Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1988, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988.
13
13 V
Sprengjutil-
ræði í hofi
Sjö tamílar biðu bana í Colombo á
Sri Lanka í gærkvöldi er sprengjur
sprungu í hofi. Að sögn lögreglu-
manna særðust þrettán manns í
sprengjutilræðinu sem átti sér stað
um leið og bænagjörð fór fram í til-
efni hátíÖar hindúa. Enginn hefur
lýst yfir ábyrgð á tilræðinu en ekki
þykir útilokað að um hafi verið að
ræða innþyrðis átök tamíla.
Grunur leikur á að ólögleg samtök
marxista, sem andvíg eru friðarsam-
komulagi Indverja og yfirvalda á Sri
Lanka um takmarkaða sjálfsstjórn
tamíla, hafi staðið á bak við morðið
á vinsælum leikara og stjórnmála-
manni nokkrum klukkustundum
fyrir sprengjutilræðið í hofinu.
Stjómmálamaðurinn var skotinn
fyrir utan heimili sitt af byssumönn-
um á mótorhjóli.
Nú eru um fimmtíu þúsund ind-
verskir hermenn á Sri Lanka og
reyna þeir að hafa uppi á þeim
skæruliðum tamíla sem hafnað hafa
friðarsamkomulaginu.
Hermaður með blóði drifin föt í hofi í Colombo á Sri Lanka þar sem sjö
manns létu lífið í sprengjutilræði i gær.
Símamynd Reuter
Aðeins þrettán látnir
Lögreglan í Brasilíu segir að kjöt-
kveðjuhátíðin, sem staðið hefur þar
í borg undanfama daga, hafi verið
ein hin rólegasta sem menn.muna.
Aðeins þrettán manns hafa týnt lífi
í hátíðarhöldunum sem mun vera
langt fyrir neðan meðallag. Á kjöt-
kveðjuhátíðinni síðasta ár voru
framin liðlega fjörutíu morð.
Kjötkveðjuhátíðinni lýkur opin-
berlega um hádegi í dag.
Ástand efnahagsmála í Brasilíu
hafði mikil áhrif á kjötkveðjuhátíð-
ina svo og ótti manna við sjúkdóm-
inn eyðni sem er mjög útbreiddur í
Brasilíu. Þá bar mikið á spurningum
og efasemdum um stöðu þeldökkra i
landinu en á þessu ári er þar einmitt
haldið upp á að hundrað ár em nú
liðin frá afnámi þrælahalds í
landinu.
Utlönd
um brúðarmorð
Símamynd Reuter
Sakar ísraela
Roston sakar ísraelsmenn um að hafa myrt brúði sína i hefndarskyni fyrir
skrif hans um ofbeldisverk ísraelskra hermanna á herteknu svæðunum.
Scott Roston, Bandaríkjamaður
sem stjórnvöld á Bahama vilja fá
framseldan vegna gruns um að hann
hafi myrt brúði sína í brúðkaups-
ferðinni, heldur því fram að útsend-
arar Ísraelsríkis hafi í raun myrt
konuna í hefndarskyni vegna skrifa
hans.
Roston, sem mun hafa skrifað bók
um ofbeldisverk ísraelsmanna, segir
að útsendarar þeirra hafi dælt hann
fullan af lyfium og síðan myrt eigin-
konu hans, Karen Roston.
Roston er nú fyrir rétti í Los Angel-
es þar sem fiallað er um framsals-
beiðni stjórnvalda á Bahama.
Framburður hans hefur ekki veriö
allur á einn veg því upphaflega hélt
hann þvi fram að kona hans hefði
falliö fyrir borð á skemmtiferðaskip-
inu Stardancer, meðan á brúðkaups-
ferð þeirra stóð. Lík konunnar fannst
hins vegar og reyndust á því áverkar
sem bentu til þess að hún hefði verið
kyrkt.
Konurnar ekki fæddar til að laga kaffi
Áfiaeir Eooertæon. dv Mimchen: konur, sem vinna hálfan daginn á eftir konunum. Þær vildu ekki og sagöi að sér væri að mæta fyrir á venjulegum vinnutíma og geyma
---------------1---------- bæjarstjórnarskrifstofunum, neit- lengur vanrækja fiölskylduna til rétti. Haft var eftir honura að nú á það á hitakönnu þar til fundur
Samkomulag hefur tekist um það uöu að vinna lengur á kvöldin svo að slökkva kaffiþorsta bæjarstjórn- dögum hjálpuðust allir að. hefst.
hver eigi að búa til kaffi á bæjar- að bæjarstjómin gæti fengið nýlag- arinnar. Sem betur fer fannst lausn á
stjórnarfundum í Weilerswift. að kaffi á fundum. „Við erura ekki Forseti bæjarstjómar hafði eng- þessu kaffimáli. Gripið hefur verið
Orsök ósættanna var sú að 11 fæddar til aö laga kaffi,'1 var haft an skilning á skoðun kvennanna til þess snjallræðis að búa til kaffi
Palestínumenn í Aþenu söfnuðust saman í gær til þess að mótmæla
sprengjutilræðinu á Kýpur sem olli skemmdum á skipinu er palestinskir
útlagar ætluðu með til ísraels. Ekki er vitað hvenær skipið getur hafið för
sina til áfangastaðar.
Simamynd Reuter
Sprengjutil-
ræðinu mótmælt
Þrjú þúsund mótmælendur, þar á
meðal palestínskir útlagar, söfnuð-
ust saman í Aþenu í gær og gengu
fylktu liði að skrifstofu stjórnarer-,
indreka ísraelsmanna þar í borg.
Tilgangurinn var aö mótmæla
sprengjutilræðinu sem olh skemmd-
um á skipi því á Kýpur sem flytja
átti palestínska útlaga til ísraels.
Palestínumennimir báru borða
með áletrunum þar sem ísraelsk yfir-
völd voru hvött til þess að lofa
útlögunum að snúa aftur heim.
Það var á mánudaginn sem
sprengja olli skemmdum á skipinu
er Frelsissamtök Palestínumanna
höfðu tekið á leigu. Skipið lá í höfn-
inni í Limassol á Kýpur. Frelsissam-
tökin sökuðu ísraelsk yfirvöld um
að hafa staðið á bak við sprengjutil-
ræðið en ísraelsmenn hafa ekki lýst
yfir ábyrgð á verknaðinum. Þeir hafa
hins vegar oft lýst því yfir að þeir
geri allt sem í þeirra valdi stendur
til að koma í veg fyrir að skipið sigli
til ísraels.
GRUNNSKÓLANEMAR!
ERT ÞÚ TILBÚINN TIL AÐ TAKA SAMRÆMDU PRÓFIN? - EÐA
ERT ÞÚ KANNSKI EKKI ALVEG NÓGU VEL UNDIR ÞAÐ BÚINN?
VIÐ GETUM AÐSTOÐAÐ ÞIG í
EFTIRTÖLDUM NÁMSGREINUM:
- ENSKU
- DÖNSKU
- ÍSLENSKU
- STÆRÐFRÆÐI
KENNSLA HEFST 22. FEBRÚAR
AÐ ÁNANAUSTUM 15, UNDIR
LEIÐSTÖGN REYNDRA OG GÓÐRA
KENNARA.
KENNT ER TVÆR KENNSLUSTUNDIR í SENN TVISVAR í VIKU.
INNRITUN OG UPPLÝSINGAR í SÍMUM 10004 OG 21655 Á SKRIF-
STOFUTÍMA.
MÁLASKÓLINN mímir
ANANAUSTUM 15, RVIK.
SÍMI: 10004 & 21655.