Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1988, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988.
Fréttir
Verður refabændum greitt
fyrir að hætta búskap?
Stjórnarflokkamir hafa skipað
nefnd til að fjalla um vanda refa-
bænda og benda á leiðir til úrbóta. í
nefndinni sitja Árni Gunnarsson,
Alþýðuflokki, Stefán Guðmundsson,
Framsóknarflokki, og Halldór
- sem þeim var greitt fyrir að hefja
Blöndal, Sjálfstæðisflokki. Að sögn
Áma Gunnarssonar, hafa nefhdar-
menn hugsað sér að skila hugmynd-
um sínum fyrir næstu helgi.
Það er ljóst að mikillvandi blasir
við refabændum en einnig er staða
fóðurstöðva slæm - svo slæm að
helmingi þeirra er vart hugað líf.
Meðal hugmynda, sem uppi em, er
að endurgreiða söluskatt ásamt bein-
um styrkveitingum. Staða sumra
refabænda er hins vegar svo slæm
að taliö er vænlegast aö aðstoða þá
til að hætta starfsemi, sem skýtur
vissulega skökku við, því í upphafi
var þeim greitt fyrir að hefja þennan
búskap. Er ekki annað að sjá en
stefna stjómvalda hafl beðið skipbrot
í loðdýrabúskapnum. Þrátt fyrir aö
margt jákvætt megi finna í minkabú-
skapnum þá hefur kollsteypan
undanfarin ár stefnt öllum loðdýra-
búskap í voða eins og glögglega má
sjá hjá fóðurstöðvunum. -SMJ
Akureyringar hafa lengst af verið duglegastir að halda við íshokkíiþróttinni hér á landi en eitthvað virðist
áhugi Reykvíkinga vera að glæðast. I gær var haldin bekkjakeppni Menntaskólans í Reykjavík á Tjörninni
og voru bæði strákar og stelpur í íshokkíliðunum. DV-mynd BG
Fjámiálaráðuneytið:
Frjáls innflutningur
á frönskum kartöflum
ffKemur mér alveg á óvart,“ segir Jón Helgason
Bjármálaráðuneytiö hefur sent
ríkistollstjóra túmæli um að af-
greiöa franskar kartöflur eins og
aðra iðnaðarvöru. Innflutningur á
þeim er því ekki lengur háöur leyfi
frá landbúnaöarráðuneytinu.
„Þetta kemur mér alveg á óvart,“
sagði Jón Helgason landbúnaðar-
ráðherra í samtali við DV f gær.
„Að mati okkar í ráöuneytinu falla
franskar kartöflur undir búvöra-
lög, eins og kartöflur og unnin vara
úr þeim. Bréf fiármálaráöuneytis-
ins var að berast hingað og engin
afstaöa hefur veriö tekin tíl efhis
þess.“
Aðspurður um hvort jöfnunar-
gjald á frönskum kartöflum yrði
hækkaö í kjölfar þessa sagöi JÓn
að það hefði legið Ijóst fyrir að end-
urskoða þyrfti jöfiiunargjaldið í
kjölfar tollabreytinganna um ára-
mótin þegar tollar á kartöflunum
lækkuöu. Jón vildi ekki segja hvort
gjaldiö yröi hækkað upp í 200 pró-
sent.
Ekki náöist í Jón Baldvin Hanni-
balsson fjármálaráðherra sem er
erlendis.
gse
Tapaði 300 þúsund krónum vegna innflutnSngsbannsins:
Sjö ráðherrar ekki
namsóknarmenn
- segir Haukur Hjaltason, kartöfluinnflytjandl
„Það era einir sjö ráöherrar í ríkis- heföi ekki leiörétt þaö.“ nemur því hátt í 300 þús. krónur.
sfjóminni sem ekki era framsókn- Haukur hefur þurft aö geyma um „Mér kæmi ekki á óvart að ráö-
armenn. Eg fiafði því aldrei trú á
þvi að landbúnaðarráöherra kæm-
ist upp meö þetta gerræöi," sagði
Haukur Hjaltason, einn af fjórum
innflytjendum franskra kartaflna,
í samtali við DV. „Þaö er ekkert
fordæmi um aö vara sem búin er
að vera á frílista í 25 ár sé allt í
einu bönnuö. Ég er sannfærður um
aö ég heföi unniö máliö fyrir
Hæstaréttí ef fjármálaráðherra
5 tonn af frönskum kartöflum á
hafnarbakkanum í Reykjavík frá
þvi í byijun janúar þar sem inn-
flutningsleyfi hefur ekki fengist frá
landbúnaðarráöuneytinu. I stað
þess aö flytja kartöflumar í vöru-
geymslur fýrirtækisins hefur hann
þurft aö borga 185 dollara á dag í
leigu á gámum. Beint tap hans
vegna hringlanda ríkissljómarinn-
ar varðandi frönsku kartöflumar
herra setti nú á okkur 200 prósent
jöfnunargjald og rökstyddi þaö með
þvi að franskar kartöflur væru niö-
urgreiddar erlendis. Það er hins
vegar fjarri sanni. Ég hef skeýti,
bæöi frá Bandaríkjunum og Holl-
andi, því til sönnunar. Þar segir aö
kartöflumar séu ekki niöurgreidd-
ar undir nokkrum kringumstæð-
um,“ sagöi Haukur Hjaltason.
-gsc
„Eignumst stöð á
heimsmælikvavða"
100 milljón kr. fóðurstöð reist á Sauðárkróki
„Við erum aö byggja hérna alvöru
fóöurstöð, stöð á heimsmælikvarða,"
sagöi Ragnar Barðdal, einn eigenda
fóðurstöðvarinnar Melrakka á Sauð-
árkróki. Stööin verður væntanlega
tekin í notkun í vor en enn er eftir
að setja eitthvaö af vélum upp í stöö-
inni. Fjárfesting í fóöurstöðvum í
loðdýrabúskap hefur verið gagnrýnd
og stöðvarnar sagðar allt of stórar
miöað við þörf þeirra í dag. Ragnar
var spurður um réttmæti þessarar
gagnrýni.
Hann sagði að vissulega væri þessi
stöö höfð stór og væri þá verið að
hugsa fyrir þörflnni sem ætti eftir
að skapast. Stöðin á Sauðárkróki
kostar 100 milljónir kr. og er alger-
lega byggð fyrir lánsfé. „Ég er ekki
í nokkrum vafa um að stöðin getur
staöiö undir þessari upphæð. Hún
kemur til með að framleiða um 15.000
tonn af fóðri á ári sem dugar fyrir
60.000 læöur sem gefa af sér 300.000
skinn. Hér er því um að ræða gjald-
eyristekjur upp á 450 milljónir kr. á
ári.“ Ragnar bætti því við að í kring-
um verksmiðjuna yrðu fóst störf
fyrir 80 bændur og þar að auki 40 til
60 önnur ársverk.
Mikil dreifingarkostnaður á fóðri
hefur verið talinn eiga hlut að þeim
vanda sem við er að glíma í loödýra-
búskap. Því er ekki nema von að
menn velti fyrir sér hvort þessi stóra
fóðurstöö á Sauðárkróki leiði til þess
að búin þjappi sér í kringum stöðina.
Væri það í samræmi við hugmyndir
sem hafa komið frá Danmörku en
þar eru loðdýrahverfi sem hafa
stuðlað að mun betri rekstri.
-SMJ
Mök við sfjúpdóttur:
Hæstiréttur létti
dóminn um eitt ár
Hæstiréttur hefur dæmt í máli
ákæruvaldsins gegn Kristni Ingi-
bergssyni. Hæstiréttur dæmdi Krist-
in í tveggja og háifs árs fangelsi. í
Sakadómi Hafnarfiarðar var Krist-
inn dæmdur í þriggja og hálfs árs
fangelsi.
Meirihluti Hæstaréttar telur sann-
að að Kristinn hafi haft kynferðis-
mök viö þáverandi stjúpdóttur sína.
Verknaðurinn á að hafa farið fram á
heimili Kristins og fyrrvemdi sam-
býliskonu hans og móður stúlkunnar
að morgni laugardagsins 14. júlí 1984.
Meirililuta Hæstaréttar skipuðu;
Magnús Thoroddsen, Guðmundur
Jónsson, Hrafn Bragason og Sigurð-
ur Líndal prófessor.
Kristinn hefur aldrei játað verkn-
aðinn. Guðmundur Skaftason
hæstaréttardómari skilaöi sérat-
kvæði. í sératkvæði hans segir meðal
annars: „Atvik málsins benda með
vissum hætti til þess, að ákæröi sé
sekur um kynrænt ofbeldi gagnvart
stúlkubaminu, og þá einkum það, að
öðrum karlmanni er ekki til aö
dreifa.“ Guðmundur segir enn-
fremur að þar sem ekki sé komin
fram fullnægjandi sönnun 'jm sekt
ákærða beri að sýkna hann.
Hæstiréttur átelur héraösdómar-
ann fyrir drátt sem var á málinu í
héraöi. Hæstiréttur segir að ekki
veröi séö að neitt hafi verið aöhafst
í málinu á tímabilinu frá 11. júní 1985
til 2. desember 1986.
-sme
Hjartaþeginn á góðum batavegi:
Var á röltinu fyrir
utan sjúkrahúsið í gær
„HaUdór fór út í gærdag og var
töluvert á röltinu fyrir utan sjúkra-
húsið en hann fór fyrst út úr húsi á
sunnudaginn,“ sagöi Gróa Halldórs-
dóttir, systir Halldórs Halldórssonar,
en í gær var liðinn hálfur mánuður
frá því skipt var um hjarta og lungu
í honum.
Gróa og maður hennar, Þorkell
Sigurðsson, hafa dvalið í London frá
því Halldór fór í aðgerðina. Gróa
sagði að Halldóri liði ágætlega nema
hvað lyfin færa ekki nógu vel í hann.
„Halldór fékk smáhitavott í gær-
kvöldi en var hitalaus í morgun.
Hann er aUtaf í æfingum og fær aö-
stoð sjúkraþjáifara á hveijum degi
enda er hreyfing snar þáttur í endur-
hæfingunni.
Eftir að HaUdór fór aö geta farið
út úr sjúkrahúsinu getur hann varla
beðið eftir því að fá að koma í heim-
sókn til foreldra sinna en þeir búa
rétt hjá spítalanum. Það ætti ekki að
vera svo langt þangað til það verður
hægt,“ sagði Gróa HaUdórsdóttir.
-ATA