Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1988, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1988, Síða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988. Innilegar þakkir okkar fyrir auðsýnda vináttu og hlýhug við andlát og útför móður okkar önnu Magnúsdóttur frá Villingavatni. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á Sólvangi fyrir góða umönnun á undanförnum árum. Ragnhildur Þorgeirsdóttlr Magnús Þorgeisson Sœmundur Helgason Ingibjörg Þorleifsdóttir og fjölskyldur. r OKEYPIS BÆKLINGUR Starfsframi, betri vinna, betri laun Eftir nám í ICS-bréfaskólanum átt þú möguleika á auknum starfsframa og betur launaðri vinnu. Þú stundar námið heima hjá þér á þeim hraða sem þér hentar. Nú stunda rúmar 8 milljónir manna nám í gegnum ICS-bréfaskólann. Líttú á listann og sjáðu öll þau tækifæri sem þér gefast. ICS-bréfaskólinn hefur örugglega námskeið sem hæfir áhuga þínum og getu. Prófskírteini 1 lok námskeiða. Sendu miðann strax í dag og þú færð ókeypis bækling sendan í flug- pósti. (Setjið kross í aðeins einn reit.) Námskeiðin eru öll á ensku. ZTölvuforritun ZAImennt nám Zlnnanhúss ZRafvirkjun ZRitstörf ZBókhald Z Vélvirkjun ~ Bifvélavirkjun ZNytjalist ZStjórnun fyrirtækja ZGarðyrkja ZKjólasaumur arkitektúr ZStjórnun hótela og veitingastaða ZBlaðamennska ZKælitækni og loftræsting L Nafn........................................................ Heimilisfang................................................ ICS International Correspondence schools Dept. Y.M.S. 312/314 High Street, Sutton, Surrey SM 1 1PR, England SMÁAUGLÝSINGAR DV MARKADSTORG TÆKIFÆRANNA Þú átt kost á aö kaupa og selja allt sem gengur kaupum og sölum. Bara aö nefna þaö í smáauglýsingum DV, hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranna. Markaöstorgiö teygir sig víöa, Þaö er sunnanlands sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug- vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV lesiö. Einkamál. Já, þaö er margt í gangi á markaöstorginu, en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og eins. Sumir borga meö fínpressuöum seölum. Menn nýkomnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera. Gætu hafa keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur. Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt. Þar er allt sneisafullt af tækifærum. Þaö er bara aö grípa þau. Þú hringír...27022 Við birtum... Það ber árangur! Smáauglýsingadeildin er í Þverholti 11. Opið: Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00 laugardaga, 9.00—14.00 sunnudaga, 18.00—22.00 E >. O ER SMÁAUGLÝSINGABUXCMD LífsstíU Svona karlmannspeysa kostar út úr verslun 3.200 kr. Konan, sem prjónar hana.fær 1.600 kr.ogþááeftiraðdraga frá um 3-400 kr. I efniskostnað. Heimilisiðnaður: 1.250-1.500 kr. fást fyrir lopapeysuna Hvar er hægt að selja heimaprjónaðar peysur? Um langan aldur hefur það tíðkast að konur og jafnvel karlar, þó í minna mæli sé, taki sér prjóna í hönd og framleiði lopapeysur. Þessi heim- ilisiðnaður heldur enn velli. Alltaf eru einhverjir sem hafa þörf fyrir þessar kostaílíkur þó komið sé langt fram á öld klæðagosa og tískudrósa. Algengt er að sjá fólk stunda hesta- mennsku eða hvers kyns útiíþróttir íklætt ullinni góðu. Sjaldgæft er þó að almenningur fari og kaupi sér þessar heíðbundnu ullarflíkur í búðum hérlendis. Oftast heyrist að það sé mamma eða amma sem prjónar ullarpeysur þær sem landinn klæðist. Þær peysur, sem eru' í búðunum, t.d, í Hafnarstræti, eru flestar keyptar af eða fyrir út- lendinga. En hverjir skyldu nú handprjóna allar þessar peysur sem á boðstólum eru? Er kannski hægt að ganga inn í húð og selja lopapeysur bara sisona? Heimilissíðan kannaði hvert helst er hægt að leita varðandi sölu á heimaprjónuðum ullarvörum. Handprjónasamband íslands eru samtök sem stofnuð voru í þeim megintilgangi aö gera konum kleift að komast hvenær sem er ársins með vörur sínar og selja. Samtök þessi reyna einnig að halda verði markað- arins sem allra hæstu hveiju sinni. Sem dæmi má nefná að verð hefur nýlega hækkað. Þangað er hægt að leita með lopapeysur og selja hvenær sem er, síðan er séð um að selja vör- urnar áfram. Um staðgreiðslu er þó ekki að ræða. Hjá Handprjónasam- bandinu er vafalaust best að fá upplýsingar um öll málefni er snúa að heimaprjónuðum lopavörum. Einnig er hægt að kaupa lopa á 480 kr. kílóiö. Það verð, sem fæst fyrir peysumar, er frá 1.150 kr. og upp í 1.700 kr. Verðið er endurskoðað í hverjum mánuði m.a. vegna þess að stöðugt er beðið eftir hreyfingu á útflutningsverði. Hjá Hildu hf. fengust þær upplýs- ingar að mikil eftirspum væri eftir peysum á Ameríkumarkað, en þang- að flytur fyrirtækið eingöngu út vömr. Fyrirtækið er því í mikiili þörf fyrir handpijónaðar peysur, einnig húfur og vettlinga. Til marks um hve mikil umsvif voru hjá Hildu hf. í fyrra má geta þess að aðeins í marsmánuði vom skráð nöfn 300 kvenna sem komu og seldu peysur sínar til fyrirtækisins. Af þessum fjölda komu sumar konur í hverri viku. Fyrirtækið gefur kost á ódýrari lopa til þeirra sem selja því vörur sínar. Þannig kostar kílóið af lopa 600 Mjög viða sést um húsið á vissum stöðum. Hér má sjá gang og hol í senn, eldhús og tröppur upp til svefnherbergis. ar komið og skoðað hjá okkur, sérstaklega Þjóðverjar sem hafa átt leið um. Þeim finnst þetta allt mjög spennandi og um leið gert því skóna að byggja svona hús í heimalandi sínu. Allir sem hafa komiö inn til okkar segja að það sé óvenju heimil- isiegt og þægilegt andrúmsloft innandyra. Mér eru alltaf minnis- Úr eldhúsinu. stæð orð konu einnar sem sagði aö húsið hreinlega faðmaði sig að sér þegar hún kæmi inn. Þetta eru dæmi- gerð viðbrögð þeirra sem hiingað koma.“ Er dýrt að byggja svona hús? „Nei, ég get bara sagt það og lofað þér að það er ekki dýrara að byggja svona hús heldur en venjulegt hús. Séð inn til svefnherbergja á tveimur af þremur pöllum hússins. Það er örugglega hægt aö gera það ódýrara með raðsmíði þannig að það er bjart framundan hvað snertir kostnað, svo maður tali nú ekki um kyndingarkostnaðinn. Þar erum við farin að tala um hluti sem skipta verulegum upphæðum þegar reikn- uð er út kynding á ársgrundveli." -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.