Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Blaðsíða 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Bitst|órr» - Auglýsirtgar ~ Áskrifft ~ Dreiftnci: Sími 27022!
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988.
Ríkisstjómin:
Deilt um
* nauðsyn
gengis-
fellingar
Ágreiningur er innan ríkisstjórn-
arinnar um nauðsyn á gengisfellingu
og breytingar á vextastefnu og er
ágreiningurinn á milli framsóknar-
manna annars vegar og sjálfstæðis-
og alþýðuflokksmanna hins vegar.
Telja framsóknarmenn í ríkisstjórn
nauðsynlegt að fella gengið og breyta
vaxtastefnu en hinir vilja fara sér
^^iægár í því máli.
Samkvæmt upplýsingum sem DV
hefur aflað sér stafar áhugi fram-
sóknarmanna á gengis- og vaxta-
breytingum meðal annars af því að
staða Sambandsins er erfið um þess-
ar mundir og afkoma frystihúsa SÍS
verri en annarra húsa. Talið er að
útreikningar þess efnis að frystingin
sé rekin með 8% tapi séu í lægsta
kantinum og hefur DV heimildir fyr-
ir því að SIS frystihúsin séu rekin
með 14-16% tapi á meðan tap frysti-
húsa innan Sölumiðstöðvar hrað-
'^írystihúsanna sé nálægt 10%. Nefna
má gífurlegan vanda nokkurra SÍS
húsa, svo sem á Patreksfirði, Suður-
eyri, í Þorlákshöfn og Hraðfrystihúss
Suðurnesja.
Samkvæmt upplýsingum DV er þó
talið að ekki verði komist hjá 4-6%
gengislækkun en ekki er búist við
slíkum ráðstöfunum fyrr en skýrari
línur eru komnar í kjarasamninga.
Þá er unniö að því að finna leiðir
til að bæta hag fiskvinnslunnar og
eru þær leiðir sem til athugunar eru
endurgreiðsla söluskatts í ár, skuld-
breytingar, niðurfelling launaskatts
og gengislækkun. Til að hægt verði
að greiöa söluskattinn til baka í ár
^:arf að útvega um 630 milljónir
króna og hefur ijármálaráðherra
hreyft hugmyndum um að takmörk-
uð verði fyrirgreiðsla vegna end-
umýjunar fiskiskipa en talið er að
meö því verði hægt að minnka við-
skiptahallann sem talinn er geta
orðið 10 milljarðar í ár.
-ój
LíftaTggingar
ili
ALÞJÓÐA
LIFTRYGGINGARFÉLAGIÐ HF.
I.AGML'LI 5 - RK.YKJ AVIK
Simi ítSI<44
LOKI
Verður þessi gengisfell-
ing þá bara SfS-felling?
hHta vinnuveítendur í dag:
Fara fram á 10%
„Ég myndi segj a að ef ekki slitnar
upp úr strax í dag verði reynt til
þrautar yfir helgina. En viðræð-
urnar gætu þess vegna sprungið í
dag og þá fljótlega eftir að þær hefj-
ast,“ sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson, formaður Verka-
mannasambands íslands, er DV
ræddi við hann. Samninganefhdir
VMSÍ og Vinnuveitendasambands
íslands munu mæta til fyrstu viö-
ræöna kl. 13.30 í dag.
Guömundur var spurður hvaöa
kröfur samninganefnd VMSÍ
mundi leggja fram i dag en hann
kvaöst ekkert vilja tjá sig um það.
En samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum blaðsins verður farið fram á
um það bil 10% hækkun á grunn-
töxtum, auk allmargra leiðréttinga.
Má þar nefna að taxtar verði aðeins
tveir, þ.e. að eftírvinna falli út, og
að fólk fái greitt fyrir matartíma í
hádegi um helgar. Þessar kröfur
miðast viö að samiö verði til
skamms tíma, þriggja mánaða eða
svo, ella mun samninganefndin
leggja fram verulega hærri kröfiu-
samkvæmt heimildum blaðsins.
Vinnuveitendur hafa sem kunnugt
er lagt á þaö áherslu að samið verði
til árs.
„Viö erum ekki til viðræðu um
samning á Vestfjarðanótunum,"
sagði Guðmundur J. „Hitt er annað
að það ber að þakka Vestfiröingum
að ryðjast út úr bónuskerfinu og
ég ætla ekki aö ganga fram fyrir
skjöldu með brigslyröi á hendur
Pétri og félögum fyrir vestan. VMSÍ
óskaði eftír að félög og sambönd
reyndu samninga og það tókst eng-
um að semja nema þeim fyrir
vestan. En það verður hins vegar
ekki samið um bónus á skrifborö-
um suður í Reykjavík, það er alveg
ijóst. Og slíkur samningur til árs
tæki alltaf 2-3 mánuði," sagði Guð-
mundur.
-JSS
■■I
Vigdís Finnbogadóttir og Perez de Cuellar, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, ræðast við i gær í bækistöðvum Sam-
einuðu þjóðanna i New York. Simamynd Reuter
Vigdís ræddi við aðalritarann
Ólafur Amaison, DV, New York;
Forseti íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, hitti í gærmorgun Perez de
Cuellar, aðalritara Sameinuðu þjóð-
anna, í skrifstofu hans á efstu hæð
háhýsis Sameinuöu þjóðanna í New
York.
í fór með Vigdísi voru Hans G.
Anderson, sendiherra íslands hjá
Sameinuðu þjóðunum, Kornelíus
Sigmundsson forsetaritari og Helgi
Gíslason, ræðismaður íslands í New
York, sem einnig er í fastanefnd ís-
lands hjá Sameinuðu þjóðunum.
Fundurinn hófst klukkan 11.00 og
stóð drykklanga stund. Að honum
loknum, klukkan 11.30, sýndi aðstoð-
arframkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, Aly lr Teymour, forseta
Islands húsakynni Sameinuðu þjóð-
anna og listaverk sem hinar ýmsu
þjóðir hafa gefiö samtökunum.
Hvöss
norð-
austanátt
Norðaustanátt verður ríkjandi
á landinu á morgun, allhvöss á
Vestfjörðum en kaldi eða stinn-
ingskaldi í öðrum landshlutum.
É1 verða á annesjum norðanlands
og við austur- og suðaustur-
ströndina en viða bjart veður á
suðvestan- og vestanverðu
landinu. Hitastig verður víðast
hvar um frostmark.
Hagkaupflyt-
ur inn egg
„Við höfum heyrt í framleiðendum
og þeir hafa látið í ljós óánægju með
afstöðu okkar. Við erum því núna
að leggja drög að því að flytja inn egg
og eigum von á að 10 tonn af eggjum
leggi af stað frá Holiandi um miðja
næstu viku til okkar,“ sagði Jón Ás-
bergsson, forstjóri Hagkaups, í
samtali við DV í morgun.
Jón sagði að vissulega væri laga-
hliöin á þessum eggjainnflutningi
ekki á hreinu en þeir Hagkaupsmenn
væru tilbúnir að láta reyna á það.
Bggjainnflutningur hefur ekki átt.sgr
stað hér á landi áður og ekki er ljóst
hvað innfluttu æggin kpsta en þau
verða verulega ódýrari en íSlensk að
sögn Jóns.
„Ef ekki er hægt að framleiða egg
á sanngjörnu verði hér á landi á ekki
að framleiða þau hér,“ sagði Jón.
Hann sagði ennfremur að viðræöur
hefðu farið fram við framleiðendur
og þar hefðu Hagkaupsmenn borið
fyrir sig verðútreikninga Neytenda-
samtakanna sem þeir teldu nærri
lagi. Á það hefðu framleiðendur ekki
viljað fallast og þvi væru þeir famir
að huga að innflutningi.
-SMJ
Brauðstriðið:
Gamla verðið
fram yflr helgi
Verðlagsráð tók þá ákvörðun á
fundi í gær að beina þeim tilmælum
til bakara að hækka ekki verð á
brauði næstu tvo mánuði nema sem
svarar til þeirra verðbreytinga sem
áttu sér stað um áramótin.
Landssamband bakarameistara
hefur bakkað með fyrri yfirlýsingar
um aö brauð verði ekki lækkað og
mun landssambandið táka undir ósk
Verðlagsráðs og beina því tíl félags-
manna sinna að lækka verð.
Nýja verðið mun hins vegar ekki
taka gildi fyrr en á mánudag og mun
þvi gamla verðið gilda fram yfir
helgi.
-StB