Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1988, Page 40
F R É T T A S K O T I Ð
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum vlð
ist eða er notað i DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreíff!ng: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988.
Kaupleigufnimvaipið:
Ráðherra
neitaraðsvara
Alexander
„Ég vísa ummælum Alexanders
alfarið á bug,“ sagði Jóhanna Sigurð-
ardóttir félagsmálaráðherra þegar
borin voru undir hana ummæli Alex-
anders sem birtust í DV í gær þess
efnis að tillögur félagsmálaráðherra
um kaupleiguíbúðir væru í raun ekki
neitt neitt.' Alexander sagði meðal
annars að ekkert samráð hefði verið
haft við þá sem ættu að fjármagna
kaupleigukerfið, frumvarpið væri
hroövirknislega unnið og leiddi varla
annað af sér en fjölgun leiguíbúða á
Stór-Reykjavíkursvæðinu.
„Það hefur verið haft samráö við
fjölmarga aðila við undirbúning
þessa frumvarps; aðila vinnumark-
aðarins, sveitarfélög og fleiri,"
svaraði Jóhanna gagnrýni Alexand-
ers. „En ég sé enga ástæðu til þess
að ræða um þetta mál opinberlega á
meðan verið er að reyna að ná sam-
komulagi innan stjórnarflokkanna,
þó Alexander Stefánsson sjái ástæðu
til þess.“
-gse
Hermann Björgvinsson:
Rannsókn lokið
eftir breytíngar
á ákæruliðum
Verjandi Hermanns Björgvinsson-
ar hefur fengið frest til 1. mars til
að skila inn vöm til Sakadóms Kópa-
vogs í máli ákæruvaldsins gegn
Hermanni.
Hermanni og verjanda hans hafa
nú verið kynnt bréf ríkissaksóknara,
þar sem fallið var frá ákæruliðum
sem vörðuðu lánveitingar eftir 11.
ágúst 1984
Fram til 1. mars hafa Hermann og
veijandinn frest til að kynna sér
málið og þær breytingar sem fólust
í bréfi ríkissaksóknara. Réttarhöld
hefjast á ný í máhnu hjá Sakadómi
Kópavogs eftir að verjandi hefur skil-
að inn vöminni.
-sme
ÞRðSTUR
68-50-60
VANIR MENN
LOKI
Vill Jóhanna ekki aðstoð
við að klúðra húsnæðismál-
unum? Alexander er vanur!
F|wiiimjaaaiiuv vomi viui u<
/PifdFnwi
AcVaVOm
klnkka hi/Adf
muiilicl UYudl
m m - w
tvrir
mrnm
Þjóðminjasafiú Islands stendur
nú til boða aö kaupa nær 900 ára
gamla kirkjuklukku sem metin er
á um 650 þúsund krónur. Klukkan
er í eigu islenskrar konu sem bú-
sett er í Lundúnum. Á uppboðs-
raarkaði þar er talið að um 10
þúsund pund fengjust fyrir klukk-
una.
Þór Magnússon þjóðminjavörður
sagði í samtali við DV að Þjóð-
miniasafnið hefði tryggt sér for-
kaupsrétt aö klukkunni þannig að
hún fer ekki á uppboð ef safnið
getur reitt af hendi kaupverð hemt-
ar. Hjá Þjóðminjasafiiinu er tekið
við almenningsframlögum til
klukkukaupanna en klukkan er
með elstu og merkustu gripum sem
verið hafa í íslenskum kirkj-
um.
Þór sagði að sér þættí klukkan
nokkuð dýr en þó ekki dýrari en
almennt gerðist um forngripi sem
seldir væru á uppboöum erlendis.
Þá væri þetta verð ekki hærra en
greitt væri fvrir algengar gerðir af
bifreiðum þannig að enginn ættí
að láta verðið vaxa sér í augum.
Þór sagöi aö líklega hefði klukkan
verið steypt á 12. öld eða um árið
1150. Hún er af rómanskri gerð og
sennilega handverk klukkusmiðs í
Þýskalandi. Hér var klukkan um
aldir í Tröllatungukirkju í Stein-
Þannig litur klukkan foma úf. Hún
er nú fÖI fyrir 650 þúsund krónur.
grirasfirði og hefur jafnvel komiö
þangaö ný því þar hefúr verið
kirkja frá því á 12. öld.
Kirkjan í Tröllatungu var lögö
niður árið 1906 og eigur hennar
seldar á uppboði. Þar á meðal var
klukkan sem á uppboðinu lenti f
höndum ættmenna konunnar sem
•nú á hana. Klukkan var í lánf á
Þjóðminjasafrtinu fyrir nokkrum
árum en skilað aftur til eigandans.
-GK
Alda Baldvinsdóttir við bílinn, Dodge Charger árgerð 1982. Þetta er eini bíll þessarar gerðar hér á
landi. Bíllinn hefur í tvígang orðið fyrir skemmdum af völdum skemmdarvarga. DV-mynd KAE
Skemmdar-
vargar hafa
í tvígang
unnið
skemmdir
á bílnum
Bfll, sem stóð við Móabarð í Hafn-
arfirði aðfaranótt síðastliðins þriðju-
dags, varð illilega fyrir barðinu á
skemmdarvörgum. Lakkeyði var
sprautað á bílinn með þeim afleiðing-
um að allt lakk á bílnum er ónýtt.
Öruggt má telja að ekki kosti undir
eitt hundrað þúsund krónum að lag-
færa skemmdimar.
Fyrr í þessum mánuði vom unnar
lakkskemmdir á sama bfl. Bíllinn var
þá í Reykjavík. Einhver skemmdar-
vargur rispaði þá bílinn með egg-
vopni eða grjóti. Eigendur bílsins
þurftu að borga 50 þúsund krónur
fyrir viðgerð vegna þeirra skemmda.
í báðum tilfellunum kærðu eigend-
umir skemmdirnar til lögreglu.
Rannsókn lögreglu hefur engan ár-
angur borið til þessa. Þeir sem geta
gefið upplýsingar um málið eru vin-
samlegast beðnir að láta rannsókn-
arlögregluna í Hafnarfirði vita.
-sme
Veðrið á morgun:
Él á vest-
anverðu
landinu
Á morgun verður vestan- og
suðvestanátt með éljum um vest-
anvert landið en björtu veðri
austan til. Hiti verður nálægt
frostmarki.
Sólartiringurinn:
22 árekstrar
en slysalaust
Tuttugu og tveir árekstrar urðu í
Reykjavík á síðasta sólarhring. Eng-
in slys urðu í árekstrunum. Tveir
ökumenn vom teknir fyrir of hraðan
akstur. Fjarlægja varð tíu ökutæki
vegna þess að þeim hafði verið lagt
ðlöglega.
Þrír ökumenn vora staðnir aö þvi
að aka á mótí rauðu Ijósi og vom
þeir allir kærðir fyrir athæfiö.
Lögreglan tók tvo ölvaða ökumenn
í Reykjavík í gær og þykir það nokk-
uð mikið á þriðjudegi.
•sme