjavík, lést 27. janúar á Hrafn-
istu í Reykjavík.