Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1988, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988.
17
Lesendur
Bréfritar! segist kviða því ef ökumönnum verður leyft að gera upp tjón sín ð milli á götum úti eftir umferðaróhapp,
án þess að lögreglan komi þar nærri.
Nýju umferðariögin:
Tjónauppgjör á víða-
vangi án lögreglu?
S.G. hringdi:
Ég er engan veginn ánægður með
það fyrirkomulag, sem er samfara
nýju umferðarlögunum, að menn
geti valið um það hvort þeir láta kalla
til lögregluna eða ekki, þegar eitt-
hvaö ber út af í umferðinni, og
ökumenn megi gera upp tjón sín á
milli.
Þetta er eitt þeirra atriða sem ég
hræðist verulega mikið. Hvemig
skyldi ástandið verða? Ekki vildi ég
lenda í því að þurfa að sæta skakka-
fóllum af völdum ökufants, sem ekur
um götumar á 140 km hraða, eins
og þess er getið var í frétt nýlega.
Ég er viss um að margir vildu ekki
þurfa að lenda í þvi að eiga sam-
skipti viö svona menn.
Ég er orðinn nokkuð við aldur og
hef hvorki þrek né þor til að standa
i útistöðum við menn á götum úti.
Menn munu segja sem svo: Ja, ég er
nú ekki með ökuskírteini á mér en
skal bara hafa samband við þig
seinna... Og eitthvað í þessum dúr
munu orðaskipti verða, þegar menn
komast upp á lag með að ekki er leng-
ur skylda að kalla til lögreglu á
staðinn.
Ef lögreglan hefur ekki lengur tíma
eða mannskap til að sinna hverju
útkalli sem orsakast af ákeyrslum
er illa komið málum í umferðinni hjá
þjóð sem virðir að vettugi hvers kon-
ar lög og reglur sem að umferðinni
lúta.
Eftir því sem lesendasíða DV kemst
næst verður ennþá hægt að kalla til
lögreglu á vettvang vegna hvers kon-
ar óhappa og slysa sem kunna að
henda í umferðinni. Það ætti því að
vera ástæðulaus kvíðinn hjá bréfrit-
ara fyrir því aö eiga ekki innhlaup
hjá vörðum laganna hér eftir sem
hingað til.
Bogglapóstur til íslands:
llmvatn hvarf úr pakka
Sigr. Þóroddsdóttir hrmgdi:
Hinn 13. nóvember sl. fékk ég
pakka frá London. í pakkanum var
litið snyrtiveski og slæða. Þetta var
gjöf frá dóttur minni. Þegar hún
spyr mig svo að því síðar hvemig
mér hafi líkað ilmvatnið, sem átti
að hafa verið í pakkanum, kom það
flatt upp á mig því að það hafði
ekki verið með.
Er ég tók viö pakkanum sá ég aö
hann hafði veriö rifinn upp og síð-
an límdur aftur. Ég er ekki að
gagnrýna það aö pakkinn skuli
hafa verið opnaður. Það sem mér
sámar mest er að geta ekki treyst
því að innihald pakka komist til
skila. Ég bar raig upp við fulltrúa
hjá Bögglapóststofu, sem mér var
vísað á að hafa samband við, en þar
gat viökomandi ekki gefið neinar
skýringar og hef ég ekki ástæðu til
aö rengja þennan aöila eða gagn-
rýna svör hans.
Það á hins vegar að vera hægt
aö treysta því að ekkert hverfi úr
pökkum sem sendir eru hingað tii
lands jafnvel þótt þeir séu opnaöir
og innihald kannaö. Það er afar
siæmt þegar viðtakendur þurfa að
sætta sig við afgreiðslu sem þessa
og það þegar vifni era aö því þegar
gengið er frá innihaldi pakka viö
sendingu.
Vonandi heyrir svona tilfelli til
undantekninga og því ætti viökom-
andi stofnun að bæta viötakanda
óþægindin eða koma til móts viö
hann á einhvem þann hátt sem
fullnægjandi er talinn.
% ' IIÁ ÍSLENSKAR GETRAUNIR
V Hl (þróttamiðstððínni v/Sigtún -104 Reykjavlk - Island • Sími 84590
GETRAUNAVINNINGAR!
24. LEIKVIKA - 13. FEBRÚAR 1988
VINNINGSRÖÐ: 1 X2-1 2X-X2X-211
1. VINNINGUR, kr. 661.368,96, flyst yfir á 25. leikviku
þar sem engin röð kom fram með 12 rétta.
2. VINNINGUR, 11 RÉTTIR, kr. 283.443.
50394
Kærufrestur er til mánudagsins 7.03.88 kl. 12 á hádegi.
SJÓNVARPSBINGÓ Á STÖÐ 2
mánudagskvöldið 8. febrúar 1988
Vinningar í fyrri umferð þegar spilað var
um eina lárétta línu.
Spilað var um 10 aukavinninga, hvern að
verðmæti kr. 50.000, frá Hljómbæ.
54, 77, 28, 84, 5, 61, 38, 53, 80, 12, 34, 66,
78, 21, 7, 79, 60
Spjöld nr. 20089
Þegar talan 60 kom upp var hætt að spila
upp á aukavinningana.
Þegar spilað var um bílinn komu eftirfarandi
tölur upp. Spilað var um þrjár láréttar línur
(eitt spjald).
142,16,89,26,68,1,36,72,45,6,17,88,71,
: 67,9,52,20,44,14,63,4,49,33,8,70,41,
82, 10, 35, 46
Spjald nr. 12689
i
OGUR
STYRKTARFELAG
SÍMAR 673560 OG 673561
tV\A)
VERUM A VERÐI
Neytendasíóan gefur aug-
lýsingamálum viðskipta-
ráðuneytisins gaum á
morgun. Tilefnið er nýstár-
legar aðgerðir til að efla
verðskyn almennings með
auglýsingum á vegum
ráðuneytisins þar sem
kannanir Verðlagsráðs eru
hafðar til hliðsjónar. Jón
Sigurðsson viðskiptaráð-
herra segist ætla að aug-
lýsa á þennan hátt i
framtiðinni til að treysta
samkeppni og upplýsa
neytandann i hverri viku um
hægstæðasta vöruverðið
hverju sinni. Nánar i Lífsstíl
á morgun.
Þeir eru margir sem berjast við
aukakilóin - en án nokkurs árang-
urs. Á morgun veröa birtar f DV
nokkrar uppskriftir að girnilegum
hrísgrjónaréttum. Einnig verða
birtar í DV á morgun athyglisverð-
ar niðurstöður úr breskum og
bandariskum rannsóknum. Þær
þykja sanna að fylgni sé milli hollr-
ar fæðu og aukins námsárangurs.
Lesið um þetta f Lífsstil á morgun.
'T^j/yywdAÁc/&4i
Fyrsti dagur i góu,
öðru nafni konudag-
ur, er á sunnudaginn
ogþá gefaaltirgóöir
eiginmenn konum
sinum blóm, eða
hvað? I Lifsstil á
morgun verðurstikl-
að á stóru um
konudaginn rætt við
starfsfólk i blóma-
búðum, unnusta og
eiginmenn, auk þess
sem gerð er lausleg
könnun á verði af-
skorinna blóma.