Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1988, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1988, Blaðsíða 33
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988. 33 kr. sem er heildsöluverð. Útsöluverð lopa er 872 kr. Kona, sem hefur með höndum inn- kaup hjá Hildu hf., sagði aö konur kæmu með 2-5 peysur á viku hverri, en flestar aíköstuðu þó þremur peys- um á viku. Hún vildi þó meö engu móti gefa upp innkaupsverð peys- anna. Hjá Rammagerðinni fengust þær upplýsingar aö þar stæðu nú yfir breytingar og því væri ekki hægt að taka við ullarpeysum fyrr en í mars. Gert er ráð fyrir að borgað verði frá 1.600-2.075 kr. fyrir hverja peysu, aUt eftir stærð og gerð. Útsöluverð til ferðamanna er hins vegar um helm- ingi hærra, 3.200-4.200 kr., inni í því verði er auðvitað söluskattur og mis- munurinn er því álagning. Steinar Jónasson, verslunarstjóri verslunar Álafoss á Vesturgötu 2, sagði að þær vörur, sem versluninni bærust, færu í strangt gæðaeftirlit. Þeir taka við peysum og borga fyrir sama verð og Rammagerðin. Þar eru stórar og hnepptar herrapeysur keyptar á hæsta verðinu eða 2.075 kr. Álagning þar er svipuð og í Rammagerðinni eða um 95% sé sölu- skattur reiknaður meö. íslenskur heimilisiðnaður hefur einnig tekiö við lopapeysum frá prjónakonum. Verðið þar er það sama og Rammagerðin og Álafoss greiða sínum umbjóðendum. Á þess- um þremur stöðum er prjónakonum gefinn kostur á að kaupa lopann á útsöluverði eða 600 kr. fyrir kg. Á þessum stöðum, sem leitað var til, var almennt áht fólks að magn lopa í peysur væri yfirleitt á bilinu 6-800 g, allt eftir stærð að sjálfsögðu. Því má segja að kostnaður við hverja peysu sé um 350-500 kr. en afrakstur- inn um 1.250-1.500 kr. Það er því deginum ljósara að eng- inn verður veraldlega ríkur af því að selja lopapeysur. Hins vegar er þörf hjá öllum að finna að einhvers staðar séu not fyrir sig. Allir verða að gera gagn einhvers staðar. Heim- ilisiðnaður af þessu tæi veitir því t.d. þeim atvinnutækifæri sem ekki eru færir um að komast út á hinn al- menna vinnumarkað eða eftirlauna- fólki sem vill hafa eitthvað fyrir stafni. -ÓTT Maður verður nú að fá einhverja aura fyrir það sem maður hefur á prjónunum. Lífsstm Hótelíbúðir Nýtt fyrirkomulag á íbúðamarkaðnum Fyrirtækið Dögun hf. keypti á dög- unum lóð þá þar sem áður var Timburverslun Ama Jónssonar. Hér er um að ræða um 4.000 fermetra svæði sem nýbúið er að bjóða út til sölu. Ætlunin er að hrinda í fram- kvæmd á þessari lóð algerri nýjung í húsnæðismálum hér á landi. Þeir sem standa að þessum framkvæmd- um kalla fyrirbærið hótehbúðir. Gert er ráð fyrir aö stórt og mikiö hús verði reist og í því munu veröa um 70-90 íbúðir. Húsiö mun samtals verða- um 2.000 fermetrar fyrir bha- geymslu, 580 fermetra atvinnuhús- næði og 5.200 fermetrar verða ætlaðir sem íbúðarhúsnæði. Mest verður af 2ja herbergja íbúðum og eitthvað verður af 3ja herbergja íbúðum. Þótt hér sé talað um hótehbúðir er vert að geta þess að ahar íbúðirnar verða þinglýstar séreignir hvers eiganda. Ibúðirnar verða allar afhentar fuh- búnar meö húsgögnum, sjónvarpi, sængurfatnaði, ísskáp og eldhúsá- höldum. Hugsunin á bak við þessar hóteh- búðir má segja að sé eitthvað sem kahast gæti mihivegur mihi hótel- herbergis og leiguíbúðar. Hentugt er t.d. fyrir fyrirtæki, sveitarfélög, að- standendur sjúkhnga, sem koma frá landsbyggðinni, og þá sem stoppa stutt við í höfuðborginni á ári hverju að eiga svona íbúðir. Eigendur geta leigt öðrum húsnæði sitt þegar þeim hentar ekki að nota íbúðir sínar sjálf- ir. Við aðalinngang hússins verður móttaka fyrir eigendur eða gesti íbúöanna svipað og á venjulegu hót- eh. Rekstur hússins verður með þeim hætti að eigendur mynda húsfélag eöa stjóm sem síðan ræður íbúðahót- elstjóra. Hann mun síðan sjá til þess að fá fólk til starfa til bókana, að skipta á rúmum vikulega og við þrifnað. Á jarðhæð þessa stóra húss, Laugavegsmegin, verður matvöru- verslun, fatahreinsun eða þvottahús, bakarí og fleiri þjónustufyrirtæki fyrir íbúa hússins. Þau fyrirtæki verða öll með einkarekstur. Á vegum hótelstjómar verður hins vegar veit- ingastaður, þvottahús, videokerfi, símarekstur og fleira. Ibúðaverð verður hærra en á hin- um almenna fasteignamarkaöi eins og gefur aö skilja. Kaupverö verður á bihnu 4-5 milljónir á íbúð og er það með hlutdehd í bhskýh. Búið er að leggja drög að leiguverði á hverja íbúð og má gera ráð fyrir aö 2ja her- bergja íbúð, sem rúmað getur fjórar þegar hann gerði sér grein fyrir að á algengum ferðamannastöðum, eins og á Costa del Sol á Spáni, væri al- gengt að íbúðir væm leigðar svona út. E1 Remo er t.d. hótelbygging á sama stað, sem margir íslendingar kannast við, og er rekin af fyrirtækj- um eða félögum eða með svipuðu manneskjur, múni verða leigð á sama verði og 2ja manna herbergi á hóteh yfir sumarið. Því má fastlega gera ráð fyrir að verðið verði á bilinu 4-5.000 kr. á nóttina yfir sumarmán- uðina. Að vetri er fyrirhugað að Heimilið íbúðirnar verði leigðar á 25-35.000 kr. á mánuði. íbúðirnar ættu því að geta nýst þeim sem aðeins eiga stutta viðdvöl í bænum verulega. Hugmyndina að þessu íbúðafyrir- komulagi átti Hjörtur Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Döguhar hf. Hann segist fyrst hafa farið að velta vöngum yfir slíkum framkvæmdum sniði og fyrirhugað er með Lauga- vegshúsiö. Hjörtur segir það einnig hggja í augum uppi að margir sumar- bústaöir hér á landi, eins og þeir sem eru í eigu félagasamtaka, eru reknir á þennan hátt. „Hvers vegna ætti þá ekki að vera hægt að reka íbúðar- húsnæði í þéttbýli með svipuðu sniði?“ sagði Hjörtur. Óhætt er að segja að þarna sé nýj- ung á ferð í íslenskum húsnæðismáí- um. Ætlunin er a.m.k. að hús þetta muni hýsa ólíka hópa fólks, allt frá námsfólki th erlendra ferðamanna. Þessi hugmynd býður því upp á marga möguleika í húsnæðismálum sem aldrei hafa áður skotiö upp koll- inum. Hinn þröngi leigumarkaður hér á landi ætti a.m.k. ekki að versna með tilkomu þessa húss. Svo er bara að bíða og sjá hvort ein- hverjum lánum úr Húsnæðisstofnun verður úthlutað th kaupa á þessum íbúöum. -ÓTT Urval Tímarit fyrir alla HENTAR ÖLLUM ALLS STAÐAR - Á FERÐALAGINU JAFNT SEM HEIMA MEÐAL EFNIS: Skop 2 • Ógnvænlegt valdatafl á Persaflóa 3 • Síamstvíburarnir í Brasilíu 10 • Maðurinn sem varði heiður sinn 15 • Ekki eyðileggja fortíðina 19 • Fulltrúi syndarinnar á þingi 23 • Sköpunargáfa og þunglyndi 31 • Hve vel þekkir þú maka þinn? 35 • Til Meg sem er að verða þrettán 39 • Röð af tilviljunum 41 • Hugsun í orðum 47 • Saga af svikum: Toshibahneykslið 48 • Nýtt lyf gegn kólesteróli 55 • Diplómat eftir dauðann 60 •Kuklarakreddur og læknisdómar 75 • Hvaða vikudag fæddist þú? 81 • Er farið að halla undan fæti fyrir þér? 86 • Völundarhúsið 96 •

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.