Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1988, Page 36
36
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988.
Jarðarfarir
Guðjón Benediktsson vélstjóri, áður
til heimilis í Gunnarssundi 7, Hafn-
arfirði, sem lést á Hrafnistu þann 5.
febrúar, verður jarösunginn frá
** HafnarQarðarkirkju fimmtudaginn
18. febrúar kl. 15.
Eiríkur Kúld Sigurðsson, Alfheim-
um 3, ve'rður jarðsunginn frá
Langholtskirkju flmmtudaginn 18.
febrúar kl. 15.
Sigríður Sigurðardóttir, Sörlaskjóli
82, Reykjavík, er lést í gjörgæsludeild
Landspítalans 10. febrúar, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju
fimmtudaginmn 18. febrúar kl. 13.30.
Stefán Stefánsson frá Vík í Mýrdal,
lést í elliheimilinu Kumbaravogi,
Stokkseyri, aðfaranótt 15. febrúar.
Jarðarfór hans fer fram frá Víkur-
kirkju laugardaginn 20. febrúar kl.
14.
Ester Kristjana Sæmundsdóttir,
Ásbraut 17, Kópavogi, verður jarð-
sungin frá Kópavogskirkju fostudag-
inn 19. febrúar kl. 15.
Valgerður Pétursdóttir lést 9. febrú-
ar sl. Hún var fædd á Hallgilsstöðum
í Norður-Þingeyjarsýslu þann 7. júni
1912. Eftirlifandi eiginmaður hennar
er Bragi Halldórsson. Þau hjónin
eignuðust fjögur böm og eru tvö á
lífi. Valgerður starfaði lengst af sem
matráðskona við Sjúkrahús Kefla-
víkur. Útíor hennar verður gerð frá
Keflavíkurkirkju í dag kl. 14.
Andlát
Garðar Sigfússon, Espigerði 2,
Reykjavík, lést í Borgarspítalanum
aðfaranótt mánudagsins 15. febrúar.
Svava Jónasdóttir, Mánagötu 12,
lést í Landspítalanum 15. febrúar.
Stefán Stefánsson frá Vík í Mýrdal
lést á elliheimilinu Kumbaravogi
aðfaranótt 15. febrúar.
Símon Jóhann Helgason, fyrrver-
andi skipstjóri, Túngötu 12, Isafiröi,
lést í SjúkraRúsi ísafjarðar 16. febrú-
_ ar.
Gísli Sveinsson frá Sveinsstöðum,
lést í Borgarspítalanum 15. febrúar.
Kristín Samúelsdóttir, frá Súðavík,
til heimilis á Sléttahrauni 23, Hafnar-
firði, lést 14. febrúar.
Sveinn Hannesson, bóndi, Asgarði,
Reykholtsdal, andaðist að heimili
sínu aðfaranótt mánudagsins 15. fe-
brúar.
Helga Þorsteinsdóttir, fyrrum hús-
freyja, Heiði, Rangárvöllum, lést í
Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, 15.
febrúar.
Ný snyrtistofa
Þann 1. febrúar sl. opnaöi snyrtistofan
Elva, til húsa að Laufásvegi 46, þar sem
áöur hafði verið snyrtistofan Tara. Eig-
andi snyrtistofunnar er Elva Elvarsdóttir
snyrtifræðingur. Til boða á snyrtistof-
unni er öll almenn snyrting auk varan-
iegrar háreyðingar og cathiodermie
meðferöa. Síminn á stofunni er 622520.
Fyrirlestrar
Fyrirlestur hjá Geðhjálp
Geðhjálp heldur fyrirlestur fimmtudag-
inn 18. febrúar 1988. Anna Kristin Kristj-
ánsdóttir yfirsjúkraþjálfari flytur erindi
um líkamshreyfingu og geðheilsu. FVrir-
lesturinn hefst kl. 20.30 á geðdeild
Landspítalans, í kennslustofu á 3. hæð.
Fyrirspumir, umræður og kaffi veröa
eftir fyrirlesturinn. Allir eru velkomnir.
Aðgangur er ókeypis.
Fundir
Digranesprestakall
Aðalfundur kirkjufélagsins verður hald-
inn í safnaðarheimilinu við Bjamhólastíg
annað kvöld (funmtudagskvöld) kl. 20.30.
Að loknum aðalfundarstörfum sýnir Sal-
björg Óskarsdóttir ævintýralegar myndir
frá Nepal. Kaffiveitingar. Nýir félagar
velkomnir.
Tilkyimingar
Húnvetningafélagið
Spiluð verður félagsvist laugardaginn 20.
febrúar kl. 14 í félagsheimilinu, Skeifunni
17. Allir velkomnir.
Flóamarkaður F.E.F.
Flóamarkaður Félags einstæðra foreldra
verður haldinn laugardagana 20. og 27.
febrúar kl. 14-17 að Skeljanesi 6, kjallara.
Mikið úrval af gömlum og góðum fatnaði
ásamt öðm. Komið og gerið kjarakaup.
Leið 5 að endastöð.
Merkjasala Rauða kross Is-
lands
Árleg merkjasala RKI fer fram dagana
17. til 20. febrúar nk. Merkið kostar 100
kr. í ár rennur mesti hluti ágóðans af
merkjasölunni til RK-hússins. RK-húsið
er neyðarathvarf fyrir böm og unglinga
að Tjarnargötu 35 og var það sett á stofn
fyrir rúmum 2 ámm. Þar er opið allan
sólarhringinn. Einnig er símaþjónusta
fyrir böm og unglinga í RK-húsinu og er
símanúmerið 622260. Þeir sem leita til
RK-hússins verða að koma sjálfviljugir
en full nafnleynd er viðhöfð. Reynslan
hefur sýnt að brýn nauðsyn er á þvi að
starfrækja RK-húsið. Frá opnun RK-
hússins hefur fjöldi ungmenna með
margvísleg félagsleg og persónuleg
vandamál leitað sér aðstoðar og leið-
beiningar í húsinu en fjöldi gestakoma
er tæplega 270 og meðaldvalartími er 8
nætur. Meðalaldur gesta er tæp 17 ár en
að jafnaði em stúlkur sem leita til húss-
ins yngri en drengir. Á árinu 1987 hafa
hringingar til bama- og unglingasímans
verið á sjötta hundrað. RK-húsið er rekið
af Rauða krossi íslands og RK-deildum
suðvestanlands og á Reykjanesi og RK-
deild Vestmannaeyja.
Pottarím, ný matreiðslubók
Mál og menning hefur sent frá sér bókina
Pottarím eftir Sigrúnu Davíðsdóttur. í
þessari bók er úrval matreiösluþátta en
Sigrún birti lengi þætti um það efni i
Morgunblaðinu. Bókin er ekki aðeins
matreiðslubók þvi auk þess að birta
fjölda matamppskrifta fjaúar Sigrún um
matreiöslu fyrr á tímum, matarsiöi í
ýmsum löndum, hollustu í mat og margt
fleira sem snertir matargerð. í bókinni
er fjallað um þjóðlegan mat og alþjóðleg-
an og er efninu raðað eftir árstíðum.
Sigrún hefur áður sent frá sér tvær bæk-
ur um matreiðslu. Pottarím er 235 bls.
að stærð. Kápu hannaði Teikn: mynd-
skreytingar em eftir Sigrúnu Eldjárn.
Bókin er prentuð hjá Prentstofu G. Bene-
diktssonar og bundin hjá Hólum hf.
Tónleikar
Fimmtudagstónleikar
á Borginni
Fimmtudaginn 18. febrúar halda frænd-
umir Sverrir Stormsker og Rúnar Þór
tónleika þar sem flutt verða lög af ílestum
þeim hljómplötum sem þeir hafa gefið
út. Þeim til fulltingis verða flestir af
fremstu hljóðfæraleikurum borgarinnar
og má þar nefna Pálma Gunnarsson,
Karl Sighvatsson, Stefán Hilmarsson,
Sigurgeir Sigmundsson, Steingrím Guð-
mundsson, Stefán Ingólfsson og Jósef
Winett en hann er bandarískur saxófón-
leikari sem er hingað kominn sérstaklega
vegna þessara tónleika. Húsið verður
opnað kl. 21 og tónleikamir sjálfir hefjast
kl. 22.
Námskeið
Spegill heilsunnar
Þann 17.-21. febrúar nk. mun Þrídrangur
standa fyrir tveimur námskeiðum. Laug-
ardagurinn verður tileinkaður Lit-
himnugreiningu (iridology). Það er
visindalegt sjúkdómsgreiningakerfi þar
sem mismunandi blæbrigði lita og ann-
ara einkenna í lithimnu augnanna benda
á misræmi á almennu heilsufari sjúkl-
ingsins. Á sunnudeginum verður fjallað
um vísindalegan og sögulegan bakrunn
smáskamtalækninga (homeopathy).
Kennd verða 20 grundvallar smá-
skammtaráð og hvemig má nota þau
örugglega og á árangursríkan hátt á
heimilum. Kynningarkvöld verður hald-
ið í Þrídrangi í kvöld, 17. febrúar, kl. 21
og 19. febrúar kl. 19 og em allir'velkomn-
ir.
Fréttir
Deila í ríkisstjóminni um ferð forseta til Sovétríkjanna:
Bókunin ekki lesin upp
segir ritari ríkisstjómarinnar
„Þessi bókun utanríkisráöherra
var ekki lesin upp á ríkisstjórnar-
fundi,“ sagöi Magnús Torfi Ólafsson,
ritari ríkisstjómarinnar, um bókun
þá sem utanríkisráöherra lagði fram
á ríkisstjómarfundi í gærmorgun
vegna boös til forseta íslends til Sov-
étríkjanna. í bókun sinni segir
utanríkisráðherra aö hann telji aö
taka eigi boðinu en það haföi verið
fellt á fundinum vegna ósamkomu-
lags um dagsetningu heimsóknar-
innar. Magnús sagði aö allir þeir 9
ráöherrar sem sátu fundinn hafi ver-
ið þar ennþá þegar bókunin hafi
verið lögö fram enda fundi ekki lokið.
„Bókunin var afhent ritara en ekki
gerö heyrum kunn. Venjan er að
svona bókanir séu gerðar heymm
kunnar en það er þó ekki einhlítt.
Þegar þaö er ekki gert er þá er venj-
an að láta viðkomandi ráðherra vita
af viðkomandi bókun. Mér er ekki
kunnugt um að það hafi verið gert í
gær,“ sagði Magnús Torfi.
Utanríkisráðherra mun hafa lagt á
það áherslu að forseti færi í heim-
sóknina nú 28. febrúar þó að frestur
sé óvenju stuttur til að ákveða ferð-
ina. Mun hann hafa borðið fyrir sig
hina miklu viðskiptahagsmuni okk-
ar í samskiptum iandanna. Mætti
utanríkisráðherra andstöðu ráð-
herra Alþýðuflokks og Sjálfstæðis-
flokks sem vildu semja frekar við
Sovétmenn um hentugri dagsetning-
ar. Sovétmenn hafa lagt áherslu á
að Gorbatsjov sé aðeins laus til við-
ræðna við forseta 29. febrúar.
íslenskur þjóðhöfðingi hefur aldrei
áður farið til Sovétríkjanna. Vigdís
Finnbogadóttir, forseti íslands, var
ekki bókuð þennan dag en hins vegar
hefði utanríkisráðherra ekki getað
dvalist með henni alla heimsóknina
ef af henni hefði orðið umrædda
daga.
-SMJ
Ráðhúsið:
Bílastæðum fækkað í kjallara
Tilboð í lokað útboð í 2. verkáfanga
ráðhússins við Tjörnina voru lögð
fram í borgarráði í gær. í upphafi var
gert ráö fyrir að byggður yrði tveggja
hæða bílageymslukjallari undir hús-
inu með 190 bílastæðum en verkefn-
isstjóm leggur til að samið veröi við
ístak hf. sem á lægsta tilboðið, 178
milljónir, í byggingu einnar hæðar
kjallara með 91 bílastæði til að kostn-
aður verði í samræmi við áætlanir.
Borgarráð frestaði afgreiðslu máls-
ins í gær til aö kanna nánar fráviks-
tilboð frá ístaki hf. sem hljóðar upp
á 218 milljónir. En þar er gert ráð
fyrir nokkuð dýpri kjaUara með 168
bílastæðum og er fjölgun þeirra
möguleg vegna þess að gert er ráð
fyrir sérstökum bifreiðalyftum í
kjallaranum.
Fyrirtækin, sem borgarráð leitaði
eftir tilboðum frá, vom Hagvirki hf„
ístak hf. og Ellert Skúlason sem skil-
aði tilboðum í samsteypu Krafttaks
hf. og Ármannsfells hf. í öðrum
verkáfanga felst að reka niður stálþil
umhverfis gmnninn, uppgröftur og
dæhng úr gmnni ásamt uppsteypu
kjallara og gólfplötu fyrstu hæöar
ráðhússins. -JBj
Samningaviðræður:
Eðlilegur gangur komst á í gær
Samningafundur Verkamanna-
sambandsins og vinnuveitenda stóð
til miðnættis í gær og verður fram
haldið í dag. Ekkert er enn farið að
ræða launahlið samninga en lítiUega
miðar í umræðum um einstaka
málaflokka. í gær þokaðist nær sam-
komulagi um sérkjör þungavinnu-
véla- og byggingaverkamanna og
einnig miðaði í viðræðum um tillög-
ur Verkamannasambandsins um
afnám eftirvinnutaxta.
„Það komst eðhlegur gangur á við-
ræðumar í gær,“ sagði Bjöm Grétar
Sveinsson, formaður Verkalýðsfé-
lagsins Jökuls á Höfn, í samtali við
DV í morgun. í dag verður viðræðum
haldið áfram og stefnt er að því að
afgreiða yfirvinnuna.
-gse
Smiðshöggið á þróun
fjármagnsmarkaðarins
segir Jóhannes Nordal um fjögur skref í átt til virks hlutabréfamarkaðar
I erindi Jóhannesar Nordal,
bankastjóra Seðlabankans, á aðal-
fundi Verslunarráðsins í gær kom
fram að í bígerð er að taka fjögur
skref í átt að virkum hlutabréfa-
markaði hérlendis. Að þeim loknum
verður, að sögn Jóhannesar, rekið
smiðshöggið á þá uppbyggingu frjáls
og alhliða fjármagnsmarkaðar, sem
hér hefur átt sér stað síðustu þrjú -
fjögur árin.
Stjórn Verðbréfaþings íslands
vinnur nú að setningu reglna um
skráningu og viðskipti með hlutabréf
á þinginu og er búist við að því verki
verði lokið innan fárra vikna.
Sænska fyrirtækið EnskUda Secu-
rities mun leggja fram skýrslu sína
og tiUögur um aðgerðir til þess að
skapa betri skUyrði fyrir hlutabréfa-
viðskipti hérlendis fyrir vorið. Þá
mun Draupnir, öflugt dótturfyrir-
tæki Iðnþróunarsjóðs, byija að fjár-
festa í hlutabréfum þegar kemur
fram á vorið. Að lokum er gert ráð
fyrir því að fj ármálaráðuneytið Ijúki
undirbúningi laga er afnemi mismun
skattlagningar hlutafjár og annarra
eigna næsta haust og geti þau tekið
gUdi um næstu áramót.
Jóhanúes sagðist telja að með þess-
um aðgerðum yrðu þáttaskU í þróun
hlutabréfaviðskipta hér á landi.
-gse
Kvikmyndir
Laugarásbíó/Hrollur 2
Vægur hiyllingsskammtur
Creepshow 2
Framleidd af New World Pictures.
Aðalhlutverk: George Kennedy, Dorothy
Lamour og Tom Savinl.
HryUingnum í Laugarásbíói er
skipt upp í þijár sjálfstæðar sögur,
mishryllUegar. Efnistökin eru þó
heldur handahófskennd og að
minnsta kosti ættu fáir að eiga erf-
itt með svefn eftir að hafa séð
myndina.
Fyrsta sagan segir frá trélíkneski
af indíánahöfðingja sem stendur
fyrir utan búð í heldur dauflegum
smábæ. Þrír óknyttapiltar úr bæn-
um ræna verslunina og myrða
eigenduma, öldruð hjón. Þeir
ákveða að flýja bæinn en áður en
af þeim áformum verður fer líkne-
skið af stað á eftir þeim og nú á að
koma fram hefndum.
Önnur sagan gerist úti á fleka á
litlu og vipalegu fljóti. Fjögur ung-
menni hafa synt út á flekann en
verður fljótlega ljóst að í vatninu
býr kynjaskepna, eins konar kring-
lótt slímskepna sem flýtur ofan á
vatninu og étur kjöt. Þau em þann-
ig fóst úti á flekanum og bíða eftir
því að skepnan leggi til atlögu og
hesthúsi þau hvert á fætur öðm.
Síðasta sagan er um konu sem á
ríkan eiginmann en sækir bólupp-
lyftingu til atvinnumanns úti í bæ.
Eitt kvöldið, þegar hún er á heim-
leið, verður henni það á að keyra
mann niður. Hún stingur af frá
slysstað en er aldeilis ekki laus
allra málá. Líkið eltir hana, heldur
óánægt með sitt nýja tilverustig.
Hrollurinn er sem sagt frekar í
vægara lagi og hefði að ósekju
mátt vera meiri spenna og dulúð
yfir öllu. Myndin er því svona frek-
ar í afgangsmyndaflokki. JFJ