Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Qupperneq 32
44 FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988. Sviðsljós V '' ■I: rTBP'" 1 'r r!"' nHHHW ■ m 1 É msx- ífe ; ■ ** K ; giy VÍVÍ&í-.; m ■ k M. / J ! í ■ sj ?. Í' ^ ' Þau fylgdust grannt með öllum á reiðkennaranámskeiðinu, Ingunn Reynis- dóttir ritari, og kennararnir og dómararnir Reynir Aðalsteinsson og Eyjólfur ísleifsson. ^Tilþrifin voru oft glæsileg og nemendurnir fylgdust vel með því hvort allt færi nú rétt fram. DV-myndir S Reiðkermaranáinskeið í fyrsta siim hér á landi I Reiðhöllinni í Víðidal hefur síð- ustu daga farið fram Reiðkennara- námskeið í fyrsta sinn hér á landi. Það er Félag tamningamanna sem stendur fyrir þessum námskeiðum, og eru tveir af færustu tamninga- mönnum íslendinga kennarar á þessum námskeiðum. Hugsanlega verður þetta námskeið upphaf að stofnun Reiðskóla íslands. Markmiðið með þessum námskeið- um er að samhæfa reiðkennara en kennarar á námskeiðum segja þó að þessi námskeið séu allt of stutt og taka þurfi lengri tíma til þess að út- skrifa reiökennara. Þau námskeið, sem nú eru kennd, taka eina viku og síðan þurfa nemendur á nám- skeiðunum að þreyta erfitt próf. Ætlast er til aö þeir sem fara í þessi námskeið séu einnig færir hesta- menn. Opið í kvöld frá kl. 18.00-02.00 Hlynur og Daddi sjá um TONLIST TUNGLSINS Látbragós- og jazzdansarinn Crlstian Polos tekur listrœnt sóló úr "MOVING MEN" GULLINN VEITINGASTAÐUR þar sem áhersla er lögð á gæði og þjónustu r Grmistinn "DIDDI" kemur fram síðla kvölds og skemmtir matargestum með léttum gamansögum um lífið og tilveruna TfM; -mH UxktogMu: S.621635 fíf§§i -v /KvotinnL __—* Utuíít LakjartungH LakjarpötuZ Borðpantanir í símum 621625 og 11340. Snyrtilegur klæðnaður. Snyrtllegur klœónaóur. 20 óra aldurstakmark, Mióaveró 600, út í kuldann Loks kom að því, sem margir biðu eftir, aö upp úr slitnaði í sam- bandi Stefaníu prinsessu og glaumgosans Mario Jutaro. Ste- fanía prinsessa er konjin aftur heim til foðurhúsanna í Mónakó og hefur tilkynnt að sambandinu sé lokið. Mario Jutaro, sem er veitinga- húsaeigandi, er einn frægasti glaumgosi veraldar og fáir höfðu trú á því'að samband hans við Stef- aníu entist. Hann var áður þekktur fyrir að skipta oftar um kærustur en nærfót en tókst lengi vel að halda sér á mottunni. Margir voru jafnvel famir að halda að það yrði eitthvað úr þessu sambandi. Stefanía sjálf hafði ekki tekið neitt mark á sögusögnum um ótrygglyndi Marios og treysti hon- um til þess að verða sér trúr. En síðan varð hún óvænt vitni að því þegar hann var að bera víurnar í annað kvenfólk og þá var það búið með það sama. Mario greyið er víst ákaflega leiður yflr þessu öllu sam- an og grenjar í henni að fyrirgefa sér. En hún er harðákveðin og læt- ur ekkert bifa sér. Rainier fursti hafði aldrei sætt sig við samband Stefaníu og Marios og hafði bannað glaumgosanum að stíga fæti sínum inn í furstadæmið. Hann haföi jafnvel hótað Stefaníu því að gera hana arf- og titillausa ef hún giftist Mario. En fortölur Rainiers bitu engan vegin á Stef- aníu sem ávallt hefur gert það sem henni sýnist. Það var algerlega hennar eigin ákvörðun að shta sambandinu. Rainier er víst mjög kátur yfir þpssu öllu saman en er þó logandi hræddur um að Stefanía taki Mario í sátt og reynir því að halda henni upptekinni við annað. Eftir þónokkuð langt samband við glaumgosann Mario Jutare er Stef- anía prinsessa loks ein á ný og frjáls eins og fuglinn, ef einhver skyldi hafa áhuga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.