Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1988, Qupperneq 8
8
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988.
Yfirmenn hætta oftast
strax í harðri samkeppni
- segir Þórir Einarsson prófessor
Viðskipti
Þórir Einarsson, prófessor í vió-
skiptafræði og kennari i stjórnun.
„Sýnist að oftast verði það að sam-
komulagi aö yfirmenn i fyrirtækjum
sem búa við harða samkeppni og
ráða sig til samkeppnisaðila hætti
samdægurs.“
„Það eru engar sérstakar kenning-
ar í gangi um þetta atriði. Ég held
að þetta snúist fyrst og fremst um
mat vinnuveitandans á viðkomandi
starfsmanni. En mér sýnist samt að
oftast verði þaö að samkomulagi að
yfirmenn í fyrirtaekjum sem búa við
harða samkeppni og ráða sig til sam-
keppnisaðila hætti samdægurs,"
segir Þórir Einarsson, prófessor í
viðskiptadeild Háskóla íslands og
kennari í stjómun.
Þórir segir aö erlendis, í löndum
eins og Bandaríkjunum, séu miklu
meiri sviptingar í viðskiptalífinu.
„Þar em framkvæmdastjórar og for-
stjórar meira í óvæginni samkeppni
og þar hætta þeir oftast samdægurs.
Hér er öðmvísi viðskiptaþjóðfélag.
Samkeppnin er ekki eins hörð, ekki
eins óvægin og persónuleg og vissar
siðareglur em virtar.“
Um það merkilega dæmi að nýráð-
inn bankastjóri Verslunarbankans,
Tryggvi Pálsson, sé enn að störfum
sem framkvæmdastjóri fjármála-
sviðs Landsbankans, segir Þórir.
„Það er mikil samkeppni á milh alira
bankanna og greinilegt að ákvarðan-
ir'eins og um vextina em samkeppn-
isatriði. Ég tel samt að ekki sé um
óvægna samkeppni að ræða. Það
veltur því mjög á vinnuveitandanum
sjálfum, í þessu tilviki Landsbankan-
um, hvaða traust hann ber til
viðkomandi starfsmanns og hvort
hann telji það brýna nauðsyn að
hann hætti samdægurs."
Þórir segir epnfremur að ekki megi
gleyma jákvæðu áhrifunum við að
menn skipti um starf. „Ég er þeirrar
skoðunar að það sé jákvæð þróun ef
menn skipta um starf með ákveðnu
millibili. Eg tel að bankakerfið styrk-
ist þegar góöir menn fara á milli
banka. Það sýnir að bankakerfið er
orðið opið og svona breytingar virka
því hvetjandi.“
Um það atriöi hvort maður, sem
hefur ráðiö sig til annars fyrirtækis,
sé ekki kominn með hugann þangað
og nýtist því ekki sem skyldi á upp-
sagnartímanum, segir Þórir: „Það er
mjög misjafnt og fer eftir ábyrgðartil-
finningu hvers og eins. Én þegar
verið er að ræða um menn í störfum
framkvæmdastjóra eða forstjóra
hlýtur það að vera kappsmál hvers
og eins að skilja vel við, annað spyrst
út. Eins má heldur ekki gleyma þeirri
gagnkvæmu virðingu sem verður að
ríkja á milii fyrirtækis og viðkom-
andi starfsmanns,“ segir Þórir
Einarsson prófessor. -JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 22-23 Lb.Bb. Ib
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 23-25 Ab.Sb
6mán.uppsógn 24-27,5 Ab
12mán. uppsögn 24-30,5 Úb.Ab
18mán. uppsögn 34 Ib
Tékkareikningar, alm. 11-12 Sp.lb, Vb.Ab, Lb.Sb
Sértékkareikningar 12-25 Ab
Innlán verötryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6 mán. uppsögn 3,5-4 Ab.Úb, Lb.Vb. Bb.lb
Innlán með sérkjörum 18-34 Sb.Lb
Innlángengistryggð
Bandarikjadalir 6-7 Úb.Vb, Ab.Sb.
Sterlingspund 7,50-8 Ab.Vb
Vestur-þýsk mörk 2-3 Ab.Vb
Danskar krónur 8-9 Vb.Ab
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 34-36 Úb
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) 36 eða kaupgengi
Almennskuldabréf 37 Allir
Viöskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr) 37-39 Bb
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 9,5-9,75 Allir nema Úb
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 33-36 . Lb.Bb
SDR 8-8,50 Lb.Bb. Sb
Bandarikjadalir 10,25-10. Lb.Bb,
75 Sb.Sp
Sterlingspund 10,50-11. 25 Úb
Vestur-þýsk mork 5-5,75 Úb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 51,6 4.3 á mán.
MEÐALVEXTIR
óverðtr. feb. 88 36,4
Verðtr. feb. 88 9.5
VlSITÖLUR
Lánskjaravisitala feb. 1958 stig
Byggingavísitala feb. 344 stig
Byggingavisitala feb. 107,4stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 9% . jan.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Avöxtunarbréf 1,3927
Einingabréf 1 2,660
Einingabréf 2 1,549
Einingabréf 3 1,660 /
Fjölþjóöabréf 1,268
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2,660
Lífeyrisbréf 1.337
Markbréf 1,374
Sjóðsbréf 1 1,253
Sjóðsbréf 2 1,173
Tekjubréf 1,363
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 130 kr.
Eimskip 384 kr.
Flugleiðir 255 kr.
Hampiðjan 138 kr.
Iðnaðarbankinn 155 kr.
Skagstrendingur hf. 189 kr.
Verslunarbankinn 135 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 174 kr.
(1) Við kaup á viöskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað viö sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaöarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavlxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóö-
irnir.
Nánarl upplýslngar um peningamarkað-
Inn birtast I DV á flmmtudögum.
Menn oft hættir í huganum
og komnir í nýja starfið
- segir foimaður Sljómunarfélags íslands
„Það er aldrei hægt að setja algilda
reglu um það hvenær best er fyrir
þann sem hefur ráðið sig annars
staðar að hætta á gamla staönum.
Það verður aö meta það hverju sinni
eftir aðstæöum. Oft er það svo að
menn eru hættir í huganum og
komnir með allan hugann við nýja
starfið. Þess vegna er það almennt
talið æskilegt fyrir báða aðila að flýta
því að menn geti hætt og á þetta sér-
staklega við um yfirmenn,“ segir
Þórður Sverrisson, framkvæmda-
stjóri flutningasviðs Eimskips og
formaður Stjómunarfélags íslands.
„Hin hhðin er sú að starfsmenn í
Bankastjóri Verslunar-
bankans einn af toppum
Landsbankans
háum stöðum, eins og Tryggvi Páls-
son í þessu tilviki hjá Landsbankan-
um, búa yfir svo mikilli þekkingu að
erfitt er fyrir fyrirtækin að missa þá
án nokkurs fyrirvara."
Að sögn Þórðar þekkist ameríska
aðferðin, „aö menn hætti strax“, hér-
lendis. „Algengast er samt að meta
stöðuna hverju sinni og koma sér
saman um hvenær farsælast sé að
viðkomandi hætti. Og aö sjálfsögðu
þekkist sú aðferð líka í Bandaríkjun-
um.“
Um það hvemig þessum málum sé
háttað í praxís hjá Einmskip segir
Þórður að allur gangur sé á því.
„Venjan er að viðkomandi starfs-
maður og fyrirtækið reyna að ná
samkomulagi um hvenær hann
hætti og hafa báðir aðilar þá hag
hvor annars í huga,“ segir Þórður
Sverrisson.
-JGH
Þó.rður Sverrisson, formaður Stjórn-
unarfélags íslands og framkvæmda-
stjóri flutningasviðs Eimskips. „Það
er almennt talið æskilegt fyrir báða
aðila að flýta því að menn geti hætt
og á þetta sérstaklega við um yfir-
menn.“
Athyglisverðustu auglýsingamar:
GBB-Auglýsinga-
þjónustan
mokaði inn
verðlaunum
Verðlaun fyrir bestu sjónvarpsauglýsinguna fékk kvikmyndafyrirtækiö Saga
Film. Auglýsingin var Pepsi er best ískalt, gerð fyrir Sanitas. Hér sjáum
við Hörð Vilhjálmsson, fjármálastjóra Ríkisútvarpsins, afhenda Snorra Þör-
issyni hjá Saga Film verðlaunin, sem Rikisútvarpið veitti. Lengst til vinstri
er Páll G. Jónsson, eigandi Sanitas, og honum við hlið Jóhann G. Jóhanns-
son sem samdi auglýsinguna.
henni er góð. Menn mega samt ekki
láta það veröa sitt eina keppikefli að
sigra. Aðalatriðinu má nefnilega
ekki gleyma en það er að búa til góða
auglýsingu sem virkar, selur það
sem henni er ætlað að selja,“ segir
Halldór Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri GBB-Auglýsingaþjón-
ustimnar.
Stofan vann í fyrra tvenn verðlaun
í keppninni. Önnur þeirra voru fyrir
bestu sjónvarpsauglýsinguna. Þá
auglýsingu þekkja alhr, en hún er frá
Samvinnutryggingum og sýnir Sig-
urð Sigurjónsson í leikhúsi að fylgj-
ast meö menningunni. Hin var fyrir
Samvinnuferðir/Landsýn og bar
yfirskriftina Verður þú sólarmegin í
sumar?
Keppt er í átta flokkum auglýsinga
og eru fimm auglýsingar útnefndar
til verðlauna í hverjum flokki. „Ég
tel það jafnmikinn heiöur í keppni
sem þessari að vera útnefndur til
verðlauna, enda hlýtur ávaht að vera
erfitt að dæma um hvaða auglýsing
sé best eða athyghsverðust," segir
Halldór Guðmundsson.
-JGH
GBB-Auglýsingaþjónustan er greini-
lega í mestu stuði íslenskra auglýs-
ingastofa um þessar mundir. Stofan
átti tíu auglýsingar af fjörutíu 1 úr-
shtum í samkeppni íslenska mark-
aðsklúbbsins og Sambands íslenskra
auglýsingastofa. Og hún hirti svo
hvorki meira né minna en þrenn
verðlaun af átta. Á óvart kom hve
fáar þekktar auglýsingastofur ko-
must í úrslitakeppnina. Þannig hlaut
kvikmyndafyrirtækið Saga Film
verðlaim fyrir bestu sjónvarpsaug-
lýsinguna og Stjarnan fékk verðlaun
fyrir bestu útvarpsauglýsinguna.
Verðlaun voru veitt á veglegri upp-
skeruhátíð í Broadway síðastliðið
fóstudagskvöld.
„Svona samkeppni er hvetjandi
fyrir fagið. Þetta er í annaö sinn sem
þessi keppni fer fram og reynslan af
Eigendur og nokkrir starfsmenn GBB-Auglýsingaþjónustunnar fagna sigri fyrir bestu auglýsingaherferðina sem
var Staögreiöslukerfi skatta en þau verðlaun veitti Stöð 2. Jón Óttar Ragnarsson afhenti verðlaunin. Halldór Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri GBB, er lengst tij hægri. Þá fékk stofan verðlaun fyrir athyglisverðustu dagblaðsaug-
lýsinguna sem var Tll hamingju RÚV, áfram RÚV, gerð fyrir Stöö 2, og athyglisverðustu tímaritaauglýsinguna sem
var Obrengluð mynd af tilverunni, einnlg gerð fyrir Stöð 2.