Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Qupperneq 30
42 FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988. Jarðarfarir Willý Frederiksen lést í Danmörku 9. þessa mánaöar. Jarðarforin hefur ^farið fram. Björn Konráðsson, fyrrverandi bú- stjóri á Vífilsstöðum, Hagaflöt 5, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Garðakirkju, Garðabæ, laugardag- inn 30. janúar kl. 13.30. Hansborg V. Jónsdóttir er látin. Hún fæddist hinn 29. nóvember árið 1898 í Éinarslóni á Snæfellsnesi. yoru foreldrar hennar hjónin Jón Ólafsson og Ásgerður Vigfúsdóttir. Hansborg giftist Annel Helgasyni, en hann lést árið 1983. Þau hjónin eign- uðust sex böm og eru þrjú á lífi. Áður en Hansborg giftist eignaðist hún einn son. Útfór hennar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15. Jarðsett verður frá Ingjaldshóli, Helhssandi, á morgun, laugardag, kl. 16. Sigríður S. Ingibergsdóttir lést 20. janúar sl. Hún var fædd í Reykjavík 22. júní 1911. Foreldrar hennar voru Sigurdís Jónsdóttir og Ingibergur Þorkelsson. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Skúli Sveinsson. Þau hjón- in eignuðust þrjú böm. Útfór Sigríð- ar verður gerð frá Háteigskirkju í dag kl. 13.30. Ágústa Ösp Grétarsdóttir, Mela- braut 11, Blönduósi, andaðist 17. janúar sl. Útforin hefur farið fram. Guðrún Jóhannesdóttir, Kirkjuvegi 3, Vík í Mýrdal, verður jarðsunginn frá Víkurkirkju laugardaginn 30. janúar kl. 14. Bílferð verður frá BSÍ kl. 10 f.h. Minningarathöfn um Magnús Geir Þórarinsson, sem fórst með mb. Bergþóri KE 5 þann 8. janúar sl., fer fram frá Keflavíkurkirkju laugar- daginn 30. janúar kl. 14. Minningarathöfn um Elfar Þór Jónsson, sem fórst með mb. Berg- þóri KE 5 þann 8. janúar sl., fer fram frá Keflavíkurkirkju laugar- daginn 30. janúar kl. 14. Útfor Aðalsteins Sigurjónssonar, Sölkutóft, Eyrarbakka, verður gerð laugardaginn 30. þ.m. kl. 14 frá Eyr- arbakkakirkju. Jóna G. Eiríksdóttir lést 21. janúar sl. Hún fæddist á Stokkseyri 9. nóv- ember 1908. Foreldrar hennar voru Margrét Jónsdóttir og Eiríkur Ei- ríksson. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Guðni Guðleifsson. Þau hjónin eignuðust ekki börn en ólu upp tvö fósturbörn. Útfor Jónu verð- ur gerð frá Keflavíkurkirkju í dag kl. 14. Sigurður Guðmundsson trésmiður lést 18. janúar sl. Hann var fæddur 12. mars 1914, sonur Guðmundar Einarssonar og Helgu Guðmunds- dóttur. Sigurður lærði ungur hús- gagnasmíði hjá Helga Helgasyni og síðar Davíð Grímssyni og vann við smíðar alla tíð síðan. Fyrst vann hann hjá Kristjáni Siggeirssyni í alU mörg ár og síðar mörg ár á eigin vegum, aðallega við smíðar á hand- riðum og loks á Árbæjarsafni við endursmíði gamalla húsa. Eftirlif- andi eiginkona hans er Guðfinna Jónsdóttir. Útfor Sigurðar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Hálfdán H. Þorgeirsson bifvélavirki lést 21. janúar sl. Hann fæddist á Þingeyri við Dýrafjörð 8. október árið 1922. Foreldrar hans voru hjónin María Bjamadóttir og Þorgeir Jóns- son. Hálfdán gerði bifvélavirkjun að ævistarfl sínu og hlaut sveinsbréf í þeirri grein árið 1953. Hann var verk- stjóri hjá Skodaverkstæðinu í Reykjavík í mörg ár en sl. 25 ár rak hann sitt eigið verkstæði á Dals- hrauni 1, Hafnarfirði. Eftirlifandi eiginkona hans er Einara Guðbjörg Björnsdóttir. Þeim hjónum varð ekki barna auðið en ólu upp fósturbörn. Útför Hálfdánar verður gerð frá Garðakirkju í dag kl. 13.30. Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eflirtöldum fasteignum: Snjóholt, Eiðahreppi, þingl. eign Eiða- hrepps, fer fram á eigninni sjálfri fóstudaginn 5. febrúar 1988 kl. 14.00. Uppboðsbeiðandi er Búnaðarbanki íslands. Skólavegur 74, Fáskrúðsfirði, þingl. eig. Rúnar Stefánsson, fer fram á eign- inni sjálfri fimmtudaginn 4. febrúar 1988 kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru Ámi Halldórsson hrl., Sigurmar K. Albertsson hdl., Viðar Már Matthías- son hdl., Ámi Pálsson hdl., Innheimta ríkissjóðs og Guðríður Þorsteinsdóttir hdL_________________________________ Búðavegur 40, Fáskrúðsfirði, þingl. eig. Hallgrímur Bergsson, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 4. febrú- ar 1988, kl. 14.30. Uppboðsbeiðandi er Ásgeir Thoroddsen hdl. Sýslumaður Suður-Múlasýslu t Móðir mín Margrét Jónsdóttir lést að Droplaugarstöðum að morgni 28. janúar. JÓN ÞÓR EINARSSON VETRARDAGSKRÁ FR-deildar 4 að Dugguvogi 2. Konukvöld Mánudaginn 1. febrúar kl. 20, mánudaginn 7. mars kl. 20, mánu- daginn 11. apríl kl. 20. Félagsvist sunnudaginn 31. janúar kl. 14, sunnudaginn 28. febrúar kl. 14, sunnudaginn 27. mars kl. 14. Fjölskyldubingó sunnudaginn 14. febrúar kl. 14, sunnudaginn 13. mars kl. 14. Skemmtinefnd FR-deildar 4 MYNDBANDAGERÐ (VIDEO) - INNRITUN 6 vikna námskeið í myndbandagerð hefst 1. febrúar nk. Kennt verður 2 sinnum í viku, mánudaga og miðvikudaga, 4 klst. hvert kvöld. Megináhersla er lögð á: kvikmyndasögu, mynduppbyggingu, eðli og notkun myndmáls í kvikmyndum, handritsgerð, auk æfinga í meðferð tækjabúnaðar, ásamt upptöku, klippingu og hljóðsetningu eigin myndefnis nem- enda. Kennari Ólafur Angantýsson. Kennslustaður Miðbæjarskóli. Kennslugjald er kr. 5.000,- Innritun í símum 12992 og 14106 kl. 13-19 þessa viku (til föstudags 26. jan.). Nauðungaruppboö Að kröfu ýmissa lögmanna og innheimtumanns ríkissjóðs, verða eftirtaldar bifreiðir og lausafjármunir seldir á nauðungaruppboði sem fram fer 5. febrú- ar í porti Skiptingar að Vesturbraut 34, Keflavík, kl. 16.00. G-17855 G-24031 J-179 M-3186 R-11467 R-19167 R-21459 R-27286 R-37046 R-54536 R-55955 R-65520 R-68265 S-2588 X-1640 Ö-37 Ö-170 Ö-452 Ö-617 Ö-667 Ö-904 Ö-1138 Ö-1166 Ö-1273 Ö-1287 Ö-1292 Ö-1455 Ö-1698 Ö-1788 Ö-1970 Ö-1989 Ö-2050 Ö-2221 Ö-2299 Ö-2458 Ö-2556 Ö-2704 Ö-2753 Ö-2938 Ö-3056 Ö-3279 Ö-3357 Ö-3600 Ö-3706 Ö-3707 Ö-3840 Ö-3863 Ö-3965 Ö-3995 Ö-4016 Ö-4079 Ö-4109 Ö-4206 Ö-4401 Ö-4497 Ö-4534 Ö-4561 Ö-4589 Ö-4610 Ö-4695 Ö-4809 Ö-4852 Ö-4878 Ö-4934 Ö-4951 Ö-4985 Ö-5Ö53 Ö-5059 Ö-5067 Ö-5073 Ö-5082 Ö-5095 Ö-5107 Ö-5163 Ö-5180 Ö-5288 Ö-5371 Ö-5434 Ö-5439 Ö-5485 Ö-5638 Ö-5666 Ö-5680 Ö-5742 Ö-5753 Ö-5763 Ö-5903 Ö-6007 Ö-6009 Ö-6055 Ö-6072 Ö-6370 Ö-6512 Ö-6554 Ö-6772 Ö-6957 Ö-7018 Ö-7054 Ö-7061 Ö-7221 Ö-7376 Ö-7449 Ö-7450 Ö-7552 Ö-7559 Ö-7573 Ö-7637 Ö-7646 Ö-7699 Ö-7724 Ö-7743 Ö-8007 Ö-8095 Ö-8108 Ö-8356 Ö-8435 Ö-8465 Ö-8513 Ö-8556 Ö-8560 Ö-8581 Ö-8603 Ö-8772 Ö-8778 Ö-8965 Ö-8985 Ö-9033 Ö-9165 Ö-9221 Ö-9402 Ö-9406 Ö-9539 Ö-9674 Ö-9771 Ö-9824 Ö-9941 Ö-9943 Ö-9944 Ö-9948 Ö-10044 Ö-10349 Ö-10461 Ö-10477 Ö-10518 Ö-10579 Ö-10685 Þ-1054 í-690 Ennfremur verða seld sjónvörp, hljómflutningsæki, videotæki og fleira. Uppboðshaldarinn í Keflavík, Njarðvík, Grindavík og Gullbringusýslu. Fréttir__________________________________dv Vigdís Finnbogadóttir: Elnkar legur Ólafur Amaison, DV, New York; Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís- lands, sagði í viðtali við DV síðdegis í gær að fundur hennar með Perez de Cuellar, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, hefði verið einkar ánægju- legur. Sagði hún að sér hefði þótt sérlega vænt um að aðalritarinn hefði í tvígang vikið að því hve ís- lendingar væru traustir aðilar að Sameinuðu þjóðunum. Hann hefði viljað færa þakkir til íslendinga fyrir þau heilindi sem \dð höfum sýnt í starfi á vettvangi Sameinuðu þjóð- anna. Sagði hún að greinilegt væri að íslendingar væru vel metnir sem þjóð á þeim vettvangi. Vigdís sagðist aldrei áður hafa komið í byggingu Sameinuðu þjóð- anna og að hún hefði haft mjög gaman af að skoða bygginguna í fylgd með aðstoðarframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. „Hann lagði mikla áherslu á að sýna mér lista- verk sem þjóðirnar hafa gefið Sameinuðu þjóðunum. Þau eru dreifð um bygginguna og gefa henni ákaflega alþjóðlegan svip. Mér þótti einnig gaman að sjá að Norðurlöndin ánægju- fundur hafa gefið við sem notaður er í hús- gögn í nokkrum fundarsölum.“ Aðspurð sagði Vigdís aö sér fyndist standa upp úr steinn sem Mexíkanar gáfu Sameinuðu þjóðunum. í hann eru rist orð Benito Juares: „Að virða rétt annarra verndar friðinn." Vigdís bætti því við að inni í Sameinuðu þjóðunum skynjaði maður heiminn sem sundurleita einingu. Vigdís Finnbogadóttir sagði að sér hefði þótt gaman að afhenda Louisu Matthíasdóttur fálkaorðuna. Það væri eitt af skemmtilegustu embætt- isverkum sínum að afhenda fálka- orðuna. „Það er vegna þess að þetta er eina aðferðin sem við íslendingar höfum til að sýna þakklæti okkar og að við metum þaö sem vel er gert. Það er enginn vandi fyrir einn ein- stakling að þakka öðrum einstakl- ingi. Þetta er hins vegar tákn fyrir þakklæti heillar þjóðar." Vigdís sagði að hver dagur þessar- ar heimsóknar sinnar tii Bandaríkj- anna hefði fært sér mikla ánægju og að þessi för hefði tekist vel. Hún sagðist hafa fundið fyrir hlýju og velvilja í garð íslendinga og það væri alltaf ákaflega gleðilegt. Umférðarijós í ólagi Helstu umferðarljósin í Reykjavík biluðu snemma í gærdag. Ljósin voru enn í ólagi er DV fór í prentun í morgun. Öll ljós á Kringlumýrar- braut og flest á Miklubraut hafa verið biluð. Bilunin er í tengikassa á Kringlu- mýrarbraut. Frá þeim tengikassa er miklum fjölda umferðarljósa stýrt. Af þessum sökum hafa myndast erfiðleikar í umferðinni. Lögreglu- maður, sem DV ræddi við, sagði að það hefði verið mikið verk að stjórna umferðinni í gær þegar umferðar- þunginn var hvað mestur. „Þegar ljósin bila sést best hvað umferðin er gífurlega mikil,“ sagði lögreglu- maðurinn. -sme Seltjamames: Enn leitað að 81 árs konu Guðríðar Kristinsdóttur, 81 árs, til heimilis að Ráðagerði á Seltjarnar- nesi, er saknað. Síðast er vitað um Guðríði á heimili sínu um hádegi á mánudag. Guðríður er 160 sentímetr- ar á hæð. Hún er áberandi grönn og kvik á fæti. Talið er að hún sé klædd í græna kápu með dökkt höfuðfat. Guðríðar hefur verið leitað á Sel- tjarnarnesi en án árangurs. Lögregl- an beinir því til fólks á Seltjarnarnesi og í vesturbæ að það svipist um í görðum sínum og útihúsum. -sme Bakar mnu fara að tilmæ Yerðlagsráðs Landssamband bakarameistara hélt fund með félagsmönnum sínum í gærdag þar sem ákveðið var að lækka verð í samræmi við óskir Verðlagsráðs, þ.e. að miðað yrði við verð sem ríkjandi var í desember auk 10,3% hækkunar. „Við erum ekki ánægðir," sögðu forsvarsmenn bak- ara, „en við munum fara að tilmæl- um Verðlagsráðs." Verðlagsráð féllst á að fjallað yrði um uppsafnaðan vanda nokkurra bakaría sem leiddi til þess að þau hækkuðu verð umfram 10,3% leyfi- Iega hækkun um áramótin. DV hafði einnig samband við fisk- sala í kjölfar lækkunar á ýsuflökum. Guðmundur J. Óskarsson, eigandi fiskbúðarinnar Sæbjargar, kvað lækkun á ýsu ekki óeðlilega eins og sakir standa. Stöðugleikinn á-mark- aðnum kallar á þetta, sagði hann. Hann kvaðst mundu lækka fiskinn á mánudag, 1. febrúar. StB Brauð og ýsa lækka „Sátt náðist á síöustu stundu," sagði Georg Ólafsson verðlagsstjóri í samtali við DV í gær um deilu verð- lagsráðs og bakara, en verðlagsráð kom saman í gær. Nokkur bakarí höfðu hækkað brauð umfram þau 10,3% sem efnahagsaðgerðir ríkis- stjórnarinnar kölluðu á. Georg sagði aö niðurstaða fundar- ins-hefði verið sú að Landssamband bakarameistara myndi beina þeim tilmælum til sinna manna að hækka verð ekki umfram 10,3% miðað við ríkjandi verð í desember. „Okkur er ljóst að nokkrir bakarar hafa hækk- að vörur sínar minna en sem nemur hækkun kostnaðarliða," sagði Ge- org, „og er þeim kleift að sækja um undanþágu sem verðlagsstofnun mun íjalla um.“ Á fundinum fékkst einnig sú niður- staða að lækka hámarksverð á ýsuflökum úr kr. 304 í kr. 280, að sögn Georgs, og mun verðlagsráð beina þeim tilmælum til fisksala að lækka verð á öðrum neyslufiski um samsvarandi prósentutölu. Á fundinum lá einnig fyrir að ræða lækkun á bensíni en þeim umræðum var frestað. StB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.