Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1988, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988.
9
Utlönd
Bush vann
stórsigur
Varaforseti Bandarikjanna, George Bush, fagnaöi sigri í forkosningunum í
gærkvöldi. Simamynd Reuter
Ólafur Amaison, DV, New York:
George Bush, varaforseti Banda-
ríkjanna, vann í gær stórsigur í
forkosningum Repúblikanaflokksins
í New Hampshire. Bush hlaut 38 pró-
sent atkVæða en helsti keppinautur
hans, Robert Dole, hlaut 29 prósent
atkvæða. Búist hafði verið við því að
barátta þeirra yrði hnífjöfn.
Með þessum stóra sigri hefur
George Bush bjargað sér úr pólitískri
kreppu sem hann hefur átt við að
stríða frá því að hann lenti í þriðja
sæti í Iowa í síðustu viku en eftir þær
ófarir töldu margir að Bush ætti litla
möguleika í kosningabaráttunni. Eft-
ir að sigurinn var ljós í gærkvöldi
sagði Bush þessi frumlegu orð:
„Fregnir af dauða minum eru stór-
lega ýktar.“
Robert Dole tók ósigrinum illa.
Hann óskaði Bush til hamingju en
er aðalfréttamaður NBC-sjónvarps-
stöðvarinnar spurði hvort hann vftdi
segja eitthvaö við varaforsetann
sagði Dole. „Hættu að breiða út lygar
um mig.“ Atti Dole þar við sjón-
varpsauglýsingar frá Bush sem
birtar voru um helgina. í þeim var
því meðal annars haldið fram að
Dole vildi hækka skatta og leggja
innílutningsgjald á olíu.
Jack Kemp, fulltrúadeildarþing-
maður frá New York, kom á óvart
og hafnaði í þriðja sæti hjá repúblik-
önum með 13 prósent atkvæða.
Pierre Pont varð fjórði með rúm 10
prósent og Pat Robertson hafnaði í
fimmta sæti með tæplega 10 prósent.
Það var því greinilegt að Robertson
hafði engum hulduher á að skipa í
New Hampshire.
Það er öllum ljóst að mikið hatur
ríkir milli George Bush og Robert
Dole og er búist við að barátta þeirra
á næstu vikum verði nyög harð-
skeytt og jafnvel illskeytt. Mikið er í
húfi. Þann 8. mars verða forkosning-
ar í rúmlega tuttugu ríkjum og slæmt
gengi þá fyrir annaðhvort Dole eða
Bush þýðir í raun að slagurinn er
tapaður. Það má ennfremur búast
við að Pat Robertson blandist í bar-
áttuna í Suðurríkjunum og hann
getur sett strik í reikninginn.
Það er áht manna að vinsældir
Reagans forseta í New Hampshire
séu ástæöan fyrir sigri Bush í gær.
Þar eru 80 prósent Kjósenda ánægð
með forsetann og kannanir sýna að
Bush sótti mikið fylgi til þeirra er
fylgja Reagan að málum. Þetta gæti
komið Bush að haldi í Suðurríkjun-
um þar sem forsetinn er einnig nyög
vinsæll þannig aö þaö virðist á brat-
tann að sækja hjá Robert Dole sem
stendur.
Hjá demókrötum var það Michael
Dukakis, ríkisstjóri Massachusetts,
sem vann stóran sigur. Hlaut hann
37 prósent atkvæða og hafði verið
búist við því. í öðru sæti varð Ric-
hard Gephardt, fulltrúadeftdarþing-
maður frá Missouri, með 20 prósent
atkvæða og Paul Simon varð þriðji
með 17 prósent. Nokkuð langt á eftir
urðu Jesse Jackson með 8 prósent,
Albert Gore með 7 prósent, Bruce
Babbit með 5 prósent og Gary Hart
rak lestina með 4 prósent.
Þessi úrsht hafa það í fór með sér
að Paul Simon á sér varla viðreisnar
von. Hann er orðinn blankur og varð
að ná öðru sæti til að laða meira fjár-
magn tU sín. Gephardt lagði hann að
velli ogstendur nú mun betur að vígi.
Þrátt fyrir að sigur Michaels Duk-
akis hafi verið stór er hann ekki eins
ótvíræður og virðist við fyrstu athug-
un. Dukakis er ríkisstjóri í Massa-
chusetts, nágrannaríki New
Hampshire, og þess vegna var búist
við stórum sigri hans. Það vekur at-
hygh að hann skyldi einungis hljóta
37 prósent atkvæða, sérstaklega þeg-
ar haft er í huga að Gary Hart hiaut
stærri atkvæöahlut er hann sigraði
í New Hampshire fyrir fjórum árum.
Það gerði einnig Edmund Muskie
árið 1972. Margir telja aö Dukakis
eigi litla möguleika í Suðurríkjunum
þann 8. mars. Einnig eru skiptar
skoðanir um hvaða möguleika Ric-
hard Gephardt á þá. Tahð er að Jesse
Jackson verði mjög sterkur í Suður-
ríkjunum og einnig er tahð aö Albert
Gore hafí þar mikið fylgi. Gore hefur
enga áherslu lagt á Iowa og New
Hampshire heldur leggur hann aht
undir þann 8. mars.
Flestir stjórnmálaskýrendur telja
að ekki náist niöurstaða hjá demókr-
ötum fyrr en á flokksþingi þeirra í
sumar er frambjóðandi flokksins
verður endanlega valinn. Telja þeir
að atkvæði muni dreifast of mikið til
að niðurstaða fáist fyrr. Það eina sem
virðist ljóst hjá demókrötum er að
Bruce Babbit muni draga sig í hlé í
þessari viku.
Menn eru bjartsýnni á að úrsht
fáist fyrr hjá repúblikönum og er
jafnvel talað um að línur verði orðn-
ar skýrar eftir 8. mars. Pat Robertson
gæti þó sett strik í reikninginn og ef
hann fær mikið fylgi í Suðurríkjun-
um gæti hann komist í oddaaðstöðu
á flokksþinginu í New Orleans í sum-
ar og haft mikil áhrif á val flokksins.
Það eru greinilega spennandi vikur
framundan og á þessari stundu er
ógerlegt að spá um úrsht.
Engar konur
í framboði
Anna Bjamaacn, DV, Denver
Baráttan um að komast í for-
setaframboð fyrir stóru stjóm-
málaflokkana hér harðnar nú
með degi hverjum. Engin kona
er þó I framboði og þær sjást varla
i sjónvarpslýsingum frá fram-
boðsfundum nema í áhorfenda-
sætum. Vekur það athygh hve
hlutur kvenna í þessari baráttu
er htih.
Geraldine Ferraro, sem var
varaforsetaefni demókrata við
síðustu kosningar, er nú ásamt
Corettu King, ekkju Martins Lut-
■ hers King, meðal fimmtán
hundruð kvenna á málþingi í
Atlanta sem Rosahnd Carter og
Lady Bird Johnson, fyrrverandi
forsetafrúr, boðuðu til. Ferraro
sagöi í ræðu sinni þar að konur
yrðu að nýta vaxandi mátt sinn
í stjómmálum til aö koraa fleiri
konum í valdamikh embætti. „Ef
þið bjóðið ykkur ekki fram vinnst
enginn sigur,“ sagði Ferraro.
Hún sagði að fleiri konur sætu
nú í áhrifastöðum en áður en
' mikið skorti á að jafnrétti væri
náð varðandi embættisveitingar.
Coretta King tók í sama streng
og hvatti konur, bæði hvitar og
svartar, th að sækjast eftir æðri
embættum. „Við höfum máttinn,
þolgæðið og viðurkennda hæfi-
leika th að laða fram það besta í
fari einstaklinganna 1 þjóðfélagi
sem gerir kynjunum mishátt
undir höfði.“
FXJRTAI
FULLKOMINN
JAPANSKUR ÖRBYLGJUOFN
19.845.-
JAPÖNSK GÆÐI
KRINGLUNNIS. 685440
Einföld tölvustilling
10 stillingar á orkustyrkleika
fyrir öll hugsanleg afbrigði af matseld
- Sérstaklega einangruð hurð
- Auðvelt að þrífa ....
- Glerbakki fylgir með
■ O.FL. O.FL. -Ytrimál: H:28 B:49,2 D:30,4
- Innri mál: H:19,5 B:31,5 D:28,0
Norskir kennarar
aftur í verkfall
Páll Vilhjálmsson, DV, Osló:
Eftir viku við samningaborðið
leggja norskir kennarar aftur niður
vinnu th að láta í ljós vanþóknun
sína á launathboði ríkisstjórnarinn-
ar.
Meginhluta janúarmánaðar voru
kennarar í verkfalli en í byrjun febr-
úar hófu þeir störf að nýju samtímis
því sem launaviðræður hófust við
ríkisstjómina. Eftir tæpa viku þótti
kennurum fuhreynt að ríkisstjómin
vhdi ekki koma th móts við kröfur
kennara.
Jafnframt því sem kennarar eiga í
launabaráttu ríkir óeining innan
samtaka þeirra. Janúarverkfalhð
var tahð ólöglegt af ríkisstjóminni
og forystumenn kennarasamtak-
anna neituðu að taka þátt í þvi.
Forystumenn kennarasamtakanna
hvöttu ákaft til þess að kennarar
sneru aftur til vinnu þannig aö
samningaviðræður gætu hafist. Þeg-
ar enginn árangur varö af samninga-
viðræðunum blossaði upp reiði
meðal kennara almennt og heyrast
kröfur um að forystumenn kennara-
samtakanna segi af sér.
HEMLAHUJTÍRl
JAPANSKÁ BÍL4
• „Original" hemlahlutir í alla
japanska bíla.
• Innfluttir beint frá Japan.
• Einstaklega hagstætt verð.
Stilling
Skeifunni 11,108 Reykjavík
Símar 31340 & 689340